Fréttablaðið - 20.02.2018, Page 12
Golf Valdís Þóra Jónsdóttir, kylfing-
ur úr GL, lauk leik í 57. sæti á LPGA-
mótaröðinni í Adelaide í Ástralíu
um helgina og fékk að launum um
3.600 dollara, rúmlega 360 þúsund
íslenskar krónur.
Þetta var í fyrsta sinn sem Val-
dís kemst í gegnum niðurskurðinn
á þessari sterkustu mótaröð heims
í aðeins annarri tilraun. Valdís lék
lengst af frábært golf um helgina,
fékk sautján fugla og einn örn en
sjö skrambar og níu skollar skiluðu
henni 57. sæti á fjórum höggum yfir
pari.
Þegar náðist í Valdísi var hún
komin til Bonville í Ástralíu þar
sem hún hefur leik á fimmtudaginn
á LET-mótaröðinni, sterkustu móta-
röð Evrópu, en hún leikur næstu
tvær helgar í Ástralíu. Heilt yfir
var hún nokkuð ánægð með spila-
mennskuna um helgina.
Sló mörg frábær högg
„Það var flott að komast í gegnum
niðurskurðinn og flott að sjá hvað
leikur minn er heilt yfir á góðum
stað. Ég var að slá mörg frábær högg
og ég reyni að einblína á það eftir
mótið, ég hef tekið miklum fram-
förum í vetur og það var gaman að
sjá það skila sér um helgina. Ég sá
um helgina hvað ég á mikla mögu-
leika í framhaldinu á þessu og finnst
eins og ég eigi fullt erindi í þessa
mótaröð.“
Valdís komst inn á mótið seint á
þriðjudaginn í gegn um úrtökumót
en fyrir vikið var undirbúningurinn
fyrir mótið annar en vanalega.
Tók engan æfingahring
„Ég náði ekki einu sinni að spila
æfingarhring, ég kemst inn á mótið
seint á þriðjudaginn og fæ bara að
Finnst ég eiga fullt
erindi á LPGA-mótin
Atvinnukylfingurinn Valdís Þóra Jónsdóttir komst í fyrsta sinn í gegnum niður-
skurðinn á sterkustu mótaröð í heimi um helgina. Hún fékk eftirminnilegan örn
á mótinu en veðrið í Adelaide í Ástralíu gerði henni erfitt fyrir á köflum.
Valdís Þóra Jónsdóttir hefur nú leikið á tveimur mótum á LPGA-mótaröðinni. Mynd/GSÍ/SeTh
Ég náði að setja
boltann niður af um
132 metra færi með áttu-
járni, ég sá hann að vísu ekki
fara niður en ég vissi að þetta
var frábært högg þegar ég
labbaði að teignum.
Valdís Þóra Jónsdóttir
Næstu tvö mót sem
Valdís Þóra keppir á fara
einnig fram í Ástralíu. Fimm
fyrstu mót hennar á tíma-
bilinu fara fram í Ástralíu.
17
fugla fékk Valdís Þóra á mót-
inu í Adelaide, jafn marga
og Hyejin Choi sem endaði í
2. sæti.
– Tengir þig við framtíðina!
Sjónvarpsdreifikerfi
fyrir hótel, gistiheimili og skip.
Auðbrekku 3 • Kópavogur • s. 564 1660
oreind@oreind.is • www.oreind.is
Bíldshöfða 16, 110 Reykjavík 414 84 00 www.martex.is
Bíldshöfða 16, 110 Reykjavík 414 84 00 www.martex.is
Góð þjónusta
byrjar með
flottu útliti. Fatnaður fyrir fagfólk
Járn & Gler hf. • Skútuvogur 1h. Barkarvogsmegin
104 Reykjavík • S. 58 58 900 • www.jarngler.is
Bjóðum upp á sjálfvirkan
hurðaopnunarbúnað,
hringhurðir, hurðir og
gluggakerfi ásamt
uppsetningu og viðhaldi
á búnaði.
Áratuga reynsla.
Fréttablaðið eykur þjónustu sína.
labba völlinn fyrir utan reipin á
miðvikudaginn. Á fyrsta degi móts-
ins var ég að spila völlinn í fyrsta
sinn en það kom ekki að sök. Það
eina sem fór úrskeiðis voru þessir
skrambar sem komu oft upp úr
þurru þegar ég klikkaði í kylfuvali
eða mati á vindinum,“ sagði Valdís
sem reyndi að vera fljót að gleyma
því.
„Ég er ekkert að hanga á því, ég
ræð því ekki hvenær þessi slæmu
högg koma en þau komu oftar á
kafla en ég bjóst við en ég einblíndi
bara á góðu höggin. Ég fékk sautján
fugla, einn örn og fékk færi til að
sækja fleiri fugla ef allt hefði dottið.
Ég er bara ánægð hvað ég var að
koma mér í mörg góð færi á fuglum.“
Örninn náðist ekki á myndband
Valdís fékk einn örn á mótinu er
hún setti niður högg af 132 metra
færi.
„Ég náði að setja boltann niður af
um 132 metra færi með áttujárni, ég
sá hann að vísu ekki fara niður en
ég vissi að þetta var frábært högg
þegar ég labbaði að teignum. Ég var
komin með pútterinn í höndina
en fann ekki boltann á flötinni, þá
sagði áhorfandi mér að hann hefði
farið niður. Það segir sitt um hversu
vel ég var að slá á mótinu að seinna
á hringnum átti ég svipað högg sem
var hársbreidd frá því að fara niður,
svipuð lengd og sama kylfa,“ sagði
Valdís og bætti við að þetta hefði
verið það snemma dags að mynda-
tökumennirnir hefðu ekki enn verið
komnir út á völl.
Áfram í Ástralíu
Fram undan hjá Valdísi eru tvö
mót á austurströnd Ástralíu en hún
segist einblína á LET-mótaröðina á
næstunni þótt hún muni hafa auga-
stað á úrtökumótum fyrir LPGA-
mótaröðina.
„Auðvitað er markmiðið að taka
þátt í fleiri LPGA-mótum á þessu
tímabili en ég verð bara að sjá hvaða
tækifæri koma upp á borðið og hvað
mér býðst. Þar til er einbeitingin á
LET-mótaröðinni og næsta móti
sem hefst á fimmtudaginn, ég á
æfingarhring eldsnemma í fyrra-
málið hérna í Bonville,“ sagði Valdís
að lokum. kristinnpall@frettabladid.is
2 0 . f e b r ú a r 2 0 1 8 Þ r I Ð J U D a G U r12 S p o r t ∙ f r É t t a b l a Ð I Ð
sport
2
0
-0
2
-2
0
1
8
0
4
:4
2
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
F
0
1
-6
5
D
0
1
F
0
1
-6
4
9
4
1
F
0
1
-6
3
5
8
1
F
0
1
-6
2
1
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
B
F
B
0
4
0
s
_
1
9
_
2
_
2
0
1
8
C
M
Y
K