Fréttablaðið - 29.03.2018, Side 60

Fréttablaðið - 29.03.2018, Side 60
Föstudagurinn langi á að vera þungur og erf-iður dagur þar sem fólk skal neita sér um alla skemmtun að lútersk-um sið. Í Iðnó verður þó ýmislegt í gangi, en þar fer fram „dómsdagsfögnuðurinn“ Háskar, þar sem kemur fram heill hellingur af listamönnum af öllum stærðum og gerðum, og stendur yfir frá þrjú að degi til þrjú um nótt. Talan 3 er raunar ákaflega áberandi í þessum hátíðarhöldum öllum saman. Það er listahópurinn Hatari sem stendur fyrir Háskum ásamt Svika- myllu ehf. Hvað er það sem fer fram þarna í Iðnó á morgun? „Á Háskum verða flutt ljóð, gjörningar, klassísk tón- list, rafhljóð, þungarokk og fleira sem hæfir háskanum sem blasir við mannkyni. Það verða innsetningar inni á klósetti og raftónleikar uppi á háalofti og allt þar á milli. Allt listafólk sem fram kemur er valið af stjórn Svikamyllu ehf. og má kynna sér á vefnum haskar. org,“ segir talsmaður Svikamyllu ehf. sem vildi ekki koma fram undir nafni. „Ástæða þess að við höldum Háska er að dómsdagur vofir yfir jörðinni rétt eins og flugurnar sveima í kringum hræið. Sá sem steypir sér fram af klettabrún er í hrapandi ástandi en með sömu rökum má benda á að mannkynið allt er nú í dómsdagsástandi. Við höldum Háska til að viðurkenna þetta ástand og fagna, því annað væri að örvænta, og markaðs- og greiningardeild Svikamyllu ehf. hefur mælt gegn örvæntingu þar sem hún er rekstri félagsins óhag- kvæm.“ Hvers vegna varð þessi dagur, föstudagurinn langi, fyrir valinu? „Dagsetningin 30. mars er valin af tveimur ástæðum. Annars vegar liggja rekstrarsjónarmið að baki og var það markaðs- og greiningar- deild Svikamyllu ehf. sem mælti sér- staklega með þessari dagsetningu. Ofan á þetta bætist að stjórnar- formaður Svikamyllu ehf. hefur mikla trú á dulrænum krafti þrenndarinnar og vill meina að hann flýti fyrir dómsdegi – talan þrír kemur oft fyrir í kynningu og skipulagningu viðburðarins og var það til að mynda ósk formannsins að miðaverð yrði 3.333 krónur í for- sölu. Dagsetningin er valin í þessum anda.“ Forsala er hafin á viðburðinn og má nálgast miða á tix.is. stefanthor@frettabladid.is Dómsdagshátíðin Háskar fer fram í Iðnó á morgun, föstudaginn langa, þar sem stór hópur listamanna kem- ur fram. Hátíðarhöldin standa frá miðjum degi og fram á miðja nótt en þarna mun dulrænn kraftur þrenndarinn- ar meðal annars verða nýttur til að flýta fyrir dómsdegi. Flýtt fyrir dómsdegi í Iðnó StjórnarFormaður SvIkamyllu ehF. heFur mIkla trú á dul- rænum kraFtI þrenndar- Innar og vIll meIna að hann FlýtI FyrIr dómSdegI – tal- an þrír kemur oFt FyrIr í kynnIngu og SkIpulagnIngu vIðburðarInS. Tónlist n Amer Chamaa n Andi n Cyber n Dada Pogrom n DJ Dominatrix n Elli Grill n Godchilla n Hatari n Hórmónar n IDK IDA n Kórus n Kraftgalli n Kuldaboli n Madonna+Child n Muck n Nicolas Kunysz n Rex Pistol n russian.girls n Terrordisco n Umer Consumer n World Narcosis Ljóðalestur n Ágústa Björnsdóttir n Elísabet Jökulsdóttirn Friðrik Petersen n Hannah Jane n Jòn Magnùs n Jón Örn Loðmfjörð n Jóna Kristjana Hólmgeirsdóttirn Kött Grá Pje n Ólöf Benediktsdóttir Aðrir listviðburðir n Adolf Smári og Sigurður Unnarn Almar Steinn Atlasonn CGFC n Helga Guðrún Þorbjörnsdóttirn Ilmur Stefánsdóttir n Katrína Mogensen og Nína Óskarsdóttirn Óskar Þór Ámundasonn Post Performance Blues Bandn Stepmom 2 9 . m a r s 2 0 1 8 F I m m T U D a G U r40 l í F I ð ∙ F r É T T a B l a ð I ð Lífið Kött Grá Pje er fyrr-verandi rappari og núverandi skáld. Hann verður með upplestur á Háskum. Þura, Salka og Jóhanna R akel í Cyber mun u taka nokkur lög í Iðnó. Hatari er vöru- merki í eigu fyrir- tækisins Svikamyllu ehf. sem stendur fyrir hátíðarhöld-unum. 2 9 -0 3 -2 0 1 8 0 4 :2 5 F B 0 6 4 s _ P 0 6 0 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 5 3 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 0 5 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 1 2 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 F 5 6 -7 F 4 C 1 F 5 6 -7 E 1 0 1 F 5 6 -7 C D 4 1 F 5 6 -7 B 9 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 A F B 0 6 4 s _ 2 8 _ 3 _ 2 0 1 8 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.