Fréttablaðið - 24.02.2018, Side 8
Það er ófremdar-
ástand í löggæslu-
málum hér á landi.
Þorsteinn
Sæmundsson,
þingmaður
Miðflokksins
Þessi staða sem upp
er komin er í einu
orði sagt grafalvarleg.
Snorri Magnússon,
formaður Lands-
sambands lög-
reglumanna
AUGLÝSING
um sveitarstjórnarkosningar 2018.
Á grundvelli 1. mgr. 1. gr. laga um kosningar til sveitarstjórna
nr. 5/1998, með síðari breytingum, fara almennar
sveitarstjórnarkosningar fram 26. maí 2018.
Frestur til að skila framboðslistum til yfirkjörstjórnar í
viðkomandi sveitarfélagi er til kl. 12 á hádegi laugardaginn
5. maí 2018. Sveitarstjórnarmenn sem hyggjast skorast undan
endurkjöri skulu tilkynna þá ákvörðun til yfirkjörstjórnar
fyrir lok framboðsfrests.
Utankjörfundaratkvæðagreiðsla getur hafist 31. mars 2018.
Þetta auglýsist hér með samkvæmt 2. mgr. 1. gr. framangreindra laga.
Dómsmálaráðuneytinu, 21. febrúar 2018.
Orkustofnun - Grensásvegi 9 - 108 Reykjavík - Sími 569-6000 - www.os.is
Eru deilibílar
hluti af framtíðinni
í samgöngum?
Kynning á fyrirbærinu „DEILIBÍLL“ á Orkustofnun,
mánudaginn 26. febrúar kl. 11:45-13:00.
Fyrsta erindi ársins í fyrirlestraröð Orkustofnunar
og Grænu orkunnar um orkuskipti.
Árni Sigurjónsson hjá Zipcar heldur fyrirlestur
á vegum Orkustofnunar, í samstarfi við Grænu
orkuna - samstarfsvettvang um orkuskipti.
Skráning hjá os.is
Nánari upplýsingar er
að finna á heimasíðu VM, www.vm.is,
þar sem nálgast má umsóknareyðublöð
og nánari upplýsingar.
Sjóðurinn veitir
tvennskonar styrki
n Til rannsóknarverkefna sem tengjast vinnuumhverfi
eða aðbúnaði félagsmanna VM og þróun námsefnis og
kennsluaðferða til menntunar þeirra.
n Til ýmiss konar brautryðjenda- og þróunarstarfs sem
hefur samfélagslegt gildi, menningarstarfsemi eða listsköpunar.
n Einstaklingar, fyrirtæki, rannsókna- og menntastofnanir
geta sótt um styrk úr sjóðnum.
Umsóknir berist Akki, Styrktar- og menningarsjóði VM,
eigi síðar en 26. mars 2018.
VM-Félag vélstjóra og málmtæknimanna - Stórhöfða 25 - 110 Reykjavík - 575 9800
Landsfélag í vél- og málmtækni
StjórnSýSla Snorri Magnússon,
formaður Landssambands lögreglu-
manna, segir þá stöðu sem upp er
komin varðandi skort á faglærðum
lögreglumönnum og þá staðreynd
að ófaglærðir lögreglumenn geti
lent í því að vera einir á vakt í dreif-
býli alvarlega. Því skipti miklu máli
að bæta stöðuna og fjölga mennt-
uðum lögreglumönnum í starfi.
„Þessi staða sem upp er komin
er í einu orði sagt grafalvarleg,“
segir Snorri. „En þetta er hins vegar
staða sem var viðbúið að kæmi upp
þegar ákvörðun var tekin um að
hefja háskólanám í lögreglufræðum
við Háskólann á Akureyri og leggja
niður lögregluskólann um leið. Þá
myndast gat í útskrift menntaðra
lögreglumanna.“
Fréttablaðið greindi frá því í gær
að líklegt þykir að ómenntaðir
lögreglumenn verði einsamlir við
skyldustörf á þjóðvegum landsins
í sumar vegna fjárskorts lögreglu-
embætta. Þeir lögreglumenn hafa
ekki leyfi til að aka forgangsakstur
sem eykur enn á viðbragðstíma lög-
reglunnar í dreifbýli.
