Fréttablaðið - 29.03.2018, Blaðsíða 44
„Þetta er algert draumadjobb fyrir
manneskju eins og mig sem hef verið
að vasast í umhverfismálum í sjálfboða-
vinnu frá því ég var unglingur,“ segir
Auður Magnúsdóttir, nýráðinn fram-
kvæmdastjóri Landverndar. Hún tekur
reyndar skýrt fram að hún taki ekki við
embættinu fyrr en 1. maí.
Spurð hvort hún hafi alist upp við þær
hugmyndir að náttúran þyrfti verndar
við svarar Auður: „Ég ólst upp við virð-
ingu fyrir náttúrunni. Ég er Selfyssingur
en er komin af bændum í báðar ættir,
fólki sem nytjaði landið og var tengt
sínu umhverfi, annars vegar í Flóanum
og hins vegar vestur á Mýrum.“
Auður segir Landvernd þýðingar-
mikil samtök enda séu þau að kljást við
mikilvægustu málefni okkar samtíma,
umhverfismálin. „Eitthvað sem við verð-
um taka á af fullri alvöru næstu árin,“
segir hún einbeitt og telur mikils virði
þegar fólk sem er á öndverðum meiði
viðri skoðanir sínar. „Það er svo mikil-
vægt að hlusta á alla og þó maður skipti
ekki um skoðun við það þá öðlast maður
betri skilning. Þegar málin eru rædd til
hlítar í vinsemd þá lærist alltaf eitthvað.“
En finnst Auði Landvernd vera nógu
valdamikil samtök? „Nei, því þó svo
Ísland sé búið að fullgilda Árósasáttmál-
ann er framkvæmd hans enn ábótavant
hér á landi,“ segir hún og ég bið hana að
útskýra það nánar. „Lagaumhverfið hjá
okkur Íslendingum er dálítið sniðið að
þeim sem hafa mikla hagsmuni af því
að nýta náttúruna. Þeir hafa sterk öfl á
bak við sig. Landvernd er bara samtök
almennings og Árósasáttmálinn kveður
á um að félagasamtök geti verið aðili
máls í lagalegum skilningi þótt þau hafi
ekki sjálf beina hagsmuni í málinu.“
Hún segir félögum í Landvernd hafa
fjölgað mikið undanfarið og séu nú um
5.000. „Samtökin hafa líka þróast heil-
mikið um leið og almenningi er að verða
ljóst hvað umhverfisverndarmálin eru
brýn. Núna erum við að horfast í augu
við stærsta umhverfisvanda sem mann-
kynið hefur staðið frammi fyrir sem er
loftslagsvandinn. Ef við tökum ekki á
honum á næstu fimm árum verður ekki
hægt að snúa því olíuskipi við. Plastið
er önnur ógn en gegndarlaus neysla er
á bak við hvort tveggja. Við viljum alltaf
meira, allt þarf að vera í svo miklum
vexti og stækka.“
Auður er gift og á þrjú börn, hún býr í
Norðlingaholtinu og kveðst vera í átaki
heima hjá sér með fjölskyldunni að reyna
að minnka plastnotkun. „Það er bara
mjög sjokkerandi hvað við sjálf, sem
þykjumst vera meðvituð, erum að nota
mikið plast, þó að við förum auðvitað
með það í endurvinnslu,“ segir hún.
Undanfarið hefur Auður verið deildar-
forseti auðlinda- og umhverfisdeildar
Landbúnaðarháskóla Íslands. „Ég hef
aðallega starfað á Keldnaholti en líka
svolítið á Hvanneyri. Það hefur verið
skemmtilegt en ég lít samt á þetta nýja
embætti sem risastórt tækifæri.“
gun@frettabladid.is
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda
samúð og hlýhug vegna andláts
föður okkar, tengdaföður,
afa og langafa,
Sverris Hermannssonar
fv. ráðherra og bankastjóra.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki á
hjúkrunarheimilinu Mörk fyrir kærleiksríka umönnun.
Bryndis Sverrisdóttir Guðni A. Jóhannesson
Kristján Sverrisson Erna Svala Ragnarsdóttir
Margrét K. Sverrisdóttir Pétur S. Hilmarsson
Ragnhildur Sverrisdóttir Hanna Katrín Friðriksson
Ásthildur Lind Sverrisdóttir Matthías Sveinsson
Greta Lind Kristjánsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskulegur eiginmaður minn og besti
vinur, faðir okkar, tengdafaðir og afi,
Guðleifur Magnússon
bókbindari,
Klettakór 1A, Kópavogi,
lést á líknardeild Landspítalans í
Kópavogi þann 19. mars sl.
Útför hans fór fram frá Bænhúsinu við Fossvogskirkju
þann 23. mars sl. Athöfnin fór fram í kyrrþey að ósk hins
látna. Jarðað var í Gufuneskirkjugarði á svæði G.
