Fréttablaðið


Fréttablaðið - 29.03.2018, Qupperneq 35

Fréttablaðið - 29.03.2018, Qupperneq 35
Meðal þess sem Húseigendafélagið býður upp á er lögfræði­ þjónusta sem verið hefur þungamiðjan í starfsemi félagsins undanfarna áratugi. Sigurður Helgi Guðjónsson Mörg dæmi eru um að húsfélög og stjórnarmenn þeirra hafi orðið fyrir tjóni og skakkaföllum vegna mistaka við undirbúning og framkvæmd húsfunda, segir Sigurður Helgi Guðjónsson. Nú stendur yfir tími aðal­funda í húsfélögum þar sem teknar eru ákvarðanir um mikilvæg mál og kostnaðar­ samar framkvæmdir. Mörg dæmi eru um að húsfélög og stjórnar­ menn þeirra hafi orðið fyrir tjóni og skakkaföllum vegna mistaka við undirbúning og framkvæmd húsfunda. „Þótt það virðist ekki vera mikið vandaverk að halda húsfundi sem standast lagakröfur og eru bærir til að taka lögmætar ákvarðanir þá reynist það oft þrautin þyngri,“ segir Sigurður Helgi Guðjónsson, formaður Húseigendafélagsins, en sökum þess og til að mæta mikilli Vanda þarf undirbúning húsfunda vel og vandlega Það getur reynst þrautin þyngri að halda húsfundi sem standast lagakröfur. Hús­ fundaþjónusta Húseigenda­ félagsins tryggir lögmæti hús­ funda og að rétt sé staðið að ákvarðanatöku. eftirspurn setti Húseigendafélagið á laggirnar altæka þjónustu, Hús­ fundaþjónustuna, um allt sem að húsfundum lýtur. „Hér er um að ræða alhliða húsfundaþjónustu, þ.e. lögfræðilega ráðgjöf og aðstoð við fundarboð, tillögur og gagna­ öflun. Lögmaður með sérþekk­ ingu annast fundarstjórn og ritun fundargerða er í höndum lögfræð­ inga eða laganema.“ Sigurður Helgi segir að Hús­ fundaþjónustan tryggi lögmæti húsfunda og að rétt sé staðið að ákvarðanatöku en dæmin sanni að oft verði misbrestur á því, með afdrifaríkum afleiðingum. „Þessi þjónusta Húseigendafélagsins er því afar skynsamleg öryggisráð­ stöfun fyrir alla, bæði eigendur og viðsemjendur húsfélags, t.d. banka og verktaka. Fundur sem undir­ búinn er af fagmennsku og haldinn af þekkingu er ávallt og að öllu leyti betri, málefnalegri, markvissari og árangursríkari en fundur þar sem fum og fúsk ræður,“ segir Sigurður. Sérþekking, kunnátta og reynsla Á aðalfundum húsfélaga eru oftar en ekki teknar ákvarðanir um dýrar framkvæmdir og ráð­ stafanir sem fela í sér miklar skuldbindingar fyrir húsfélög og fjárútlát upp á hundruð þúsunda eða jafnvel milljónir króna fyrir hvern eiganda. Forsenda fyrir lög­ mæti þeirra ákvarðana og þar með greiðsluskyldu eigenda er að þær hafi verið teknar á fundi sem er löglega boðaður og haldinn. Húsfundaþjónustan felur í sér ráðgjöf og aðstoð við undirbúning og boðun húsfunda og stjórnun funda og ritun fundargerða. Frá Húseigendafélaginu koma að hverjum fundi fundarstjóri og fundarritari. Fundarstjóri er lögmaður, sem hefur þekkingu, þjálfun og reynslu í fundahöldum, ásamt þekkingu á sviði fjöleignar­ húsamála. Starfsmenn og lög­ fræðingar félagsins koma einnig að málum og aðstoða við undirbún­ ing funda, samningu fundarboða, ályktana, tillagna og samantekt annarra fundargagna og eru ráð­ gefandi um öll atriði. Þjónustan hefst með undirbúningsfundi lögfræðings félagsins með forsvars­ mönnum húsfélagsins þar sem farið er yfir fundarefnin og málefni húsfélagsins og línurnar lagðar. Sigurður segir að með Húsfunda­ þjónustunni sé boðin fram sér­ þekking, kunnátta og reynsla og er gjaldið fyrir þjónustuna lágt í ljósi þess og einnig þegar haft er í huga að hún fyrirbyggir deilur og hugs­ anlegt fjártjón. „Það er því mikið hagsmunamál fyrir alla, eigendur, viðsemjendur, lánastofnanir, verktaka og aðra, að húsfundir séu rétt haldnir þannig að ákvarðanir þeirra verði ekki vefengdar síðar með þeim leiðindum og fjárhags­ legu skakkaföllum sem því fylgja.“ Félagsmenn standa undir starfseminni Húseigendafélagið var stofnað árið 1923 og er því 95 ára á þessu ári. Félagsmenn eru um tíu þúsund og þar af eru húsfélög um átta hundruð. Félagið þiggur enga styrki og er ekki fjárhagslegt heldur er það eingöngu rekið með hags­ muni félagsmanna og húseigenda að leiðarljósi. „Félagsmenn standa undir starfsemi Húseigendafélags­ ins að öllu leyti og forsenda þess að félagið geti boðið upp á þjónustu á borð við Húsfundaþjónustuna á svo lágu verði er tryggð og festa félaga, að þeir tjaldi ekki bara til einnar nætur. Þá má því segja að þjónustan sé niðurgreidd með félagsgjöldunum og að hún sé að stærstum hluta borin uppi og kostuð af þeim félagsmönnum sem greiða árgjöldin sín en nýta sér ekki þjónustuna í bráð eða lengd.“ Meðal þess sem húseigenda­ félagið býður upp á er lögfræði­ þjónusta sem verið hefur þunga­ miðjan í starfsemi félagsins undanfarna áratugi. Félagið býr því yfir mikilli og sérhæfðri þekkingu á þeim sviðum lögfræðinnar sem varða fasteignir og eigendur þeirra. Jafnframt er rekin húsaleigu­ þjónusta en þá aðstoðar Húseig­ endafélagið félagsmenn sína við samningsgerð og kannar feril og skilvísi leigjenda. Síðast en ekki síst má nefna að Húseigendafélagið tekur þátt í almennri hagsmunabaráttu fast­ eignaeigenda. Segir Sigurður Helgi að félaginu hafi þar orðið verulega ágengt, öllum húseigendum til hags og heilla. Nefnir hann í því sambandi fjöleignarhúsalög, húsa­ leigulögin og lög um fasteigna­ kaup. Skrifstofa Húseigendafélagsins er í Síðumúla 29 í Reykjavík. Þar eru veittar nánari upplýsingar um fé­ lagið, starfsemi þess og þjónustu. Netfangið er postur@huseigenda­ felagid.is og símanúmer 588­9567. Sigurður Helgi Guðjónsson, for- maður Húseigendafélagsins. KYNNINGARBLAÐ 7 F I M MT U DAG U R 2 9 . m a R S 2 0 1 8 SAMeIGNIN 2 9 -0 3 -2 0 1 8 0 4 :2 5 F B 0 6 4 s _ P 0 4 6 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 3 5 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 1 9 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 3 0 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 F 5 6 -7 5 6 C 1 F 5 6 -7 4 3 0 1 F 5 6 -7 2 F 4 1 F 5 6 -7 1 B 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 A F B 0 6 4 s _ 2 8 _ 3 _ 2 0 1 8 C M Y K
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.