Fréttablaðið - 06.02.2018, Side 18
Næsti rafmagnsbíll BMW, iNext, sem sjá mun dags-ljósið árið 2021 á að komast
700 km á fullri hleðslu, en þetta
fullyrtu fulltrúar BMW á nýaf-
staðinni bílasýningu í Detroit í
Bandaríkjunum. Þessi drægni er
meiri en nokkur rafmagnsbíll sem
í boði er nú um stundir nær. Fram-
leiðendur rafhlaða hafa þó sagt að
þeir búi yfir rafhlöðutækni sem nái
þessari drægni. BMW hefur ekki
látið frá sér neinar myndir af fyrir-
huguðum iNext-bíl, enda minnst
þrjú ár í tilkomu hans. Hafa skal
í huga að erfitt getur reynst að ná
þeirri drægni sem uppgefin er af
framleiðendum, ekki síst í köldu
landi eins og Íslandi, og því má
búast við að hinn nýi BMW iNext
muni tæplega komast meira en 500
km, en það dugar létt til að komast
alla leið til Akureyrar og líklega
Húsavíkur, væri sá áfangastaðurinn.
Þegar BMW kynnti iNext-bílinn í
maí síðastliðnum var sagt að hann
myndi hafa drægni hið minnsta um
500 kílómetra, en hún verður meiri.
BMW iNext með
700 km drægni
Yfirhönnuður Land Rover, Gerry McGovern, var í fyrrakvöld heiðraður á
alþjóðlegri hönnunarhátíð bíla-
framleiðenda og hlaut hönnunar-
verðlaunin Grand Prix du Design
sem afhent voru í París. Hann
hlaut verðlaunin fyrir framlag
sitt og áhrif á þróun hins alþjóð-
lega bílaiðnaðar og þá ekki síst
fyrir nýjan Range Rover Velar sem
formaður hátíðarinnar segir að sé
framúrskarandi listaverk.
Velar er „undurfallegt
listaverk“
Verðlaunin voru ákveðin af dóm-
nefnd fulltrúa fimmtán aðila
á sviði bílaiðnaðarins, íþrótta,
arkitektúrs, tísku, hönnunar,
menningarmála og fjölmiðla. Við
afhendinguna sagði Rémi Depoix,
formaður Festival Automobile
International, að Gerry McGovern
hlyti verðlaunin í ár fyrir „hið
undurfallega listaverk sitt, Range
Rover Velar, og í raun fyrir starfs-
feril sinn allan og framlag sitt til
greinarinnar. Eitt helsta afrek hans
er hvernig tekist hefur að yfirfæra
helstu séreinkenni Land Rover yfir
á nýjar og breyttar kynslóðir bíla
fyrirtækisins, sem birtist fyrst með
Range Rover Evoque, og varðveita
þau í senn. Breskur bílaiðnaður
hefur gengið í endurnýjun lífdag-
anna vegna hugsjónar og fram-
tíðarsýnar Gerrys McGovern og á
grundvelli stórkostlegrar arfleifðar
Land Rover sem bílamerkis,“ sagði
Depoix við afhendinguna.
Viðurkenning á mikilvægi
hönnunar
Við móttöku þeirra sagði McGov-
ern að verðlaunin væru viðurkenn-
ing á mikilvægi hönnunar sem
blasi hvarvetna við á öllum sviðum
mannlegs lífs. „Við hjá Land Rover
vinnum þrotlaust að því að hanna
eftirsóttustu bílana á markaðnum,
bílana sem viðskiptavinir okkar
elska að eilífu.“ Range Rover Velar
er fjórða bílgerð Range Rover og
sú sem brúar bilið milli Evoque
og Range Rover Sport. Frá og með
2020 verða allir nýir bílar Jaguar
Land Rover einnig með rafmótor
sem tengiltvinnbílar. Range Rover
og Range Rover Sport eru nú þegar
fáanlegir sem slíkir.
Gerry McGovern
hjá Land Rover er
hönnuður ársins
Hlaut verðlaunin fyrir framlag sitt og áhrif á þróun alþjóð-
legs bílaiðnaðar, ekki síst fyrir nýjan Range Rover Velar.
Hljómburðurinn sem Bose Personal hljómtækin í Nissan Micra búa yfir þykir
svo einstakur að í sameiginlegri les-
endakönnun sem þýsku tímaritin
Auto Bild og Computer Bild létu
gera voru hljómtækin í Micra kosin
þau bestu sem boðin eru í þessum
stærðarflokki bíla. Í Þýskalandi
velja 37% kaupenda Micra Bose
Personal með nýja bílnum. Þetta
eru fyrstu meiriháttar verðlaunin
fyrir Bose í Micra en lesendur tíma-
ritanna veittu því hæstu einkunn
fyrir framúrskarandi hljómgæði
og tengimöguleika. Kerfið er m.a.
búið sex hátölurum, þar af tveimur
Ultra-Nearfield™ hátölurum í
höfuðpúða ökumanns. Það er einn-
ig tengt afþreyingarkerfinu Nissan
Connect sem hægt er að samþætta
snjallsímum.
