Fréttablaðið - 24.03.2018, Blaðsíða 28

Fréttablaðið - 24.03.2018, Blaðsíða 28
Rán verður 15 ára á árinu og segist hefðu viljað læra mannréttindi og jafnrétti kynjanna frá fyrstu stigum. Móðir hennar, Hrund, segir mikilvægt að taka sýn ungmenna alvarlega. FRéttablaðið/SteFán Hrund Gunnsteins­dóttir, stjórnar­formaður Tækni­þróunarsjóðs, og dóttir hennar Rán S i g u r j ó n s d ó t t i r eru sammála um að það þurfi hugar­ farsbreytingu í samfélaginu um menntun. „Það er kominn tími til að meta á nýjan hátt kennslu og frammi­ stöðu nemenda í gagnfræðaskólum á Íslandi. Kennarar og stjórnendur skóla hafa sent inn athugasemdir um fyrri próf sem hefur ekki verið tekið tillit til við gerð seinni prófa, eins og komið hefur fram í umræð­ unni um mislukkuð samræmd próf nú á dögunum. Framkvæmd próf­ anna virðist hafa miðlað þeirri tilfinningu til margra kennara og skólastjórnenda að þeim sé ekki treyst til að fylgja markmiðum í kennslu og að innlegg þeirra til bóta sé ekki metið,“ segir Hrund. Árið er 2018 og við þurfum að hafa hugrekki til að sleppa takinu af gömlum tólum ef þau eru úr sér gengin. Samræmdu prófin raska skólastarfi og valda líka kvíða hjá mörgum nemendum sem kvarta yfir því að þetta sé eina eða aðal viðmiðið til að meta getu þeirra í framhaldsskólum. Mér finnst mjög jákvætt að sjá til dæmis að skólastjórar Garðaskóla og Verslunarskólans hafa gefið út þau skilaboð að framgangur nem­ enda standi ekki og falli með sam­ ræmdu prófunum,“ segir Hrund. listir og vísindi ættu að vera jöfn Dóttir Hrundar, Rán Sigurjónsdótt­ ir, verður 15 ára á þessu ári og finnst að jafnar áherslur ættu að vera á listir og vísindi í námi. „Við eigum að læra um mannréttindi, femín­ isma og jafnrétti kynjanna frá fyrstu stigum í skóla, svo við skiljum hvað þessi hugtök þýða. Það er of seint að kenna þetta á eldri skólastigum. Svo á að vera jafnmikil áhersla á listir og vísindi í kennslunni. Ef þú ert lélegur í listum þá er það afgreitt þannig að það sé bara ekki þitt svið. En ef þú ert lélegur í raungreinum þá ertu bara heimskur.“ Hrund segir mikilvægt að spyrja ungmenni um framtíðarsýn þeirra og taka hana alvarlega. „Ég myndi vilja gera landsátak í því að spyrja krakka í gagnfræðaskóla hvernig þau dreymi um framtíðina. Hvetja þau til að dreyma stórt, hugsa og útfæra framtíðarsýn á ígrundaðan hátt, hvernig þau sjái Ísland fyrir sér eftir 20­40 ár, í alþjóðlegu sam­ hengi. Það skiptir líka máli að þau sjái fyrir sér góða framtíð. Ég myndi vilja að við tækjum drauma þeirra og framtíðarsýn alvarlega,“ segir Hrund og segist telja þetta tilvalið verkefni á fullveldisafmælinu í ár. Hún segir íslenskt menntakerfi standa á tímamótum. „Heimurinn er að breytast hraðar en nokkru sinni fyrr. Óvissa er orðin risavax­ inn þáttur í allri ákvarðanatöku sem snertir líf og störf. Stór hluti fram­ tíðarstarfa er óþekktur, nú þegar eru til störf víða um heim sem voru ekki þekkt fyrir nokkrum árum. Hvernig undirbúum við nemendur sem best til að halda út í hið óþekkta? Við þurfum að finna jafnvægi milli þess að undirbúa nemendur fyrir vissu og óvissu. Og því þarf að fylgja eftir­ vænting, ekki kvíði,“ leggur Hrund áherslu á. „Af því að við erum með opinbert menntakerfi þarf hið opinbera að lyfta grettistaki í að endurskipu­ leggja hlutina. Einfalda, gefa mun meira svigrúm til athafna og frjóvg­ unar nýrra hugmynda. Efla kennara sem leiðtoga og efla það hugvit sem í þeim býr og leyfa því að skila sér til nemenda,“ segir Hrund. „Nemendur þurfa að vera jafn hæfir á greiningar, tækni og rök­ hugsun og þeir eru á skapandi hugsun og eigið innsæi. Það má vera miklu meira um samþættingu sérgreina í verkefnavinnu. Nýta fjöl­ breytt verkfæri og þekkingu og læra að beita þeim á áhugaverð og mikil­ væg úrlausnarefni þar sem niður­ staðan er ekki fyrir fram þekkt eða til að skapa eitthvað nýtt. Blanda saman listum, tækni og vísindum. Þannig verður námið meira prakt­ ískt, meira skapandi og í takt við tímann. Ég myndi líka vilja að nemendur læri á heilann, hugann og vitundina, til að efla seiglu þeirra, tilfinninga­ greind og getu til að rýna til gagns og taka betri ákvarðanir. Metnaðar­ fyllstu verkefnin í gervigreindinni ganga út á að búa til hinn full­ komna mannshuga. Við treystum svo mikið á tæknina, en gleymum því stundum að það erum við sem búum hana til.