Fréttablaðið - 24.02.2018, Blaðsíða 86
2 4 . f e b r ú a r 2 0 1 8 L a U G a r D a G U r42 t í m a m ó t ∙ f r É t t a b L a ð i ð
tímamót
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar ,
tengdamóðir, amma og langamma,
Kristín Jónsdóttir
frá Guðnabæ, Hagaflöt 11, Akranesi,
lést á hjúkrunar- og dvalarheimilinu
Höfða föstudaginn 16. febrúar. Útförin
fer fram frá Akraneskirkju þriðjudaginn
27. febrúar kl. 13.00.
Allan H. Sveinbjörnsson
Jón H. Allansson Heiðrún Janusdóttir
Sesselja L. Allansdóttir Sigurbjörn Hafsteinsson
Sigurrós Allansdóttir Steindór Óli Ólason
Sveinbjörn Allansson Lísbet Einarsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi,
sonur og fyrrverandi eiginmaður,
Kristinn Sveinbjörnsson
byggingafræðingur, Kringlunni 87,
lést á Landspítalanum Grensási
þriðjudaginn 20. febrúar sl.
Jarðarför verður auglýst síðar.
Valgerður Bjarnadóttir
Helga Kristinsdóttir Berglind Kristinsdóttir,
Elínóra Kristinsdóttir Herdís Kristinsdóttir
Bjarni Kristinsson
Helga Kristinsdóttir eldri
tengdabörn og barnabörn.
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
Valdís Valgeirsdóttir
Suðurgötu 4a, Keflavík,
lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja,
mánudaginn 19. febrúar.
Útförin fer fram frá Keflavíkurkirkju,
fimmtudaginn 1. mars kl. 13.00.
Vilhelm Sigmarsson
Kristjana Vilhelmsdóttir Anton Kristinsson
Sigmar Valgeir Vilhelmsson
Bergþóra Vilhelmsdóttir Baldvin Gunnarsson
Sigrún Vilhelmsdóttir Georg Georgsson
barnabörn og barnabarnabörn.
FALLEGIR LEGSTEINAR
Í FEBRÚAR
af öllum legsteinum
Auðbrekku 4, 200 Kópavogi, sími: 537-1029, www.bergsteinar.is
Afsláttur
Flatahraun 5a • www.utfararstofa.is • Símar: 565 5892 & 896 8242
ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR
ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS
Auðbrekku 1, Kópavogi síðan 1996
ALÚÐ • VIRÐING • TRAUST • REYNSLA
Símar allan sólarhringinn: 581 3300 & 896 8242 • www.utforin.is
Komum heim til aðstandenda og ræðum skipulag útfarar ef óskað er.
Margrét Ásta GuðjónsdóttirSverrir EinarssonKristín Ingólfsdóttir
Við önnumst alla þætti undirbúnings og fram-
kvæmd útfarar ásamt vinnu við dánarbússkiptin.
Við þjónum með virðingu og umhyggju að
leiðarljósi og af faglegum metnaði.
Matthildur Bjarnadóttir,
umsjón útfara
Við erum til staðar
þegar þú þarft á
okkur að halda
Útfararþjónusta
& lögfræðiþjónusta
Vesturhlíð 2 Fossvogi | Sími 551 1266 | útför.is
Með kærleik og virðingu
Útfararstofa Kirkjugarðanna
Innilegustu þakkir fyrir auðsýnda samúð
og hlýhug vegna fráfalls ástkærrar
eiginkonu minnar, móður
okkar, tengdamóður og ömmu,
Jósefínu Guðrúnar
Gísladóttur
Seljalandsvegi 20, Ísafirði.
Sérstakar þakkir fyrir alúð og umhyggju fær starfsfólk
Heilbrigðisstofnunar Vestfjarða.
Úlfar Snæfjörð Ágústsson
Gísli Elís Úlfarsson Ingibjörg Sólveig
Guðmundsdóttir
Úlfur Þór Úlfarsson Anna Sigríður Ólafsdóttir
Axel Guðni Úlfarsson Thelma Hinriksdóttir
barnabörn.
