Fréttablaðið - 07.03.2018, Blaðsíða 36
Áhersla er lögð á að
hámarka jákvæð
áhrif á umhverfið og
samfélagið í heild og
skapa þannig sameigin-
legt virði.
Víða var ekki um
aðra orkukosti að
ræða en dísilrafstöðvar
sem gengu allan sólar-
hringinn og voru notaðir
til þess 120 þúsund lítrar
af eldsneyti á ári. Við
höfum nú minnkað
brennsluna í 10 þúsund
lítra, sem er rúmlega 90
prósenta minnkun.
Vodafone
leggur kapp á
að sýna sam-
félagsábyrgð í
verki og styrkir
meðal annars
KSÍ, Landsbjörg,
UN Women
og UNICEF. Þá
hefur verið tekið
mikið tillit til
umhverfisins
við hönnun og
byggingu nýju
höfuðstöðvanna
á Suðurlands-
braut. Sif
Sturludóttir er
forstöðumaður
hjá Vodafone.
Samfélagsábyrgð Vodafone skiptist í þrjú áherslusvið; sameiginlegt virði, sjálfbærni
og hlítni sem er dregið af sögninni
að hlíta eða fara að reglum,“ segir
Sif Sturludóttir, forstöðumaður hjá
Vodafone. „ Áhersla er lögð á að
hámarka jákvæð áhrif á umhverfið
og samfélagið í heild og skapa
þannig sameiginlegt virði fyrir
félagið og alla hagsmunaaðila.“
Hún segir Vodafone sýna sam
félagsábyrgð í verki með því að
sinna hlutverki sínu af fagmennsku
og ábyrgð. „Við leggjum okkar af
mörkum við uppbyggingu og fram
þróun samfélagsins með því að
veita mikilvæga þjónustu og stuðla
að virkri samkeppni á markaðn
um,“ segir hún og bætir við: „Við
styðjum við nýsköpun og vinnum
með íslenskum frumkvöðlum
og nýsköpunarfyrirtækjum. Má
þar sem dæmi nefna viðskipta
þróunarkeppnina Stökkpallinn
sem Vodafone stofnaði í tengslum
við Startup Iceland ráðstefnuna
2016. Vodafone var einnig einn af
stofnaðilum viðskiptahraðalsins
Startup Tourism en honum er ætlað
að stuðla að faglegri undirstöðu hjá
nýjum fyrirtækjum í ferðaþjónustu
og dreifingu ferðamanna í kringum
landið.“
Vodafone er einn aðalstyrktar
aðili Slysavarnafélagsins Lands
bjargar og bakhjarl KSÍ. „Við höfum
einnig unnið náið með UN Women
á Íslandi og UNICEF, Barnahjálp
Sameinuðu þjóðanna.“ Vodafone
hefur hlotið gullmerki jafnlauna
úttektar PwC á Íslandi sem stað
festir að munur á launum karla og
kvenna hjá Vodafone er minni en
3,5%. Í greiningu PwC er tekið tillit
til áhrifa aldurs, starfsaldurs, fagald
urs, menntunar, starfshóps, stöðu
gagnvart jafningjum, hæfniviðmiðs,
stöðu í skipuriti og mannaforráða.
Þá er upplýsingaöryggi mikilvægur
þáttur í starfsemi Vodafone. „Voda
fone hefur sett sér stefnu varðandi
upplýsingaöryggi og leitast félagið
eftir opnum og gagnsæjum sam
skiptum við alla hagsmunaaðila,“
segir Sif. „Félagið leitast við að
lágmarka þær persónuupplýsingar
sem falla til í starfseminni auk þess
að skilgreina nákvæmlega rafræn
spor viðskiptavina og standa vörð
um þær upplýsingar.“
Sif segir að fyrir tæpum tveimur
árum hafi verið unnið með öllu
starfsfólki að stefnu í samfélags
ábyrgð. „Þau áherslusvið sem urðu
fyrir valinu eru afrakstur þeirrar
vinnu. Við erum mjög ánægð með
hvernig til tókst enda skiptir það
okkur höfuðmáli að starfsfólkið
Samfélagsábyrgð í verki
Vodafone hefur um árabil sýnt samfélagsábyrgð í verki, bæði með því að styðja við samfélagsleg
verkefni en líka með breytni sinni í innra skipulagi fyrirtækisins.
