Fréttablaðið - 07.03.2018, Page 24

Fréttablaðið - 07.03.2018, Page 24
Útgefandi: 365 miðlar Veffang: frettabladid.isÁbyrgðarmaður: Elmar Hallgríms Hallgrímsson Sölumaður auglýsinga: Ólafur H. Hákonarson, olafurh@frettabladid.is, s. 512 5433 grundvallar viðmiðum eins og virðingu fyrir persónum, persónu- vernd og siðferðislega réttum við- skiptaháttum,“ segir Ketill. Segja má að samfélagsábyrgð fyrirtækja sé huglæg þar til hún er tengd við hagnýt, dagleg störf í rekstri. „Samfélagsábyrgð hefur ekki einungis jákvæð áhrif á samfélagið heldur líka fyrirtækin sjálf. Í ljós hefur komið að fyrirtækjum, sem sinna samfélagsábyrgð vel, gengur betur fjárhagslega vegna þess að með því að huga að umhverfis- málum stunda þau minni sóun, eyða minna í eldsneyti og fara betur með peninga.“ Ísland með gott orð á sér Þegar litið er á fjölda íslenskra fyrir- tækja, sem vinna af alvöru að sam- félagsábyrgð, eru þau tiltölulega fá í samanburði við hin Norðurlöndin. „Íslendingar hafa verið svolítið seinir að taka við sér en um leið og þeir hafa áttað sig á því að sam- félagsábyrgð sé sniðug hugmynd hafa þeir unnið að henni af miklu kappi og séð tækifærin,“ segir Ketill og bendir á að á sumum sviðum séu Íslendingar langt komnir. „Ísland hefur það orð á sér að hér sé sjálfbærni í hávegum höfð. Við erum fræg um allan heim fyrir að nota endurnýtanlega orku og hita hús okkar með þeim hætti. Við höfum líka tekið kerfislegar ákvarðanir eins og fiskveiðistjórn- unarkerfið sem gengur út á að geta haldið fiskveiðum áfram án þess að ganga um of á stofninn. Kvótakerfið miðar að sjálfbærni þótt deilt sé um hvernig úthlutað sé úr því og skiptar skoðanir um réttlæti þess hverjir fái að veiða. En þrátt fyrir þessi góðu fordæmi huga íslensk fyrirtæki og einstaklingar ekki nægilega að nátt- úrunni og ganga út frá henni sem gefinni. Við umgöngumst náttúr- una því miður af minni virðingu en við ættum að gera, mögulega vegna þess að við vitum að við eigum gnótt náttúruauðlinda.“ Ábyrg ferðaþjónusta Festa hefur staðið fyrir mörgum hvatningarverkefnum. Í janúar 2017 hófu Festa og Íslenski ferðaklasinn samstarf við alla aðila í ferða- þjónustu með verkefninu Ábyrg ferðaþjónusta. „Við stöndum frammi fyrir gríðarmiklum áskorunum í ferða- þjónustu,“ segir Ketill um tilurð verkefnisins. „Ferðamönnum fjölgar og ágangur á náttúruna er mikill. Við höfum því miklar áhyggjur af því að þungur ferðamannastraumur- inn valdi neikvæðum áhrifum á umhverfið. Því reynir á innviðina, fyrirtækin og okkur sem gestgjafa að hjálpa ferðamönnum að vera umhverfisvænir,“ segir Ketill. Með verkefninu var fyrirtækjum boðið að skrifa undir yfirlýsingu um markmið sín í ábyrgri ferða- þjónustu. „Við höfðum gert okkur vonir um að fimmtíu fyrirtæki tækju þátt en þegar upp var staðið skrifuðu 260 fyrirtæki undir yfirlýsinguna og nú hafa 320 fyrirtæki gert hið sama. Þessu höfum við svo fylgt eftir með námskeiðum og fræðslu til að hjálpa fyrirtækjunum að framfylgja mark- miðum sínum, um þýðingu þess að vera ábyrgt fyrirtæki og hvernig við náum árangri í umhverfismálum, öryggismálum, réttindum starfsfólks og áhrifum á nærsamfélagið,“ upp- lýsir Ketill. Festa setur gjarnan á laggirnar verkefni sem felast í því að hvetja fyrirtæki til aðgerða í samfélags- ábyrgð. Þar má nefna verkefnið um loftslagsmarkmið Festu og Reykja- víkurborgar. „Í aðdraganda Parísarfundarins um loftslagsmál árið 2015 buðu Festa og Reykjavíkurborg fyrir- tækjum að setja sér markmið um loftslagsmál. Þá komu 104 forstjórar í Höfða til að skrifa undir loforð um þrennt: að draga úr losun gróður- húsalofttegunda, að