Fréttablaðið - 24.02.2018, Side 82
Hvar er flugbíll-inn sem mér var lofað?“ – Þessa spurningu og aðrar í sama dúr mátti víða heyra þann
21. október árið 2015. Tilefnið var
rúmlega aldarfjórðungs gömul tán-
ingamynd, Aftur til framtíðar 2, frá
árinu 1989. Í henni fór aðalsögu-
hetjan fram til ársins 2015, nánar
tiltekið til 21. október. Sú veröld
sem þar birtist reyndist um margt
ólík en jafnframt um margt svipuð
því sem varð í raun og veru.
Á öllum tímum hefur fólk
skemmt sér við að reyna að
sjá fyrir framtíðina. Með
framfaratrúnni sem
grafið hefur um sig í vest-
rænni menningu síðustu
alda, hafa slíkar framtíðar-
sýnir oftar en ekki einkennst af
spádómum um nýjungar í tækni
og vísindum sem umbylta munu
daglegu lífi. Sjaldnast ganga fram-
tíðarsýnir þessar eftir, enda eru þær
kannski fyrst og fremst heimildir
um samtíma sinn. Þannig má lesa
framtíðarspádóma fortíðarinnar
til að fræðast um hvaða væntingar
fyrri kynslóðir höfðu til tækni og
vísinda síns tíma.
Árið 1963 efndi Lesbók Morgun-
blaðsins til ritgerðasamkeppni ung-
menna þar sem lýsa skyldi Íslandi
og þá sérstaklega Reykjavík eftir
fimmtíu ár. Tvær hlutskörpustu rit-
gerðirnar voru svo birtar í barna- og
unglingakálfinum „Lesbók æskunn-
ar“. Önnur var eftir Jón Axel Egils-
son en hin eftir systurnar Ragnheiði
og Svölu Karlsdætur.
Efnistökin í ritgerðunum voru
nokkuð ólík. Þannig varði Jón Axel
nokkrum tíma í að útskýra líkurnar
á að mannkynið fengi aldrei að líta
árið 2013 vegna ýmissa ógna. Kúbu-
deilan var nýafstaðin, þar sem risa-
veldin fóru hvað næst því að grípa
til kjarnorkuvopna. Það hefði
því hljómað nánast hrokafullt að
reikna ekki með möguleikanum á
að mannkynið myndi tortíma sjálfu
sér með kjarnasprengjum innan
fárra ára.
Fleiri ógnir gátu sett strik í
reikninginn. Þannig var von á
halastjörnu Halleys árið 1985 og
ekki talið útilokað að hún rækist
á Jörðina og skyti henni jafnvel af
sporbraut sinni með hörmulegum
afleiðingum fyrir allt líf. Eins gæti
hinn eitraði hali hennar spillt loft-
hjúpnum og þar með drepið allt
kvikt.
Loftslagsógnir voru ungmennum
einnig hugleiknar árið 1963, þótt
með nokkuð öðrum hætti væri en
nú um stundir. Sögulegar sveiflur í
hitastigi Jarðar voru þekktar og
benti Jón Axel á að vísinda-
menn sæju ýmis teikn um
að ný ísöld kynni að
vera í uppsiglingu.
Ekki þyrfti annað
en að drægi úr
sólgosum til
a ð va l d a
g r í ð a r -
legum
veðra-
brigðum
á Jö r ð u ,
þ a r s e m
h e i m s k a u t a í s
pólanna ryddist
fram eins og ógnandi
syndaflóð með tilheyr-
andi eyðileggingu.
Þrátt fyrir varnaglana voru
ungmennin full bjartsýni um
framtíðina. Ógnin um kjarnorku-
stríð var vissulega fyrir hendi, en
kjarnorkan var þó ótvírætt talin
framtíðarorkugjafinn sem umbylta
myndi íslensku samfélagi og raunar
heiminum öllum.
Blómleg landbúnaðarhéruð
Með kjarnorku, tölvutækni og
erfðavísindi að vopni myndu Íslend-
ingar framtíðarinnar verða sjálfum
sér nægir í matvælaframleiðslu.
Framtíðarborgin Reykjavík: 2013
Saga
til næsta
bæjar
Stefán Pálsson
skrifar um
framtíðardrauma
sjöunda áratugarins.
væri fiSkitorfunum
Safnað Saman með raf-
magnSbylgjum …
KOMDU
Í
– dásamleg deild samfélagsins
OPIÐ UM HELGAR FRÁ KL. 11 – 17
K
V
IK
A
Búið yrði að rækta upp allt Suður-
landsundirlendið, sem og sandana
á suðurströndinni. Þar yrðu miklir
kornakrar sem gæfu af sér svo ríku-
lega uppskeru að unnt væri að flytja
korn úr landi. Hvers kyns græn-
meti og ávexti mætti einnig rækta
þar í sérstökum gróðurhúsum, en
með tilstilli kjarnorkunnar mætti
tryggja fullkomið hita- og rakastig
fyrir hverja einustu plöntutegund.
