Fréttablaðið - 07.03.2018, Side 60
Hljómsveitin Volta frá Akur-eyri hefur nýverið gefið út breiðskífuna Á nýjan stað.
Textarnir í lögunum eru kynngi-
magnaðir og segir Aðalsteinn
Jóhannsson, annar af textahöf-
undum hljómsveitarinnar, að lagið
Betrun fjalli til dæmis um samband
hans við konuna sína sem hafi verið
komið á endastöð vegna sukks og
óhóflegs næturbrölts. Það bjargaðist
þó eftir að hann tók sig á. „Textinn
er loforð um betri tíð og nokkurs
konar afsökunarbeiðni,“ segir hann.
Annar texti, við lagið Fuglabúrið,
er um eymdina og sársaukann í
fangelsum en hljómsveitin spilaði
í fangelsinu á Akureyri í október
2016. Þá fæddist textinn og svo lagið
sem er stórgott. „Við komum þarna
á dimmu haustkvöldi. Það tók á
móti okkur fangavörður sem hleypti
okkur inn. Þarna var sérstakt and-
rúmsloft, hlaðið sorg, kvíða og ein-
hverju öðru sem ég þekki ekki. En
þær ætluðu greinilega að reyna að
hafa gaman og gleyma því í augna-
blik að þær voru lokaðar inni í
fuglabúri,“ segir hann og heldur
áfram:
„Maður hefur það á tilfinningunni
að flestar þessar konur séu fórnar-
lömb fíknar sinnar. Þær eru mæður,
dætur, burðardýr, morðingjar, mis-
fallegar dætur þessa lands. Við
spiluðum okkar tónlist í svona 40
mínútur og voru þær fljótar að líða.
Þær virtust hafa gaman af og náðu
sumir tónarnir inn fyrir skelina. Ég
verð að segja það að maður hafði
samúð með þessum konum, lok-
aðar þarna inni fjarri þessu lífi sem
við þekkjum flest.“
Hann segir að konurnar hafi verið
afar þakklátar fyrir heimsóknina.
„Þegar við vorum búnir að ganga frá
hljóðfærunum og á leið út þá tekur
Heimir söngvari í hurðina og hún
er auðvitað læst. Í því stekkur ein
konan á lappir og segir við okkur:
„Þið komist ekki út, þið eruð læstir
inni í fuglabúri.“ Þaðan kemur nafn-
ið á laginu sem ég svo samdi kvöldið
eftir þessa heimsókn.
Þessi kvöldstund hafði svo sterk
áhrif á mig að textinn kom nánast í
einni lotu, hárbeittur og sannur. Það
var ótrúlega góð tilfinning að ganga
út í myrkrið þetta haustkvöld, eftir
að hafa glatt þessar þjökuðu sálir.“
Hljómsveitin var stofnuð árið
2015 með því hugarfari að spila
eingöngu frumsamda tónlist og
leyfa sköpunargleðinni að njóta sín.
Aðalsteinn segir að bandið sé búið
að æfa stíft og stefni á að koma tals-
vert fram á næstu misserum. „Við
höfum ekki fastmótaða tónlistar-
stefnu en líklega erum við mest í
rokk-sveitatónlistarbræðingi með
tilfinningu. – bb
Fangelsi og fuglabúr
Hljómsveitina skipa Heimir Bjarni Ingimarsson, Aðalsteinn, Ingvar Leví Gunn-
arsson, Arnar Scheving, Hans Friðrik Guðmundsson, Jóhannes Stefánsson.
Varmadælur &
loftkæling
Verð frá aðeins
kr. 155.000 m.vsk
Midea MOB12
Max 4,92 kW
2,19 kW við -7° úti og
20° inni hita (COP 2,44)
f. íbúð ca 60m2.
• Kyndir húsið á veturna
og kælir á sumrin
• Fyrir norðlægar slóðir
• Fjarstýring fylgir
Uppsetningaaðilar og
umboðsmenn um allt
land
Fuglabúrið
Við komum þar í myrkri
á þennan kalda stað.
Þar fuglar gráta í búri,
hvað finnst mér um það?
Hvað finnst þér um það?
