Fréttablaðið - 29.03.2018, Síða 30

Fréttablaðið - 29.03.2018, Síða 30
Útgefandi: 365 miðlar Veffang: frettabladid.isÁbyrgðarmaður: Elmar Hallgríms Hallgrímsson Sölumaður auglýsinga: Ólafur H. Hákonarson, olafurh@frettabladid.is, s. 512 5433 Sigurveig Friðgeirsdóttir og Hannes Sigurðsson, lögfræðingur hjá PwC, með sameiginlegan fund. MYND/ERNIR Sigurveig Friðgeirsdóttir er stofnandi Húsastoðar og hefur á undanförnum árum byggt fyrirtækið upp af miklum dugnaði. Hún er allt í senn, glað- beitt í fasi, þjónustulipur og einörð kona sem býr að víðtækri reynslu af umsjón fjármála og hagsmuna- gæslu fyrir húsfélög. Fyrirtækið hefur það að markmiði að veita húsfélögum fjöleignarhúsa og fyrirtækjasambýla víðtæka þjón- ustu varðandi rekstur, utanumhald og umsjón.  Losna við innheimtu Hvaða ávinningur er fyrir húsfélög að vera í viðskiptum við Húsastoð? „Það felst margvíslegur ávinningur í því,“ segir Sigurveig. „Við sjáum um að færa bókhaldið fyrir hús- félagið, gera kostnaðar áætlun og ársreikning. Þar með losnar stjórn húsfélagsins við tímafrekt umstang og það fæst aukið öryggi við að fagfólk sjái um bókhaldið og upp- setningu ársreiknings. Enn fremur sjáum við um útsendingu greiðslu- krafna vegna húsgjalda og greiðslu reikninga. Það felst mikið öryggi í slíkri sjóðsumsjón fyrir húsfélög þar sem við sjáum sjálfvirkt um greiðslu á öllum reglubundnum reikningum en greiðsla sértækra reikninga, til dæmis vegna fram- kvæmda, er einungis gerð með samþykki stjórnar húsfélagsins. Með umsjón með innheimtu hús- félagagjalda lenda einstaklingar í stjórn húsfélagsins ekki í þeirri erfiðu aðstöðu að vera persónu- legir innheimtuaðilar húsgjalda í sameigninni. Þegar stærri framkvæmdir standa fyrir dyrum aðstoðum við hjá Húsastoð varðandi ráðgjöf við val á eftirlits- og framkvæmda- aðilum, kostnaðargreiningu framkvæmda niður á hverja eign í samræmi við eignaskiptasamn- inga. Enn fremur aukast líkur á að lögfræðileg úrlausnarefni komi upp við stærri framkvæmdir og við erum stolt að geta boðið upp á aðgengi og þjónustu öflugs hóps lögfræðinga með sérþekkingu á þessu sviði. Mjög hagkvæmt Síðast en ekki síst höfum við lagt upp með að þessi þjónusta sé hag- kvæm fyrir húsfélög. Við nýtum samlegðaráhrif þess að hafa þjón- ustuna og yfirsýnina á einum stað til að hagræða og lækka kostnað og skilum því til viðskiptavina í formi hóflegs þjónustugjalds. Ávinningur íbúa getur því verið margþættur, svo sem minna umstang og minni áhyggjur, tímasparnaður, aukið Njáll L. Árnason er í stjórn húsfélagsins í Vallarási 3 sem nýtir sér þjónustu Húsastoðar og PWC. MYND/ERNIR öryggi með útvistun bókhalds og sjóðsumsjónar auk aðstoðar við lögfræðileg álitaefni, ef með þarf.“ Hannes Sigurðsson lögfræðingur hjá PwC, sem unnið hefur náið með Sigurveigu, segir að rekstur húsfélaga geti verið flókinn. Kröfur til stjórnar um að reglum sé fram- fylgt samkvæmt lögum um fjöl- eignarhús eru miklar. Þessar kröfur varða meðal annars framsetningu ársreikninga, greiðsluskiptingu húsgjalda, boðun og framkvæmd aðalfunda. Húsastoð sér til þess að allar lagakröfur séu uppfylltar auk þess sem útreikningur allra hús- sjóðsgjalda miðist við eignaskipta- samning. Sérfræðingar mæta á fundi Á hverjum húsfundi eru að minnsta kosti tveir aðilar frá Húsastoð, sérfræðingur sem stýrir fundinum auk lögfræðings sem gætir að öllum lagakröfum og er þá einnig til skrafs og ráðagerða ef einhver sérstök álitamál eru uppi á fundinum. „Þetta hefur gefist mjög vel og við höfum fengið góða endurgjöf frá viðskiptavinum okkar með þetta fyrirkomulag,“ segir Hannes. Öryggi og persónuleg þjónusta Njáll L. Árnason er í stjórn hús- félags að Vallarási 3. Hann segir að gott utanumhald sé lykill að góðu húsfélagi. Mikið öryggi felist í því að hafa þjónustuna hjá Húsastoð auk þess sem félagið veiti góða og persónulega þjónustu. Með umsjón með innheimtu hús- félagagjalda lenda ein- staklingar í stjórn hús- félagsins ekki í þeirri erfiðu aðstöðu að vera persónulegir innheimtu- aðilar húsgjalda í sam- eigninni. 2 KYNNINGARBLAÐ 2 9 . M A R S 2 0 1 8 F I M MT U DAG U RSAMEIGNIN 2 9 -0 3 -2 0 1 8 0 4 :2 5 F B 0 6 4 s _ P 0 4 6 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 3 5 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 1 9 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 3 0 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 F 5 6 -7 5 6 C 1 F 5 6 -7 4 3 0 1 F 5 6 -7 2 F 4 1 F 5 6 -7 1 B 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 A F B 0 6 4 s _ 2 8 _ 3 _ 2 0 1 8 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.