Fréttablaðið - 06.02.2018, Blaðsíða 32

Fréttablaðið - 06.02.2018, Blaðsíða 32
Ég er bara þakklát fyrir líftóruna en gleymi ekki þessum bláa lit jökulsins sem heillaði mig til sín. SÍÐUSTU DAGAR ÚTSÖLUNNAR H E I L S U R Ú M A R G H !!! 0 40 11 8# 2 KOMDU NÚNA! 20-60% AFSLÁTTUR Skoðaðu litríkt úrval á bros.is Bros auglýsingavörur, Norðlingabraut 14. Bros auglýsingavörur með þínu merki M ER KI Ð M IT T Margbreytileiki skriðjöklanna birtist glöggt á myndlistarsýn-ingu Guðrúnar Benediktu Elías- dóttur sem stendur yfir í Spönginni í Grafarvogi. Litablönduna sem hún notar kallar hún „patine au vin“. „Ég bý til litina mína sjálf eins og Rembrandt gerði, úr víni, eggjum og mjólk,“ segir hún og rekur uppskriftina til bókar sem hún keypti í Suður- Frakklandi þar sem hún bjó um tíma. „Ég ákvað að prófa að vinna með þetta efni og hef ekki tímt að hætta því síðan, því það hentar mér fullkomlega.“ Eftir Frakklandsdvölina flutti Guðrún til Lúxemborgar um tíma, þar segir hún aðferðina enn frekar hafa fest sig í sessi enda hvítvínið ódýrt þar. „Efniviðurinn varð auð- vitað svolítið dýrari eftir að ég flutti heim, en ég nota bara dreggjarnar úr flöskunum,“ segir í hún í gríni. Áður kveðst hún hafa notað akrýl liti en henni finnist þeir daufir eftir að hún fór að vinna með heima- gerðu litina. „Sumt litarefnið er duft sem ég kaupi erlendis, því erfitt er að fá það hér heima, svo fer ég í fjall- göngur og finn fallega liti í grjótinu myl það niður og blanda út í. Svo nota ég líka ösku, allir svartir litir í verkunum mínum eru eldfjallaaska, það er mikið bindiefni í henni svo hún hentar vel. Ég náði mér í fulla fötu af ösku í Eyjafjallajökulsgosinu og hef notað hana síðan.“ Það er því bæði ís og eldur sem koma við sögu myndanna sem til sýnis eru í Spönginni en jöklum kveðst Guðrún hafa kynnst með eftirminnilegum hætti í uppvext- inum. „Ég ólst upp á Hornafirði. Held að pabbi hafi átt fyrsta breytta jeppann á Íslandi og við vorum upp um fjöll og firnindi á honum. Þegar ég var 14 ára festist ég í jökulsprungu, ásamt mömmu. Þetta var á jóladag og fjöl- skyldan skrapp út að Fláajökli, enn eina ferðina. Pabbi og Lárus bróðir vildu fara í íshelli en ég nennti ekki með þeim og við mamma fórum aftur í átt að bílnum. Skammt frá jökuljaðrinum sá ég þennan ævin- týralega bláa lit sem er inni í jökul- sprungum og ég dró mömmu með mér yfir svell og inn í sprungu. Þegar við vorum komnar inn í hana miðja sprakk allt undir fótum okkar og við sukkum niður í ískalt vatn en vorum svo heppnar að vera báðar með skinnlúffur sem frusu fastar við ísvegginn og náðum að halda okkur uppi þannig. Pabbi fékk eitthvert hugboð, æddi ofan af jöklinum og heyrði þá köllin. Ég er bara þakklát fyrir líftóruna en gleymi ekki þess- um bláa lit jökulsins sem heillaði mig til sín.“ Guðrún hefur víða haldið sýning- ar á síðustu árum, meðal annars í Frakklandi, Lúxemborg, Þýska- landi, Belgíu, Englandi, Noregi og Bandaríkjunum. Líka á Ísafirði, Akureyri, Höfn og í Reykjavík. Nú kennir hún myndlist við Mennta- skólann við Sund. Þar segir hún mikinn metnað lagðan í listagrein- ar. „Það fær enginn að útskrifast nema hafa lokið einum áfanga í skapandi greinum og áhuginn er líka mikill,“ segir hún. Sýning Guðrúnar Benediktu í Spönginni stendur til 15. febrúar. Gleymir ekki bláa litnum þegar guðrún benedikta elíasdóttir var fjórtán ára sökk hún í jökulsprungu á jóladag. jökullinn sleppti henni þó og nú málar hún hann með heimagerðum litum og blandar þá með eldfjallaösku. Mikilfengleg náttúran er Guðrúnu Benediktu bæði uppspretta og efniviður listaverka. FréttaBlaðið/SteFán Blámi jökulsprungnanna birtist glöggt á þessari mynd. Gunnþóra Gunnarsdóttir gun@frettabladid.is 6 . f e b r ú a r 2 0 1 8 Þ r I Ð J U D a G U r16 m e n n I n G ∙ f r É T T a b L a Ð I Ð menning 0 6 -0 2 -2 0 1 8 0 4 :2 6 F B 0 4 0 s _ P 0 3 7 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 3 2 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 0 4 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 0 9 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 E E 7 -1 9 8 8 1 E E 7 -1 8 4 C 1 E E 7 -1 7 1 0 1 E E 7 -1 5 D 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 B F B 0 4 0 s _ 5 _ 2 _ 2 0 1 8 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.