Fréttablaðið - 16.03.2018, Blaðsíða 25

Fréttablaðið - 16.03.2018, Blaðsíða 25
Við hjá Laxá fylgj- um strangri gæða- stefnu og notum ekki erfðabreytt hráefni við framleiðsluna. Allt okkar hráefni er GMP-vottað, auk þess sem við erum með alþjóðlega Global Gap gæðavottun fyrir framleiðslu okkar. KYNNINGARBLAÐ 5 F Ö S T U DAG U R 1 6 . m a r s 2 0 1 8 ÍSLeNSKUR STRANDBúNAÐUR „Við hjá Laxá framleiðum náttúrulegt fiskeldisfóður fyrir allar helstu tegundir af eldisfiski hérlendis, það er fyrir bleikju, lax, flatfisk og regnbogasilung,“ segir Gunnar Örn framkvæmdastjóri. Verksmiðja Laxár er á Akureyri. Laxá framleiðir um 10.000 tonn af fiskafóðri árlega og er það eingöngu selt innanlands með áherslu á landeldi. Starfsfólk Laxár býr yfir gríðar- legri þekkingu og reynslu á sínu sviði. Allir starfs- menn eru með tíu til þrjátíu ára starfsreynslu sem tryggir stöðugleika í framleiðslu- gæðum. Við hjá Laxá framleiðum náttúrulegt fiskeldisfóður fyrir allar helstu tegundir af eldisfisk hérlendis, það er fyrir bleikju, lax, flatfisk og regnbogasil- ung. Til að tryggja hágæðafóður er ávallt notað fyrsta flokks hráefni. Helmingur hráefna í fiskafóðri er innlent hágæða fiskimjöl og lýsi sem á uppruna sinn í Norður- Atlantshafi og auk þess er notað innflutt jurtamjöl og repjuolía til að lækka kostnað við fóðurgerð. Til að uppfylla þarfir markaðarins þá er eingöngu notað náttúru- legt litarefni í stað hefðbundins litarefnis fyrir laxfiska og því eru öll hráefni í Laxár-fiskafóðri nátt- úruleg. Fiskafóðri frá Laxá er ætlað að uppfylla næringarþarfir hverrar fisktegundar og tryggja hámarks- vöxt með sem lægstum fóður- stuðli,“ segir Gunnar Örn Krist- jánsson, framkvæmdastjóri Laxár. „Fóðurverksmiðjan Laxá var stofnuð árið 1991 og er því orðin 27 ára rótgróið og stöndugt fyrir- tæki. Verksmiðjan er á Akureyri en Laxá er dótturfélag Síldarvinnsl- unnar í Neskaupstað,“ heldur hann áfram. Framleiðir fyrir innanlands- markað „Laxá framleiðir um 10.000 tonn af fiskafóðri árlega og er það eingöngu selt innanlands með áherslu á landeldi á seiðum og matfiski, þar sem tæknilega getur verksmiðjan ekki framleitt þetta fituríka fiskafóður sem notað er fyrir lax í sjókvíaeldi. Meðal viðskiptavina eru þó öll stærstu fiskeldisfyrirtæki landsins og hefur Laxá yfir 80% markaðshlutdeild í fiskafóðri fyrir landeldi,“ segir Gunnar Örn. Laxá er þekkt fyrir stöðug og góð gæði í fiskafóðri með hátt hlut- fall fiskimjöls og lýsis, auk þess að veita viðskiptavinum sínum góða og sveigjanlega þjónustu. „Hjá Laxá starfa níu manns og eru allir starfsmenn með tíu til þrjátíu ára starfsreynslu sem tryggir stöðugleika í framleiðslu- gæðum. Við hjá Laxá fylgjum strangri gæðastefnu og notum ekki erfðabreytt hráefni við framleiðsl- una. Allt okkar hráefni er GMP- vottað, auk þess sem við erum með alþjóðlega Global Gap gæðavottun fyrir framleiðslu okkar,“ segir Gunnar Örn. Vöruþróun og rannsóknir Vöruþróun og rannsóknir eru mikil vægur hluti af starfsemi Laxár, enda markmiðið að fyrir- tækið sé ávallt í fremstu röð í fram- leiðslu á fiskafóðri. „Laxá tekur þátt í rannsóknum með MATÍS, Hólaskóla og Akuaplan-niva ásamt okkar helstu viðskiptavinum í fisk- eldinu. Laxá hefur tekið þátt í nær öllum rannsóknum sem hafa verið gerðar hérlendis og snerta fóður- gerð fyrir eldisfisk,“ greinir Gunnar Örn frá. Auk innlendrar framleiðslu flytur Laxá inn og endurselur startfóður fyrir seiði frá Biomar og Skretting. Einnig er flutt inn ýmis- legt sérfóður frá þessum aðilum og meðal annars fóður fyrir smoltun lax og fóður fyrir hrognkelsi. Laxá. Krossanes, 603 akureyri. sími 460 7200. Heimasíða www.laxa.is. Náttúrulegt fiskeldisfóður í hágæðaflokki Fóðurverksmiðjan Laxá hf. framleiðir og selur fóður á innanlandsmarkaði til fiskeldisfyrirtækja. 1 6 -0 3 -2 0 1 8 0 4 :2 3 F B 0 4 8 s _ P 0 3 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 4 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 F 3 6 -B 0 2 0 1 F 3 6 -A E E 4 1 F 3 6 -A D A 8 1 F 3 6 -A C 6 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 A F B 0 4 8 s _ 1 5 _ 3 _ 2 0 1 8 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.