Fréttablaðið - 06.02.2018, Blaðsíða 16
Einn áhrifamesti stjórnandi í bílaiðnaðinum á síðustu öld, Bob Lutz, sagði í viðtali fyrir
skömmu að ráðlegt væri að flýta
sér að kaupa eintak af Tesla Model
S bílnum áður en hann verður að
söfnunarbíl þar sem hann sæi ekki
annað en Tesla væri á lóðréttri leið
á hausinn. Lutz sagði að þar færi
frábær bíll sem slægi við flestum
40 milljóna króna evrópskum
ofurbílum, en vandinn væri sá að
hann væri framleiddur með miklu
meiri tilkostnaði en hann er seldur
á og tap Tesla hlæðist upp. Bob
Lutz minnti einnig á að Tesla ætti í
miklum erfiðleikum við að koma af
stað fjöldaframleiðslu á nýjasta bíl
sínum, Model 3, og sagði að Elon
Musk væri ekki að reka gott bíla-
framleiðslufyrirtæki. Lutz bætti því
við að eftir 25 ár yrði Tesla minnst
sem fyrsta rafmagnsbílaframleið-
andans sem tókst að framleiða fal-
legan og hraðskreiðan rafmagnsbíl
með mikla drægni en saga þess yrði
í fortíðinni. Bob Lutz var yfirmaður
hjá mörgum þekktum bílafyrir-
tækjum á síðustu öld, þar á meðal
Chrysler, BMW, General Motors og
Ford. Hvort Bob Lutz hefur eitthvað
fyrir sér eða ekki verður bara að
koma í ljós en fjárfestar á Wall Street
virðast á öðru máli miðað við hátt
verð á hlutabréfum í Tesla, þrátt
fyrir að Tesla hafi skilað gríðarmiklu
tapi á svo til öllum ársfjórðungum
síðustu ára. „Það verður mikil synd
þegar þeir fara á hausinn.“
Bob Lutz spáir
Tesla gjaldþroti
Metaneldsneyti nýtur síaukinna vinsælda um allan heim og er notað á
allar gerðir ökutækja, allt frá hefð-
bundnum fólksbílum til stærri og
sérhæfðari samgöngutækja á borð
við strætisvagna eða sjúkraflutn-
ingabifreiðar. Mikið framboð er af
metaneldsneyti í heiminum. Bæði
í formi jarðgass í jarðskorpunni
og framleiddu metani úr lífrænu
efni á yfirborði jarðar. Á akstri
metanbíla finnst enginn munur
á því hvort ekið er á jarðgasi eða
framleiddu metani, svokölluðu
nútímametani, enda er orkusam-
eindin í metaneldsneyti sú sama,
CH4. Víða um heim er metan
framleitt í sérstökum verksmiðjum
úr lífrænum úrgangi frá heimilum,
fyrirtækjum, landbúnaði og ann-
arri atvinnustarfsemi.
Íslenskt metaneldsneyti
Sorpa hefur framleitt metan fyrir
ökutæki síðan árið 2000 úr haug-
gasi sem myndast við niðurbrot á
lífrænu efni. Íslenska metanið er í
allra hæsta gæðaflokki með allt að
98% hreinleika. Mikið framboð er
á metani og núverandi framleiðsla
þess á Íslandi nægir til að knýja um
3.500 bifreiðar en einungis 6-8% af
henni eru nýtt. Aðgengi að metani
á Íslandi er gott og unnið er að því
að það verði enn betra. Í dag er
metaneldsneyti afgreitt á fjórum
stöðvum á höfuðborgarsvæðinu og
á einni stöð á Akureyri.
Árið 2018 er stefnt að því að
starfsemi hefjist á fyrstu gas- og
jarðgerðarstöðinni á Íslandi hjá
Sorpu í Álfsnesi. Metanvinnsla
Sorpu mun þá aukast til muna og
heildarframleiðslan frá stöðinni og
urðunarstaðnum duga til að knýja
um 7-8.000 metanbíla. Metan-
möguleikar Íslands er svo miklir
að þeir nægja til að knýja allan
bílaflota landsins.
Umhverfisvænna og ódýrara
Metan er öruggt, skaðlaust við
innöndun og snertingu, ódýrara
en annað eldsneyti og umhverfis-
vænt í samanburði við aðra val-
kosti til vélknúinna samgangna.
