Fréttablaðið - 07.04.2018, Blaðsíða 10
Aðalfundur FTR verður haldinn
miðvikudaginn 18. apríl 2018, kl. 17.00,
á Stórhöfða 31, fjórðu hæð
DAGSKRÁ:
1. Skýrsla stjórnar.
2. Samþykkt reikninga
3. Lagabreytingar.
4. Kosningar.
5. Tillaga að sameiningu við
Félag sýningarmanna við kvikmyndahús.
9. Önnur mál.
Reykjavík 7. apríl 2018
Kveðja, stjórnin
AÐALFUNDUR 2018
50%
OPIÐ ALLA DAGA Rafvörumarkaðurinn við Fellsmúla | 108 Reykjavík | Sími: 585 2888
KASTARA-
DAGAR AFSLÁTTUR AF
KÖSTURUM
Heilbrigðismál Mikilvægt er að
heilbrigðisstarfsfólk og aðrir fag
aðilar sem koma að málum barna
sem sýna merki um vanlíðan séu
upplýstir um að gerendur í heimilis
ofbeldismálum kunni að halda
áfram áreitni á heimili barns þótt
ofbeldismaðurinn sé fluttur út af
heimilinu. Þetta kemur fram í grein
sem birt er í nýútkomnu hefti Sál
fræðiritsins – Tímariti Sálfræðinga
félags Íslands.
Í greininni eru birtar niðurstöður
rannsóknar tveggja sálfræðinga á
hegðun og líðan íslenskra barna sem
hafa orðið fyrir og/eða orðið vitni að
ofbeldi á heimili sínu. Þátttakendur
í rannsókninni voru 28 börn sem
tóku þátt í hópmeðferð á vegum
Barnaverndarstofu fyrir börn sem
hafa upplifað og/eða orðið vitni að
slíku ofbeldi.
„Tæplega 30% barnanna bjuggu
enn á sama heimili og sá aðili sem
beitti það og/eða aðra á heimili
þeirra ofbeldi. Helmingur af heildar
fjölda þátttakenda bjó á heimili sem
gerandi áreitti enn þá í óþökk heim
ilismeðlima og í nokkrum tilfellum
voru þátttakendur í umgengni við
geranda sem var þá fluttur út af
heimilinu, en gerandi áreitti engu
að síður enn þá heimilið. Niður
stöður benda því til þess að þrátt
fyrir að gerendur hafi verið fluttir út
af heimili meirihluta þátttakenda þá
hafi gerendur engu að síður haldið
áfram að áreita heimili þeirra og
því hafi ofbeldinu í raun ekki verið
endanlega lokið,“ segir í greininni
sem byggð er á rannsókn þeirra
Lucindu Árnadóttur, sálfræðings hjá
Skólaþjónustu Árborgar, og Urðar
Njarðvík, dósents við sálfræðideild
Háskóla Íslands.
Í greininni kemur fram að hátt
hlutfall barnanna, eða rétt um 54
prósent, hafði orðið fyrir einelti, 30
prósentum leið illa eða mjög illa í
skóla og tæplega 36 prósent höfðu
greint frá sjálfsvígshugsunum. Þá
sýndu niðurstöðurnar að 30 pró
sent barnanna voru með einkenni
kvíða yfir klínískum mörkum og 20
prósent voru yfir klínískum mörkum
þunglyndis.
Í greininni segir að smæð úrtaks
ins sé helsti annmarki rannsókn
arinnar. „Úrtakið flokkast undir
klínískt úrtak en rannsóknir sýna
að börn úr klínískum úrtökum sýna
yfirleitt meiri vanda heldur en börn
sem ekki er vísað í meðferð.“
jonhakon@frettabladid.is
Þunglyndi og kvíði
eftir heimilisofbeldi
Um þriðjungur barna sem höfðu upplifað og/eða orðið vitni að heimilisofbeldi
og sótt meðferð hjá Barnaverndastofu glímdi við sjálfsvígshugsanir og mörg
þjáðust af kvíða og þunglyndi. Rúmlega helmingur hafði orðið fyrir einelti.
