Fréttablaðið - 24.02.2018, Blaðsíða 36
Ég er mjög ánægð með sjálfa mig og held að við höfum öll útlitið með okkur. Það er
mikilvægt að samþykkja sjálfan
sig eins og maður er til að geta
blómstrað sem einstaklingur,“
segir Sunneva Eir Einarsdóttir,
einn af vinsælustu áhrifavöldum
lýðveldisins. Nýverið var látið í
veðri vaka að það væri ógjörningur
að gera lista yfir heitustu konur
landsins án þess að Sunneva væri
á honum.
„Fjöldinn sem fylgist með mér
truflar mig ekki; ég hef gaman af
mínum fylgjendahóp. Ég vel það
sem ég deili með þeim. Ég er enn sú
sama og ég hef alltaf verið og ég hef
sjálf ekkert breyst, en ég hef fengið
fullt af frábærum tækifærum og
kynnst ógrynni af góðu fólki.“
Drottningar hjálpast að
Sunneva er með ríflega 26 þúsund
fylgjendur á Instagram og hátt í
sextán þúsund á Snapchat.
„Ég ætlaði mér aldrei að gera lífi
mínu skil á samfélagsmiðlum; það
bara gerðist og vatt hratt upp á sig.
Það kom á óvart en ég nýt þess.
Ég á æðislegan fylgjendahóp sem
hefur vonandi gaman af efninu
sem ég pósta og er þakklát fyrir
alla sem fylgja mér eftir,“ segir
Sunneva.
Hún hafi aldrei átt sér drauma
um frægð og frama.
„Sem krakki dreymdi mig jú um
að verða fræg söngkona en sá ferill
hefði aldrei gengið upp þar sem ég
er með skelfilega söngrödd,“ segir
Sunneva og hlær.
Hún segist meðvituð um
ábyrgðina sem fylgi því að vera
áhrifavaldur.
„Að deila sínu daglega lífi með
þúsundum áhorfenda fylgir
sannar lega ábyrgð og ég reyni að
hafa góð áhrif á alla. Ég sendi frá
mér jákvæða orku og vona að fólk
taki við henni. Ég vil hafa jákvæð
áhrif á alla, en sérstaklega ungar
stelpur. Ég vil að þær læri að elska
hver aðra, en sér í lagi sjálfar sig.
Lífið er mun betra þegar við stelp-
urnar stöndum saman. „Queens fix
each others crowns.“.“
Dreymir um að ferðast meira
Sunneva fæddist í Reykjavík
7. ágúst 1996 og verður því 22 ára
í sumar.
„Móðir mín vildi velja mér nafn
sem væri bjart og fagurt. Sunneva
þýðir gjöf sólar og henni fannst
nafnið hæfa mér vel en á þeim
tíma vorum við fáar sem hétum
Sunneva,“ segir sólskinsbarnið
Sunneva um fyrirmynd sína og
móður, Guðrúnu Helgu Harðar-
dóttur.
„Ég hef líka alltaf litið upp til
stóru systur minnar, Rebekku
Einarsdóttur, því hún er svo ótrú-
lega dugleg, metnaðarfull, falleg,
flott og yndisleg manneskja.“
Á samfélagsmiðlum er helsta
fyrirmynd Sunnevu Tammy Hem-
brow sem hún segir virðast vera
með allt á hreinu og lifa draumalífi.
„Að halda úti snappi getur verið
annasamt en ég er ekkert of föst
í því og snappa bara þegar ég vil.
Ég starfa hins vegar við að sjá um
samfélagsmiðla en framtíðar-
plönin eru að klára að mennta
mig og fá mér vinnu sem ég er góð
í og hef virkilega gaman af. Þegar
ég var yngri dreymdi mig um að
verða flugfreyja eða dýralæknir,
og jafnvel hvort tveggja í einu, en
í dag vonast ég til að finna mér
vinnu sem tengist ferðalögum því
ég elska að ferðast. Ef ég mætti
breyta einhverju úr fortíðinni vildi
ég óska að ég hefði ferðast miklu
meira en ég hef þegar gert,“ segir
Sunneva.
Ekkert fegurri en aðrar konur
Sunneva vekur hvarvetna athygli
fyrir glæsileik, fegurð og flottan
líkamsvöxt.
„Ég hef gaman af því að stunda
líkamsrækt og fer í ræktina fimm
til sex sinnum í viku. Ég hef líka
mikinn áhuga á förðun og tísku
og fylgist vel með því nýjasta. Ég
hef lítið fyrir því sem viðkemur
útlitinu því ég hef gaman af öllu
sem ég geri.“
Besta fegrunarráð Sunnevu er
að hugsa vel um húðina, drekka
mikið vatn og ástunda hreyfingu.
„Mér líður alltaf best þegar ég
hugsa vel um húðina og líkamann.
Það er staðreynd að þegar manni
líður vel og er í sátt við sjálfan sig
er maður hvað fallegastur,“ segir
Sunneva sem er ekki síður vel af
Guði gerð þegar kemur að innri
manni.
„Ég hef skemmtilegt og jákvætt
viðhorf til lífsins, er góð við alla og
er mikill dýravinur.“
Sunneva kveðst ekki finna fyrir
fordómum eða öfund annarra
kvenna vegna útlits síns.
„Nei, enda finnst mér ég ekki líta
betur út en aðrar konur. Að mínu
mati eiga konur ekki að bera sig
saman við aðrar konur; við erum
allar gullfallegar, hver á sinn hátt.“
Engin pressa sé að fara út úr húsi
upp á sitt besta þótt hún sé rómuð
fyrir glæsileika.