Þær sitja á bak við rimla
og bíða eftir því,
hvenær þær sjá börnin,
að dagur renni á ný
með dimmum veðragný.
Dóp og djöfla hittu,
börðust um í vef
dæmigerðrar neyslu
með vondum úlf og ref.
Með kókaínbólgið nef.
Þær eru mæður,
dætur, burðardýr,
morðingjar, misFallegar
dætur Þessa lands. Við
spiluðum okkar tónlist í
sVona 40 mínútur og Voru
Þær Fljótar að líða.
Svikamylla ehf., dularfullt félag sem virðist tengt margmiðlunarverkefninu Hatari, tilkynnir atriði á nýja listahátíð og, eins og félagið kallar það, „dóms-
dagsfögnuð“. Um er að ræða fögnuð
sem fer fram í Iðnó þann 30. mars.
Fyrstu atriðin sem tilkynnt hafa
verið eru Elli Grill, Muck, Kórus,
Cyber, DJ Dominatricks, World Nar-
cosis, Rex Pistols, Godchilla og Mad-
onna+Child. Fleiri listamenn munu
vera tilkynntir síðar í mánuðinum.
Í fréttatilkynningu frá Svika-
myllu ehf. eru ástæðurnar fyrir því
að hátíðin fer fram taldar upp og
Háskar – ný listahátíð
á vegum Svikamyllu ehf.
Hatari virðist tengjast Svikamyllu ehf. á einhvern hátt. FréttABLAðIð/SteFán
Félagið Svikamylla
ehf. hefur tilkynnt
um glænýja listahá-
tíð er nefnist Háskar.
Félagið segir um að
ræða dómsdags-
fögnuð og má gera
ráð fyrir að þarna
verði nokkuð myrk
stemming. Fleiri
listamenn verða
kynntir síðar í mán-
uðinum.
þar segir: „[…] sigurinn [er] unninn
og stríðinu tapað, dómsdagur vofir
yfir jörðinni rétt eins og flugurnar
sveima í kringum hræið.“ Sagt er
að þarna á Háska muni ægja saman
ljóðlist, gjörningum, klassískri tón-
list, rafhljóðum og þungarokki.
Muck er rokksveit sem hefur legið
í dvala upp á síðkastið en snýr aftur
á Háskum. Kórus er framsækinn
kór og mun hann opna hátíðina
með söng. Rappsveitin Cyber gerði
það ákaflega gott á síðasta ári með
plötunni Horror en hún hefur meðal
annars fengið tilnefningu til Íslensku
tónlistarverðlaunanna. Elli Grill er
flippaður rappari úr sveitinni Shades
of Reykjavík og vakti athygli þegar
hann eyddi öllum peningunum
sem hann fékk þegar hann skrifaði
undir samning við plötufyrirtækið
Öldu í gulltennur frá hinum merka
gullsmiði Johnny Deng. DJ Domina-
tricks er sjónlista- og raftónlistartví-
eyki sem ætlar að sögn að neyða
teknó og veruleikafirrt myndskeið
ofan í gesti. Rex Pistols er synþa-
popp þar sem myrkur blús mætir
lostafullri gottatónlist og fleiru.
World Narc osis eru pönkaðir málm-
rokkarar. Godchilla spila dómsdags-
leðjurokk. Svo eru það hið dularfulla
tvíeyki Madonna+Child.
stefanthor@frettabladid.is
sigurinn [er]
unninn og stríðinu
tapað, dómsdagur VoFir
yFir jörðinni rétt eins og
Flugurnar sVeima í kringum
Hræið.
7 . m a r s 2 0 1 8 m I Ð V I K U D a G U r24 l í f I Ð ∙ f r É T T a B l a Ð I Ð
Lífið
0
7
-0
3
-2
0
1
8
0
5
:2
9
F
B
0
6
4
s
_
P
0
6
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
F
2
2
-7
0
F
C
1
F
2
2
-6
F
C
0
1
F
2
2
-6
E
8
4
1
F
2
2
-6
D
4
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
A
F
B
0
6
4
s
_
6
_
3
_
2
0
1
8
C
M
Y
K