Fréttablaðið - 07.03.2018, Blaðsíða 24
Útgefandi: 365 miðlar Veffang: frettabladid.isÁbyrgðarmaður: Elmar Hallgríms Hallgrímsson Sölumaður auglýsinga: Ólafur H. Hákonarson, olafurh@frettabladid.is, s. 512 5433
grundvallar viðmiðum eins og
virðingu fyrir persónum, persónu-
vernd og siðferðislega réttum við-
skiptaháttum,“ segir Ketill.
Segja má að samfélagsábyrgð
fyrirtækja sé huglæg þar til hún
er tengd við hagnýt, dagleg störf í
rekstri.
„Samfélagsábyrgð hefur ekki
einungis jákvæð áhrif á samfélagið
heldur líka fyrirtækin sjálf. Í ljós
hefur komið að fyrirtækjum, sem
sinna samfélagsábyrgð vel, gengur
betur fjárhagslega vegna þess að
með því að huga að umhverfis-
málum stunda þau minni sóun,
eyða minna í eldsneyti og fara betur
með peninga.“
Ísland með gott orð á sér
Þegar litið er á fjölda íslenskra fyrir-
tækja, sem vinna af alvöru að sam-
félagsábyrgð, eru þau tiltölulega fá í
samanburði við hin Norðurlöndin.
„Íslendingar hafa verið svolítið
seinir að taka við sér en um leið og
þeir hafa áttað sig á því að sam-
félagsábyrgð sé sniðug hugmynd
hafa þeir unnið að henni af miklu
kappi og séð tækifærin,“ segir Ketill
og bendir á að á sumum sviðum séu
Íslendingar langt komnir.
„Ísland hefur það orð á sér að
hér sé sjálfbærni í hávegum höfð.
Við erum fræg um allan heim fyrir
að nota endurnýtanlega orku og
hita hús okkar með þeim hætti.
Við höfum líka tekið kerfislegar
ákvarðanir eins og fiskveiðistjórn-
unarkerfið sem gengur út á að geta
haldið fiskveiðum áfram án þess að
ganga um of á stofninn. Kvótakerfið
miðar að sjálfbærni þótt deilt sé um
hvernig úthlutað sé úr því og skiptar
skoðanir um réttlæti þess hverjir fái
að veiða. En þrátt fyrir þessi góðu
fordæmi huga íslensk fyrirtæki og
einstaklingar ekki nægilega að nátt-
úrunni og ganga út frá henni sem
gefinni. Við umgöngumst náttúr-
una því miður af minni virðingu en
við ættum að gera, mögulega vegna
þess að við vitum að við eigum
gnótt náttúruauðlinda.“
Ábyrg ferðaþjónusta
Festa hefur staðið fyrir mörgum
hvatningarverkefnum. Í janúar 2017
hófu Festa og Íslenski ferðaklasinn
samstarf við alla aðila í ferða-
þjónustu með verkefninu Ábyrg
ferðaþjónusta.
„Við stöndum frammi fyrir
gríðarmiklum áskorunum í ferða-
þjónustu,“ segir Ketill um tilurð
verkefnisins. „Ferðamönnum fjölgar
og ágangur á náttúruna er mikill.
Við höfum því miklar áhyggjur af því
að þungur ferðamannastraumur-
inn valdi neikvæðum áhrifum á
umhverfið. Því reynir á innviðina,
fyrirtækin og okkur sem gestgjafa
að hjálpa ferðamönnum að vera
umhverfisvænir,“ segir Ketill.
Með verkefninu var fyrirtækjum
boðið að skrifa undir yfirlýsingu
um markmið sín í ábyrgri ferða-
þjónustu.
„Við höfðum gert okkur vonir um
að fimmtíu fyrirtæki tækju þátt en
þegar upp var staðið skrifuðu 260
fyrirtæki undir yfirlýsinguna og nú
hafa 320 fyrirtæki gert hið sama.
Þessu höfum við svo fylgt eftir með
námskeiðum og fræðslu til að hjálpa
fyrirtækjunum að framfylgja mark-
miðum sínum, um þýðingu þess að
vera ábyrgt fyrirtæki og hvernig við
náum árangri í umhverfismálum,
öryggismálum, réttindum starfsfólks
og áhrifum á nærsamfélagið,“ upp-
lýsir Ketill.
Festa setur gjarnan á laggirnar
verkefni sem felast í því að hvetja
fyrirtæki til aðgerða í samfélags-
ábyrgð. Þar má nefna verkefnið um
loftslagsmarkmið Festu og Reykja-
víkurborgar.
