Fréttablaðið - 07.03.2018, Blaðsíða 29
Rafbílastæði við verslunina eru hluti af aðgerðum
IKEA til samfélagsábyrgðar.
IKEA reisir nú fjölbýlishús í Urriðaholti til að mæta bagalegu ástandi á íslenskum húsnæðismarkaði.
Við erum ánægð með þróun-
ina hjá okkur og ætlum okkur
að gera sífellt betur. Það er einfald-
lega eina leiðin til framtíðar.
Guðný Camilla Aradóttir, umhverfisfulltrúi IKEA
Samfélagsábyrgð nær yfir svo margt; allt frá ruslatunnum til starfsmannamála, og ekkert
stórfyrirtæki í dag getur leyft sér
að sinna henni með hangandi
hendi vilji það halda góðum
rekstri,“ segir Guðný Camilla
Aradóttir, umhverfisfulltrúi IKEA
á Íslandi. „Við höfum gripið til
ýmissa aðgerða, stórra og smárra,
undanfarin ár til að gera betur
í samfélagsábyrgð og munum á
næstu vikum gefa í fyrsta skipti út
umhverfisskýrslu fyrir starfsemina
hér á landi. Það er mikilvægur
áfangi fyrir okkur því þá getum
við birt tölulegar upplýsingar um
markmið okkar í umhverfismálum
og árangur.“
Slysavarnir vekja
heimsathygli
IKEA á Íslandi hefur sinnt sam
félagsábyrgð af heilindum og sem
dæmi um aðgerðir eru verðlækk
anir, fjölda rafbílastæða, matur
fyrir fjölskylduna á frábæru verði
og mikilvægur stuðningur við
slysavarnir barna, svo eitthvað
sé nefnt. „Það er gaman að segja
frá því að starf okkar með Her
dísi Storgaard varðandi slysa
varnir barna vakti athygli IKEA
á heimsvísu fyrir nokkrum árum
og nú er svo komið að hún heldur
námskeið í slysavörnum barna
og vöruöryggi fyrir þá sem starfa
við vöruþróun og fleiri hópa hjá
fyrirtækinu í Svíþjóð. Þar að auki
verður Ísland fyrsti markaðurinn
til að hrinda af stað herferðinni
Öruggari heimili, sem fer í gang í
vor og er alfarið unnin út frá starfi
Herdísar í slysavörnum.“
Guðný segir líka vandað til verka
í starfsmannamálum, enda sé
mannauðurinn það dýrmætasta
sem hvert fyrirtæki búi yfir.
„Starfsmenn fyrirtækisins eru
orðnir um 400, af 26 þjóðernum,
og ég held að starfsfólk finni að
framlag þess til velgengni fyrirtæk
isins er vel metið. Við vorum fyrsta
fyrirtækið á Íslandi til að hljóta
jafnlaunavottun VR fyrir nokkrum
árum, hér hefur verið veittur
fjarverubónus í nokkur ár, nokkrar
launahækkanir fyrir utan samn
ingsbundnar hækkanir og í fyrra
var 13. mánuðurinn greiddur út til
að þakka starfsfólki fyrir vel unnin
störf. Þar að auki er boðið upp á
fría íslenskukennslu fyrir erlenda
starfsmenn, samgöngusamninga
og fleira sem fellur svo sannarlega
undir samfélagsábyrgðarhattinn.“
Þá hefur fjölbýlishús sem IKEA
reisir nú í Urriðaholti, í næsta
nágrenni verslunarinnar, vakið
athygli. „Það var ákveðið að
ráðast í þá framkvæmd
vegna afar bagalegs
ástands á hús
næðis markaði.
Þegar staðan er
orðin þannig
að fólk þarf
jafnvel að
afþakka starf
vegna þess að
það fær ekki
húsnæði á
höfuðborgar
svæðinu þá
þarf eitthvað að
breytast. Það er
afar ánægjulegt að
eiga þá kost á því að
Samfélagsábyrgð er ekki
skraut, heldur nauðsyn
IKEA hefur gripið til aðgerða til að gera betur í samfélagsábyrgð. Von er á umhverfisskýrslu frá
fyrirtækinu um starfsemina á Íslandi og segir Guðný Camilla Aradóttir, umhverfisfulltrúi IKEA á
Íslandi, skýrsluna mikilvægan áfanga. IKEA á Íslandi sinni samfélagsábyrgð af heilindum.
