Fréttablaðið - 29.03.2018, Síða 10
Rafrænt stjórnarkjör 9. til 13. apríl
Rafrænt stjórnarkjör fer fram á vef sjóðfélaga á www.lifsverk.is
dagana 9. – 13. apríl. Samkvæmt samþykktum sjóðsins skal
kjósa um tvö laus stjórnarsæti, karls og konu, til þriggja ára.
Í framboði eru Eva Hlín Dereksdóttir, Freyr Ólafsson, Gnýr
Guðmundsson, Helga Viðarsdóttir, Ragnheiður I. Þórarinsdóttir,
Sverrir Bollason og Unnar Hermannsson. Kynning frambjóð-
enda er á vefsvæði sjóðsins. Sjóðfélagar eru hvattir til að nýta
kosningarétt sinn.
Um Lífsverk lífeyrissjóð:
Lífsverk er opinn lífeyrissjóður fyrir háskólamenntaða en allir geta
greitt til séreignardeilda sjóðsins. Sérstaða sjóðsins er m.a. sjóðfélaga-
lýðræði, rafrænt stjórnarkjör, góð réttindaávinnsla og hagstæð sjóð-
félagalán. Hrein eign til greiðslu lífeyris í árslok 2017 var samtals 80,9
milljarðar kr. og hækkaði um 7,9 milljarða kr. á árinu. Í árslok 2017
var heildartryggingafræðileg staða samtryggingardeildar jákvæð um
1,5%. Hrein raunávöxtun sl. 5 ár er 5,0%
Nánari upplýsingar á www.lifsverk.is.
Hrein raunávöxtun samtryggingardeildar
Aðalfundur Lífsverks lífeyrissjóðs
Engjateigi 9 – Reykjavík - Þriðjudaginn 17. apríl kl. 17:00
5 ára meðaltal
Hrein raunávöxtun – Samtryggingardeild
Dagskrá fundar:
Hefðbundin aðalfundarstörf
Niðurstaða rafræns stjórnarkjörs
Tillögur til breytinga á samþykktum
Önnur mál, löglega upp borin
Engjateigur 9 105 Reykjavík
www.lífsverk.is
Hrein nafnávöxtun Hrein raunávöxtun
Samtryggingardeild 5,3% 3,6%
Lífsverk 1 6,2% 4,4%
Lífsverk 2 7,4% 5,6%
Lífsverk 3 4,9% 3,1%
Ávöxtun 2017:
9,0%
8,0%
7,0%
6,0%
5,0%
4,0%
3,0%
2,0%
1,0%
0,0%
2013 2014 2015 2016 2017
Kína Kim Jong-un, einræðisherra
Norður-Kóreu, hefur lofað því að
losa sig við kjarnorkuvopnin. „Það
er eindreginn vilji okkar að stuðla
að afvopnun á Kóreuskaga í sam-
ræmi við óskir Kim Il-sung og Kim
Jong-il,“ sagði einræðisherrann á
fundi með Xi Jinping, forseta Kína.
Norðurkóreska ríkissjónvarpið,
KCNA, staðfesti í gær fréttir af því
að Kim hafi verið í óopinberri heim-
sókn í Kína. Þeirri fyrstu sem Kim
fer í frá því hann tók við leiðtoga-
sætinu. Heimsókninni lýkur í dag
en samkvæmt KCNA hefur Xi þegið
boð Norður-Kóreumannsins um
að ferðast til Norður-Kóreu síðar á
árinu.
Fundur leiðtoganna er ekki sá eini
sem Kim mun taka þátt í á árinu. Á
dagskrá einræðisherrans er fundur
með Moon Jae-in, forseta Suður-
Kóreu, í apríl og Donald Trump, for-
seta Bandaríkjanna, stuttu seinna,
líklegast í maí.
Á fundi leiðtoganna sagði Kim
við Xi að ástandið á Kóreuskaga færi
batnandi vegna frumkvæðis Norð-
ur-Kóreumanna. Sagði Kim jafn-
framt að Norður-Kórea væri opin
fyrir fleiri fundum með leiðtogum
Suður-Kóreu og Bandaríkjanna, að
því er kínverski ríkismiðillinn Xin-
hua greindi frá. „Hægt er að leysa
afvopnunarmálin á Kóreuskaga ef
Bandaríkin og Suður-Kórea svara
viðleitni okkar með frekari velvild.
Hægt er að koma á friði og stöðug-
leika ef við erum samstiga,“ hafði
Xinhua eftir Kim.
Ljóst er að heimsóknin vakti
áhuga Norður-Kóreumanna.
Rodong Sinmun, ríkisdagblað
Norður-Kóreu, gaf út sérstaka við-
hafnarútgáfu í gær og var fjallað
um Kínaheimsóknina á sjö heilum
síðum af átta. Sú síðasta fjallaði um
innanríkismál. Birti blaðið myndir
frá heimsókninni ásamt brotum úr
ræðum leiðtoganna.
Suður-Kóreumenn höfðu sömu-
leiðis áhuga á fundinum. Að sögn
talsmanns forseta létu Kínverjar
þá vita af fundinum með nokkrum
fyrirvara. Talsmaðurinn vildi þó
ekki svara spurningu blaðamanna
um hvenær sú tilkynning barst.
„Heimsóknin er tilraun til að
bæta stirð samskipti við Kína, eina
bandamann og helsta viðskiptaríki
Norður-Kóreu, sem hefur tekið þátt
í viðskiptaþvingunum gegn norðr-
inu,“ sagði í umfjöllun suðurkóreska
miðilsins Yonhap um fundinn.