„Í aðdraganda Parísarfundarins
um loftslagsmál árið 2015 buðu
Festa og Reykjavíkurborg fyrir-
tækjum að setja sér markmið um
loftslagsmál. Þá komu 104 forstjórar
í Höfða til að skrifa undir loforð um
þrennt: að draga úr losun gróður-
húsalofttegunda, að minnka losun
úrgangs og að mæla árangurinn og
birta niðurstöðuna reglulega. Engin
lagaleg krafa er um að fyrirtækin
framfylgi þessum loforðum en það
sýndi sig að þau vildu heilshugar
taka þátt í verkefninu,“ segir Ketill.
Orð eru til alls fyrst
Mikil vakning er nú meðal
íslenskra fyrirtækja þegar kemur
að samfélagsábyrgð.
„Fyrirtæki eru í æ meira mæli að
átta sig á að þau geti haft veru-
lega jákvæð áhrif. Við horfum því
fram á við og veltum fyrir okkur
hvernig við getum unnið sem best
á hinum ýmsu sviðum, í sjávarút-
vegi, byggingariðnaði, fjárfestingum
og nýsköpun, til að koma þessari
hugsun í fyrirtækjarekstur þann-
ig að þau geti haft jákvæð áhrif á
umhverfið og samfélagið,“ segir
Ketill. Miklu skipti líka samtal við
yfirvöld.
„Vitundarvakningin er mikil
en við viljum sjá fleiri aðgerðir og
raunverulegan árangur. Ríkisstjórn
Katrínar Jakobsdóttur hefur sett
sér metnaðarfull markmið sem
tengjast sjálfbærni og samfélags-
ábyrgð í stjórnarsáttmálanum og
alveg skýrt að ríkisstjórnin vill ná
árangri í umhverfismálum og ferða-
þjónustu. Við bíðum því spennt
eftir raunverulegum aðgerðum þar
sem hægt verður að mæla árangur-
inn og vonumst til að þetta verði
ekki bara spjall heldur eitthvað
sem við getum orðið stolt af að ná
árangri í,“ segir Ketill.
Loftslagsmálin séu gott dæmi
um hvernig sveitarfélög og yfirvöld
geti unnið saman í gegnum Festu.
„Saman geta þau skapað hvata
sem hentar fyrirtækjum til að
verða umhverfisvæn, til dæmis
með afslætti á rafmagnsbílum, sem
gerði líklegra að fyrirtæki legðu
sitt af mörkum,“ segir Ketill.
Eitt af gildum Festu sé að deila
þekkingu og upplýsingum.
„Það eru allir í sama liði þegar
kemur að samfélagsábyrgð.
Fyrirtæki og einstaklingar hafa
öll sama markmið; að stuðla að
aukinni sjálfbærni á Íslandi. Um
það þarf að vera gott samstarf en
ekki skotgrafahernaður. Festa er
opinn vettvangur til verksins og
við hvetjum fyrirtæki, sveitarfélög
og stofnanir til að gerast aðilar að
Festu því þannig getum við unnið
þetta saman.“
Samstarf sé einn af grunnstólp-
unum í starfi Festu.
„Orð eru til alls fyrst en verkin
tala. Árið 2016 voru sett lög sem
skylda stórfyrirtæki til að gera
árlega grein fyrir árangri sínum í
samfélagsábyrgð, en það eru upp-
lýsingar um umhverfis- og sam-
félagsmál. Nú virðist vera mikill
samhljómur í samfélaginu, en eitt
er að setja fram stefnu og fallegar
yfirlýsingar, og annað að sýna fram
á efndir með skýrum hætti.“
Ketill segir
Ísland hafa
gott orð á sér
þegar kemur að
sjálfbærni. Þrátt
fyrir það hugi
íslensk fyrirtæki
og einstaklingar
ekki nægilega
að náttúrunni
og gangi út
frá henni sem
gefinni.
MYND/ERNIR
Það eru allir í sama
liði þegar kemur að
samfélagsábyrgð og hafa
sömu markmið; að stuðla
að aukinni sjálfbærni á
Íslandi. Um það þarf að
vera gott samstarf en ekki
skotgrafahernaður.
Ketill Berg Magnússon
Framhald af forsíðu ➛
Flokkum saman
fyrir umhverfið og betri framtíð
Berghellu 1• 221 Hafnarfjörður • Sími 535 2500 • soludeild@gamar.is • www.gamar.is
2 KYNNINGARBLAÐ 7 . M A R S 2 0 1 8 M I ÐV I KU DAG U RSAMféLAGSÁBYRGÐ fYRIRtæKjA
0
7
-0
3
-2
0
1
8
0
5
:2
9
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
F
2
2
-9
3
8
C
1
F
2
2
-9
2
5
0
1
F
2
2
-9
1
1
4
1
F
2
2
-8
F
D
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
8
B
F
B
0
6
4
s
_
6
_
3
_
2
0
1
8
C
M
Y
K