“ „á hverju viltu byrja?“ „Ég held við þurfum öll að átta okkur á þeirri staðreynd að við komum til með að þurfa að endur­ mennta okkur í gegnum lífið og vinna lengur og öðruvísi. Við getum til dæmis endurskoðað það að spyrja börnin okkar hvað þau ætli að verða er þau verða stór og spyrja þess í stað: Á hverju vilt þú byrja? Til hvers stendur hugur þinn núna? Ráðlagt börnunum okkar að byrja á einhverju og bæta svo bara við eins og þörf og forvitni drífur þau til. Við þurf­ um að skipta um störf oftar á ævinni, sam­ setning og sér­ hæfing starfa er í mjög örri þróun og það er mikilvægt að kunna eitthvað á dýptina en fleira en eitt á breiddina. Sveigjanleiki, fróðleiks­ þorsti og fjölbreytt verkfæri eru lykilatriði. Það að vera í góðum tengslum við sjálfan sig og annað fólk og umhverfið í kring verður sífellt mikilvægara í tækni og hraða. Við fullorðna fólkið kennum það best með eigin hegðun, ekki bara orðum. Mín reynsla af því að vinna með ungu fólki bæði hér heima og erlendis er að það vill ekki endilega vinna langa vinnudaga – eins og við – vera hlekkur í keðju sem er auð­ velt að skipta út og vera úrvinda í lok hvers dags. Þau vilja kanna heiminn, gera sig gildandi, vinna störf sem skipta máli og gefa þeim sveigjanleika hvað varðar búsetu, vinnupláss og hlutverk.“ Ungmenni stofni fyrirtæki Hvernig verður útskriftarárgangur- inn 2030? Hvað heldur þú að þau muni læra og hvernig? „Ég myndi vilja sjá nám barnanna okkar vera þannig að þau fái verkefni sem ganga út á að leysa áskoranir, verk­ efni í eigin samfélagi eða hugleið­ ingar sem eru heimspekilegs eðlis. Hægt er að flétta saman stærðfræði, gervigreind, myndlist, heimspeki, sjálfbærnimarkmiðum Sameinuðu þjóðanna, kynjafræði, öldr­ un og hverju öðru, við að finna leiðir til að bæta samfélagið. Hér væri lögð áhersla á styrk­ leika hvers barns, s a m s t a r f s g e t u , áhugasvið, að þau skynji erindi sitt og annarra. Að við stoppum þau ekki af í hugmyndaflug­ inu með okkar eigin skorti á hugmyndum, skorti á verkfærum eða því að við kennum ekki þverfaglega. Tími til að hugsa og hanga og skynja og leika sér væri partur af náminu. Og já, ungmenni ættu að geta fengið stuðning til að stunda nýsköpun og stofna fyrirtæki í námi sínu, ef hugur þeirra stendur til þess. 2030 er eftir 12 ár, það er ekki seinna vænna að hefjast handa,“ nefnir Hrund. byggt á úreltum viðmiðum Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir, fyrr­ verandi borgarfulltrúi og eigandi og stofnandi Kara Connect, er Kennarar verði leiðtogar Hrund Gunnsteinsdóttir og Rán Sigurjónsdóttir fimmtán ára dóttir hennar eru sammála um að það þurfi að bylta menntakerfinu. Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir og skorar á ráðherra menntamála að auka frelsi kennara. Kristjana Björg Guðbrandsdóttir kristjana@frettabladid.is Það er liðin tíð að fólk geti lært próf utan að. kröfur um gott nám eru af allt öðrum toga. ef Þú ert lélegur í listum, Þá er Það af- greitt Þannig að Það sé bara ekki Þitt svið. en ef Þú ert lélegur í raungreinum, Þá ertu bara heimskur. Rán, fimmtán ára ↣ 2 4 . m a r s 2 0 1 8 L a U G a r D a G U r28 H e L G i n ∙ F r É T T a B L a ð i ð 2 4 -0 3 -2 0 1 8 0 3 :4 7 F B 1 4 4 s _ P 1 1 7 K .p 1 .p d f F B 1 4 4 s _ P 1 1 2 K .p 1 .p d f F B 1 4 4 s _ P 0 2 8 K .p 1 .p d f F B 1 4 4 s _ P 0 3 3 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 F 4 C -E A 9 8 1 F 4 C -E 9 5 C 1 F 4 C -E 8 2 0 1 F 4 C -E 6 E 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 8 B F B 1 4 4 s _ 2 3 _ 3 _ 2 0 1 8 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132
Blaðsíða 133
Blaðsíða 134
Blaðsíða 135
Blaðsíða 136
Blaðsíða 137
Blaðsíða 138
Blaðsíða 139
Blaðsíða 140
Blaðsíða 141
Blaðsíða 142
Blaðsíða 143
Blaðsíða 144

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.