Fréttablaðið - 24.02.2018, Síða 30

Fréttablaðið - 24.02.2018, Síða 30
Verkefnið í Selár-dal hefur verið mér ástríða,“ segir G e r h a r d Kö n i g mynd höggvari um endurbæturnar á listaverkum og byggingum Samú- els Jónssonar í Selárdal í Arnarfirði, þar sem hann hefur varið óteljandi stundum síðustu tvo áratugina. Enn vantar lokahnykk- inn til að hægt sé að opna íbúðarhús Samúels, Brautarholt, þannig að þar verði aðstaða fyrir gesti, veitingar og verslun. Nú hefur verið hafin söfnun á Karolina Fund til að fjár- magna lokahnykkinn. Gerhard kveðst fyrst hafa komið í Selárdal sem ferðamaður árið 1997. Hvernig skyldi sú upp- lifun hafa verið? „Það fyrsta sem ég sá voru mikil listaverk kollega míns. Ég lofaði sjálfum mér því þennan dag að gera eitt- hvað fyrir hann og laga verkin því þau voru í mjög slæmu ástandi.“ Fyrsta skrefið segir hann hafa verið stigið árið 1998 þegar hann gerðist stofnfélagi Félags Listasafns Samúels Jónssonar ásamt öðrum. Svo hóf hann viðgerðirnar sama ár. „Ég byrjaði á fyrsta ljóninu við gos- brunninn,“ rifjar hann upp. Yfirleitt var Gerhard einn á staðnum fyrstu árin, að eigin sögn, oft þrjár vikur í senn. Eftir 2006 kveðst hann líka hafa unnið þar með hópum, til dæmis erlendum námsmönnum. En hversu margar ferðir telur hann að hann hafi farið vestur? „Líklega um 70,“ er svarið. Inntur eftir aðbúnaðinum upp- lýsir Gerhard að fyrstu tvö árin hafi hann sofið í hjólhýsi en síðan inni í listahúsinu hans Samúels sem er lítið, óeinangrað hús á tveimur hæðum. „Ég útbjó þar einfalda svefn- og eldunaraðstöðu handa mér. Þegar ég vann með hópum, fundum við betri aðstöðu, til dæmis sumarbústaði að láni eða í gamla skólanum á Bíldudal.“ Ekki vill Gerhard giska á hversu mikið fé hann hafi lagt í verkefnið, ferðir og fæði, né tímann sem hann hefur varið í það. „Félagið hefur greitt mér útlagðan kostnað og sanngjarna þóknun,“ byrjar hann en bætir svo við: „Því miður hafði það ekki nægan pening síðustu tvö árin til þess að greiða mér jafn sanngjarna þóknun og áður. Auðvitað hef ég eytt hundruðum klukkustunda í þetta verkefni, mjög miklum tíma og er afar ánægður með það!“ Góðu fréttirnar segir Ger- hard að öllum listaverkum Samúels hafi verið bjargað, bæði öllum styttunum og sjálfu listasafninu. „Það sem við erum að vinna að núna er íbúðar húsið og kirkjan. Þeim verk- um er ekki lokið. Mikilvægast var að forða listaverkunum frá skemmd- um,“ lýsir hann og heldur áfram: „Ég sé fyrir mér að í framtíðinni getið verið þarna menningarmið- stöð og vil vinna þeirri hugmynd brautargengi. Er mjög spenntur fyrir því. Það krefst margra fúsra vinnu- handa! Svo það verður að vera hópur á bak við slíkt og auðvitað þarf fjár- magn. Þannig er þetta bara.