Fréttablaðið - 16.03.2018, Blaðsíða 26

Fréttablaðið - 16.03.2018, Blaðsíða 26
Aukinn fókus er á fiskeldi innan þessa stóra fyrirtækis og eru kaupin á Vaka ætluð til þess að tryggja framgang á helstu mörkuðum. Björg Ormslev Ásgeirsdóttir Sigríður Inga Sigurðardóttir sigriduringa@frettabladid.is 6 KYNNINGARBLAÐ 1 6 . m A R s 2 0 1 8 F Ö S T U DAG U RÍsLeNsKuR stRANdBúNAÐuR Björg Ormslev Ásgeirsdóttir, mark- aðsstjóri Vaka Fiskeldiskerfa ehf. Við erum leiðandi fyrirtæki í þróun og framleiðslu á ákveðnum lausnum sem snúa að talningu og stærðarmæl- ingum á eldisfiski. Áherslan er á iðnvætt fiskeldi, fyrst og fremst laxeldi,“ segir Björg Ormslev Ásgeirsdóttir, markaðsstjóri Vaka Fiskeldiskerfa ehf. Starfsemi Vaka skiptist í þróun, framleiðslu og markaðssetningu á vörum út um allan heim. Dóttur- fyrirtæki Vaka eru í þremur löndum, Noregi, Síle og Skotlandi og þá eru umboðs- og þjónustu- aðilar úti um allan heim. Búnaður Vaka er seldur til yfir 60 landa en Noregur, Skotland, Síle, Kanada og Færeyjar eru helstu markaðir fyrirtækisins. Starfsmenn á Íslandi eru á fjórða tug auk átján sem starfa í dótturfélögum fyrirtækisins. Björg segir frekari uppgang fram undan á alþjóðlegum markaði. Hluti af alþjóðlegu fyrirtæki „Í nóvember 2016 keypti Pentair Aquatic Systems öll hlutabréf í Vaka og er Vaki því orðinn hluti af stóru alþjóðlegu fyrirtæki, sem starfar á nokkrum stórum sviðum, meðal annars innan iðnaðar, orku, matvæla og vatns- meðhöndlunar hvers konar,“ segir Björg. „Aukinn fókus er á fiskeldi innan þessa stóra fyrir- tækis og eru kaupin á Vaka ætluð til þess að tryggja framgang á helstu mörkuðum. Það á sérstak- lega við um í Noregi, Skotlandi og Síle þar sem Vaki hefur verið með starfsemi um árabil og er með afar góða markaðsstöðu. Um rúmlega 95% af tekjum okkar eru vegna útflutnings en næstum allar vörur okkar hafi verið þróaðar í samvinnu við íslenska jafnt sem erlenda fiskeldismenn og hlökkum við til áframhaldandi samstarfs.“ Vöruúrval eykst til muna „Með nýjum eigendum eykst vöruúrvalið hér heima til muna. Til viðbótar við allar þær vörur sem Vaki hefur þróað og selt um árabil eins og fiskiteljara, stærðar- mæla, flokkara, fiskidælur og fóðurkerfi verður nú boðið upp á Point4 súrefnissteina og eftirlits- búnað margs konar, UV filtera, vatnsdælur af öllum stærðum, hreinsikerfi, loftun, ljós, ráðgjöf og hönnun á heildarlausnum í endurnýtingakerfum í fiskeldi,“ segir Björg. Áfram verði mikil áhersla á markaðstengda vöru- þróun og spennandi tímar séu því fram undan hjá fyrirtækinu. „Við starfsfólk Vaka horfum björtum augum til aukinna umsvifa og nýrra áskorana á næstu árum á bæði innlendum og erlendum mörkuðum.“ Nánari upplýsingar fyrir Vaka og vörur þess má finna á www.vaki.is. Vöxtur á alþjóðlegum markaði Vaki Fiskeldiskerfi ehf. hefur einbeitt sér að hátæknibúnaði fyrir iðnvætt fiskeldi í yfir 30 ár. Umsvif Vaka teygja sig um allan heim en Vaki er hluti af alþjóðlega fyrirtækinu Pentair Aquatic Systems. Ann Cecilie Ursin Hilling var í barn- eignafríi þegar hún fékk hug- mynd að nýju námi í fiskeldi. Kennsla hefst í haust og undir- búningur er nú í fullum gangi. Ann Cecilie flutti til Patreks-fjarðar vorið 2016 þegar Gaute, eiginmaður hennar, hóf