Fréttablaðið


Fréttablaðið - 24.02.2018, Qupperneq 82

Fréttablaðið - 24.02.2018, Qupperneq 82
Hvar er flugbíll-inn sem mér var lofað?“ – Þessa spurningu og aðrar í sama dúr mátti víða heyra þann 21. október árið 2015. Tilefnið var rúmlega aldarfjórðungs gömul tán- ingamynd, Aftur til framtíðar 2, frá árinu 1989. Í henni fór aðalsögu- hetjan fram til ársins 2015, nánar tiltekið til 21. október. Sú veröld sem þar birtist reyndist um margt ólík en jafnframt um margt svipuð því sem varð í raun og veru. Á öllum tímum hefur fólk skemmt sér við að reyna að sjá fyrir framtíðina. Með framfaratrúnni sem grafið hefur um sig í vest- rænni menningu síðustu alda, hafa slíkar framtíðar- sýnir oftar en ekki einkennst af spádómum um nýjungar í tækni og vísindum sem umbylta munu daglegu lífi. Sjaldnast ganga fram- tíðarsýnir þessar eftir, enda eru þær kannski fyrst og fremst heimildir um samtíma sinn. Þannig má lesa framtíðarspádóma fortíðarinnar til að fræðast um hvaða væntingar fyrri kynslóðir höfðu til tækni og vísinda síns tíma. Árið 1963 efndi Lesbók Morgun- blaðsins til ritgerðasamkeppni ung- menna þar sem lýsa skyldi Íslandi og þá sérstaklega Reykjavík eftir fimmtíu ár. Tvær hlutskörpustu rit- gerðirnar voru svo birtar í barna- og unglingakálfinum „Lesbók æskunn- ar“. Önnur var eftir Jón Axel Egils- son en hin eftir systurnar Ragnheiði og Svölu Karlsdætur. Efnistökin í ritgerðunum voru nokkuð ólík. Þannig varði Jón Axel nokkrum tíma í að útskýra líkurnar á að mannkynið fengi aldrei að líta árið 2013 vegna ýmissa ógna. Kúbu- deilan var nýafstaðin, þar sem risa- veldin fóru hvað næst því að grípa til kjarnorkuvopna. Það hefði því hljómað nánast hrokafullt að reikna ekki með möguleikanum á að mannkynið myndi tortíma sjálfu sér með kjarnasprengjum innan fárra ára. Fleiri ógnir gátu sett strik í reikninginn. Þannig var von á halastjörnu Halleys árið 1985 og ekki talið útilokað að hún rækist á Jörðina og skyti henni jafnvel af sporbraut sinni með hörmulegum afleiðingum fyrir allt líf. Eins gæti hinn eitraði hali hennar spillt loft- hjúpnum og þar með drepið allt kvikt. Loftslagsógnir voru ungmennum einnig hugleiknar árið 1963, þótt með nokkuð öðrum hætti væri en nú um stundir. Sögulegar sveiflur í hitastigi Jarðar voru þekktar og benti Jón Axel á að vísinda- menn sæju ýmis teikn um að ný ísöld kynni að vera í uppsiglingu. Ekki þyrfti annað en að drægi úr sólgosum til a ð va l d a g r í ð a r - legum veðra- brigðum á Jö r ð u , þ a r s e m h e i m s k a u t a í s pólanna ryddist fram eins og ógnandi syndaflóð með tilheyr- andi eyðileggingu. Þrátt fyrir varnaglana voru ungmennin full bjartsýni um framtíðina. Ógnin um kjarnorku- stríð var vissulega fyrir hendi, en kjarnorkan var þó ótvírætt talin framtíðarorkugjafinn sem umbylta myndi íslensku samfélagi og raunar heiminum öllum. Blómleg landbúnaðarhéruð Með kjarnorku, tölvutækni og erfðavísindi að vopni myndu Íslend- ingar framtíðarinnar verða sjálfum sér nægir í matvælaframleiðslu. Framtíðarborgin Reykjavík: 2013 Saga til næsta bæjar Stefán Pálsson skrifar um framtíðardrauma sjöunda áratugarins. væri fiSkitorfunum Safnað Saman með raf- magnSbylgjum … KOMDU Í – dásamleg deild samfélagsins OPIÐ UM HELGAR FRÁ KL. 11 – 17 K V IK A Búið yrði að rækta upp allt Suður- landsundirlendið, sem og sandana á suðurströndinni. Þar yrðu miklir kornakrar sem gæfu af sér svo ríku- lega uppskeru