“ Á um sjötíu ferðir í Selárdal Unnið hefur verið að endurreisn Listasafns Samúels í Selárdal í 20 ár. Margir hafa komið að því verki en enginn á þar viðlíka mörg handtök og myndhöggvarinn Gerhard Kön ig sem hefur lagt sál sína í listagarð á hjara veraldar. Gerhard hefur unnið ótaldar vinnustundir í Selárdal og sér ekki eftir því. Fréttablaðið/Vilhelm Gerhard fræðir gesti í kirkjunni hans Samúels.hér er Gerhard að mála kirkjuna. búið er að endurbæta íbúðarhúsið að utan en fé vantar til innanhússframkvæmda. Þegar byggð var sem blómleg-ust í Selárdal voru þar yfir 30 bæir og um 200 íbúar. Síðasti ábúandinn lést 2010 en ýmsir sem eiga rætur í dalnum leita þangað yfir sumarið. Meðal þeirra er Sólveig Ólafsdóttir, fyrrverandi fréttamað- ur. Afi hennar, Hannibal Valdimars- son ráðherra, tók jörðina Selárdal á leigu um það leyti sem hún fæddist og hún fór þangað fyrst níu mánaða gömul. „Ég var fyrir vestan á hverju sumri þar til ég var rúmlega tvítug, því pabbi tók við jörðinni þegar ég var 12 ára. Við vorum átta frænd- systk inin, þar af fjögur á sama aldri, og dalurinn allur var leikvöllur okkar, þar á meðal Brautarholt, bærinn hans Samúels, kirkjan, listahúsið og höggmyndagarðurinn sem var eins og ævintýraveröld. Við eignuðum okkur ljónin, höfðum þau fyrir reiðskjóta og hvöttum þau áfram. En þegar félagið um Listasafn Samúels var stofnað fyrir 20 árum höfðu náttúruöflin leikið þessar ger- semar grátt. Ljónin voru mörg fallin niður og miklar steypuskemmdir voru í öllum húsunum,“ segir Sólveig sem nú er stjórnarmaður í félaginu. Hún segir Gerhard König eiga langstærsta þáttinn í endurbót- unum. „Gerhard þurfti að steypa nýjar undirstöður og fann mót sem Samúel hafði notað en sumt varð hann samt að gera frá grunni og gætti þess að hafa allt eins uppruna- legt og mögulegt var, eins og gert er í forvörslu í minjavernd. Hann ver þarna öllum sínum frítíma og lætur ekki óupphituð hús aftra sér frá því að dvelja. Þegar ég var fyrir vestan í lok október síðast var hann þar að ganga frá hlutum.“ Sólveig segir mikið liggja eftir Samúel af málverkum og öðrum listmunum. Sýnishorn af þeim hafi verið í kirkjunni síðustu ár en þar sé um eftirprentanir og -líkingar að ræða. „Kirkjan heldur varla vatni og vindum og ekki er ráðlegt að vera þar með frumverkin en það verður möguleiki í listahúsinu þegar hægt verður að hita það upp.“ Hingað til hafa endurbætur á staðnum verið unnar í sjálfboða- vinnu að langmestu leyti, að sögn Sólveigar. „Við sem erum í endur- reisnarfélaginu ákváðum að nota tvítugsafmæli þess til að hrinda af stað söfnun svo hægt sé að ljúka verkinu. Það er upplifun fyrir ferða- menn, bæði íslenska og erlenda, að koma í Selárdal, þar eru alþýðu- minjar sem eiga enga sína líka á landinu.“ Alþýðuminjar sem eiga enga sína líka Gunnþóra Gunnarsdóttir gun@frettabladid.is Ég sÉ fyrir mÉr að í framtíð- inni getið verið þarna menningar- miðstöð. Systurnar Kristín og Sólveig Ólafsdætur þeysa um á ljónunum. 2 4 . f e b r ú a r 2 0 1 8 L a U G a r D a G U r30 H e L G i n ∙ f r É T T a b L a ð i ð 2 4 -0 2 -2 0 1 8 0 4 :3 5 F B 1 1 2 s _ P 0 9 4 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 8 3 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 1 9 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 3 0 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 F 0 D -0 E 8 8 1 F 0 D -0 D 4 C 1 F 0 D -0 C 1 0 1 F 0 D -0 A D 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 A F B 1 1 2 s _ 2 3 _ 2 _ 2 0 1 8 C M Y K
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.