Fréttablaðið - 24.02.2018, Blaðsíða 34
LÁTTU ÞÉR LÍÐA VEL
Opið alla virka daga 10 -18. Lau.11-16
VERIÐ VELKOMIN Í HEIMSÓKN
SUÐURLANDSBRAUT 24, 108 REYKJAVÍK
í besta sætinu
Þegar Birgir Jakobsson hitti blaðamann síðast fyrir þremur árum hafði hann setið nokkrar vikur í embætti. Allan þann tíma hafði heilbrigðis
kerfið verið hálflamað vegna verk
falla.
Áður en Birgir tók við starfi land
læknis bjó hann og starfaði í Sví
þjóð um langt árabil þar sem hann
gegndi ýmsum stjórnunarstöðum við
sjúkrahús þar í landi. Sérgrein Birgis
er barnalækningar og árið 1988 lauk
hann doktorsprófi frá Karolinska
Institutet. Hann gegndi yfirlæknis
stöðu á barnadeild Huddinge sjúkra
hússins í Stokkhólmi, árið 2003 tók
hann við starfi sjúkrahússtjóra við
Capio St. Görans sjúkrahúsið í Stokk
hólmi og frá árinu 2007 var hann
forstjóri Karolinska sjúkrahússins í
Stokkhólmi þar til hann var skipaður
landlæknir.
Birgir kom einbeittur til starfa
og fullur baráttuvilja og vildi bæta
þjónustu og aðgengi að heilbrigðis
þjónustu.
Skoðar kvörtun frá Ólafsvík
Fréttablaðið.is fjallaði á dögunum um
mál Gunnhildar Lindu Vigfúsdóttur
sem lést þann 30. janúar síðastlið
inn. Heiðar Friðriksson, eiginmaður
hennar, hefur mánuðum saman
barist fyrir því að Embætti land
læknis fari ofan í saumana á fram
komu lækna í Ólafsvík við Gunn
hildi Lindu. Og að sjúkrasaga hennar
verði skoðuð. Heiðar sagði í viðtali
við Fréttablaðið.is að læknir hefði
neitað að koma og búa hana undir
flutning í sjúkrabíl eftir að hún datt
heima hjá sér. Hún hafði verið mikið
veik og greinst með heilaæxli.
Birgir segir að að venju geti emb
ættið ekki rætt um einstök mál í fjöl
miðlum. „Við erum að skoða þessi
mál og vöndum okkur í þeirri vinnu.“
Spurður um fjölda kvartana
sem berast embættinu vegna þjón
ustu á landsbyggðinni og alvarleika
þeirra segir Birgir að þær séu ekki
fleiri en á höfuðborgarsvæðinu.
„Mistök gerast í heilbrigðis
þjónustu. Það er staðreynd. Ég hef
hins vegar ekki tölur um að þau séu
fleiri á landsbyggðinni en á höfuð
borgarsvæðinu. Það sem ég hef hins
vegar sagt frá byrjun er að sérfræði
þjónustu úti á landi er misskipt
miðað við höfuðborgarsvæðið.
Aðgengi fólks á landsbyggðinni að
sérfræðiþjónustu er ekki nægilega
gott og það er ekki vel skipulagt. Það
er hlutur sem ég er búinn að segja í
þrjú ár. Ég stend við það. Það þarf að
gera ákveðna breytingu á þessu,“ segir
Birgir ákveðinn.
Hann segist telja að Landspítalinn
sem háskólasjúkrahús allra lands
manna þurfi að fá mjög skýrt hlut
verk í samvinnu við heilbrigðisstofn
anir úti á landi.
„En til þess að þetta sé mögulegt
þarf náttúrulega Landspítalinn að
hafa burði til að geta veitt þessa þjón
ustu og nægilega marga sérfræðinga
þannig að þeir geti verið í samskipt
um við stofnanir úti á landi og sinnt
þeirri þjónustu á forsendum heima
manna. Og ekki eins og hefur verið, á
forsendum sérfræðinga sem hafa tíma
til að fara út á land. Ég var ákveðinn
í að koma þessu til leiðar þegar ég
hóf störf hjá embættinu fyrir þremur
árum og er enn ákveðinn í því.“
Hvers vegna gengur illa að hreyfa
við kerfinu? „Landspítalinn hefur
að mínu mati ekki burði til að veita
þessa þjónustu vegna þess að sér
fræðingar Landspítalans hafa nóg
að gera í öðrum verkefnum. Þeir eru
heldur ekki nógu margir. Helmingur
af sérfræðingum Landspítalans er líka
þegar í hlutavinnu og sinnir sérfræði
störfum á stofum á höfuðborgarsvæð
inu. Og er raunverulega ekki að sinna
landsbyggðinni. Nema þá að fólk
komi frá landsbyggðinni á stofur sér
fræðings hér í borginni,“ segir Birgir.
Fara í manngreinarálit
Hefur þú heyrt dæmi um það að
læknar fari í manngreinarálit? „Það
hafa komið upp mörg dæmi um
þetta. Að læknar telji sig ekki geta
sinnt manneskju af einhverjum
ástæðum. En þá er það oftast þannig
að þeir tryggja að annar læknir tekur
við meðferð.“
Hvaða viðhorf hefur þú til þess
að læknar fari í manngreinarálit?
