Fréttablaðið - 13.03.2018, Page 18
Börnin þrjú á
góðri stundi í
Herðubreiðar-
lindum síðasta
sumar. F.v.
Ólafur Ragnar,
Urður og Guð-
rún Katrín.
Matthías með
börnunum
þremur við
Brennisteins-
öldu.
4 KYNNINGARBLAÐ 1 3 . M A R s 2 0 1 8 Þ R I ÐJ U DAG U R HeILsURæKt
Hjónin Matthías Sigurðarson og Dalla Ólafsdóttir tóku nýlega við umsjón Ferða-
félags barna sem Ferðafélag Íslands
hefur rekið í tæp tíu ár. Höfuðmark-
mið félagsins er að hvetja börn og
foreldra til útiveru og samveru í
náttúru landsins og fá þannig öll
börn til að upplifa leyndardóma
umhverfisins og sanna gleði í nátt-
úrunni. Sjálf eiga þau þrjú börn
og eru tvö þau eldri, Urður 13 ára
og Ólafur Ragnar 10 ára, nú þegar
orðin virk í göngum og reyndar
ýmsum öðrum íþróttum. Yngsta
barnið, Guðrún Katrín, er 6 ára og
nýlega farin að taka þátt í göngum
með eldri systkinum sínum.
Börnin sækja útivistaráhuga sinn
því augljóslega til foreldra sinna en
Matthías segir þau hafa verið dug-
leg að þvælast með börnin sín um
allt land frá því þau voru smábörn.
„Okkur hefur fundist þetta vera
bestu gæðastundir fjölskyldunnar,
að gista í tjaldi eða tjaldvagni á
fjöllum, borða undir berum himni
og eiga stundir saman fjölskyldan
við göngur, leik eða bara með því
að lesa saman bækur inn í tjaldi.
Okkur hefur fundist þetta frábær
leið til að spjalla saman um lífið
og tilveruna, læra að bera virðingu
fyrir náttúrunni og koma að
umhverfisvitund hjá þeim.“
stundum þarf göngunammi
Matthías segir að krökkunum
finnist fjallgöngur ekkert alltaf
mjög skemmtilegar en þau læri
að setja sér markmið og ná þeim.
„Ísland býður líka upp á svo marga
ævintýralega staði fyrir börn. Það
er eins og góður vinur okkar sagði
við okkur: ,,Þið lítið á Ísland sem
Disneyland fyrir börn!“ Það eru orð
að sönnu. Svo er ótrúlega skemmti-
legt að skoða landið með augum
krakkanna. Núna erum við hjónin
svo heppin að stýra Ferðafélagi
barnanna og getum þannig kynnt
útivist og fjöll fyrir fleiri börnum og
fjölskyldum og þar eru fjölmargar
spennandi dagsferðir og lengri ferðir
á dagskrá á árinu.“
Urður og Ólafur Ragnar segjast
hafa gengið nokkuð oft á Esjuna og
önnur fjöll með fjölskyldunni auk
þess sem þau hafi gengið Laugaveg-
inn. „Við höfum oft farið í Þórsmörk
og förum t.d. árlega með mörgum
svo skemmtileg fjölskylda
Það er lærdómsríkt fyrir börn að upplifa náttúru landsins í gönguferðum og á ferðalögum með
fjölskyldum sínum. Hjónin Matthías Sigurðarson og Dalla Ólafsdóttir tóku nýlega við umsjón
með Ferðafélagi barnanna og börn þeirra þrjú eiga í vændum skemmtilegt og viðburðaríkt sumar.
fjölskyldum í haustferð í Þórsmörk
og göngum þar og gistum í skál-
anum, spilum og leikum okkur.“
Eldri systkinin eru sammála um
að skemmtilegasta fjallgangan
þeirra hafi verið á Herðubreið en
hún hafi þó verið svolítið erfið. „Það
var einnig mjög gaman að ganga frá
Tálknafirði yfir í Patreksfjörð með
pabba okkar fyrir nokkrum árum,
sérstaklega þar sem við gengum upp
úr skýjunum og vorum í glampandi
sól á meðan það var þoka í bæj-
unum. Svo höfum við líka gengið
Kjöl með Ferðafélagi barnanna. Það
hefur yfirleitt gengið vel að ganga en
sumar gönguferðirnar hafa þó verið
nokkuð erfiðar. Þá verðum við að
stoppa, hvíla okkur og fáum okkur
göngunammi.“
Gott nesti mikilvægt
Þau segja það skemmtilegasta
við göngur vera að komast upp á
fjallstoppana eða klára að ganga
langar gönguleiðir. „Mér finnst líka
útiveran skemmtileg og það að fá
tækifæri til að njóta náttúrunnar,“
segir Urður. „En það er ekki alltaf
skemmtilegt en maður verður
samt glaður að vita að maður getur
klárað erfið fjöll eða leiðir,“ bætir
Ólafur við. „Mér finnst einnig
mjög skemmtilegt að fara í heitar
náttúrulaugar, t.d. í Strútslaug og í
Landmannalaugar og svo er voða
gaman á góðviðrisdögum að leika
sér í ísköldum ám eða vötnum.“
Guðrún Katrín, yngsti fjölskyldu-
meðlimurinn, bætir við að henni
þyki gaman að taka þátt í göngu-
ferðum því fjölskylda hennar sé
svo skemmtileg. „Mér finnst líka
mjög gaman að ganga í skógi og
svo er líka mjög gaman að tína
sveppi. Stundum hittum við ein-
hvern sem við þekkjum og svo er
gaman að hafa gott nesti, t.d. snúð
og kleinuhring. Svo er gaman að
fara í Hver er maðurinn og Frúin í
Hamborg þegar við erum að labba.
Uppáhaldsfjallið mitt er Brenni-
steinsalda af því það er svo litríkt
og fallegt.“
Gott sumar fram undan
Þar sem foreldrar þeirra stýra nú
Ferðafélagi barnanna gera þau
ráð fyrir mörgum góðum ferðum
í sumar. „Við ætlum m.a. að ganga
Laugaveginn, Fimmvörðuháls og
Kjöl og hlökkum mikið til þess. Svo
erum við svo heppin að einhverjir
vinir okkar hafa bókað sig einnig
í þær ferðir. Svo ætlum við líka að
taka þátt í Fjallagarpaverkefni Ferða-
félags barnanna og ganga á nokkur
fjöll í nágrenni Reykjavíkur, t.d.
Móskarðshnúka og Helgafell.“
Síðan er alltaf gaman að labba
með vinum segja þau bæði. „Síðasta
sumar fórum við t.d. í skemmti-
lega göngu í Jökulsárgljúfr um með
góðum vinum okkar og foreldrum
þeirra. Þar eru brött og há gil og
mjög skemmtilegt að labba þar.
Svo fór ég með bekkjarsystkinum
mínum á Esjuna síðasta haust og
það var mjög góð ferð,“ segir Ólafur
að lokum.
Starri Freyr
Jónsson
starri@frettabladid.is
1
3
-0
3
-2
0
1
8
0
4
:2
4
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
F
2
C
-6
A
E
8
1
F
2
C
-6
9
A
C
1
F
2
C
-6
8
7
0
1
F
2
C
-6
7
3
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
A
F
B
0
4
0
s
_
1
2
_
3
_
2
0
1
8
C
M
Y
K