Gróðurhúsin yrðu jafnframt laus
við hvers kyns skordýr og bakteríur,
auk þess sem grænmetið yrði allt
sótthreinsað fyrir niðursuðu áður
en það færi á borð neytenda.
Mjólkur- og kjötframleiðsla
myndi einnig breytast með nýrri
tækni, þar sem búsmalinn dafnaði
í sífelldu sumri undir plasthimni og
sterkum rafmagnsljósum. Sjálfvirk-
ar rafeindaheilastýrðar vélar myndu
sjá um mjaltir og til Reykjavíkur
lægju tvær leiðslur – sú sverari flytti
mjólk en sú mjórri leiddi rjóma til
höfuðborgarinnar. Nýjar húsdýra-
tegundir yrðu komnar fram og rækt-
aðar, en þó væru vísindin farin að
fikra sig áfram með að rækta kjöt og
mjólk án þess að dýr þyrftu að koma
þar að máli.
Ylrækt átti líka að dafna í fram-
tíðarlandinu. Þær Ragnheiður og
Svala sáu fyrir sér að Blómamið-
stöð Íslands risi í Hveragerði með
umfangsmikilli skrautblómarækt-
un. Raunar voru ungmennin öll
sannfærð um að græn svæði,
trjágróður og blóm yrðu
áberandi í manngerðu
umhverfinu. Þannig
yrði samgöngum
ýmist komið
ofan í jörðina
með neti
j a r ð -
ganga
e ð a
u p p
í loftið.
R e y n d a r
v o r u h ö f -
undarnir ekki
sammála um hvort
fljúgandi bílar yrðu
algengasta fjölskyldu-
farartækið eða smáflugvélar
og þyrlur.
Ferðamannaiðnaður yrði í
blóma á Íslandi árið 2013, enda
mannkynið allt meira og minna á
ferð og flugi. Ferðalög til útlanda
yrðu skyldunámsgrein í skólum og
því í nógu að snúast fyrir Flugfélag
Íslands og Loftleiðir sem státuðu af
tveggja hæða kjarnorkuknúnum
millilandaflugvélum með sætum
fyrir allt að 200 farþega. Útlending-
ar kæmu hingað í stórum stíl, ekki
hvað síst til að njóta aðstöðunnar
í ferðamannaþorpinu í Kerl ingar-
fjöllum allan ársins hring. Flugvöll-
urinn væri loksins farinn úr Vatns-
mýrinni, en hið nýja flugvallarstæði
lægi utan af Álftanesi og upp í Vífils-
staðahraun, með Reykjanesbrautina
í göngum neðanjarðar.
Þröng á þingi
Kjarnorkuflugvélarnar leystu þó
ekki skipasamgöngurnar af hólmi.
Risaskipasmíðastöð ríkisins í
Vatnagörðum sá um byggingu risa-
vaxinna farþegaskipa, sem í raun
mætti líkja við svífandi borgir með
allri þjónustu – „svífandi“ er lík-
lega rétta orðið, þar sem farartæki
þessi snertu ekki hafflötinn heldur
rynnu áfram á loftpúða. Öðru máli
gegndi um fiskiskip, en Íslendingar
treystu enn að miklu leyti á sjávar-
útveg.
Hefðbundin veiðarfæri heyrðu
sögunni til, en þess í stað væri
fiskitorfunum safnað saman með
rafmagnsbylgjum og þær jafnvel
lamaðar áður en fiskurinn væri
hreinlega ryksugaður um borð
og verkaður með tölvum og vél-
mennum áður en komið væri í höfn.
Raunar væru það helst uppsjávar-
fiskarnir sem sækja þyrfti á miðin,
því í hverjum firði umhverfis landið
væri fiskeldi í sjókvíum.
Ekki veltu ungmennin sér mikið
upp úr því hvernig stjórnarfarinu
yrði háttað í Íslandi framtíðarinn-
ar. Þó gátu Ragnheiður og Svala þess
að 170 þingmenn sætu á Alþingi,
enda Íslendingar orðnir hálf millj-
ón talsins. Um helmingurinn byggi í
Reykjavík og ættu 60 borgarfulltrúar
sæti í hinu nýja og glæsilega ráðhúsi.
Af þeim væri fjórðungurinn konur.
