Fréttablaðið - 06.02.2018, Side 40
Dreifing dreifing@postdreifing.is
Ef blaðið berst ekki 800 1177
Við segjum fréttir Smáauglýsingasíminn og skiptiborð 512 5000 Vísir
Ritstjórn 512 5200 Fax: 512 5301 ritstjorn@frettabladid.is Auglýsingadeild auglysingar@frettabladid.is Prentun Ísafoldarprentsmiðja
mest lesna dagblað landsins.
ÞÚ GETUR NÁLGAST FRÍTT EINTAK AF
FRÉTTABLAÐINU VÍÐSVEGAR UM LANDIÐ.
Óskir þú eftir því að fá blaðið í áskrift, hafðu samband við Póstdreifingu.
Opið allan
sólarhringinn
í öllum verslunum
Vínbúð ríkisins hlaut nýverið enn eitt árið hæstu einkunn í sínum flokki í Íslensku
ánægjuvoginni. Könnunin sýnir
glöggt fram á trygglyndi viðskipta-
vina verslunarinnar sem ætti þó
vart að koma á óvart í ljósi einokun-
arstöðu hennar á áfengismarkaði.
Það er því einkar hjákátlegt að horfa
upp á stjórnendur Vínbúðarinnar
stæra sig af árangrinum með viða-
mikilli auglýsingaherferð í blöðum.
Ég kann að hljóma eins og hinn
versti nöldurseggur en mér finnst
með öllu fráleitt að fjármunum
mínum sem skattborgara sé eytt
í slíkar montauglýsingar. Og mér
þykir raunar enn fráleitara að
einokunarversluninni sé yfir höfuð
heimilt að auglýsa á sama tíma og
aðrir eiga yfir höfði sér fangelsis-
dóm fyrir að gera nákvæmlega það
sama.
Það er nefnilega refsivert sam-
kvæmt áfengislögum að auglýsa
áfengi hér á landi. Engu að síður
auglýsir vínbúð ríkisins af miklum
móð verslanir sínar og vörur og
stendur fyrir umsvifamikilli útgáfu-
starfsemi eins og ekkert sé eðlilegra.
Það sama gildir um ríkisverslunina
í Leifsstöð sem auglýsir áfengi kyrfi-
lega um alla flugstöðina þannig að
eftir er tekið. Tvískinnungurinn er
æpandi.
En hann sýnir okkur einnig hve
meingallað bannið við áfengisaug-
lýsingum er. Alls staðar flæða slíkar
auglýsingar í gegnum miðla sem
úrelt löggjöfin nær ekki til. Aug-
lýsingar um áfenga drykki birtast í
erlendum blöðum sem Íslendingar
lesa, á íþróttaleikvöngum sem sjón-
varpað er frá hér á landi, erlendum
vefsíðum, samfélagsmiðlum og svo
mætti áfram telja.
Í stað þess að reyna að stoppa
í götin á gölluðu banni, eins og
mörgum er tíðrætt um, væri stjórn-
völdum nær að hætta þessum
tvískinnungi og heimila í eitt skipti
fyrir öll áfengisauglýsingar.
Ríkishræsnin
Kristins Inga
Jónssonar
BAkþAnkAR
Sími: 561 1433
www.bjornsbakari.is
MUNDU EFTIR GÖMLU GÓÐU
AFMÆLISKRINGLUNNI
- fyrir 25-30 manns
PREN
TU
N
.IS
0
6
-0
2
-2
0
1
8
0
4
:2
6
F
B
0
4
0
s
_
P
0
4
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
E
E
7
-0
0
D
8
1
E
E
6
-F
F
9
C
1
E
E
6
-F
E
6
0
1
E
E
6
-F
D
2
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
0
4
0
s
_
5
_
2
_
2
0
1
8
C
M
Y
K