Aðrir suðurkóreskir miðlar
sögðu ástæðu heimsóknarinnar þá
að Kim vildi reyna að létta á við-
skiptaþvingununum. Íhaldsmið-
illinn Chosun Ilbo sagði frá því að
Kim vildi koma sér vel fyrir undir
verndarvæng Kínverja ef svo færi
að viðræðurnar við Trump mis-
heppnuðust. Frjálslyndi miðillinn
Hankyoreh sagði Xi staðráðinn í að
leika lykilhlutverk í Kóreudeilunni.
Kínverski ríkismiðillinn Global
Times fagnaði nýjum kafla í sam-
skiptum Kínverja og Norður-Kóreu-
manna. „Alþjóðasamfélagið ætti að
styðja heimsóknir sem þessa. Lík-
legt er að þær verði drifkraftur í átt
að friði og hagsæld á Kóreuskaga.“
thorgnyr@frettabladid.is
Kim heitir afvopnun í Kínaheimsókn
Af hverju vil Kim nú stilla til friðar?
Eftir að hafa gert sextán eldflauga-
tilraunir og eina kjarnorkutilraun,
raunar þá stærstu í sögu ríkisins,
á síðasta ári þykir einkennilegt að
Kim vilji nú reyna að stilla til friðar.
Hafa Norður-Kóreumenn ekki gert
neina slíka tilraun það sem af er ári,
höfðu gert tvær á sama tíma í fyrra.
Togstreitan á Kóreuskaga, og
á milli Norður-Kóreu og Banda-
ríkjanna, var gríðarleg áður en
boðað var til viðræðnanna á milli
suðurs og norðurs og svo norðurs
og vesturs. En hvað breyttist?
Fréttaskýrendur víða um heim
hafa bent á að mögulega séu við-
skiptaþvinganir gegn einræðisríkinu
nú að bera árangur. Norður-Kórea
þurfi nauðsynlega á því að halda
að á þeim verði slakað. Því sé Kim
nú opinn fyrir því að losa sig við
kjarnorkuvopnin gegn því að öryggi
einræðisstjórnarinnar verði tryggt.
Blaðamaður Washington Post
kom með þá skýringu að með því
að funda með Trump öðlaðist
Kim það sem hann þráði helst.
Viðurkenningu á lögmæti stjórnar
sinnar. Hann þyrfti að umgangast
og fjalla um sem jafningja forseta
stórveldisins og fundurinn gæti
tryggt það.
Aðrir hafa haldið því fram að
með því að sýna núna vilja til við-
ræðna, til þess að stilla til friðar, sé
Kim að reyna að vinna tíma svo að
hægt sé að klára smíði eldflauga
sem geti flutt kjarnorkuvopn til
Bandaríkjanna með ásættanlegri
nákvæmni.
Dagbók Kim Jong-un
1. janúar
Kveður við sáttatón í nýársávarpi
Kim þar sem hann segist íhuga
að senda keppnislið á Vetrar-
ólympíuleikana í Pyeongchang í
Suður-Kóreu.
3. janúar
Opnað á neyðarlínu á milli
ríkjanna eftir tveggja ára lokun.
8. janúar
Norður-Kórea samþykkir að
senda keppendur og klapplið á
Vetrarólympíuleikana.
9.-25. febrúar
Norður-Kórea tekur þátt í
Vetrarólympíuleikunum. Ganga
inn undir sama fána og senda
sameiginlegt lið í íshokkí kvenna.
Sendinefnd undir forystu Kim
Yo-jong, systur einræðisherrans,
fundar með Suður-Kóreumönn-
um.
4. mars
Suðurkóresk sendinefnd mætir
til fundar með Kim í norðurkór-
esku höfuðborginni Pjongjang.
Kim segist opinn fyrir afvopnun.
7. mars
Samkomulag næst um að Moon
Jae-in, forseti Suður-Kóreu, fundi
með Kim í fyrsta skipti.
8. mars
Kim býður Donald Trump Banda-
ríkjaforseta til viðræðna um
kjarnorkuvopnaáætlun ríkisins.
Trump samþykkir og stefnt
að viðræðum innan tveggja
mánaða.
20. mars
Suður-Kórea tilkynnir að ríkið
muni senda tónlistarmenn til að
spila á tónlistarhátíð í Pjongjang.
27. mars
Kim kemur til Kína. Heimsóknin
er sú fyrsta sem hann fer í frá því
hann tók við leiðtogasætinu.
29. mars (í dag)
Sendinefndir Kóreuríkjanna
skipuleggja leiðtogafund Kim
og Moon. Búist er við því að þeir
fundi í næstu viku í landamæra-
bænum Panmunjom.
31. mars
Tónlistarhátíð suður-
kóreskra lista-
manna hefst í
Pjongjang.
apríl
Moon fundar
með Kim.
Maí
Trump fundar með Kim.
Fyrsta heimsókn einræð-
isherra Norður-Kóreu
var til Kína. Kim sagði
ástandið á Kóreuskaga
fara batnandi. Sagður
koma sér fyrir undir
verndarvæng Kínverja.
Kínverjar segja fundinn
marka kaflaskil.
Það er eindreginn
vilji okkar að stuðla
að afvopnun á Kóreuskaga í
samræmi við óskir Kim
Il-sung og Kim Jong-il.
Kim Jong-un, einræðisherra
Norður-Kóreu
Kim Jong-un og Xi Jinping funduðu saman í Kína í vikunni. Nordicphotos/AFp
2 9 . M a r s 2 0 1 8 F I M M T U D a G U r10 F r é T T I r ∙ F r é T T a B L a ð I ð
2
9
-0
3
-2
0
1
8
0
4
:2
5
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
F
5
6
-9
3
0
C
1
F
5
6
-9
1
D
0
1
F
5
6
-9
0
9
4
1
F
5
6
-8
F
5
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
A
F
B
0
6
4
s
_
2
8
_
3
_
2
0
1
8
C
M
Y
K