Fréttablaðið - 07.04.2018, Qupperneq 12
RAM 3500
TIL AFGREIÐSLU STRAX
Umboðsaðili Ram Trucks á Íslandi - Þverholti 6 - 270 Mosfellsbær - s. 534 4433
www.ramisland.is - www.isband.is - isband@isband.is - Opið virka daga 10-18 - Laugardaga 12-16
Bi
rt
m
eð
fy
rir
va
ra
u
m
p
re
nt
vi
llu
r.
FRUMSÝNING
VELKOMIN(N) Á GLÆSILEGA PALLBÍLASÝNINGU
Í DAG Á MILLI KL. 12 - 16
RAM 3500 LIMITED MEÐ
40” BREYTINGU
heilbrigðismál Notkun geð-
deyfðarlyfja við alvarlegu þung-
lyndi (MDD) ber meiri árangur en
lyfleysumeðferð. Þetta er niðurstaða
nýrrar samanburðarrannsóknar
sem unnin var af vísindamönnum
við Oxford-háskóla.
Virkni geðdeyfðarlyfja til að
hjálpa einstaklingum að eiga við
geðraskanir á borð við þunglyndi
er almennt viðurkennd. Hins vegar
hafa verið skiptar skoðanir um hve
mikill ávinningurinn er í saman-
burði við lyfleysu. Þessi nýja og yfir-
gripsmikla rannsókn virðist svara
þeirri spurningu.
Niðurstöður rannsóknarinnar
voru birtar í læknaritinu The
Lancet á dögunum en hún tekur
til 522 birtra og óbirtra tvíblindra
slembirannsókna á árunum milli
1979 og 2016. Niðurstöður þessara
rannsóknar voru keyrðar saman en
alls tóku þær til 116.477 einstakl-
inga. Af þeim voru 87.052 sjúklingar
sem fengu eitt af 21 geðdeyfðarlyfi
sem tekið var til rannsóknar, en
29.425 fengu lyfleysu.
Þó að töluverður munur hafi
verið á virkni lyfjanna þá sýndu þau
í öllum tilfellum fram á betri virkni
en lyfleysa.
Jafnframt taka vísindamenn-
irnir fram að þessar niðurstöður
eigi aðeins við fullorðna einstakl-
inga, ekki börn og unglinga. Þeir
segja lyfið Flúoxetín líklega eina
geðdeyfðarlyfið sem geti dregið úr
Geðdeyfðarlyf trompa lyfleysu
Ný samanburðarrannsókn á virkni mismunandi tegunda geðdeyfðarlyfja sýnir fram á ótvíræðan ávinning
af notkun þeirra í samanburði við lyfleysumeðferð. Dregur vonandi úr efasemdum um virkni lyfjanna.
350
milljónir manna um allan
heim glíma við alvarlegt
þunglyndi.
✿ Virkni valdra geðdeyfðarlyfja*
2,5
2,0
1,5
1,0
0,5
0
Am
it
ri
pt
yl
in
e
m
ir
ta
za
pi
ne
D
ul
ox
et
in
e
Ci
ta
lo
pr
am
Pa
ro
xe
ti
n
es
cí
ta
ló
pr
am
Algeng lyf á Íslandi
Fl
úo
xe
tí
n
se
rt
ra
lín
Ci
ta
lo
pr
am
2,13
1,89 1,85
1,52
1,75
1,681,69 1,67
1,52
*Virkni geðdeyfðarlyfja út frá líkum á að þau beri meiri ávinning en lyfleysa.
1 og minna er ekki betra en lyfleysa.
lyfleysa
einkennum þunglyndis hjá þessum
aldurshópi.
Engilbert Sigurðsson, prófessor
í geðlæknisfræði og yfirlæknir á
geðsviði Landspítala, bendir á að
meðferðarsvörun við lyfleysumeð-
ferð er meiri í meðferð þunglyndis
en meðferð annarra algengra geð-
raskana. Viti sjúklingur að það séu
helmingslíkur á að hann fái viður-
kennt lyf eða lyfleysu, þá ýtir það
frekar undir bata af þunglyndi en
að taka enga töflu.