Ástkær móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
Bára Jacobsen
áður til heimilis að Árskógum 6,
lést á hjúkrunarheimilinu Eir
miðvikudaginn 7. febrúar. Útförin fer
fram frá Seljakirkju mánudaginn
26. febrúar kl. 13.00.
Soffía Jacobsen Ásvaldur J. Marísson
Egill J. Jacobsen Jóhanna S. Guðjónsdóttir
Auður Jacobsen Hjörtur Aðalsteinsson
Hilmar Jacobsen Elísabet Gestsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Eva Kristín Dal, verkefnastjóri í Þjóðminjasafninu, er að stilla upp viðhafnarreiðverum í Bogasalnum því sýning á þeim verður opnuð í dag klukkan 14.
Hvernig datt henni þetta í hug? „Það er
nú hún Lilja Árnadóttir sem er sýningar
höfundur en í safnkosti Þjóðminjasafns
ins er mikið af fallegum reiðtygjum varð
veitt og það er gaman að leyfa gestum að
njóta þess að skoða þau.“
Þarna er úrval skreyttra söðla, söðul
ábreiða, mynstraðra reiða og ýmissa
fylgihluta þessa forna búnaðar. Í sumum
tilfellum er nafn fyrsta eiganda eða upp
hafsstafir grafið í söðulinn eða saumað í
söðuláklæðið. „Það var mikið lagt í þessi
reiðtygi,“ segi Eva Kristín með aðdáun
og bendir á ótrúlegar myndir sem koma
fyrir í málmskreytingum, blómstrandi
jurtir, framandi dýr og furðuskepnur,
svo og mótív úr Biblíunni eins og Eva og
höggormurinn. „Mynstrin hljóta að hafa
borist hingað til lands að utan en smíðin
er íslensk,“ segir hún.
Reiðfæri bæði karla og kvenna hétu
söðlar áður fyrr, að sögn Evu Kristínar.
„Karlasöðlarnir voru þannig að menn
sátu klofvega í þeim, eins og hnökkum,
en orðið hnakkur kom ekki inn í málið
fyrr en á 19. öld. Kvensöðlarnir skiptast
í tvær gerðir, hellusöðla og klakksöðla. Í
hellusöðlunum sátu konur þannig að þær
sneru nánast alveg út á hlið. Þeir voru í
notkun fram á 19. öld, þá tóku klakk
söðlarnir við, líka kallaðir enskir söðlar.
Í þeim situr reiðkonan þannig að hún
snýr skáhallt fram á við og það er þægi
legra. Við fengum reiðkonu til að ríða í
klakksöðli fyrir okkur. Hún sagði að það
þyrfti við það ákveðið lag. Dálítið reyndi
á miðjuna og mikilvægt væri að vera á
þýðum hesti.“
En höfðu konur söðuláklæðin yfir sér
eða sátu þær á þeim? „Áklæðin voru lögð
yfir hellusöðulinn og sveifina, svo vöfðu
konur þeim um fætur sér. Þau voru þann
ig bæði til hlífðar og skrauts,“ svarar Eva
Kristín.
Í tengslum við sýninguna kemur út
samnefnd bók, Prýðileg reiðtygi, þar
sem skrifað er um söðla og söðuláklæði
og margar myndir birtar. Höfundar eru
Ingunn Jónsdóttir, Ragnheiður Björk
Þórsdóttir og Sigríður Sigurðardóttir og
ritstjóri er Anna Lísa Rúnarsdóttir.
gun@frettabladid.is
Reiðver efnafólks voru prýði
Sýningin Prýðileg reiðtygi sem verður opnuð í Bogasal Þjóðminjasafnsins í dag ber
þess ótvíræð merki að söðull með viðeigandi búnaði var verðmæt eign.
Eva Kristín Dal er ánægð með að hin skrautlegu reiðver skuli dregin fram úr geymslum og sýnd almenningi. Fréttablaðið/Ernir
2
4
-0
2
-2
0
1
8
0
4
:3
5
F
B
1
1
2
s
_
P
0
9
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
8
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
2
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
2
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
F
0
D
-2
7
3
8
1
F
0
D
-2
5
F
C
1
F
0
D
-2
4
C
0
1
F
0
D
-2
3
8
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
B
F
B
1
1
2
s
_
2
3
_
2
_
2
0
1
8
C
M
Y
K