Umræður um hugsanlega aðild
Íslands að Efnahagsbandalagi Evr-
ópu eða jafnvel hinu nýstofnaða
EFTA höfðu verið fyrirferðarmiklar
í byrjun sjöunda áratugarins. Árið
2013 var hins vegar búið að koma
á laggirnar Efnahagsbandalagi
Norður landa, sem var umsvifamik-
ið í rekstri kjarnorkuvera á Íslandi –
einkum á gamla herstöðvarsvæðinu
á Keflavíkurflugvelli.
Ekki virtust höfundar ritgerðanna
hafa þungar áhyggjur af átökum
þjóðríkja í framtíðinni. Ef til vill
hafði tækninni tekist að bæta skiln-
ing milli samfélaga, í það minnsta
gat almenningur vandræðalaust
fylgst með sjónvarpsútsendingum
hvaðanæva úr veröldinni, sem
tölvur þýddu úr einu tungumálinu
á annað í rauntíma. Á hverju heimili
mátti finna „þrívíddarlitasjónvörp
með Hi-Fi-elektrónískum stereó-
hljómi“.
Ekki höfðu skipulagsyfir-
völd Reykjavíkur heyrt um
þéttingu byggðar. Mið-
bærinn var raunar fullur
af skrifstofuturnum, en
allur þorri fólks bjó í húsum
á einni hæð með upphituðum
og raflýstum garði. Flest hvers-
dagsleg heimilisstörf voru komin
í hendur vélmenna, hvort heldur
sem um var að ræða að ryksuga
gólfin eða slá grasblettinn. Ísskápa-
tækninni hafði fleytt fram og mátti
geyma matvæli svo árum skipti í
kæli. Sífellt kjörbúðaráp var óþarft,
enda fylltu vélrænir búðarsendlar á
ísskápa viðskiptavina meðan heim-
ilisfólk var í vinnu eða skóla. Upp-
þvottavélar voru vitaskuld í hverju
eldhúsi, sem hreinsuðu öll búsáhöld
á augabragði með hátíðnibylgjum
og röðuðu að sjálfsögðu aftur upp
í skáp.
Öll töldu ungmennin að framtíð
menntunar fælist í hljóðupptökum
sem leiknar yrðu af plötum eða
hljóðsnældum að næturlagi, þann-
ig að námsmaðurinn vaknaði fulln-
uma að morgni. Hvers kyns kvik-
myndir yrðu svo fyrirferðarmiklar
í kennslunni. Ekki virtust hin nýju
tæki þó hrófla mikið við kynjahlut-
verkunum. Þrátt fyrir öll rafeinda-
heilastýrðu vélmennin á heimilinu
voru konur ennþá húsmæður og
langskólanámið virtist heldur koma
í hlut drengjanna. Ungar stúlkur
gátu þó fært sér tæknina í nyt, til
dæmis með því að lesa prjóna-
mynstur inn á míkrófón og láta
fullkomnar prjónavélar sjá um allt
erfiðið og jafnvel gera hnappagöt og
festa tölur jafnóðum.
Skemmtanalífið í Reykjavík árs-
ins 2013 var fjörlegt. Dansmenntir
þjóðarinnar höfðu tekið miklum
framförum, með þeim afleiðingum
að kynslóðirnar sameinuðust á
dansleikjum, sem höfðu ólíkt meiri
menningarbrag en gömlu fyllerís-
samkomurnar á Hótel Borg áður
fyrr. Þótt vegur bindindis færi vax-
andi kusu sumir að neyta áfengis, en
þá með því að anda að sér alkóhól-
mettaðri gufu.
Kirkjuferðir höfðu óvænt tekið
mikinn kipp í vinsældum og kom
þar tvennt til. Annars vegar var
farið að útbúa kirkjur með mýkri
og þægilegri sætum en hins vegar
höfðu tónlist og söngvar fengið
veigameira hlutverk í messum, þar
sem söfnuðurinn allur gat tekið
undir. Kom sér því vel að búið var
að reisa nýja og stærri dómkirkju í
miðbænum úr plasti og gleri.
ekki virtuSt
hin nýju tæki
þó hrófla
mikið við
kynjahlutverkunum.
2 4 . f e b r ú a r 2 0 1 8 L a U G a r D a G U r38 H e L G i n ∙ f r É T T a b L a ð i ð
2
4
-0
2
-2
0
1
8
0
4
:3
5
F
B
1
1
2
s
_
P
0
9
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
8
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
1
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
3
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
F
0
C
-F
F
B
8
1
F
0
C
-F
E
7
C
1
F
0
C
-F
D
4
0
1
F
0
C
-F
C
0
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
B
F
B
1
1
2
s
_
2
3
_
2
_
2
0
1
8
C
M
Y
K