störf hjá Arnarlaxi. Þau kunna vel við sig í bænum og eru ánægð með hversu alþjóðlegt samfélagið er. „Hér býr fjöldi ungs fólks. Um fjórðungur íbúa er yngri en 16 ára og tíundi hver íbúi á leikskólaaldri. Mér finnst þetta alveg frábært,“ segir Ann en þau hjónin eiga tvær ungar dætur. Ann er frá Lofoten í Norður-Noregi og hefur um árabil starfað við fiskeldi en hún er menntuð í sjávarútvegsfræðum. með ömmu til Íslands Ísland var Ann ekki alveg ókunnugt þegar þau hjónin fluttust hingað til lands. „Ég kom hingað fyrst með ömmu minni en þegar hún varð áttræð lang- aði hana mest að fá Íslandsferð í afmælisgjöf. Frænka mín var með okkur í för og við keyrðum hringinn í kringum landið. Ári síðar kom ég hingað með sam- nemendum mínum í masters- námi í gæðum sjávarafurða. Við heimsóttum fjölmörg sjávarút- vegsfyrirtæki, t.d. Samherja á Akureyri, Promens á Dalvík og Síldarvinnsluna í Neskaupstað,“ segir hún. Ann er mjög hrifin af Íslandi og hún segir það draumi líkast að hafa fengið tækifæri til að flytja hingað. „Þetta er eins og gott karma. Fyrir tíu árum langaði mig mest af öllu til að flytja til Íslands og hingað er ég komin. Þetta er frábært land og ég er smám saman að læra íslensku. Íslendingar hafa góða kímnigáfu og mér finnst þeir vera listrænir, enda mikið um góða tónlistarmenn hérna.“ menntun mikilvæg Ann vinnur nú að spennandi verkefni sem tengist fiskeldi. „Ég sinni verkefnastjórnun og mitt hlutverk er að leiða verkefni sem snýr að menntun í fiskeldi fyrir ungt fólk sem hefur lokið grunn- skóla. Í barneignafríinu hafði ég nægan tíma til að hugsa um hvað mig langaði að gera og þannig kviknaði hugmyndin að þessu verkefni, sem ég kynnti fyrir Vesturbyggð og Arnarlaxi. Henni var vel tekið og þessir aðilar voru tilbúnir að fjármagna verkefnið, og er ég afar þakklát fyrir það,“ segir Ann. Hún segir að menntun í fisk- eldi sé afar mikilvæg, enda sýni rannsóknir fram á að flest óhöpp í þessum geira séu vegna mann- legra mistaka. „Í þessu nýja námi gefst nemendum m.a. kostur á að læra sjávarlíffræði, tækni- fræði, veðurfræði og hvernig afla á gagna og vinna úr þeim. Námið verður sett upp sem tveggja ára bóklegt nám og verða heimsóknir á vinnustaði og starfsnám þáttur af náminu sem verður að hluta til kennt í fjarnámi. Við erum í samvinnu við Fjölbrautaskóla Snæfellinga og Verkmennta- skóla Austurlands, auk annarra menntastofnana sem eru með nám á sviði fiskeldis. Markmiðið er að mennta fólk í fiskeldi til framtíðar. Við erum einnig í nánu samstarfi við skóla í Noregi, Meloy VGS, sem hefur kennt fagið í meira en tuttugu ár. Verk- efnið hefur einnig verið kynnt í Færeyjum og Færeyingar hafa mikinn áhuga á að taka þátt í því. Kennslan hefst í haust hér á landi og á næsta ári í Færeyjum.“ Nýtt nám í fiskeldi Ann kann vel við sig á Patreksfirði. 1 6 -0 3 -2 0 1 8 0 4 :2 3 F B 0 4 8 s _ P 0 3 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 4 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 3 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 F 3 6 -B 5 1 0 1 F 3 6 -B 3 D 4 1 F 3 6 -B 2 9 8 1 F 3 6 -B 1 5 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 B F B 0 4 8 s _ 1 5 _ 3 _ 2 0 1 8 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.