Fréttablaðið - 08.03.2018, Page 34
Ragnheiður
Tryggvadóttir
heida@frettabladid.is
Við notum aðallega sútaðar og loðnar hrosshúðir og búum til ýmiss konar
hönnunarvöru úr þeim, til dæmis
rugguhesta, pels, inniskó, hár-
skraut og fleira, Á HönnunarMars
munum við því bjóða gestum
upp á nýja sýn á íslenska hestinn
í bíósalnum á Hótel Marina og
gera tilraun til að færa fólk nær
honum, bjóða því að snerta, lykta
og hlusta á íslenska hestinn eins og
við upplifum hann,“ segir Kristín
Karlsdóttir fatahönnuður en hún
og Valdís Steinarsdóttir vöruhönn-
uður hanna úr hrosshúðum undir
heitinu Studio Trippin.
Þær hlutu styrk úr Nýsköp-
unarsjóði til verksins og hafa
sjálfar sútað skinn í vinnsluna en
fá einnig efnivið frá Sauðárkróki og
Hjalteyri.
„Karl Bjarnason, sútari á
Sauðárkróki, hefur verið rosalega
hjálplegur í gegnum ferlið, og Lene
Zachariassen, sútari á Hjalteyri, er
líka búin að kenna okkur margt.
Við vonumst til þess að það styttist
í að við getum komið bæði flíkum
og innanstokksmunum í sölu,“
segir Kristín.
Hugmyndin að Studio Trippin
kviknaði út frá áfanga í Listahá-
skóla Íslands og segir Kristín að
þær hafi nánast fengið hrosshúðir
á heilann. Þetta er fyrsta sam-
vinnuverkefni þeirra sem hönnuða
en þær hafa þekkst frá því þær
voru unglingar.
„Við höfum brallað margt saman
gegnum tíðina en hugmyndin að
verkefninu kviknaði þegar Val-
dís var að vinna hópverkefni um
íslenska hestinn með bekknum
sínum í vöruhönnun í LHÍ. Hún
hljóp oft yfir til mín í fatahönnun-
inni og sagði mér frá og upp frá því
byrjuðum við að ræða útfærslur
og möguleika sem okkur duttu
í hug. Ef við fórum út á kaffihús
eða út með vinum okkar var þetta
Þarfasti þjónninn
verður að pels
Kristín Karlsdóttir og Valdís Steinarsdóttir hanna úr hross-
húð. Þær fengu styrk frá Nýsköpunarsjóði námsmanna
síðasta sumar og sýna afraksturinn á HönnunarMars.
Kristín Karls-
dóttir og Valdís
Steinarsdóttir
sýna fatnað
og fylgihluti
úr hrosshúð á
komandi Hönn-
unarMars.
Pels, inniskór, hárskraut og rugguhestur eru meðal þess sem Studio Trippin hannar úr hrosshúð.
það eina sem hægt var að tala við
okkur um. Við vorum því komnar
með margar hugmyndir og
pælingar að vörum strax frá byrjun
þeirrar vinnu sem við unnum í
sumar,“ segir Kristín.
Hvernig er flíkum úr hrosshúð
tekið?„Mjög vel, enn sem komið
er. Fólk virðist almennt vera hrifið
af hugmyndinni um fullnýtingu,
og því að nota afgangs afurðir af
íslenska hestinum, sem býr jafnan
við gott atlæti. Auðvitað eru sumir
mótfallnir því að borða hrossakjöt,
og þ.a.l. hugmyndinni um að nota
húðirnar. Við berum virðingu fyrir
mismunandi skoðunum, en okkar
skoðun er sú að mesta virðingin
við skepnuna felist í því að fullnýta
það sem til fellur af henni.“
Bæjarlind 6 • S. 554 7030 Við erum á Facebook
Fóðraðar
regnkápur
kr. 14.900.-
Str: S-XXL
Litir grænt og blátt
Laugavegi 178 | Sími 555 1516
Opið: Virkir dagar 11-18 | Laugardagar 11-15
Kíkið á myndir og verð á Facebook
Flottar
vorvörur
- peysa á 5.900 kr.
- skyrta á 5.900 kr.
Stendur undir nafni
4 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 8 . M A R S 2 0 1 8 F I M MT U DAG U R
0
8
-0
3
-2
0
1
8
0
4
:4
0
F
B
0
7
2
s
_
P
0
5
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
3
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
2
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
3
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
F
2
4
-F
F
3
4
1
F
2
4
-F
D
F
8
1
F
2
4
-F
C
B
C
1
F
2
4
-F
B
8
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
A
F
B
0
7
2
s
_
7
_
3
_
2
0
1
8
C
M
Y
K