Mikil viðurkenning
Helen Perry, framkvæmdastjóri
smábílaframleiðslu Nissan í Evr-
ópu, segir að í fáum löndum eigi sér
stað jafn gróskumikið frumkvöðla-
starf í bílaiðnaði og í Þýskalandi
þar sem atvinnugreinin sé auk þess
einna þróuðust í heiminum. Hún
segir að því séu þessi verðlaun sem
Nissan hljóti fyrir Bose í Micra ein-
staklega mikils virði og mikilvæg
viðurkenning fyrir þá miklu vinnu
sem hönnuðir Bose og Nissan lögðu
í þróun hljómflutningskerfisins
fyrir nýjan Micra.
Gott „sánd“ í
Nissan Micra
Gerry McGovern, hönnuður ársins, tekur á móti verðlaunum sínum.
Ég bara gekk frá þessu í gegnum símann áður en ég fór á staðinn að sækja bílinn. Það gekk nú
eiginlega fáránlega snurðulaust
fyrir sig,“ segir Hannes Hauksson
sem varð fyrstur til að ganga frá fjár-
mögnun á bílakaupum með nýrri
tegund rafrænna bílasamninga sem
eru hluti af verkefni Arion banka,
Stafrænni framtíð. „Ég átti nú ekki
endilega von á því að þetta yrði
svona einfalt. Ég var búinn að heyra
að þetta væri glænýr möguleiki, sem
ég yrði fyrstur til að nota, en það
er ekki alltaf þannig að hlutirnir
virki þegar á hólminn er komið þó
sérfræðingarnir séu búnir að prófa
þá áður,“ segir Hannes og hlær,
en hann fékk á föstudag afhentan
glænýjan Hyundai Tucson. „Þar að
auki er ég langt frá því að vera mikill
app- eða tækninörd. Þetta ferli er
hins vegar alveg aulahelt. Ef maður
er með rafræn auðkenni er þetta
beint af augum. Getur ekki verið
einfaldara.“
Var ekki einu sinni
á staðnum
Það var Benedikt Emilsson, löggiltur
bílasali hjá Hyundai á Íslandi, sem
var Hannesi innan handar. „Þetta
er mikil bylting fyrir okkur, engin
spurning um það. Í þessu tilviki
var viðskiptavinurinn ekki einu
sinni á staðnum þegar við gengum
frá fjármögnuninni,“ segir Bene-
dikt og bætir við: „Þetta mun gera
vinnu okkar bílasala miklu þægi-
legri. Að geta fengið svar á örfáum
mínútum er ótrúlega mikil breyting
og svo er þessi kostur opinn allan
sólarhringinn alla daga vikunnar.
Áður var ekki hægt að fá svar um
samþykkt fjármögnunar eftir
klukkan 16 og um helgar ekki fyrr
en næsta virka dag.“ Benedikt segir
að ferlið sé afar einfalt. Þegar við-
skiptavinurinn hefur fundið rétta
bílinn fær hann send í símann sinn
skilaboð, sem hann samþykkir með
rafrænum auðkennum, og fer svo
í gegnum nokkur þrep til að klára
fjármögnunina. Þetta ferli er 100
prósent rafrænt og pappírslaust þar
sem undirritað er með rafrænum
skilríkjum. Ef þörf er á greiðslu-
mati vegna umsóknarinnar er það
innbyggt í kerfið og lokið á aðeins
þremur mínútum gjaldfrjálst.
Lengi markmið að einfalda
bílafjármögnun
Sævar Bjarnason, forstöðumaður
bíla- og tækjafjármögnunar Arion
banka, segir að það hafi lengi verið
markmið Arion banka að finna
leið til að einfalda aðkomu við-
skiptavina að bílafjármögnun hjá
samstarfsaðilum bankans, sem eru
bílaumboð og bílasalar notaðra
bíla. „Við teljum okkur vera búin
að finna þá leið með þessari tegund
rafrænna bílasamninga og erum
mjög ánægð með útkomuna,“ segir
Sævar.
Rafrænir samningar
auðvelda kaupin
Frá afhendingu fyrsta bílsins sem var seldur með rafrænum bílasamningi.
EXPLORE WITHOUT LIMITS
®
ARCTIC TRUCKS ÍSLAND EHF.
KLETTHÁLSI 3
110 REYKJAVÍK
SÍMI: 540 4900
NETFANG: info@arctictrucks.is
www.arctictrucks.is
JEPPADEKK
fyrir íslenskar aðstæður
6 . f e B R ú a R 2 0 1 8 Þ R I Ð J U D a G U R4 B í l a R ∙ f R É T T a B l a Ð I Ð
Bílar
0
6
-0
2
-2
0
1
8
0
4
:2
6
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
E
E
7
-3
2
3
8
1
E
E
7
-3
0
F
C
1
E
E
7
-2
F
C
0
1
E
E
7
-2
E
8
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
A
F
B
0
4
0
s
_
5
_
2
_
2
0
1
8
C
M
Y
K