„Alls ekki. Oftast fer ég ómáluð
og í æfingafötunum út. En ég hef
vissulega gaman af því að farða
mig flott og klæða mig upp á, svo
það er engin pressa. Mér þykir
þó vænst um þegar fólk segir mig
fyndna frekar en fallega, því ég er
heilmikið fyndin. Það bara vita
það ekki allir,“ segir hún og hlær.
Snakkgrís og Star Wars-nörd
Það er nammidagur hjá þorra
landsmanna í dag en hjá Sunnevu
eru allir dagar nammidagar.
„Ég hef aldrei neitað mér um
eitt né neitt þótt ég reyni að halda
mínu striki á virkum dögum og
fá mér snakk og gvakamóle um
helgar. Ég er því meiri snakkgrís en
nammigrís og dæmigert kósíkvöld
hjá mér snýst um góða bíómynd,
snakk og kúr,“ segir Sunneva sem
er reglusöm að eðlisfari og þykir
gott að fara snemma í bólið og taka
daginn snemma.
„Mér finnst mjög gott að byrja
helgina á spinning, borða svo eitt-
hvað mjög óhollt og hafa það kósí.
Af og til kíki ég út á lífið og hef það
skemmtilegt með vinkonunum, og
þannig verður það um þessa helgi.“
Vísindaskáldskapur er eitt af
helstu áhugamálum Sunnevu sem
er mikill aðdáandi Star Wars, Lord
of the Rings, Harrys Potter, Star
Trek, Marvel, DC og Doctor Who.
„Það gæti komið einhverjum á
óvart að mamma kallaði mig nörd
þegar ég var á mínu mesta Sci-Fi-
tímabili en ég hef verið nörd síðan
ég man eftir mér og finnst áhuga-
málið bara mjög eðlilegt,“ segir
Sunneva og kímir.
Best að vera maður sjálfur
Sunneva á flesta fylgjendur sína á
Instagram þar sem hún byrjaði að
miðla myndum úr lífi sínu löngu
áður en hún opnaði á Snapchat.
„Ef ég mætti gefa ungum konum
ráð, sem vilja feta sömu braut og
ég á samfélagsmiðlum, væri það að
vera alltaf þær sjálfar. Það skiptir
öllu máli, og svo auðvitað góð
lýsing!“ segir hún og skellir upp úr.
„Þó að ég deili miklu úr eigin
lífi gæti ég þess líka að eiga mitt
eigið persónulega líf. Mín trú er
sú að enginn sé alveg 100 prósent
opinber á allt sitt. Maður verður
að eiga sitt einkalíf,“ segir Sunneva
og er reynslunni ríkari eftir að vera
orðin einn af vinsælustu áhrifa-
völdum Íslands.
„Áður var ég óskaplega feimin
en samfélagsmiðlarnir hafa kennt
mér að skríða út úr skelinni. Fyrir
hálfu öðru ári hefði mér aldrei
dottið í hug að ég yrði komin á
þann stað sem ég er á í dag og ég er
í raun og sann þakklát fyrir allt.“
Fylgstu með Sunnevu Eir á Insta
gram undir sunnevaeinarsd og á
Snapchat undir sunnevaeinars.
Sunnevu þykir vænt um fylgjendur sína en vænst um þegar fólk hrósar henni fyrir kímnigáfuna. Hún segist bráðfyndin, þótt ekki viti allir af því. MYND/ERNIR
Þórdís Lilja
Gunnarsdóttir
thordisg@365.is
Fólk er kynningarblað sem býður auglýsendum
að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og um
fjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið ritstjórnar
efni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 512 5349 | Ragnheiður Tryggvadóttir,
heida@frettabladid.is, s. 512 5367 | Oddur Freyr Þorsteinsson, oddurfreyr@frettabladid.is, s. 512 5368
| Sigríður Inga Sigurðardóttir, sigriduringa@frettabladid.is, s. 512 5372 | Starri Freyr Jónsson, starri@
frettabladid.is, s. 512 5358 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is s. 512 5338
Útgefandi:
365 miðlar
Ábyrgðarmaður:
Elmar Hallgríms Hallgrímsson
Sölumenn: Atli Bergmann, atli@frettabladid.is, s. 512 5457 | Jón Ívar Vil-
helmsson, jonivar@frettabladid.is, s. 512 5429 | Ólafur H. Hákonarson,
olafurh@frettabladid.is, s. 512 5433 | Máté Dalmay, mate@frettabladid.
is, s. 512 5442 ,
Ég vil hafa jákvæð
áhrif á alla, en
sérstaklega ungar stelpur.
Ég vil að þær læri að elska
aðra, en sér í lagi sjálfar
sig. Lífið er mun betra
þegar við stelpurnar
stöndum saman. „Queens
fix each others crowns.“
Sunneva Eir Einarsdóttir
2 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 2 4 . F E B R ÚA R 2 0 1 8 L AU G A R DAG U R
2
4
-0
2
-2
0
1
8
0
4
:3
5
F
B
1
1
2
s
_
P
0
7
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
7
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
3
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
4
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
F
0
D
-5
8
9
8
1
F
0
D
-5
7
5
C
1
F
0
D
-5
6
2
0
1
F
0
D
-5
4
E
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
1
1
2
s
_
2
3
_
2
_
2
0
1
8
C
M
Y
K