bregðast við með þessum hætti,“
segir Guðný. Íbúðirnar verða 34,
meirihlutinn er aðeins 25 fermetr
ar, og þær verða bæði leigðar út til
starfsfólks IKEA og á almennum
markaði. „Það er búið að setja
upp eftirmynd einnar íbúðarinn
ar í versluninni og það er ótrúlegt
hvað hægt er að gera mikið úr 25
fermetrum. Ég hvet fólk eindregið
til að koma við og sjá það með
eigin augum.“
Orkuskiptin mikilvæg
Guðný segir orkumál hafa verið
stjórnendum IKEA hugleikin og til
marks um það séu næstum fjögur
ár síðan fyrstu hleðslustöðvarnar
fyrir rafbíla voru settar upp fyrir
utan verslunina. Þeim hafi fjölgað
jafnt og þétt og stæðin séu nú um
60 talsins, bæði fyrir viðskipta
vini og starfsfólk. „Það var ákveðið
fyrir nokkrum árum að vera í
fararbroddi hvað þetta varðar, og
það hefur tekist. Allt er þetta gert
með það fyrir augum að liðka fyrir
orkuskiptum og einfalda fólki að
hlaða rafbílinn. Margir hafa hug
á því að skipta yfir í rafbíl en vex
í augum að þurfa að hlaða. Það er
auðvitað von okkar að sem flest
fyrirtæki og stofnanir taki þátt
í að eyða þessum hindr
unum. Nýjasta verkefni
IKEA í orkumálum er
svo að láta á það
reyna hvort við
getum nýtt okkur
sólarorkuna
betur. Því hefur
verið haldið fram
að birtan hér á landi
sé ekki næg til að slíkt
borgi sig en við ætlum
okkur að komast nær sann
leikanum í því máli. Nú á næstu
vikum hefst vinna við að setja upp
sólarsellur á þak byggingar bak við
verslunina. Þakið er rúmir 160 fer
metrar og við ætlum að setja upp
þrenns konar sólarsellur og skoða
hvort það sé raunhæfur kostur að
nýta þessa orku betur. IKEA selur
sólarsellur í nokkrum löndum,
sem hafa gefist vel, og það væri
gaman að geta boðið upp á þann
valkost í vöruúrvalinu hér í náinni
framtíð.“
Loftslagsmálin varða okkur
öll
IKEA var eitt rúmlega 100 fyrir
tækja sem skrifuðu undir loftslags
yfirlýsingu Reykjavíkurborgar og
Festu í tengslum við loftslagsfund
inn í París haustið 2015. Guðný
segir að síðan þá hafi upplýsingum
um loftslagsáhrif fyrirtækisins
verið safnað saman og nú á næstu
vikum verði tölurnar gefnar út í
umhverfisskýrslu þar sem einn
ig verði birt markmið til næstu
ára. „Á sama tíma og það virðist
stundum óvinnandi verkefni að
snúa við þróuninni í loftslags
málum í heiminum, þá verður að
hafa í huga að það er verið að gera
gríðarlega góða hluti mjög víða,
og þar eru stórfyrirtæki í lykilhlut
verki. Einstaklingurinn þarf að
líta í eigin barm og byrja heima en
vegna þeirra áhrifa sem starfsemi
fyrirtækjanna hefur er frábært að
sjá hve mörg þeirra hafa sett sér
umhverfisstefnu og markmið til
að gera betur í þessum málum,“
segir Guðný. „Við erum ánægð
með þróunina hjá okkur og ætlum
okkur að gera sífellt betur. Það er
einfaldlega eina leiðin til fram
tíðar.“
Eftirmynd einnar íbúðarinnar í
fjölbýlishúsi IKEA í Urriðaholti má
skoða í versluninni. Tuttugu og fimm
fermetrar eru nýttir til hins ýtrasta.
KYNNINGARBLAÐ 7 M I ÐV I KU DAG U R 7 . m A r s 2 0 1 8 SAMféLAGSáBYRGÐ fYRIRTæKjA
0
7
-0
3
-2
0
1
8
0
5
:2
9
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
F
2
2
-6
C
0
C
1
F
2
2
-6
A
D
0
1
F
2
2
-6
9
9
4
1
F
2
2
-6
8
5
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
B
F
B
0
6
4
s
_
6
_
3
_
2
0
1
8
C
M
Y
K