Fréttablaðið - 24.02.2018, Page 99
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
8
6
5
4
9
Styrkir til verkefna sem
tengjast hagsmunum
fatlaðs fólks og öryrkja
Öryrkjabandalag Íslands veitir árlega sérstaka styrki til ýmissa
hagnýtra verkefna sem tengjast hagsmunum fatlaðs fólks
og öryrkja í samræmi við málefni, markmið og/eða stefnu
bandalagsins. ÖBÍ auglýsir hér með eftir styrkumsóknum.
Umsóknarfrestur er til 15. mars næstkomandi.
Sótt er um styrk rafrænt á vef Öryrkjabandalagsins, obi.is.
Nánari upplýsingar veitir starfsfólk á skrifstofu ÖBÍ.
Netfang: mottaka@obi.is. Sími: 530 6700.
List fyrir alla auglýsir eftir umsóknum um
listviðburði eða verkefni á svið barnamenningar
fyrir grunnskólabörn
List fyrir alla er barnamenningarverkefni á vegum mennta- og menningar-
málaráðuneytis, sem ætlað er að miðla listviðburðum til barna og ungmenna um
land allt og jafna þannig aðgengi barna á grunnskólaaldri að fjölbreyttum og
vönduðum listviðburðum óháð búsetu og efnahag.
Starfandi listamenn sem og stofnanir og aðrir lögaðilar er sinna barna-
menningu á einhvern hátt geta sótt um. Umsóknarfrestur er til 19. mars 2018.
MAT Á UMSÓKNUM
Valnefnd metur umsóknir og gildi þeirra með hliðsjón af því hvernig þær falla
að markmiðum verkefnisins List fyrir alla. Listviðburðir og verkefni skulu í
öllum tilvikum unnin af metnaði og af fagfólki. Við mat á umsóknum er valnefnd
heimilt að leita umsagnar, gerist þess þörf.
Ákvörðun úthlutunar mun liggja fyrir eigi síðar en 4. maí 2018.
Umsækjendum er gert að sækja um á rafrænu formi á heimasíðu
List fyrir alla, www.listfyriralla.is
T ólf manna strengja-sv e i t i n S p i c c a t o heldur tónleika í Listasafni Sigurjóns á Laugarnestanga í dag. Þeir hefjast klukkan
17.15 og andi barokks svífur þar
yfir. Hlíf Sigurjónsdóttir fiðluleik-
ari er ein tólfmenninganna og hún
verður fyrir svörum þegar aflað er
upplýsinga um dagskrána.
„Við erum að spila verk eftir
Telemann og Locatelli, Torelli og
Hollendinginn Wassenau. Þeir
voru uppi á tímabilinu 1680 til
1760-70. Það er sem sagt bar-
rokktíminn og okkur langaði að
spila þessa músík því hún heyrist
sjaldan en er strengjavæn og vel
skrifuð.“
Hvar kynntust þið henni? „Nú
liggur allt á netinu, þar er hægt að
fara á YouTube og heyra hvernig
verk hljóma og yfirleitt er auðvelt
að finna nótur þar líka. Þetta sem
við erum að spila núna er óvernd-
uð músík svo valið er innan þæg-
indarammans, þannig séð.“
Hlíf áréttar að tónlistin sé flott.
„Bæði gerir hún kröfur til flytjend-
anna en um leið fær maður mikið
út úr henni,“ lýsir hún. „Það eru
líka skemmtileg samtöl sem eiga
sér stað í músíkinni því formið á
henni er þannig að þar skiptast á
sóló og samleikur.“
Hlíf segir æfingar sveitarinnar
Spiccato lýðræðislegar. Þar skipt-
ist fólk á skoðunum um túlkun
tónverkanna og allir fái tækifæri
til að koma fram sem einleikarar.
„Það er svona grasrótarstemning
í gangi sem er svo mikilvægt að
rækta – þó við séum ekki alltaf
sammála. Við þroskum okkur með
þessu fyrirkomulagi því þar er
höfðað til framkvæmdahvatar og
ábyrgðar hjá hverju og einu og
tónlistinni fylgja töfrar sem bæta
manninn,“ segir hún og klykkir út
með afbragðs lokaorðum. „Lífs-
gæði verða ekki talin í aurum en
okkur líður vel í þessu samstarfi.“
gun@frettabladid.is
Tónlistinni fylgja töfrar
sem bæta manninn
„Það eru líka skemmtileg samtöl sem eiga sér stað í músíkinni því formið
á henni er þannig að þar skiptast á sóló og samleikur,“ segir Hlíf sem hér er
með öðrum fiðluleikara í Spiccato, Martin Frewer. Fréttablaðið/SteFán
Lítið eitt um
Spiccato
Hljómsveitin Spiccato var stofn-
uð árið 2012 af hópi strengja-
leikara. Þar ríkir jafnræði milli
hljóðfæraleikaranna og enginn
einn stjórnar. á þessum rúmum
fimm árum hefur sveitin haldið
11 tónleika, flesta í reykjavík.
Þessi strjúka strengina:
Fiðlur: Martin Frewer
Hlíf Sigurjónsdóttir
Sigurlaug eðvaldsdóttir
ágústa Jónsdóttir
Kristján Matthíasson
María Weiss
Sigrún Harðardóttir
Sigrún Kristbjörg
Jónsdóttir
lágfiðlur: Sarah buckley og
eyjólfur bjarni
alfreðsson
Selló: Þórdís Gerður Jónsdóttir
bassi: Páll Hannesson
Okkur langaði að
spila þessa músík
því hún heyrist sjaldan en
er strengjavæn Og vel
skrifuð.
m e n n i n g ∙ F R É T T A B L A ð i ð 55L A U g A R D A g U R 2 4 . F e B R ú A R 2 0 1 8
2
4
-0
2
-2
0
1
8
0
4
:3
5
F
B
1
1
2
s
_
P
1
1
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
9
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
1
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
F
0
D
-0
4
A
8
1
F
0
D
-0
3
6
C
1
F
0
D
-0
2
3
0
1
F
0
D
-0
0
F
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
A
F
B
1
1
2
s
_
2
3
_
2
_
2
0
1
8
C
M
Y
K