Þökkum hlýhug og auðsýnda samúð.
Ásta Erlingsdóttir
Magnús Guðleifsson Guðbjörg Guðmundsdóttir
Erlingur Guðleifsson Björk Hauksdóttir
Björgvin Guðleifsson Sólveig Helga Gunnarsdóttir
og barnabörnin.
Okkar ástkæri eiginmaður, faðir,
tengdafaðir, tengdasonur og afi,
Pálmi Ragnarsson
frá Garðakoti II,
lést á sjúkrahúsinu á Akureyri þann
22. mars síðastliðinn. Útförin fer fram frá
Hóladómkirkju laugardaginn 7. apríl kl. 14.00.
Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem
vilja minnast hans er bent á minningarkort Utanfararsjóðs
Krabbameinsfélags Skagafjarðar eða Utanfararsjóðs
sjúkra í Skagafirði sem fást í Blóma- og gjafabúð
Sauðárkróks, s.455-5544.
Ása Sigurrós Jakobsdóttir
Jakob Smári Pálmason Katharina Sommermeier
Magnea Jóna Pálmadóttir Halldór Bjartmar Halldórsson
Oddný Ragna Pálmadóttir Ingi Guðmundsson
Sigríður Ingibjörg Pálmad.
Svana Ásgrímsdóttir
og barnabörn.
Elsku mamma okkar, tengdamamma,
amma, og langamma,
Anna Sigurlína
Steingrímsdóttir
Álftamýri 52, 108 Reykjavík,
lést á Hrafnistu þann 26. mars
síðastliðinn. Jarðarför verður auglýst síðar.
Guðrún S. Guðmundsdóttir Valdimar Gíslason
Magnús Örn Guðmundsson Sigrún Hjörleifsdóttir
Grettir Ingi Guðmundsson Hrönn Harðardóttir
Óðinn Ari Guðmundsson Iðunn Lárusdóttir
Halldór Þór Guðmundsson Sigrún Þóranna Friðgeirsd.
Rebekka Rós Guðmundsd. Kristján Róbert Walsh
barnabörn og barnabarnabörn.
Mikilvægt að hlusta á alla
Auður Magnúsdóttir, doktor í lífefnafræði, tekur við sem framkvæmdastjóri Landvernd-
ar 1. maí. Hún ólst upp við virðingu fyrir náttúrunni og hlakkar til nýja starfsins.
Auður er Selfyssingur en er komin af bændum í báðar ættir, fólki sem nytjaði landið og
var tengt sínu umhverfi, bæði sunnan lands og vestan.FréttAblAðið/Eyþór ÁrnASon
Merkisatburðir
1947 Heklugos hefst, hið fyrsta í rúma öld. Gosmökkurinn
nær 30 km hæð.
1961 Sett eru lög um launajöfnuð kvenna og karla. Skulu
þau komin til framkvæmda að fullu fyrir 1. janúar 1967.
1970 Henný Hermannsdóttir, átján ára, sigrar í keppninni
Miss Young International, sem haldin er í Japan.
1973 Síðustu bandarísku hermennirnir yfirgefa Suður-
Víetnam.
Það er bara mjög
sjokkerandi hvað við
sjálf, sem þykjumst vera með-
vituð, erum að nota mikið plast.
2 9 . m a r s 2 0 1 8 F I m m T U D a G U r
tímamót
Maður frá Akureyri féll í
jökulsprungu í Kverkfjöllum í
norðaustanverðum Vatnajökli
þennan mánaðardag árið 1985.
Hann var í Flugbjörgunarsveit-
inni og var við þriðja mann í ferð
á jöklinum. Hann stöðvaðist á
snjóhafti á um það bil fimmtán
metra dýpi en mun lengra var
niður á botn sprungunnar.
Maðurinn slasaðist ekki við
fallið en félagar hans komust
ekki niður til hans, heldur létu
vita af atburðinum gegnum tal-
stöð. Fjöldi björgunarsveita lagði
af stað, alls á annað hundrað
manns, til að bjarga manninum.
Það var björgunarsveitin Gró á
Fljótsdalshéraði sem vann það
afrek. Hafði hann þá mátt dúsa í
jöklinum í rúman sólarhring.
Þ EttA g E r ð i St : 2 9 . M A r S 1 9 8 5
Maður féll í jökulsprungu í Kverkfjöllum
Sprungur Vatnajökuls eru viðsjárverðar. FréttAblAðið/GVA
2
9
-0
3
-2
0
1
8
0
4
:2
5
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
F
5
6
-8
9
2
C
1
F
5
6
-8
7
F
0
1
F
5
6
-8
6
B
4
1
F
5
6
-8
5
7
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
A
F
B
0
6
4
s
_
2
8
_
3
_
2
0
1
8
C
M
Y
K