að unnt væri að flytja korn úr landi. Hvers kyns græn- meti og ávexti mætti einnig rækta þar í sérstökum gróðurhúsum, en með tilstilli kjarnorkunnar mætti tryggja fullkomið hita- og rakastig fyrir hverja einustu plöntutegund. Gróðurhúsin yrðu jafnframt laus við hvers kyns skordýr og bakteríur, auk þess sem grænmetið yrði allt sótthreinsað fyrir niðursuðu áður en það færi á borð neytenda. Mjólkur- og kjötframleiðsla myndi einnig breytast með nýrri tækni, þar sem búsmalinn dafnaði í sífelldu sumri undir plasthimni og sterkum rafmagnsljósum. Sjálfvirk- ar rafeindaheilastýrðar vélar myndu sjá um mjaltir og til Reykjavíkur lægju tvær leiðslur – sú sverari flytti mjólk en sú mjórri leiddi rjóma til höfuðborgarinnar. Nýjar húsdýra- tegundir yrðu komnar fram og rækt- aðar, en þó væru vísindin farin að fikra sig áfram með að rækta kjöt og mjólk án þess að dýr þyrftu að koma þar að máli. Ylrækt átti líka að dafna í fram- tíðarlandinu. Þær Ragnheiður og Svala sáu fyrir sér að Blómamið- stöð Íslands risi í Hveragerði með umfangsmikilli skrautblómarækt- un. Raunar voru ungmennin öll sannfærð um að græn svæði, trjágróður og blóm yrðu áberandi í manngerðu umhverfinu. Þannig yrði samgöngum ýmist komið ofan í jörðina með neti j a r ð - ganga e ð a u p p í loftið. R e y n d a r v o r u h ö f - undarnir ekki sammála um hvort fljúgandi bílar yrðu algengasta fjölskyldu- farartækið eða smáflugvélar og þyrlur. Ferðamannaiðnaður yrði í blóma á Íslandi árið 2013, enda mannkynið allt meira og minna á ferð og flugi. Ferðalög til útlanda yrðu skyldunámsgrein í skólum og því í nógu að snúast fyrir Flugfélag Íslands og Loftleiðir sem státuðu af tveggja hæða kjarnorkuknúnum millilandaflugvélum með sætum fyrir allt að 200 farþega. Útlending- ar kæmu hingað í stórum stíl, ekki hvað síst til að njóta aðstöðunnar í ferðamannaþorpinu í Kerl ingar- fjöllum allan ársins hring. Flugvöll- urinn væri loksins farinn úr Vatns- mýrinni, en hið nýja flugvallarstæði lægi utan af Álftanesi og upp í Vífils- staðahraun, með Reykjanesbrautina í göngum neðanjarðar. Þröng á þingi Kjarnorkuflugvélarnar leystu þó ekki skipasamgöngurnar af hólmi. Risaskipasmíðastöð ríkisins í Vatnagörðum sá um byggingu risa- vaxinna farþegaskipa, sem í raun mætti líkja við svífandi borgir með allri þjónustu – „svífandi“ er lík- lega rétta orðið, þar sem farartæki þessi snertu ekki hafflötinn heldur rynnu áfram á loftpúða. Öðru máli gegndi um fiskiskip, en Íslendingar treystu enn að miklu leyti á sjávar- útveg. Hefðbundin veiðarfæri heyrðu sögunni til, en þess í stað væri fiskitorfunum safnað saman með rafmagnsbylgjum og þær jafnvel lamaðar áður en fiskurinn væri hreinlega ryksugaður um borð og verkaður með tölvum og vél- mennum áður en komið væri í höfn. Raunar væru það helst uppsjávar- fiskarnir sem sækja þyrfti á miðin, því í hverjum firði umhverfis landið væri fiskeldi í sjókvíum. Ekki veltu ungmennin sér mikið upp úr því hvernig stjórnarfarinu yrði háttað í Íslandi framtíðarinn- ar. Þó gátu Ragnheiður og Svala þess að 170 þingmenn sætu á Alþingi, enda Íslendingar orðnir hálf millj- ón talsins. Um helmingurinn byggi í Reykjavík og ættu 60 borgarfulltrúar sæti í hinu nýja og glæsilega ráðhúsi. Af þeim væri fjórðungurinn konur. Umræður um hugsanlega aðild Íslands að Efnahagsbandalagi Evr- ópu eða jafnvel hinu nýstofnaða EFTA höfðu verið fyrirferðarmiklar í byrjun sjöunda