Fréttablaðið - 24.02.2018, Síða 98
Við getum létt undir
Umönnun foreldra er gefandi en getur tekið á vegna annríkis í daglegu lífi.
Við getum létt undir með sveigjanlegri aðstoð á heimilinu og ráðgjöf.
Heimahreyfing
– sérsniðin styrktarþjálfun
Aðstoð við böðun
Innlit
Viðvera
Aðstoð við heimilishald
Útréttingar og bæjarferðir
PO
RT
h
ön
nu
n
(
HEIMA
Heilsa Vellíðan Daglegt líf
NÁNARI UPPLÝSINGAR:
Sími 563 1400
soltunheima@soltunheima.is
www.soltunheima.is
Hjúkrunarfræðingur kemur heim og saman finnum
við þjónustuúrræði fyrir þínar þarfir. Fyrsta heimsókn
án skuldbindingar og kostnaðar.
Persónuleg og sveigjanleg þjónusta
Þvílíkir tímar er yfirskrift sýningar á verkum Kristins E. Hrafnssonar myndhöggvara sem verður opnuð í Hverfisgalleríi
í dag. Kristinn hefur verið virkur
í íslensku myndlistarlífi í allt að
þrjátíu ár, tekið þátt í fjölda sýninga
bæði hér heima og erlendis. Kristinn
hefur oft fengist við tíma og rými
í verkum sínum í gegnum árin og
skynjun okkar á þessum ósnertan
legu fyrirbærum, þar á meðal þeim
aðferðum sem við beitum til þess að
ákvarða stund og stað eins og til að
mynda í veröld sjófarenda.
Sex ára á sjó
Kristinn er reyndar sjómannssonur
frá Ólafsfirði og aðspurður um hvort
sá bakgrunnur hafi leitt hann að
þessum viðfangsefnum þá gengst
hann nú fúslega við að vera alinn
upp sem sjómannsefni. „Ég byrjaði
ungur að fara á sjó með pabba og var
kominn með pungapróf og allt það
áður en að ég ákvað að vera frekar í
landi og feta listabrautina. En vissu
lega gefur það góða tilfinningu fyrir
rými að vera á sjó. Ég gerði reyndar
stóra sýningu um það á sínum tíma
sem var á Þjóðminjasafninu og þar
fór ég nú nokkuð djúpt í þetta mál
og skoðaði frá ýmsum vinklum. En
við þá vinnu þá fór ég líka heilmikið
í gegnum minnið því suma hluti úr
æskunni man maður svo sterklega.
Ég man að ég var sex ára þegar ég fór
á sjó með pabba og sá ekki til lands
og það er ákaflega sterk upplifun,
alveg ævintýraleg. Maður áttar sig
ekkert á því hvernig maður fer heim
og það er sérstök tilfinning.“
Upplifir þú þá að það séu engar
áttir lengur? „Já, sérstaklega í þoku
eða myrkri, þá áttar maður sig ekki.
Það er allt annað þegar maður hefur
sólina en þegar hennar nýtur ekki
við þá er þetta mikil ráðgáta. Í seinni
tíð þegar ég hef verið að skoða stöðu
okkar í alheiminum þá er þetta á
margan hátt svipuð hugsun; maður
er að reyna að rata. Átta sig á því
hvaðan þessi heimur er og hvernig
hann byrjar og hvar hann endar
og svo framvegis. Að við séum að
upplifa mjög merkilega tíma. Bæði
heillandi og háskalega.“
Að taka þátt í lífinu
Kristinn segir titil sýningarinnar,
Þvílíkir tímar, einmitt vísa í þessa
hugsun. „Bæði þetta kosmíska, stóra
mikla sem er mikið að opnast fyrir
okkur núna því við erum eins og
landkönnuðir í þessari veröld sem
við höfum aldrei séð jafn mikið af.
En á sama tíma erum við líka að búa
til einhvern sýndarveruleika eða
sýndarrými sem mér finnst mjög
óheillandi. Mér finnst veruleikinn
miklu meira spennandi en eitthvert
afrit af honum,“ segir Kristinn og er
þar að vísa til tækni og tölvuveru
leikans sem er orðinn svo fyrir
ferðar mikill í daglegu lífi svo margra.
„Mér finnst eins og fólki líði ekk
ert vel í þessum heimi. Þú finnur
aldrei neitt, þú upplifir aldrei neitt.
