Fréttablaðið - 16.03.2018, Page 10

Fréttablaðið - 16.03.2018, Page 10
Kynntu þér málið betur á notadir.is/tilbodsbilar verð áður 2.790.000 kr. verð áður 2.990.000 kr.verð áður 3.990.000 kr. verð áður 3.390.000 kr. Árgerð 2014, ekinn 128 þús. km, dísil, 1995 cc, 136 hö, sjálfskiptur, fjórhjóladrifinn. Árgerð 2006, ekinn 144 þús. km, dísil, 4511 cc, 522 hö, sjálfskiptur, fjórhjóladrifinn. Árgerð 2014, ekinn 148 þús. km, dísil, 2199 cc, 198 hö, sjálfskiptur, fjórhjóladrifinn, 7 manna. Árgerð 2013, ekinn 54 þús. km, dísil, 2231 cc, 184 hö, sjálfskiptur, fjórhjóladrifinn, 7 manna. Raðnúmer: 992548 Raðnúmer: 340560Raðnúmer: 340374 Raðnúmer: 993049 Sportage EX Cayenne Turbo S Sorento Classic Captiva LT 2.590.000 kr. 1.890.000 kr.3.590.000 kr. 2.890.000 kr. Kia PorscheKia Chevrolet 200.000 kr. afsláttur 1.100.000 kr. afsláttur400.000 kr. afsláttur 500.000 kr. afsláttur Frábært úrval – tilboð gilda frá 13. mars – 28. mars NOTAÐIR BÍLAR www.notadir.is Kletthálsi 2 110 Reykjavík 590 2160 Opnunartímar: Virka daga 10–18 Laugardaga 12–16 PÁSKATILBOÐ Stórlækkað verð á völdum bílum Birt með fyrirvara á verðbreytingum, innsláttarvillum og myndavíxli. Fræðslusjóðs til þróunar og nýsköpunar í framhaldsfræðslu Styrkir Fræðslumiðstöð atvinnulífsins auglýsir eftir umsóknum um styrki úr Fræðslusjóði vegna nýsköpunar- og þróunarverkefna í framhaldsfræðslu, sbr. lög um framhaldsfræðslu nr. 27/2010. Forgangssvið við úthlutun árið 2018 eru: Hæfnigreiningar starfa í samstarfi við atvinnulíf og fræðsluaðila. Þróun þrepaskipts starfsnáms í framhaldsfræðslu. Þróa og útfæra leiðir til að auðvelda og efla fræðslu innan fyrirtækja og í dreifðum byggðum Við mat á umsóknum verður litið til þess hvernig verkefni fellur að markmiðum í 2. grein laga um framhaldsfræðslu og hvort umsækjandi hafi sýnt fram á faglega þekkingu og reynslu til að vinna verkefni sem sótt er um styrk til Einnig verður skoðað hvort verkefni: hafi skýr skilgreind markmið og vel skilgreinda verkefnastjórn, mæti sýnilegri þörf fyrir menntunarúrræði í framhaldsfræðslu, feli í sér nýsköpun eða þróun sem nýtist markhópi framhaldsfræðslu, feli í sér samstarf og að framlag samstarfsaðila sé tryggt og vel skilgreint, hafi skýra kostnaðar-, verk- og tímaáætlun, sé líklegt til að skila hagnýtri afurð og verði vel kynnt. Tekið er á móti umsóknum til og með 24. apríl 2018. Eingöngu er tekið við umsóknum á rafrænu formi. Umsóknareyðublað, lög um framhaldsfræðslu nr. 27/2010 og nánari upplýsingar um vinnuferli og viðmið vegna styrkumsóknar má nálgast á vef Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins, www.frae.is. Þar eru einnig upplýsingar um fyrri úthlutanir til þróunar og nýsköpunar í framhaldsfræðslu. Rússland Bretar, Frakkar, Banda- ríkjamenn og Þjóðverjar sögðu í sameiginlegri yfirlýsingu í gær að ekki væri hægt að útskýra morð- tilræðið við Sergei Skrípal og Júlíu, dóttur hans, á annan hátt en að yfir- völd í Rússlandi hafi staðið þar að baki. Bandaríkjamenn innleiddu sömuleiðis þvinganir gagnvart nítj- án Rússum vegna afskipta af forseta- kosningum ársins 2016 og meintum netárásum. Athygli Vesturlanda hefur ítrekað beinst að Rússlandi undanfarin miss- eri og hefur hin meinta árás á Skrípal- feðgin ekki skapað Rússum neina vel- vild. Þeir neita þó staðfastlega að hafa komið að árásinni. Skrípal-feðgin fundust meðvitund- arlaus á bekk í Salisbury á Bretlandi fyrr í mánuðinum. Rannsókn hefur leitt í ljós að eitrað var fyrir þeim með taugaeitri, svokölluðu novichok-eitri, sem framleitt var og þróað í Sovétríkj- unum á síðustu öld. Skrípal er Rússi en var gagnnjósnari fyrir Breta. Fyrir þær njósnir hlaut hann fangelsisdóm í Rússlandi árið 2006 en fékk hæli í Bretlandi eftir njósnaraskipti 2010. „Við teljum Rússa ábyrga fyrir þessari svívirðilegu og fyrirlitlegu árás,“ sagði Theresa May, forsætisráð- herra Bretlands, þegar hún heimsótti árásarvettvang í gær. Donald Trump Bandaríkjaforseti sagði um sorglegt mál að ræða sem ríkisstjórn hans tæki alvarlega. Ríkin fjögur segjast harma atburðinn í hinni sameiginlegu yfir- lýsingu.  „Þetta er árás á Bretland. Notkun hvaða ríkis sem er á vopni sem þessu er skýrt brot á alþjóða- lögum og samningnum um bann við efnavopnum,“ sagði í yfirlýsingunni. Ríkin hvöttu Rússa til þess að svara öllum spurningum um árásina og að útskýra hvernig og hvers vegna eitrinu var beitt. Á fundi öryggisráðs SÞ í gær sögðust Rússar aldrei hafa framleitt eða rannsakað novichok. Vissalí Nebenzía, fulltrúi Rússa, hafnaði alfarið ásökunum Breta og gaf í skyn að Bretar hefðu jafnvel sjálfir ráðist á Skripal til að koma óorði á Rússa nú þegar líður að heimsmeistaramótinu í knattspyrnu sem þar fer fram í sumar. Þeir 23 rússnesku erindrekar sem Bretar hafa gert að yfirgefa Bretland, og telja í raun rússneska njósnara, hafa nú örfáa daga til að koma sér heim. May greindi frá ákvörðuninni um brottvísunina á miðvikudag og sögðu Rússar í kjölfarið að þeir myndu án nokkurs vafa taka sams konar ákvörðun. Rússneski ríkisstjórnarmiðillinn RT, sem miðlar á borð við New York Times og Reuters hafa kallað hluta áróðursmaskínu Pútíns Rússlands- forseta, sögðu í gær frá því að Pútín hefði verulegar áhyggjur af „ögrandi“ afstöðu Breta. Miðillinn vitnaði þar að auki í Maríu Zakharovu, talsmann utanríkisráðuneytisins, sem sagði Breta greinilega hafa eitthvað að fela vegna þess að þeir hafi ekki sent Rússum sýni af taugaeitrinu. Á meðal þeirra 19 Rússa sem Bandaríkjamenn tilkynntu um þvinganir gegn í gær eru þrettán sem Robert Mueller, sérstakur saksóknari dómsmálaráðuneytisins sem rann- sakar afskipti Rússa af kosningunum, ákærði í febrúar. Einnig hefur hin svokallaða Netrannsóknarstofnun, oft kölluð nettröllaverksmiðja Rúss- lands, verið sett á svartan lista vegna afskipta af kosningunum. thorgnyr@frettabladid.is Beina spjótum sínum að Pútín Vesturveldin segja í sameiginlegri yfirlýsingu að Rússar hafi framið svívirðilegan glæp með því að ráðast á Sergei Skrípal og dóttur. Rússar neita enn sök. Pútín er ósáttur við málflutning Breta. NordicPhotos/AFP sýRland Þúsundir almennra borg- ara flúðu Austur-Ghouta í Sýrlandi í gær. Fór fólkið fótgangandi út af svæðinu. Svo margir hafa ekki flúið svæðið á sama degi frá því stjórnarher Bashars al-Assad, for- seta Sýrlands, setti aukinn þunga í sókn sína í febrúar. Reuters greindi frá. „Við höfðum setið föst niðri í kjallara lengi og þorðum ekki að koma út. Við gátum ekki verið hér lengur. Hér er enginn matur,“ sagði einn hinna flúnu við Reuters í gær í útjaðri bæjarins Hammouriyeh. Annar maður, Amer al-Shour- baji, hafði svipaða sögu að segja. Sagði hann ekkert vatn í Austur- Ghouta, ekkert rafmagn og enga menntun fyrir börn sín. „Á hverjum degi flýja um 800 manns,“ hafði rússneski miðill- inn RIA eftir rússneska herfor- ingjanum Vladímír Zolotúkhín. Rússar eru helstu bandamenn Assad-stjórnarinnar. Samkvæmt eftirl itssamtökunum Syrian Observatory for Human Rights hafa að minnsta kosti 12.500 nú flúið svæðið og haldið inn á yfir- ráðasvæði stjórnarliða. Enn eru um 400.000 almennir borgarar innlyksa í Austur-Ghouta en stjórnarherinn nálgast mark- mið sitt um að taka svæðið. Hefur hann nú þegar klofið yfirráða- svæði uppreisnarmanna í tvennt. Nærri þúsund hafa fallið í linnu- lausum árásum Assad-liða. – þea Þúsundir flúðu Austur-Ghouta 1 6 . m a R s 2 0 1 8 F Ö s T U d a G U R10 F R é T T i R ∙ F R é T T a B l a ð i ð 1 6 -0 3 -2 0 1 8 0 4 :2 3 F B 0 4 8 s _ P 0 4 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 3 9 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 0 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 F 3 6 -B A 0 0 1 F 3 6 -B 8 C 4 1 F 3 6 -B 7 8 8 1 F 3 6 -B 6 4 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 A F B 0 4 8 s _ 1 5 _ 3 _ 2 0 1 8 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.