áratugarins. Árið 2013 var hins vegar búið að koma á laggirnar Efnahagsbandalagi Norður landa, sem var umsvifamik- ið í rekstri kjarnorkuvera á Íslandi – einkum á gamla herstöðvarsvæðinu á Keflavíkurflugvelli. Ekki virtust höfundar ritgerðanna hafa þungar áhyggjur af átökum þjóðríkja í framtíðinni. Ef til vill hafði tækninni tekist að bæta skiln- ing milli samfélaga, í það minnsta gat almenningur vandræðalaust fylgst með sjónvarpsútsendingum hvaðanæva úr veröldinni, sem tölvur þýddu úr einu tungumálinu á annað í rauntíma. Á hverju heimili mátti finna „þrívíddarlitasjónvörp með Hi-Fi-elektrónískum stereó- hljómi“. Ekki höfðu skipulagsyfir- völd Reykjavíkur heyrt um þéttingu byggðar. Mið- bærinn var raunar fullur af skrifstofuturnum, en allur þorri fólks bjó í húsum á einni hæð með upphituðum og raflýstum garði. Flest hvers- dagsleg heimilisstörf voru komin í hendur vélmenna, hvort heldur sem um var að ræða að ryksuga gólfin eða slá grasblettinn. Ísskápa- tækninni hafði fleytt fram og mátti geyma matvæli svo árum skipti í kæli. Sífellt kjörbúðaráp var óþarft, enda fylltu vélrænir búðarsendlar á ísskápa viðskiptavina meðan heim- ilisfólk var í vinnu eða skóla. Upp- þvottavélar voru vitaskuld í hverju eldhúsi, sem hreinsuðu öll búsáhöld á augabragði með hátíðnibylgjum og röðuðu að sjálfsögðu aftur upp í skáp. Öll töldu ungmennin að framtíð menntunar fælist í hljóðupptökum sem leiknar yrðu af plötum eða hljóðsnældum að næturlagi, þann- ig að námsmaðurinn vaknaði fulln- uma að morgni. Hvers kyns kvik- myndir yrðu svo fyrirferðarmiklar í kennslunni. Ekki virtust hin nýju tæki þó hrófla mikið við kynjahlut- verkunum. Þrátt fyrir öll rafeinda- heilastýrðu vélmennin á heimilinu voru konur ennþá húsmæður og langskólanámið virtist heldur koma í hlut drengjanna. Ungar stúlkur gátu þó fært sér tæknina í nyt, til dæmis með því að lesa prjóna- mynstur inn á míkrófón og láta fullkomnar prjónavélar sjá um allt erfiðið og jafnvel gera hnappagöt og festa tölur jafnóðum. Skemmtanalífið í Reykjavík árs- ins 2013 var fjörlegt. Dansmenntir þjóðarinnar höfðu tekið miklum framförum, með þeim afleiðingum að kynslóðirnar sameinuðust á dansleikjum, sem höfðu ólíkt meiri menningarbrag en gömlu fyllerís- samkomurnar á Hótel Borg áður fyrr. Þótt vegur bindindis færi vax- andi kusu sumir að neyta áfengis, en þá með því að anda að sér alkóhól- mettaðri gufu. Kirkjuferðir höfðu óvænt tekið mikinn kipp í vinsældum og kom þar tvennt til. Annars vegar var farið að útbúa kirkjur með mýkri og þægilegri sætum en hins vegar höfðu tónlist og söngvar fengið veigameira hlutverk í messum, þar sem söfnuðurinn allur gat tekið undir. Kom sér því vel að búið var að reisa nýja og stærri dómkirkju í miðbænum úr plasti og gleri. ekki virtuSt hin nýju tæki þó hrófla mikið við kynjahlutverkunum. 2 4 . f e b r ú a r 2 0 1 8 L a U G a r D a G U r38 H e L G i n ∙ f r É T T a b L a ð i ð 2 4 -0 2 -2 0 1 8 0 4 :3 5 F B 1 1 2 s _ P 0 9 5 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 8 2 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 1 8 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 3 1 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 F 0 C -F F B 8 1 F 0 C -F E 7 C 1 F 0 C -F D 4 0 1 F 0 C -F C 0 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 B F B 1 1 2 s _ 2 3 _ 2 _ 2 0 1 8 C M Y K
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.