Fréttablaðið - 24.02.2018, Qupperneq 30
Verkefnið í Selár-dal hefur verið mér ástríða,“ segir G e r h a r d Kö n i g mynd höggvari um endurbæturnar á
listaverkum og byggingum Samú-
els Jónssonar í Selárdal í Arnarfirði,
þar sem hann hefur varið óteljandi
stundum síðustu tvo áratugina.
Enn vantar lokahnykk-
inn til að hægt sé að
opna íbúðarhús Samúels,
Brautarholt, þannig að þar
verði aðstaða fyrir gesti,
veitingar og verslun. Nú
hefur verið hafin söfnun á
Karolina Fund til að fjár-
magna lokahnykkinn.
Gerhard kveðst fyrst
hafa komið í Selárdal sem
ferðamaður árið 1997.
Hvernig skyldi sú upp-
lifun hafa verið? „Það
fyrsta sem ég sá voru mikil
listaverk kollega míns. Ég
lofaði sjálfum mér því
þennan dag að gera eitt-
hvað fyrir hann og laga
verkin því þau voru í mjög
slæmu ástandi.“
Fyrsta skrefið segir hann hafa
verið stigið árið 1998 þegar hann
gerðist stofnfélagi Félags Listasafns
Samúels Jónssonar ásamt öðrum.
Svo hóf hann viðgerðirnar sama ár.
„Ég byrjaði á fyrsta ljóninu við gos-
brunninn,“ rifjar hann upp.
Yfirleitt var Gerhard einn á
staðnum fyrstu árin, að eigin sögn,
oft þrjár vikur í senn. Eftir 2006
kveðst hann líka hafa unnið þar
með hópum, til dæmis erlendum
námsmönnum.
En hversu margar ferðir telur hann
að hann hafi farið vestur? „Líklega
um 70,“ er svarið.
Inntur eftir aðbúnaðinum upp-
lýsir Gerhard að fyrstu tvö árin hafi
hann sofið í hjólhýsi en síðan inni
í listahúsinu hans Samúels sem
er lítið, óeinangrað hús á tveimur
hæðum. „Ég útbjó þar einfalda
svefn- og eldunaraðstöðu handa
mér. Þegar ég vann með hópum,
fundum við betri aðstöðu, til dæmis
sumarbústaði að láni eða í gamla
skólanum á Bíldudal.“
Ekki vill Gerhard giska á hversu
mikið fé hann hafi lagt í
verkefnið, ferðir og fæði,
né tímann sem hann hefur
varið í það. „Félagið hefur
greitt mér útlagðan kostnað
og sanngjarna þóknun,“
byrjar hann en bætir svo við:
„Því miður hafði það ekki
nægan pening síðustu tvö
árin til þess að greiða mér
jafn sanngjarna þóknun og
áður. Auðvitað hef ég eytt
hundruðum klukkustunda í
þetta verkefni, mjög miklum
tíma og er afar ánægður með
það!“
Góðu fréttirnar segir Ger-
hard að öllum listaverkum
Samúels hafi verið bjargað,
bæði öllum styttunum og
sjálfu listasafninu. „Það
sem við erum að vinna að núna er
íbúðar húsið og kirkjan. Þeim verk-
um er ekki lokið. Mikilvægast var að
forða listaverkunum frá skemmd-
um,“ lýsir hann og heldur áfram:
„Ég sé fyrir mér að í framtíðinni
getið verið þarna menningarmið-
stöð og vil vinna þeirri hugmynd
brautargengi. Er mjög spenntur fyrir
því. Það krefst margra fúsra vinnu-
handa! Svo það verður að vera hópur
á bak við slíkt og auðvitað þarf fjár-
magn. Þannig er þetta bara.“
Á um sjötíu
ferðir í
Selárdal
Unnið hefur verið að endurreisn Listasafns
Samúels í Selárdal í 20 ár. Margir hafa komið að
því verki en enginn á þar viðlíka mörg handtök
og myndhöggvarinn Gerhard Kön ig sem hefur
lagt sál sína í listagarð á hjara veraldar.
