Fréttablaðið - 07.04.2018, Qupperneq 32
inn fyrir að vera skrifuð. Ég horfi á
þessa sýningu og sé nákvæmlega
hvað ég ólst upp við.“
Hvað ólst hún upp við? Jú, barna-
bækur eins og Bláu könnuna og
teiknimyndasögur. „Ég var og er enn
afskaplega hrifin af teiknimynda-
sögum og teikningum í barnabók-
um, eins og myndum Tove Jansson
og Barbapabba-myndunum. Það er
svo margt í þessum barnabókum
sem átti þátt í að skapa mig og það
mun aldrei fara. Það mun enn sitja í
mér þegar ég er orðin gömul kerling
og það þykir mér vænt um. Þá er ég
að tala um hluti eins og húmorinn
manns og formskyn og smekk fyrir
litum.“
Spennt fyrir kraftinum í trúnni
Ein mynd á sýningunni sýnir Bláu
könnuna sem er orðin gömul og í
annarri mynd sést Mikki mús sem
hefur sömuleiðis elst töluvert. En
þarna er mun fleira en myndir sem
tengjast bókum og teikningum.
Þarna er til dæmis mynd sem heitir
Pólitík, en faðir Gabríelu, Friðrik
Sophusson, var áberandi stjórn-
málamaður á sínum tíma og systir
hennar, Áslaug, er stjórnmálamað-
ur. Önnur mynd heitir Guðspeki.
„Ég ólst mikið upp í Guðspekifélag-
inu því mamma, Helga Jóakimsdótt-
ir, var forseti Íslandsdeildarinnar og
þar kynntist ég mörgu skemmtilegu
fólki. Þarna sat fólk í hugleiðslu og
það var svo yndislegt að ég fylltist
af andagift,“ segir Gabríela. „Ég held
að kynnin af Guðspekifélaginu hafi
haft mikil áhrif á mig. Í verkum
mínum hef ég verið að vinna úr
guðdómnum og symbólismanum,
þótt það sé kannski ekki beinlínis
sýnilegt.“
Þegar hún er spurð hvort hún sé
trúuð segir hún: „Ég er zen búdd-
isti. Ég hallast að búddisma því í
honum felst það að taka ábyrgð á
sjálfum sér. Hann hentar mínum
raunveruleika fullkomlega. Mér
finnst kaþólskan reyndar líka
óskaplega spennandi. Oft hefur
mig langað til að verða kaþólikki.
Ég elska skreytingarnar í kaþólsku
kirkjunum en get ekki hrifist af ljótu
steypukirkjunum okkar þar sem eru
engar myndir. Ég er mjög trúuð. Ég
er líka spennt fyrir kraftinum sem er
í trúnni og því ósýnilega. Það veitir
mér innblástur.“
Gabríela Friðriksdóttir sýnir ný verk sín á myndlistarsýningu sem verður opnuð í dag, laugardaginn 7. apríl, í Hverfis-
galleríi. Þar sýnir hún tæplega sextíu
málverk. Sýningin heitir einfaldlega
Gabríela og listakonan segir hana
einkennast af mjög persónulegum
verkum.
„Ég geri mikið af myndböndum
og innsetningum og milli þessara
stóru verkefna mála ég og teikna. Ég
vil sinna öllu: málverkum, teikning-
um, tónlist, dansi og vídeóverkum
En alltaf endar það á því að ég sný
aftur heim til teikninga og mál-
verka,“ segir Gabríela. „Vinnustofan
mín er á neðri hæðinni heima, ég
vakna milli fimm og sex á morgnana
og geng inn í vinnustofuna, anda
að mér andrúmsloftinu og bý inni
í því. Á hverjum degi fæ ég ótal hug-
myndir og þarf að vinsa úr þeim.
Þegar mér var boðið að vera með
sýningu í Hverfisgalleríi fannst mér
upplagt að þessi heimilisiðnaður
minn, litlu myndirnar sem ég geri
milli verkefna, færi á sýningu. Þegar
ég vinn verk fyrir stórar sýningar
þá er ég að búa til heim, sem er oft
marglaga. Hérna leyfi ég mér að
vera algjörlega laus við það. Þannig
að þessi sýning fjallar um það hver
ég er og hvernig ég vinn. Sýningin
heitir Gabríela og þar er ég að opna
hjarta mitt. Þegar maður opnar sig
svona, er sannur sjálfum sér og er
ekki að rembast þá koma verk sem
lýsa því hver maður er. Ég málaði
það sem kom upp í hugann hverju
sinni og afraksturinn er tæplega sex-
tíu verk í öllum regnbogans litum.“
Sálræn glíma
Skærir litir einkenna málverkin. Af
hverju hrífst hún af þessum litum?
„Það er geðveikin, ljótleikinn og
þjáningin. Glíman við form og liti
er mjög sálræn. Ég elska liti en varð
að finna mína leið í litavali,“ segir
hún. „Þegar ég var í myndlistarnámi
var ég alveg ákveðin í því hvað ég
ætlaði ekki að gera. Ég ætlaði ekki
að endurtaka mig. Einn daginn fór
ég að hugsa um það hversu góður
mér þætti Allsorts lakkrís og hversu
margir flottir litir væru í honum. Ég
ákvað að þannig ætti litapallettan
mín að vera: svartur, hvítur, brúnn
og svo allir þeir skæru litir sem eru
í þessum lakkrís. Þessir litir hafa
fylgt mér síðan. Nú er ég að bæta við
litum, eins og skærbleikum og rauði
og blái liturinn sem ég notaði aldr-
ei í gamla daga eru farnir að skjóta
upp kollinum.“
Ekki hægt að flýja sjálfan sig
Á myndunum á sýningunni eru
ýmiss konar form og fígúrur áber-
andi. „Þegar ég var yngri langaði
mig óskaplega til að verða abstrakt
listamaður, en það hefur ekki gerst.
Sögumaðurinn er svo fastur í mér.
Ég er bara þannig og það er ekki
hægt að flýja sjálfan sig,“ segir hún.
„Þessi sýning er algjörlega ég. Hún er
eins og dagbók, bara máluð í stað-
Ég er að opna
hjarta mitt
Gabríela Friðriksdóttir sýnir verk sín í Hverfisgalleríi. Listakonan
segir sýninguna eins og dagbók og þar sjáist hvað hún ólst upp við.
„Þessi sýning fjallar um það hver ég er og hvernig ég vinn,“ segir Gabríela. Fréttablaðið/Ernir
„ég elska liti en varð að finna mína leið í litavali,“ segir Gabríela en sterkir litir einkenna myndirnar á sýningunni. Fréttablaðið/Ernir
ÉG hallast að búdd-
isma því í honum Felst
það að taka ábyrGð
á sjálFum sÉr. hann
hentar mínum raun-
veruleika FullkomleGa.
Kolbrún
Bergþórsdóttir
kolbrun@frettabladid.is
7 . a p r í l 2 0 1 8 l a U G a r D a G U r32 H e l G i n ∙ F r É T T a B l a ð i ð
0
7
-0
4
-2
0
1
8
0
4
:3
3
F
B
1
2
8
s
_
P
1
1
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
9
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
1
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
F
6
0
-6
1
C
4
1
F
6
0
-6
0
8
8
1
F
6
0
-5
F
4
C
1
F
6
0
-5
E
1
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
A
F
B
1
2
8
s
_
6
_
4
_
2
0
1
8
C
M
Y
K