Á vegum Barnaverndarstofu er rekin hópmeðferð fyrir börn sem hafa sætt
ofbeldi heima hjá sér eða orðið vitni að því á heimilinu. NordicPhotos/Getty
Yfir 10 prósent upplifað eða orðið vitni að ofbeldi
Tvær rannsóknir hafa verið gerðar
til að kanna tíðni heimilisofbeldis
gegn börnum á Íslandi. Þessar
rannsóknir sem hafa verið gerðar á
vegum fyrirtækisins Rannsóknir og
greining og UNICEF á Íslandi benda
til þess að allt að 10-13 prósent
ungmenna á Íslandi hafi orðið vitni
að líkamlegu ofbeldi og/eða orðið
fyrir líkamlegu ofbeldi. Annmarkar
á framkvæmd þeirrar rannsóknar
voru þeir að hún byggði einungis á
sjálfsmati unglinganna. Rannsókn
þeirra Lucindu og Urðar byggði
hins vegar bæði á niðurstöðum
hálfstaðlaðs viðtals við forráða-
menn og sjálfsmatskvarða sem
lagðir voru fyrir börnin.
sveitarstjórnarmál Kolbrún Bald
ursdóttir sálfræðingur leiðir lista
Flokks fólksins í borginni í sveitar
stjórnarkosningum sem fram fara í
maí.
„Við ætlum að setja fólkið í fyrsta
sæti,“ segir Kolbrún og heldur áfram:
„Fæði, klæði og húsnæði fyrir alla.“
Kolbrún segir flokkinn vilja koma
á fót embætti hagsmunafulltrúa
aldraðra sem hafi það hlutverk að
búa til heildstætt kerfi sem heldur
utan um aðhlynningu aldraðra. Þá
vill flokkurinn kalla eftir samvinnu
við ríkið og lífeyrissjóði til að koma
á fót öflugu félagslegu húsnæðis
kerfi fyrir efnaminna fólk.
„Ég er að tala um fólkið sem er
verst sett, sem býr inni á foreldrum
sínum eða vinum, fólkið sem býr í
iðnaðarhúsnæði sem er ósamþykkt
og fólkið sem hefur hreinlega flúið
borgina. Við erum að tala um lág
launafólk, fjölskyldufólk. Þetta er
fólkið sem við viljum setja í forgang.
Við viljum algjörlega endurstokka
forgangsröðun núverandi meiri
hluta,“ segir Kolbrún og kveður
meirihlutann hafa vanrækt fleiri
málaflokka. „Það eru margir van
ræktir málaflokkar, eins og mál
efni aldraðra, málefni öryrkja og
svo framvegis. Þau hafa viljað setja
aðra hluti framar. Við viljum breyta
þessu og byggja grunninn fyrir fólk
ið. Svo verða aðrir hlutir að koma
þar á eftir.“
Annað sæti listans skipar Karl
Berndsen hárgreiðslumeistari en í
þriðja sæti er Ásgerður Jóna Flosa
dóttir, formaður Fjölskylduhjálpar
Íslands. – ósk
Kolbrún Baldursdóttir
leiðir lista Flokks fólksins
Við viljum algjör-
lega endurstokka
forgangsröðun núverandi
meirihluta.
Kolbrún
Baldursdóttir,
sálfræðingur
lögreglumál Sex einstaklingar voru
handteknir um síðustu helgi þegar
lögreglan leysti upp spilakvöld í hús
næði við Síðumúla. Þetta staðfestir
Ævar Pálmi Pálmason, lögreglu
fulltrúi hjá lögreglunni á höfuð
borgarsvæðinu, við Fréttablaðið. Á
staðnum voru menn að spila póker.
Lögreglan, sem fékk veður af því að
á staðnum væri verið að iðka ólög
lega starfsemi, þurfti að sögn Ævars
að brjóta sér leið inn á staðinn. Þeir
sem voru viðstaddir opnuðu ekki
fyrir lögregluþjónum.
Pókerborð og annar búnaður sem
notaður er til að spila póker var hald
lagður. Áfengi og reiðufé var einnig
gert upptækt en ekki fást upplýs
ingar um hversu háar upphæðir það
voru.
Mönnunum sex var sleppt eftir
yfirheyrslur, daginn eftir. – bg
Löggan leysti
upp spilakvöld
7 . a p r í l 2 0 1 8 l a u g a r D a g u r10 f r é t t i r ∙ f r é t t a b l a ð i ð
0
7
-0
4
-2
0
1
8
0
4
:3
3
F
B
1
2
8
s
_
P
1
2
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
1
1
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
0
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
F
6
0
-9
3
2
4
1
F
6
0
-9
1
E
8
1
F
6
0
-9
0
A
C
1
F
6
0
-8
F
7
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
A
F
B
1
2
8
s
_
6
_
4
_
2
0
1
8
C
M
Y
K