Þér er alltaf sagt hvernig hlutirnir
eru eða þá að heimurinn er búinn
til af öðrum í stað þess að hver og
einn reyni að skapa sinn eigin veru
leika, sinn eigin heim, með því að
skoða umhverfi sitt og sína veröld.
Að reka sig á, uppgötva og vera þátt
takandi í lífinu er það sem við eigum
að gera. Ef þú gerir það ekki þá ertu
einhvern veginn ekkert með.“
Skáldin hans Kristins
Á sýningu Kristins er að finna verk
sem eru tileinkuð skáldunum Sig
urði Pálssyni og Þorsteini frá Hamri.
Sigurður féll frá á síðasta ári en Þor
steinn nú fyrir skömmu en þessir
vinir Kristins áttu í huga hans það
sameiginlegt að vera bæði dásam
legir listamenn og miklir landkönn
uðir. „Það var það sem heillaði mig
við þá fyrst þegar ég las þá. Þeir til
heyra eldri kynslóð svo ég kynnist
þeim fyrst í gegnum ljóðalestur en
seinna áttum við svo eftir að vinna
saman. En þeir báðir voru mjög
uppteknir af þeim veruleika sem
við lifum og hrærumst í en á mjög
ólíkan hátt.
Mér fannst Sigurður vera meiri
sjófarandi. Hann orti mikið um
sjóndeildarhringinn og það er
mikið ferðalag í ljóðum hans. En
aftur á móti var Þorsteinn meira á
heimavelli en algjörlega með heim
inn undir. Hann var miklu jarð
bundnari maður en samt fantast
ískt skáld, stór og mikill. Ég tileinka
þeim hvorum um sig eitt verk hérna
á sýningunni. Er með ljóðabrot frá
Sigurði sem ég bæti inn í sjálfur
og geri setninguna að spegilmynd:
AFTUR OG ENN OG AFTUR. Síðan
er ég með fjóra hornsteina í salnum
sem eru tileinkaðir Þorsteini og það
er undir okkur komið hvernig við
skiljum það verk og hvort við erum
inni í steininum eða utan við eftir
því hvernig við skiljum rýmið.
Þetta er löndun
Kristinn hefur fengist við myndlist
ina í um þrjátíu ár og sýnt víða en
skyldi því alltaf fylgja sama tilfinn
ingin að opna nýja sýningu. Ertu
alltaf að leggja sjálfan þig undir? „Já
maður leggur alltaf sjálfan sig undir.
Það er alltaf fiðringur og pínu tauga
veiklun. Ég veit ekki hvernig væri
ef maður væri slakur. Kannski að
það væri þá eitthvað að. Maður er
kannski ekki uppspenntur, það er
engin háspenna, en það þarf að vera
smáspenna,“ segir Kristinn og hlær.
Hann bætir því við að hann sé
lengi að búa til myndlist. „Þetta
er yfirlega. Ég leyfi hlutunum að
fá tíma og ég veit ekkert endilega
hvert ég ætla í upphafi ferðar en
svo skerpist það hægt og bítandi. Þá
verður líka mikil vinna og stundum
breytast verkin í ferlinu og því fylgir
tilhlökkun, þessi smáspenna.“ Er
þetta strákurinn á bátnum hans
pabba að sjá aftur í land? Kristinn
hlær við spurningunni og svarar
einfaldlega. „Já, þetta er að minnsta
kosti löndun.“
Við erum eins og landkönnuðir í þessari veröld
Kristinn E. Hrafnsson myndhöggvari opnar sýningu í dag undir yfirskriftinni Þvílíkir tímar. Hann segir
titil sýningarinnar vísa til þeirra stórmerkilegu en einnig viðsjárverðu tíma sem við lifum.
Kristinn er alinn upp sem sjómannsefni á Ólafsfirði og hann segir það eflaust hafa haft einhver áhrif á hvernig hann skoðar heiminn í sinni listsköpun.
FréttAblAðið/EyÞÓr
Magnús
Guðmundsson
magnus@frettabladid.is
2 4 . f e b r ú a r 2 0 1 8 L a U G a r D a G U r54 m e n n i n G ∙ f r É T T a b L a ð i ð
2
4
-0
2
-2
0
1
8
0
4
:3
5
F
B
1
1
2
s
_
P
1
1
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
9
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
F
0
C
-F
5
D
8
1
F
0
C
-F
4
9
C
1
F
0
C
-F
3
6
0
1
F
0
C
-F
2
2
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
1
1
2
s
_
2
3
_
2
_
2
0
1
8
C
M
Y
K