Þorsteinn Sæmundsson, þing-
maður Miðflokksins, ræddi stöðu
lögreglunnar á þingi í vikunni við
dómsmálaráðherra. Hann segir
fækkun í lögregluliðinu gera lítið
annað en minnka þá þjónustu sem
landsmenn fá. „Til að mynda hefur
ekki verið lögreglumaður á vakt í
Dalasýslu. Þegar eitthvað gerist þar
þarf lögreglumaður að koma annars
staðar að. Það er ófremdarástand
í löggæslumálum hér á landi og
sveltistefnan hefur varað nógu lengi.
Nú er mál að linni. Verið er að gefa
vogunarsjóðum banka á lítinn pen-
ing og því er greinilegt að nóg er til
í kassanum til að veita inn í mála-
flokkinn,“ segir Þorsteinn.
Í síðustu fjárlagagerð var fjögur
hundruð milljónum króna varið
aukalega í lögregluna frá því sem
var árið áður. Hins vegar var það
mat Ríkislögreglustjóra að nauðsyn-
legt hefði verið að bæta við þremur
milljörðum króna vegna fjölgunar
ferðamanna, aukinnar umferðar á
vegum úti og til að vega upp á móti
þeirri fækkun sem orðið hefur í lög-
regluliðinu síðustu ár. Álag á lög-
reglumenn í störfum hefur aukist
mikið hin síðari ár sem birtist í
auknum langtímaveikindum lög-
reglumanna og auknu brottfalli
menntaðra lögreglumanna úr stétt-
inni. sveinn@frettabladid.is
Vilja fjölga menntuðum
lögreglumönnum á vakt
Formaður Landssambands lögreglumanna segir það ótækt að ómenntaðir lög-
reglumenn starfi einir við skyldustörf. Útlit er fyrir að það verði staðan í sumar.
Þingmaður Miðflokksins segir sveltistefnu hafa ríkt í löggæslumálum.
Skortur er á menntuðum lögreglumönnum til starfa. Þingmaður segir ófremdarástand ríkja. Fréttablaðið/Pjetur
UmhverfiSmál Forsvarsmenn fisk-
eldisfyrirtækisins Arnarlax viður-
kenna að það hafi verið mistök að
tilkynna Umhverfisstofnun ekki um
tvö óhöpp sem urðu á búnaði fyrir-
tækisins í síðustu viku. Þeir segjast
munu sjá til þess að það verði gert
í framtíðinni.
„Í framtíðinni munum við til-
kynna öllum þremur stofnununum,
Matvælastofnun, Umhverfisstofnun
og Fiskistofu, bara til að vera alveg
viss. Í þessu tilfelli mátum við það
svo að við þyrftum ekki að tilkynna
þetta til Umhverfisstofnunar. Það
voru mistök, við báðumst afsök-
unar á því og munum gera það hér
eftir,“ segir Víkingur Gunnarsson,
framkvæmdastjóri Arnarlax.
Annað málið sem um er að ræða
snýst um að 53.110 eldislaxar hafi
drepist þegar reynt var að flytja
laxinn úr sjókví í Tálknafirði sem
hafði bilað og yfir í bát fyrirtækis-
ins. Hins vegar kom gat á sjókví
fyrirtækisins í Arnarfirði um svipað
leyti.
Eftirlit með fiskeldi hefur verið
gagnrýnt að undanförnu í kjölfar
þessara tveggja óhappa hjá Arnar-
laxi. Matvælastofnun hefur enn
ekki, 11 dögum eftir að óhöppin
voru tilkynnt, farið á staðinn og
tekið út búnaðinn.
Kristian Matthíasson, forstjóri
Arnarlax, er ekki á því að eftirliti sé
ábótavant varðandi fiskeldi hér á
landi. Þvert á móti hafi það batnað
mikið undanfarin tvö ár. – aig
Lofa að tilkynna óhöppin framvegis
Víkingur Gunnarsson, framkvæmdastjóri arnarlax. Fréttablaðið/anton
2 4 . f e b r ú a r 2 0 1 8 l a U G a r D a G U r8 f r é t t i r ∙ f r é t t a b l a ð i ð
2
4
-0
2
-2
0
1
8
0
4
:3
5
F
B
1
1
2
s
_
P
1
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
1
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
0
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
0
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
F
0
D
-3
1
1
8
1
F
0
D
-2
F
D
C
1
F
0
D
-2
E
A
0
1
F
0
D
-2
D
6
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
B
F
B
1
1
2
s
_
2
3
_
2
_
2
0
1
8
C
M
Y
K