Hann segir ávinning rannsóknar-
innar ekki síst þann að höfundarnir
söfnuðu einnig niðurstöðum sem
ekki hafa verið birtar opinberlega.
„Því hefur endurtekið verið
haldið fram af efasemdarmönnum
að ef það tækist að ná í niðurstöður
óbirtra greina þá kæmu þunglyndis-
lyfin mun verr út en áður hefur
verið haldið fram,“ segir Engilbert.
„Þessar niðurstöður sýna hins vegar
mjög svipaða mynd og kom fram í
samantekt sömu höfunda árið 2009
þar sem mikið skorti á aðgang að
óbirtum rannsóknum.“
Höfundar rannsóknarinnar von-
ast til þess að niðurstöðurnar verði
til þess að stuðla að enn öflugri
gagnreyndum lækningum og að þær
fræði sjúklinga, lækna og þá sem
koma að opinberri stefnumótun
um virkni geðdeyfðarlyfja.
„Það hefur í raun vart verið deilt
um það meðal lækna að þung-
lyndislyf skila árangri, heldur
frekar hversu mikill ávinningurinn
er í samanburði við lyfleysumeð-
ferð,“ segir Engilbert. „Það má þó
alltaf finna tortryggna einstaklinga
í röðum lækna og fræðimanna og
almennings sem sjá samsæri í flest-
um hornum.“
Rannsóknin tók til alvarlegs
til miðlungssvæsins þunglyndis.
Alvarlegt þunglyndi er geðröskun
sem herjar á 350 milljónir um allan
heim. kjartanhreinn@frettabladid.is
bAnDArÍkin Ríkisstjórn Donalds
Trump, forseta Bandaríkjanna, til-
kynnti í gær refsiaðgerðir gegn sjö
rússneskum auðjöfrum sem tengj-
ast Vladímír Pútín forseta nánum
böndum auk tólf fyrirtækja þeirra.
Á meðal þeirra eru Óleg Derípaska,
sem var eitt sinn náinn fyrrverandi
kosningastjóra Trumps, Paul Mana-
fort, og Kíríll Sjamalov, sem kvænt-
ur er dóttur Rússlandsforseta.
„Rússneskir ólígarkar og sú elíta
sem hagnast á spillingu í Rússlandi
mun ekki lengur komast upp með
að einangra sig frá afleiðingum
skaðlegra áhrifa þeirra,“ sagði
Steven Mnuchin, fjármálaráðherra
Bandaríkjanna, í yfirlýsingu í gær.
– þea
Tengdasyni
Pútíns refsað
nOregUr Frá og með 1. ágúst verður
leikskólum í Noregi skylt að hafa
lágmarksfjölda starfsmanna, einn
fullorðinn á þrjú börn yngri en
þriggja ára og einn fullorðinn á sex
börn eldri en þriggja ára.
Haft er eftir menntamálaráðherra
Noregs, Jan Tore Sanner, að tryggja
verði að nógu margir fullorðnir séu
með börnin, sama í hvaða leikskóla
þau ganga.
Landssamtök einkarekinna leik-
skóla segja að mögulega þurfi að
loka fjórðungi lítilla leikskóla vegna
kröfu um lágmarksmönnun. – ibs
Lög um fjölda
starfsmanna á
leikskólum
7 . A P r Í l 2 0 1 8 l A U g A r D A g U r12 F r é t t i r ∙ F r é t t A b l A ð i ð
0
7
-0
4
-2
0
1
8
0
4
:3
3
F
B
1
2
8
s
_
P
1
2
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
1
1
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
1
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
F
6
0
-7
F
6
4
1
F
6
0
-7
E
2
8
1
F
6
0
-7
C
E
C
1
F
6
0
-7
B
B
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
A
F
B
1
2
8
s
_
6
_
4
_
2
0
1
8
C
M
Y
K