sjálft tengi við stefnuna. Voda
fone styður starfsfólk í að stunda
vistvænar samgöngur og veitir sam
göngustyrk sem fólk er duglegt að
nýta sér en almenningssamgöngur
eru mjög aðgengilegar til og frá nýju
höfuðstöðvunum á Suðurlands
brautinni. Við skrifuðum undir
loftslagsyfirlýsingu Sameinuðu
þjóðanna og vinnum eftir henni,“
segir Sif og bætir við: „Við leggjum
mikinn metnað í að flokka sorp
rétt og notum eingöngu fjölnota
umbúðir og bolla. Við höfum
minnkað matarsóun verulega m.a.
með því að nota minni matardiska.
Í nýju höfuðstöðvunum var mikil
áhersla lögð á góð birtuskilyrði og
hljóðvist og við eflum lýðheilsu
með vönduðum skrifborðsstólum
og stillanlegum skrifborðum.“
Ákveðið var að vera eingöngu með
LEDperur með tilliti til endingar,
ljósgæða, hagkvæmni og áhrifa á
umhverfið.
„Vodafone fékk í fyrra viðurkenn
ingu sem „Fyrirmyndarfyrirtæki í
góðum stjórnarháttum“ þriðja árið
í röð,“ heldur Sif áfram en Vodafone
var fyrst fyrirtækja á Íslandi til að
innleiða tilnefningarnefnd vegna
hæfismats á stjórnarmönnum.
„Góðir stjórnarhættir leiða af sér
betri rekstur og fyrirtæki fá viður
kenningu sem Fyrirmyndarfyrir
tæki í góðum stjórnarháttum eftir
úttekt sérstakra úttektaraðila. Við
leggjum áherslu á aukna sjálfbærni
og leggjum mikið upp úr því að
halda jafnvægi á milli efnahags,
umhverfis og samfélags auk þess að
hlíta íslenskum lögum, reglum og
hafa almenn viðmið í heiðri.“
Magnús Hauksson, rekstrarstjóri 112.
Heimarafstöð við Laufafell að Fjallabaki sem leysti af hólmi rafstöð í gámi
sem brenndi rúmlega 10.000 lítrum af dísilolíu á ári en nú svo til engu.
Samfélagsleg ábyrgð er samþætt stefnu og starfsháttum Neyðarlínunnar,“ segir
Magnús Hauksson, rekstrarstjóri
Neyðarlínunnar, en með stefnu
sinni vill Neyðarlínan leggja sitt af
mörkum til að auka jákvæð áhrif
af starfsemi sinni, samfélaginu til
heilla.
Umhverfisstefna Neyðarlínunn
ar inniheldur meðal annars græna
samgöngustefnu.
„Þar býðst starfsfólki að fá greitt
sem nemur aðgangi að almenn
ingssamgöngum, gegn því að
minnst 60 prósent ferða til og frá
vinnu séu með öðrum hætti en
eigin akstri,“ útskýrir Magnús .
Um helmingur neyðarvarða fékk
greiddan samgöngustyrk árið
2017 og tveir starfsmenn nýta sér
hleðslu á rafmagnsbílum í boði
Neyðarlínunnar.
Vel þjálfað og hjálpsamt starfs
fólk Neyðarlínunnar stuðlar að
því að draga úr afleiðingum slysa
og náttúruhamfara.
„Með starfsemi sinni og mark
vissum forvörnum og fræðslu
skilar fyrirtækið miklum arði til
samfélagsins. Til að mynda hefur
Neyðarlínan, frá árinu 2004, og í
samstarfi við Barnaverndarstofu,
kynnt 112 sem barnaverndar
númerið og berast nú um sex
prósent allra barnaverndartil
kynninga í gegnum 112,“ útskýrir
Magnús.