Hvernig er tekið hjá því hjá embætt-
inu? „Það er mjög alvarlegt. Það má
ekki fara í manngreinarálit. Góðir
starfshættir lækna kveða á um það
að læknir geti ekki neitað manneskju
um læknisþjónustu nema að tryggja
það að viðkomandi fái þjónustu ein
hvers staðar annars staðar. En að því
sögðu þá getur þú komist að þeirri
niðurstöðu að þú getir ekki veitt við
komandi manneskju nauðsynlega
meðferð. Þá er algjört skilyrði að þú
tryggir að það sé einhver annar sem
gerir það.“
Hvaða ástæður geta verið fyrir því
að læknir neiti að veita þjónustu?
„Það geta verið margar ástæður. Þær
geta verið trúarlegar, siðferðilegar.
Þær geta líka verið þannig að traust á
milli læknis og sjúklings hefur skaðast
og þá er betra fyrir báða að einhver
annar sinni sjúklingnum.“
En ef það er enginn annar? „Ef það
er enginn annar til staðar þá verður
læknir að sinna sjúklingi. Það er
grundvallarregla okkar en það er
samt ekki hægt að þvinga heilbrigðis
starfsfólk til að gera hluti sem eru á
móti gildismati þess. Þetta er ákveð
ið mat sem þarf að fara fram. En það
getur hins vegar ekki gengið upp að
læknar fari í manngreinarálit. Þín
fyrsta skylda sem læknir er að hjálpa
sjúklingnum. Ef þú getur það ekki þá
ber þér að senda sjúklinginn annað
og tryggja bestu mögulegu þjónustu.
Það er mjög djúp tilfinning og ábyrgð
sem fylgir þessari starfsreglu lækna
stéttar,“ segir Birgir.
„Hvernig finnst þér þú skilja við
embættið? „Mér finnst ég ekki hafa
áorkað miklu á þessum tíma. Þetta
eru þrjú ár og auðvitað er það ekki
langur tími, en það er mín aðalregla
að ef þú ert ekki búinn að koma því
til leiðar á þremur til fimm árum sem
þú ætlar að koma til leiðar, þá muntu
líklega ekki koma því til leiðar. Þá er
betra að fara að gera eitthvað annað,“
segir Birgir.
Breytt baráttuaðferð
„Mér finnst áhugavert að breyta um
baráttuaðferð. Sjá hvað ég get gert
með öðru fólki. Fólki sem er nær því
að koma einhverju til leiðar en við
getum hjá þessu embætti. Ég ætla að
gefa því tækifæri.“
Hvernig kom það til að þér var boðið
þetta starf? „Það var nýlega sem ég var
spurður að því hvort þetta gæti verið
eitthvað sem ég gæti hugsað mér. Þó
að ég hafi nýlega náð þessum háæru
verðuga aldri þá finnst mér gaman
að vinna. Ég brenn fyrir þessum mál
efnum. Ég er búinn að brenna fyrir
því í áratugi hvað er hægt að gera til
að bæta heilbrigðisþjónustuna og
koma góðu til leiðar fyrir stóran hluta
sjúklinga.
Ég myndi vilja sjá það að aðgeng
inu að þjónustunni væri betur skipt
á milli fólks. Og að þetta opinbera
kerfi sem er fjármagnað af skattfé
almennings sé burðugra til að sinna
þörfum fólksins í landinu. Við erum
ekki fleiri en það að við eigum að geta
gert það.
Við erum á mörgum sviðum góð en
það vantar mikið upp á að kerfið virki
betur. Við vorum eitt sinn á góðri leið.
Ef við hefðum byrjað árið 1990 og upp
úr því að fylgjast með því hvað er að
gerast erlendis og gera eins, þá værum
við ekki stödd þar sem við erum í dag.
Við fórum aðra leið og fórum eigin
lega í nokkurs konar kerfisleysi sem
hefur eiginlega stýrt sér sjálft meira
og minna síðustu tuttugu ár.
Við getum gert betur.
Ég er alla vega enn með baráttuþrek.
Ég vona að mér og ráðherra komi vel
saman. Við höfum rætt saman og það
lofar góðu,“ segir Birgir.
kristjanabjorg@frettabladid.is
Berst áfram á öðrum vettvangi
Birgir Jakobsson segist ekki hafa áorkað miklu í starfi sínu sem landlæknir. Hann er þó enn ákveðinn í því að koma
því til leiðar að heilbrigðisþjónustu verði betur skipt á milli fólks í landinu. Aðgengi að sérfræðiþjónustu þurfi að
bæta. Hann segist brenna fyrir málefninu og breytir um baráttuaðferð með því að gerast aðstoðarmaður ráðherra.
Kristjana Björg
Guðbrandsdóttir
kristjana@frettabladid.is
Birgir hefur brátt störf sem aðstoðarmaður ráðherra og mun mæta einbeittur til verks. Hann segir mikilvægt að gefast
ekki upp í því verkefni að bæta aðgengi Íslendinga að heilbrigðisþjónustu. FréttaBlaðið/Ernir
Frettabladid.is Lengri útgáfa af
greininni er á frettabladid.is
2 4 . F e b r ú a r 2 0 1 8 L a U G a r D a G U r34 H e L G i n ∙ F r É T T a b L a ð i ð
2
4
-0
2
-2
0
1
8
0
4
:3
5
F
B
1
1
2
s
_
P
0
7
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
7
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
3
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
4
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
F
0
D
-4
4
D
8
1
F
0
D
-4
3
9
C
1
F
0
D
-4
2
6
0
1
F
0
D
-4
1
2
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
1
1
2
s
_
2
3
_
2
_
2
0
1
8
C
M
Y
K