Fréttablaðið - 20.02.2018, Qupperneq 40
Dreifing dreifing@postdreifing.is
Ef blaðið berst ekki 800 1177
Við segjum fréttir Smáauglýsingasíminn og skiptiborð 512 5800
Ritstjórn 512 5801 ritstjorn@frettabladid.is Auglýsingadeild 512 5401 auglysingar@frettabladid.is Prentun Ísafoldarprentsmiðja
mest lesna dagblað landsins.
ÞÚ GETUR NÁLGAST FRÍTT EINTAK AF
FRÉTTABLAÐINU VÍÐSVEGAR UM LANDIÐ.
Óskir þú eftir því að fá blaðið í áskrift, hafðu samband við Póstdreifingu.
Hauks Arnar
Birgissonar
BAkþAnkAR
Einn stjórnmálaflokkur gefur sig út fyrir að vera lýðræðislegri en aðrir og ástunda vandaðri
vinnubrögð en gengur og gerist í
íslenskri pólitík. Það er flokkur Pírata.
Flokkurinn gerir ríkar kröfur – í það
minnsta til annarra – og útilokar
gjarnan samstarf við þá sem ekki upp-
fylla þessar kröfur. Þetta, ásamt öðru,
hefur valdið nokkrum vandræðagangi
við myndun ríkisstjórna á Íslandi
undanfarin ár, enda gerir íslenskt lýð-
ræðisfyrirkomulag beinlínis ráð fyrir
því að ólíkir stjórnmálaflokkar vinni
saman.
Nú hefur fulltrúi Pírata í borgar-
stjórn gengið skrefinu lengra. Í tilefni
af algjöru smámáli um setu Eyþórs
Arnalds á fundi borgarstjóra með
þingmönnum hefur Halldór Auðar
Svansson borgarfulltrúi gert skriflega
kröfu um að forsætisráðherra lands-
ins tjái sig opinberlega um málið og að
utanríkisráðherrann biðjist afsök-
unar á framferði sínu á fundinum.
Verði ráðherrarnir tveir ekki við
kröfum borgarfulltrúans mun hann
ekki mæta á fleiri fundi með fulltrúum
ríkisstjórnarinnar, Vinstri-grænum,
Sjálfstæðisflokki og Framsóknar-
flokki. Það munar ekki um það. Aðal-
ritari Sameinuðu þjóðanna má prísa
sig sælan að hafa sloppið við afarkosti
borgarfulltrúans.
Svona dramatískar yfirlýsingar
af litlu tilefni hljóta á endanum að
einangra þá stjórnmálamenn sem þær
gefa og vekja spurningar um hvort
fólkið sem svona starfar geti nokkuð
gengið að því vísu að aðrir vilji starfa
með þeim sjálfum. Búmerangið
kemur að lokum í hnakkann á þeim.
Það er einkenni frjáls og opins lýð-
ræðisþjóðfélags að þar takast menn
á og eru ósammála um markmið,
leiðir og vinnubrögð. Sá sem sífellt
hneykslast eða móðgast og lætur
ágreininginn ekki aðeins koma í veg
fyrir samstarf heldur einnig samtal,
vinnur lýðræðinu ekki gagn heldur
ógagn.
Stormar í
vatnsglösum
Opið allan
sólarhringinn
í öllum verslunum
2
0
-0
2
-2
0
1
8
0
4
:4
2
F
B
0
4
0
s
_
P
0
4
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
F
0
1
-5
7
0
0
1
F
0
1
-5
5
C
4
1
F
0
1
-5
4
8
8
1
F
0
1
-5
3
4
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
0
4
0
s
_
1
9
_
2
_
2
0
1
8
C
M
Y
K