Fréttablaðið - 06.02.2018, Side 32
Ég er bara þakklát
fyrir líftóruna en
gleymi ekki þessum bláa lit
jökulsins sem heillaði mig
til sín.
SÍÐUSTU
DAGAR
ÚTSÖLUNNAR
H E I L S U R Ú M
A
R
G
H
!!!
0
40
11
8#
2
KOMDU NÚNA!
20-60% AFSLÁTTUR
Skoðaðu litríkt úrval á bros.is
Bros auglýsingavörur,
Norðlingabraut 14.
Bros auglýsingavörur með þínu merki
M
ER
KI
Ð
M
IT
T
Margbreytileiki skriðjöklanna birtist glöggt á myndlistarsýn-ingu Guðrúnar Benediktu Elías-
dóttur sem stendur yfir í Spönginni
í Grafarvogi.
Litablönduna sem hún notar
kallar hún „patine au vin“. „Ég bý til
litina mína sjálf eins og Rembrandt
gerði, úr víni, eggjum og mjólk,“
segir hún og rekur uppskriftina
til bókar sem hún keypti í Suður-
Frakklandi þar sem hún bjó um
tíma. „Ég ákvað að prófa að vinna
með þetta efni og hef ekki tímt að
hætta því síðan, því það hentar mér
fullkomlega.“
Eftir Frakklandsdvölina flutti
Guðrún til Lúxemborgar um tíma,
þar segir hún aðferðina enn frekar
hafa fest sig í sessi enda hvítvínið
ódýrt þar. „Efniviðurinn varð auð-
vitað svolítið dýrari eftir að ég flutti
heim, en ég nota bara dreggjarnar úr
flöskunum,“ segir í hún í gríni.
Áður kveðst hún hafa notað
akrýl liti en henni finnist þeir daufir
eftir að hún fór að vinna með heima-
gerðu litina. „Sumt litarefnið er duft
sem ég kaupi erlendis, því erfitt er
að fá það hér heima, svo fer ég í fjall-
göngur og finn fallega liti í grjótinu
myl það niður og blanda út í. Svo
nota ég líka ösku, allir svartir litir í
verkunum mínum eru eldfjallaaska,
það er mikið bindiefni í henni svo
hún hentar vel. Ég náði mér í fulla
fötu af ösku í Eyjafjallajökulsgosinu
og hef notað hana síðan.“
Það er því bæði ís og eldur sem
koma við sögu myndanna sem til
sýnis eru í Spönginni en jöklum
kveðst Guðrún hafa kynnst með
eftirminnilegum hætti í uppvext-
inum.
„Ég ólst upp á Hornafirði. Held að
pabbi hafi átt fyrsta breytta jeppann
á Íslandi og við vorum upp um fjöll
og firnindi á honum. Þegar ég var 14
ára festist ég í jökulsprungu, ásamt
mömmu. Þetta var á jóladag og fjöl-
skyldan skrapp út að Fláajökli, enn
eina ferðina. Pabbi og Lárus bróðir
vildu fara í íshelli en ég nennti ekki
með þeim og við mamma fórum
aftur í átt að bílnum. Skammt frá
jökuljaðrinum sá ég þennan ævin-
týralega bláa lit sem er inni í jökul-
sprungum og ég dró mömmu með
mér yfir svell og inn í sprungu. Þegar
við vorum komnar inn í hana miðja
sprakk allt undir fótum okkar og
við sukkum niður í ískalt vatn en
vorum svo heppnar að vera báðar
með skinnlúffur sem frusu fastar við
ísvegginn og náðum að halda okkur
uppi þannig. Pabbi fékk eitthvert
hugboð, æddi ofan af jöklinum og
heyrði þá köllin. Ég er bara þakklát
fyrir líftóruna en gleymi ekki þess-
um bláa lit jökulsins sem heillaði
mig til sín.“
Guðrún hefur víða haldið sýning-
ar á síðustu árum, meðal annars í
Frakklandi, Lúxemborg, Þýska-
landi, Belgíu, Englandi, Noregi og
Bandaríkjunum. Líka á Ísafirði,
Akureyri, Höfn og í Reykjavík. Nú
kennir hún myndlist við Mennta-
skólann við Sund. Þar segir hún
mikinn metnað lagðan í listagrein-
ar. „Það fær enginn að útskrifast
nema hafa lokið einum áfanga í
skapandi greinum og áhuginn er
líka mikill,“ segir hún.
Sýning Guðrúnar Benediktu í
Spönginni stendur til 15. febrúar.
Gleymir ekki
bláa litnum
þegar guðrún benedikta elíasdóttir var
fjórtán ára sökk hún í jökulsprungu á
jóladag. jökullinn sleppti henni þó og nú
málar hún hann með heimagerðum litum
og blandar þá með eldfjallaösku.
Mikilfengleg náttúran er Guðrúnu Benediktu bæði uppspretta og efniviður listaverka. FréttaBlaðið/SteFán
Blámi jökulsprungnanna birtist glöggt á þessari mynd.
Gunnþóra
Gunnarsdóttir
gun@frettabladid.is
6 . f e b r ú a r 2 0 1 8 Þ r I Ð J U D a G U r16 m e n n I n G ∙ f r É T T a b L a Ð I Ð
menning
0
6
-0
2
-2
0
1
8
0
4
:2
6
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
E
E
7
-1
9
8
8
1
E
E
7
-1
8
4
C
1
E
E
7
-1
7
1
0
1
E
E
7
-1
5
D
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
0
4
0
s
_
5
_
2
_
2
0
1
8
C
M
Y
K