minnka losun úrgangs og að mæla árangurinn og birta niðurstöðuna reglulega. Engin lagaleg krafa er um að fyrirtækin framfylgi þessum loforðum en það sýndi sig að þau vildu heilshugar taka þátt í verkefninu,“ segir Ketill. Orð eru til alls fyrst Mikil vakning er nú meðal íslenskra fyrirtækja þegar kemur að samfélagsábyrgð. „Fyrirtæki eru í æ meira mæli að átta sig á að þau geti haft veru- lega jákvæð áhrif. Við horfum því fram á við og veltum fyrir okkur hvernig við getum unnið sem best á hinum ýmsu sviðum, í sjávarút- vegi, byggingariðnaði, fjárfestingum og nýsköpun, til að koma þessari hugsun í fyrirtækjarekstur þann- ig að þau geti haft jákvæð áhrif á umhverfið og samfélagið,“ segir Ketill. Miklu skipti líka samtal við yfirvöld. „Vitundarvakningin er mikil en við viljum sjá fleiri aðgerðir og raunverulegan árangur. Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur hefur sett sér metnaðarfull markmið sem tengjast sjálfbærni og samfélags- ábyrgð í stjórnarsáttmálanum og alveg skýrt að ríkisstjórnin vill ná árangri í umhverfismálum og ferða- þjónustu. Við bíðum því spennt eftir raunverulegum aðgerðum þar sem hægt verður að mæla árangur- inn og vonumst til að þetta verði ekki bara spjall heldur eitthvað sem við getum orðið stolt af að ná árangri í,“ segir Ketill. Loftslagsmálin séu gott dæmi um hvernig sveitarfélög og yfirvöld geti unnið saman í gegnum Festu. „Saman geta þau skapað hvata sem hentar fyrirtækjum til að verða umhverfisvæn, til dæmis með afslætti á rafmagnsbílum, sem gerði líklegra að fyrirtæki legðu sitt af mörkum,“ segir Ketill. Eitt af gildum Festu sé að deila þekkingu og upplýsingum. „Það eru allir í sama liði þegar kemur að samfélagsábyrgð. Fyrirtæki og einstaklingar hafa öll sama markmið; að stuðla að aukinni sjálfbærni á Íslandi. Um það þarf að vera gott samstarf en ekki skotgrafahernaður. Festa er opinn vettvangur til verksins og við hvetjum fyrirtæki, sveitarfélög og stofnanir til að gerast aðilar að Festu því þannig getum við unnið þetta saman.“ Samstarf sé einn af grunnstólp- unum í starfi Festu. „Orð eru til alls fyrst en verkin tala. Árið 2016 voru sett lög sem skylda stórfyrirtæki til að gera árlega grein fyrir árangri sínum í samfélagsábyrgð, en það eru upp- lýsingar um umhverfis- og sam- félagsmál. Nú virðist vera mikill samhljómur í samfélaginu, en eitt er að setja fram stefnu og fallegar yfirlýsingar, og annað að sýna fram á efndir með skýrum hætti.“ Ketill segir Ísland hafa gott orð á sér þegar kemur að sjálfbærni. Þrátt fyrir það hugi íslensk fyrirtæki og einstaklingar ekki nægilega að náttúrunni og gangi út frá henni sem gefinni. MYND/ERNIR Það eru allir í sama liði þegar kemur að samfélagsábyrgð og hafa sömu markmið; að stuðla að aukinni sjálfbærni á Íslandi. Um það þarf að vera gott samstarf en ekki skotgrafahernaður. Ketill Berg Magnússon Framhald af forsíðu ➛ Flokkum saman fyrir umhverfið og betri framtíð Berghellu 1• 221 Hafnarfjörður • Sími 535 2500 • soludeild@gamar.is • www.gamar.is 2 KYNNINGARBLAÐ 7 . M A R S 2 0 1 8 M I ÐV I KU DAG U RSAMféLAGSÁBYRGÐ fYRIRtæKjA 0 7 -0 3 -2 0 1 8 0 5 :2 9 F B 0 6 4 s _ P 0 4 1 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 4 0 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 2 4 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 2 5 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 F 2 2 -9 3 8 C 1 F 2 2 -9 2 5 0 1 F 2 2 -9 1 1 4 1 F 2 2 -8 F D 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 8 B F B 0 6 4 s _ 6 _ 3 _ 2 0 1 8 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.