Vatnsaflsdrifnar rafstöðvar
Á undanförnum árum hefur
Neyðarlínan unnið að verk
efni sem snýr að því að minnka
brennslu jarðefniseldsneytis með
tilheyrandi mengun.
„Í samstarfi við fjarskipta
félögin höfum við lagt kapp á að
byggja upp og viðhalda neyðar og
öryggisfjarskiptum utan alfara
leiða til að auka öryggi almenn
ings og auðvelda leit og björgun.
Neyðarlínan hefur því haft
umtalsvert um rekstur fjarskipta
staða utan alfaraleiða að gera.
Þar hagaði víða svo til að ekki var
um aðra orkukosti að ræða en
dísil rafstöðvar sem gengu allan
sólarhringinn allt árið og voru
notaðir til þess 120 þúsund lítrar
af eldsneyti á ári, sem samsvarar
tæplega þreföldu því magni af kol
tvísýringi,“ upplýsir Magnús.
Stjórn Neyðarlínunnar ákvað
því að ráðast í að minnka þessa
miklu olíubrennslu með öllum
tiltækum ráðum.
„Þá var ýmist farið í að setja
upp litlar vatnsaflsdrifnar raf
stöðvar (heimarafstöðvar), vind
myllur og sólarsellur, eða tengja
staðina við dreifikerfi RARIK, sem
var mikið verkefni, að hluta til
unnið í samstarfi við Fjarskipta
sjóð. Nú eru aðeins tveir staðir
eftir á vegum Neyðarlínu sem
keyra allt árið um kring og von
umst við til að þeim fækki í einn
á þessu ári, en aðrir þrír eru með
varavélar sem keyra einungis af
og til,“ segir Magnús.
Neyðarlínan áformar að byggja
í sumar einn stað sem leysir af
hólmi stað sem aðrir eiga og er
keyrður með jarðefnaeldsneyti.
„Stefna um minnkun notkunar
á dísilolíu í framleiðslu rafmagns
hefur gengið vel eftir, þótt mark
miðin hafi aðeins færst til í tíma
eftir að fyrirtækið yfirtók enn
fleiri dísilstöðvar frá hinum fjar
skiptafélögunum árið 2014. Við
höfum nú minnkað brennsluna
niður í um 10 þúsund lítra á
ári, sem er ríflega 90 prósent
minnkun. Það sem eftir stendur
kolefnisjöfnum við með Kolvið,
og áfram verður leitað allra leiða
til að minnka eldsneytisbrennslu.
Aðgerðirnar spara mikið fé og
gjaldeyri og er vatnsaflsrafstöðin
hljóðlaus á meðan talsverður
hávaði er frá olíurafstöð,“ segir
Magnús.
Neyðarlínan er aðili að Festu,
stofnun um samfélagsábyrgð. Hún
fékk jafnlaunavottun VR í árslok
2013 og framhaldsúttekt 2014 og
2015, en þá hætti VR því verkefni.
Í apríl 2017 fékk Neyðarlínan
svo gullmerki jafnlaunavottunar
PWC.
Sjá nánar á 112.is
Mikill arður til samfélagsins
Samfélagsleg ábyrgð Neyðarlínunnar felst í auknum lífsgæðum almennings þegar kemur að
björgun mannslífa og vörnum á umhverfi, eignum og mannvirkjum landsmanna.
14 KYNNINGARBLAÐ 7 . M A R S 2 0 1 8 M I ÐV I KU DAG U RSAMFéLAGSáBYRGÐ FYRIRtæKjA
0
7
-0
3
-2
0
1
8
0
5
:2
9
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
F
2
2
-6
C
0
C
1
F
2
2
-6
A
D
0
1
F
2
2
-6
9
9
4
1
F
2
2
-6
8
5
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
B
F
B
0
6
4
s
_
6
_
3
_
2
0
1
8
C
M
Y
K