Gerhard hefur unnið ótaldar vinnustundir í Selárdal og sér ekki eftir því. Fréttablaðið/Vilhelm
Gerhard fræðir gesti í kirkjunni hans Samúels.hér er Gerhard að mála kirkjuna.
búið er að endurbæta íbúðarhúsið að utan en fé vantar til innanhússframkvæmda.
Þegar byggð var sem blómleg-ust í Selárdal voru þar yfir 30 bæir og um 200 íbúar. Síðasti
ábúandinn lést 2010 en ýmsir sem
eiga rætur í dalnum leita þangað
yfir sumarið. Meðal þeirra er Sólveig
Ólafsdóttir, fyrrverandi fréttamað-
ur. Afi hennar, Hannibal Valdimars-
son ráðherra, tók jörðina Selárdal á
leigu um það leyti sem hún fæddist
og hún fór þangað fyrst níu mánaða
gömul. „Ég var fyrir vestan á hverju
sumri þar til ég var rúmlega tvítug,
því pabbi tók við jörðinni þegar ég
var 12 ára. Við vorum átta frænd-
systk inin, þar af fjögur á sama aldri,
og dalurinn allur var leikvöllur
okkar, þar á meðal Brautarholt,
bærinn hans Samúels, kirkjan,
listahúsið og höggmyndagarðurinn
sem var eins og ævintýraveröld. Við
eignuðum okkur ljónin, höfðum
þau fyrir reiðskjóta og hvöttum þau
áfram. En þegar félagið um Listasafn
Samúels var stofnað fyrir 20 árum
höfðu náttúruöflin leikið þessar ger-
semar grátt. Ljónin voru mörg fallin
niður og miklar steypuskemmdir
voru í öllum húsunum,“ segir Sólveig
sem nú er stjórnarmaður í félaginu.
Hún segir Gerhard König eiga
langstærsta þáttinn í endurbót-
unum. „Gerhard þurfti að steypa
nýjar undirstöður og fann mót sem
Samúel hafði notað en sumt varð
hann samt að gera frá grunni og
gætti þess að hafa allt eins uppruna-
legt og mögulegt var, eins og gert er
í forvörslu í minjavernd. Hann ver
þarna öllum sínum frítíma og lætur
ekki óupphituð hús aftra sér frá því
að dvelja. Þegar ég var fyrir vestan í
lok október síðast var hann þar að
ganga frá hlutum.“
Sólveig segir mikið liggja eftir
Samúel af málverkum og öðrum
listmunum. Sýnishorn af þeim hafi
verið í kirkjunni síðustu ár en þar
sé um eftirprentanir og -líkingar að
ræða. „Kirkjan heldur varla vatni og
vindum og ekki er ráðlegt að vera
þar með frumverkin en það verður
möguleiki í listahúsinu þegar hægt
verður að hita það upp.“
Hingað til hafa endurbætur á
staðnum verið unnar í sjálfboða-
vinnu að langmestu leyti, að sögn
Sólveigar. „Við sem erum í endur-
reisnarfélaginu ákváðum að nota
tvítugsafmæli þess til að hrinda af
stað söfnun svo hægt sé að ljúka
verkinu. Það er upplifun fyrir ferða-
menn, bæði íslenska og erlenda, að
koma í Selárdal, þar eru alþýðu-
minjar sem eiga enga sína líka á
landinu.“
Alþýðuminjar sem eiga enga sína líka
Gunnþóra
Gunnarsdóttir
gun@frettabladid.is
Ég sÉ fyrir
mÉr að í
framtíð-
inni getið
verið
þarna
menningar-
miðstöð.
Systurnar Kristín og Sólveig Ólafsdætur þeysa um á ljónunum.
2 4 . f e b r ú a r 2 0 1 8 L a U G a r D a G U r30 H e L G i n ∙ f r É T T a b L a ð i ð
2
4
-0
2
-2
0
1
8
0
4
:3
5
F
B
1
1
2
s
_
P
0
9
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
8
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
1
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
F
0
D
-0
E
8
8
1
F
0
D
-0
D
4
C
1
F
0
D
-0
C
1
0
1
F
0
D
-0
A
D
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
A
F
B
1
1
2
s
_
2
3
_
2
_
2
0
1
8
C
M
Y
K