Fréttablaðið - 24.02.2018, Síða 55

Fréttablaðið - 24.02.2018, Síða 55
SAH Afurðir ehf á Blönduósi óska eftir að ráða kjötiðnaðarmann sem fyrst til starfa í 100% starf. Starfs – og ábyrgðarsvið • Vinna í kjötvinnslu við skurð, sultu, pökkun ofl. • Taka til pantanir • Yfirumsjón með reykhúsi • Ýmis önnur tilfallandi verkefni Menntunar – og hæfniskröfur • Menntun og / eða reynsla á sviði kjötiðnaðar skilyrði. • Nákvæm og vönduð vinnubrögð • Góð almenn tölvukunnátta. • Sjálfstæði og reglusemi • Metnaður til að ná árangri í starfi Umsóknarfrestur er til og með 10. mars n.k. Nánari upplýsingar veitir Vala Hilmarsdóttir í síma 455 2200 eða á netfanginu vala@sahun.is – móttaka umsókna er á sama netfang. Rannsóknarlektor á orðfræðis- viði við stofnun Árna Magnús- sonar í íslenskum fræðum Starf rannsóknarlektors við orðfræðisvið Stofnunar Árna Magnús- sonar í íslenskum fræðum er laust til umsóknar. Um er að ræða fullt starf. Umsækjendur skulu hafa lokið doktorsprófi á fræðasviði stofnunarinnar. Ætlast er til að þeir geti með námsferli sínum, starfsreynslu og ritverkum sýnt fram á trausta fræðilega þekkingu á íslensku máli að fornu og nýju og kunnáttu á sviði orðfræði í víðum skilningi, einkum með tilliti til íslensks orðaforða og orðanotkunar. Góð þekking á íslenskri málsögu og reynsla af sögulegum málrannsóknum er kostur. Æskilegt er að umsækjendur kunni góð skil á orðhlutafræði og fræðilegum forsendum orðabókargerðar og hafi innsýn í skipulag og úrvinnslu stórra gagna- og textasafna. Gerð er krafa um góða samskiptahæfni og gott vald á talaðri og ritaðri íslensku er skilyrði. Í starfinu er fólgin 40% rannsóknarskylda en auk þess er rannsóknar- lektornum ætlað að taka þátt í þeim verkefnum sem unnið er að á orðfræðisviði. Einkum er lögð áhersla á að styrkja það starf sem fram fer við uppbyggingu, úrvinnslu og greiningu gagnasafna stofnunar- innar um íslenskt mál og orðaforða. Jafnframt þarf hann að taka þátt í miðlun upplýsinga um gögnin og þekkingar á grundvelli þeirra til fræðimanna, háskólanema og almennings. Ráðið verður í starfið frá og með 1. september 2018 til fimm ára með möguleika á ótímabundinni ráðningu, sbr. 3. mgr. 31. gr. reglna fyrir Háskóla Íslands nr. 569/2009. Um hæfi umsækjenda og meðferð umsókna er farið eftir ákvæðum laga um Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum nr. 40/2006 og reglugerðar um Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum nr. 861/2008. Umsækjendur skulu láta fylgja umsókn sinni ítarlega skýrslu um vísindastörf sem þeir hafa unnið, ritsmíðar og rannsóknir, svo og vottorð um námsferil sinn og störf. Í umsókn skal koma fram hver ritverka sinna, allt að átta talsins, umsækjandi telur veigamest með tilliti til þess starfs sem um ræðir. Umsækjandi sendir eingöngu þessi ritverk með umsókn eða vísar til þess hvar þau eru aðgengileg á rafrænu formi. Þegar fleiri en einn höfundur standa að ritverki skulu umsækjendur gera grein fyrir framlagi sínu til verksins. Einnig er nauðsynlegt að í umsókn komi fram hvaða verkefnum umsækjendur hafa unnið að, hverju þeir vinna að sem stendur og hver séu áform þeirra um rannsóknarverkefni ef af ráðningu yrði. Enn fremur er ætlast til þess að umsækjendur láti fylgja nafn og netfang tveggja einstak- linga sem eru til þess bærir að veita umsagnir um verk þeirra og hæfni. Laun eru samkvæmt kjarasamningi Félags háskólakennara og fjármála- og efnahagsráðherra f.h. ríkissjóðs. Umsóknarfrestur er til og með 4. apríl 2018. Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf skal senda á netfang Sigur- borgar Stefánsdóttur fjármálastjóra: sigurborg.stefansdottir@ arnastofnun.is eða til Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum, Árnagarði við Suðurgötu, 101 Reykjavík ásamt fylgigögnum í þríriti. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu í starfið hefur verið tekin. Við ráðningar í störf hjá Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum er tekið mið af jafnréttisstefnu stofnunarinnar. Nánari upplýsingar um starfið veitir Ásta Svavarsdóttir, stofustjóri orðfræðisviðs, asta.svavarsdottir@arnastofnun.is eða í síma 525 4437. Frekari upplýsingar um stofnunina má finna á heimasíðunni: http:// www.arnastofnun.is/. Umhverfisverkfræðingur / umhverfisráðgjafi Umsóknarfrestur 5. mars 2018. Umsóknir sendist á job@resource.is Nánari upplýsingar www.resource.is/is/um-okkur/storf HELSTU VERKEFNI ӱ Ráðgjöf og skýrslugerð ӱ Rannsóknir og þróun ӱ Verkefnastjórnun ӱ Viðskiptaþróun HÆFNISKRÖFUR ӱ BSc or MSc í umhverfisverkfræði, umhverfis- og auðlindafræði eða sambærilegt ӱ Þekking og/eða reynsla á skólphreinsistöðvum, lífgasi, úrgangsstjórnun, bókhaldi gróðurhúsa lofttegunda (GHG) og lífsferilgreiningum (LCA) ӱ Samskiptahæfileika og reynslu í skýrslugerð á íslensku og ensku ӱ Þekking á Norðurlandamáli er kostur ӱ Þekking og reynsla á GIS og/eða CAT hug- búnaði er kostur Kr ía h ön nu na rs to fa w w w .k ria .is valka.is Framendaforritari Við erum að leita að hæfileikaríkum framendaforritara til að þróa með okkur að glænýja lausn. Viðkomandi þarf að hafa ástríðu fyrir hönnun á notendavænum vefviðmótum Hæfnikröfur: • Skilningur á góðri notendaupplifun • Þekking á hönnunarmynstrum og hugbúnaðarhönnun • Góð kunnátta á nýlegu Javascript, HTML, CSS, SASS • Góðir samskiptahæfileikar • Sjálfstæð vinnubrögð og lausnamiðuð hugsun Eftirfarandi kostir æskilegir: • Háskólamenntun sem nýtist í starfi • Reynsla af „responsive“ viðmótshönnun fyrir vef og síma • Reynsla af PHP og SQL • Þekking á Symfony Framework Tækjaforritari Við leitum af liðsmanni í teymi tækjaforritara sem þróar nýjar lausnir og vinnur að stöðugum umbótum á núverandi kerfum. Viðkomandi þarf að hafa ástríðu fyrir tækjabúnaði af ýmsum gerðum og metnað til að þróa framúrskarandi tækjastýringar. Hæfnikröfur: • Reynsla og kunnátta í C/C++ og Linux • Nákvæmni og öguð vinnubrögð • Greiningarhæfni • Góðir samskiptahæfileikar • Sjálfstæð vinnubrögð og lausnamiðuð hugsun Eftirfarandi kostir æskilegir: • Robotics / Kinematics þekking • Reynsla af Structured Text forritun skv. IEC 61131-3 staðli • Þekking á raf- og stýribúnaði ásamt hæfni í bilanagreiningu • Að viðkomandi sé tilbúin(n) í uppsetninga- og þjónustuferðir innanlands og utan • Þekking á Symfony Framework Nánari upplýsingar um störfin veitir Einar Björn Jónsson, vöruþróunarstjóri, einar@valka.is Umsóknir sendist á einar@valka.is Umsóknarfrestur er til og með 8. mars 2018 Hefur þú áhuga á hátækni? Hlutverk okkar er að hanna og framleiða hátæknilausnir fyrir vinnslu á fiski með það að markmiði að auka afköst, nákvæmni og framleiðni í samræmi við óskir viðskiptavina okkar. Framtíð fyrirtækisins byggir á hæfu, heiðarlegu og framsæknu starfsfólki sem axlar ábyrgð og sýnir frumkvæði í starfi. 2 4 -0 2 -2 0 1 8 0 4 :3 5 F B 1 1 2 s _ P 0 6 7 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 5 8 K _ N Y .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 4 6 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 5 5 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 F 0 D -4 E B 8 1 F 0 D -4 D 7 C 1 F 0 D -4 C 4 0 1 F 0 D -4 B 0 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 B F B 1 1 2 s _ 2 3 _ 2 _ 2 0 1 8 C M Y K
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.