Við brennslu metans er losun
útblástursefna töluvert minni en
við brennslu bensíns eða dísilolíu.
Þannig er koltvísýringur 20%
minni í metanbílum en venju-
legum bílum og þar sem metan er
unnið úr hauggasi sem verður til úr
lífrænum úrgangi hefði sá koltví-
sýringur sem myndast hvort eð er
orðið til á urðunarstaðnum. Það
þýðir að heildaraukning koltví-
sýrings í andrúmslofti er engin.
Með því að brenna metaninu
í ökutækjum dregur einnig úr
gróðurhúsaáhrifum þar sem
óbrunnið metangas hefur y fir tutt-
ugufalt meiri áhrif en koltvísýring-
urinn sem verður til við brunann.
Með notkun á íslensku metani í
stað bensíns og dísilolíu er dregið
verulega úr því magni af koldíoxíði
sem ella losnar út í umhverfið. Þeir
bílar sem knúnir eru af metani eru
hannaðir til að valda sem minnst-
um gróðurhúsaáhrifum, þökk sé
notkun á háþróuðustu tækni. Til
dæmis valda þeir áþreifanlega
minni mengun en bílar sem nota
hefðbundið eldsneyti, ekki aðeins
hvað varðar nítrógenoxíð, karbón
mónoxíð og díoxíð og botn-
fallsefni, heldur líka hvað varðar
krabbameinsvaldandi efni á borð
við vetniskol, aldehýð og ilmandi
efni á borð við bensól. Auk þess
að vera umhverfisvænn kostur eru
metanbílar einnig ódýrari í inn-
kaupum og rekstri.
Metanbílar
Metanbíll lítur út eins og venju-
legur bíll og hefur bæði metan- og
bensínvél. Vélin gengur aðallega
fyrir metangasi, en virkni hennar
og aksturssvið eru aukin með
bensíntanki sem er til að mynda 50
lítra hjá metanbílum frá Skoda og
Volkswagen. Þeir geta ekið ýmist
á metani, bensíni eða nýtt báða
orkugjafana sem hefur í för með
sér að hægt er að aka mjög langt á
einni áfyllingu.
Metanbílar eru einnig frábær
kostur fyrir heimilin þar sem þeir
eru tvíorkubílar og geta ekið á
bensíni ef langt er í næstu metan-
stöð. Í dag dugar innihald um
fimm sorphirðubíla til að knýja
fjölskyldubíl á borð við Skoda
Octavia G-Tec í heilt ár, miðað við
meðalakstur. Nú þegar eru allir
sorphirðubílar Reykjavíkurborgar
knúnir metani. Þar sem metan-
bílar eru mjög umhverfisvænir eru
þeir undanskildir vörugjöldum
sem gera þá ansi hagkvæma í inn-
kaupum sem og rekstri.
Metan sem
ökutækjaeldsneyti
Íslenska metanið er í allra hæsta gæðaflokki með allt að 98% hreinleika. Mikið
framboð er á metan og núverandi framleiðsla þess á Íslandi nægir til að knýja
3.500 bíla en einungis 6-8% af henni eru nýtt. Nýtur vinsælda um allan heim.
Á síðasta ári seldi fyrirtækja-samstæða Renault, Nissan og Mitsubishi 10.608.366
bíla, 6,5% fleiri en 2016, og skýrist
aukningin aðallega af vaxandi
eftirspurn eftir jepplingum, litlum
sendibílum og hreinum rafbílum.
Carlos Ghosn, forstjóri og stjórnar-
formaður Renault-Nissan- Mitsub-
ishi, segir að heildarsalan á síðasta
ári hafi skipað fyrirtækinu í fyrsta
sæti á lista söluhæstu bifreiðafram-
leiðendanna á árinu. Samstæðan
samanstendur af tíu bílaframleið-
endum: Renault, Nissan Motor,
Mitsubishi Motors, Dacia, Renault
Samsung Motors, Alpine, Lada,
Infiniti, Venucia og Datsun. Stærsti
markaður samstæðunnar á síðasta
ári var Kína þar sem 1.719.815 bílar
voru seldir. Fast á hæla Kína fylgdu
Bandaríkin með einungis 22.666
færri bíla. Söluhæsti einstaki fram-
leiðandi samstæðunnar var Nissan
Motor sem seldi 5.816.278 bíla. Þá
kom Renault Group með 3.761.634
bíla og þá Mitsubishi Motors með
alls 1.030.454 bíla.
Rafbílar helstu driffjaðrirnar
Helstu driffjaðrir samstæðunnar
eru hreinir rafbílar fyrirtækjanna
þar sem vaxandi eftirspurn er á
öllum helstu mörkuðunum, ekki
síst í Bandaríkjunum, Evrópu og
Asíu og seldust alls 91 þúsund fleiri
rafbílar á síðasta ári en 2016. Alls
hefur samstæðan selt 540.623 raf-
bíla frá því í desember 2010 þegar
Nissan Leaf kom fyrst á markað en
hann er söluhæsti einstaki rafbíll
heims með yfir 300 þúsund selda
bíla. Sala á nýrri kynslóð Leaf er
að hefjast um þessar mundir og
hafa rúmlega 40 þúsund aðilar í
Bandaríkjunum, Evrópu og Japan
lagt inn pöntun á nýja bílnum,
þrettán þúsund í Japan, jafn margir
í Bandaríkjunum og rúmlega 12
þúsund í Evrópu, þar af rúmlega
130 hjá BL, þar sem bíllinn verður
kynntur í apríl.
14 milljóna markið 2022
Samkvæmt áætlun samstæðunnar
til 2022 verða 12 nýir mengunar-
lausir bílar kynntir á tímabilinu og
40 bílgerðir með sjálfakandi tækni.
Gert er ráð fyrir að eftirspurn eftir
slíkum bílum auki heildarsölu
samstæðu Renault, Nissan og Mits-
ubishi verulega og að í árslok 2022
verði heildarsala samstæðunnar
orðin um 14 milljónir bíla á ári.
Renault-Nissan- Mitsubishi hyggst
selja 14 milljónir bíla árið 2022
Mikill spenningur og eftirspurn virðist vera eftir nýrri kynslóð rafmagns-
bílsins Nissan Leaf og streyma
fyrirframpantanir inn frá öllum
heimshornum. Í Bandaríkjunum
eru til að mynda komnar nú þegar
yfir 13.000 pantanir í bílinn og
það verður að teljast há tala í því
ljósi að sala Nissan Leaf í Banda-
ríkjunum var 11.230 bílar í fyrra og
14.006 bílar árið 2016. Í Evrópu eru
líka komnar yfir 10.000 pantanir í
bílinn og samkvæmt upplýsingum
frá BL eru þegar komnar yfir 130
fyrirframpantanir hér á landi. Nýr
Nissan Leaf hefur 350 km drægni
með nýrri 40 kWh rafhlöðu og telst
því með langdrægari rafmagns-
bílum þó hann slái ekki við dýrum
bílum Tesla í þeim efnum. Hafa
verður þó í huga að Nissan Leaf
er um þrisvar sinnum ódýrari bíll
en Tesla Model S og X. Það hefur
vafalaust aukið mjög eftirspurnina
eftir nýjum Leaf nú að hann hefur
tekið stórstígum framförum hvað
útlit varðar og er nú gullfallegur
bíll. Auk þess hefur afl hans aukist
nokkuð og aksturseiginleikar til
mikilla muna. Hann er að auki
mjög vel búinn, en hefur reyndar
verið það frá upphafi. Í næsta bíla-
blaði verður sagt frá reynsluakstri
nýs Nissan Leaf.
Nissan fengið
þrettán þúsund
pantanir í Leaf í
Bandaríkjunum
Metaneldsneyti nýtur síaukinna vinsælda um allan heim og er notað á allar gerðir ökutækja.
Hin nýja kynslóð Nissan Leaf.
Sorpa hefur fram-
leitt metan fyrir
ökutæki síðan árið 2000
úr hauggasi sem myndast
við niðurbrot á lífrænu
efni. Íslenska metanið er í
allra hæsta gæðaflokki
með allt að 98% hrein-
leika.
6 . f E B R ú a R 2 0 1 8 Þ R I Ð J U D a G U R2 B í L a R ∙ f R É T T a B L a Ð I Ð
Bílar
0
6
-0
2
-2
0
1
8
0
4
:2
6
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
E
E
7
-3
7
2
8
1
E
E
7
-3
5
E
C
1
E
E
7
-3
4
B
0
1
E
E
7
-3
3
7
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
B
F
B
0
4
0
s
_
5
_
2
_
2
0
1
8
C
M
Y
K