Fréttablaðið - 07.04.2018, Side 36
Elín
Albertsdóttir
elin@frettabladid.is
Albanía hefur verið að vaxa sem ferðamannaland enda ákaflega fallegt land og ódýrt
að sækja heim. Norðmenn hafa
verið að uppgötva Albaníu og Terje
Berge, framkvæmdastjóri FINN
reise, segir í samtali við norska vef-
miðilinn VG að ferðamannastraum-
ur þangað hafi aukist um 400%
undanfarið í pakkaferðum. Hann
segist trúa því að Albanía sé að verða
„nýja Króatía“ hjá norskum ferða-
mönnum. Sömuleiðis hafa forsvars-
menn hjá ferðaskrifstofunni Apollo í
Noregi trú á Albaníu í sumar. Apollo
hóf skipulagðar pakkaferðir þangað
fyrir tveimur árum og áhuginn hefur
stöðugt aukist. Í sumar er boðið upp
á þrjá nýja staði í Albaníu, Durres
Riviera, Himare og Dhermi. Sagt er
að strendurnar við Adríahafið séu
frábærar en landið liggur í Suð-
austur-Evrópu og á landamæri að
Kósóvó og Svartfjallaland í norðri,
Makedóníu í austri og Grikkland í
suðri. Vesturhlutinn liggur að Adría-
hafi en suðvesturhlutinn með fram
Jónahafi.
Hótelum hefur fjölgað við
strendurnar í Albaníu eftir því sem
ferðamannastraumur eykst. Landið
er fátækt og þess vegna eru ferða-
menn kærkomnir gestir. Maturinn
er góður enda liggur landið stutt
frá Ítalíu og hefur trúlega orðið
fyrir einhverjum áhrifum þaðan í
matargerð. Það besta við að ferðast
til Albaníu er verðið. Allt er mun
ódýrara en til dæmis á Ítalíu.
Faldar perlur
Það kemur á óvart að þegar
ferðast er um Evrópu séu enn til
faldir leyndardómar, sérstaklega
við ströndina, segir í vefmiðli The
Telegraph. Svartfjallaland sem er
ekki langt frá hefur náð ferðamönn-
um til sín með góðum árangri en
Albanía virðist hafa orðið útundan.
Þá hefur ferðamannafjöldi farið
mjög vaxandi í Króatíu sem er ofar á
skaganum. Það er undarlegt að hin
fallega strönd Albaníu við Adríahaf
skuli ekki vera orðin ferðamanna-
paradís. Fjarlægðin frá Vlorë, sem
er þriðja stærsta borg Albaníu, yfir
hafið til Pugliu á Ítalíu er aðeins 60
mílur.
Bent er á í greininni í The
Telegraph að góð hótel séu nálægt
borginni Durrës sem er norðan til
í landinu og í Saranda í suðri sem
er nálægt grísku landamærunum.
Þarna sjást þó ekki margir Bretar,
segir vefmiðillinn. Ástæðan gæti
verið sú að í Albaníu hefur aðeins
einn alþjóðlegur flugvöllur verið
starfandi. Hann er við höfuð-
borgina Tirana en lággjaldaflugfélög
hafa ekki verið að fljúga þangað.
Flugvöllurinn heitir Nënë Tereza í
höfuðið á Móður Teresu sem fæddist
í landinu. British Airways er eina
flugfélagið sem flýgur til Tirana frá
London í gegnum Gatwick flugvöll.
Strangar reglur, há lendingargjöld
og einokun komu í veg fyrir að
lággjaldaflugfélög byðu ferðir til
Albaníu en reglum var breytt árið
2016 og nú er ferðum að fjölga. Hug-
myndir eru uppi um að byggja nýjan
flugvöll nálægt Saranda en þangað
sækja ferðamenn.
Lokað land
Albanía var lokað land mun lengur
en önnur austurevrópsk lönd eftir
að kalda stríðinu lauk. Það hefur
kostað þjóðfélagið dýrmætar tekjur
af ferðamönnum. Sem betur fer
er tíðarandinn og stjórnmálin að
breytast í landinu og menn að átta
sig á að hin fallega strandlengja
landsins er dýrmætt landsvæði.
Uppbyggingin er hafin enda Albanía
heillandi land að heimsækja.
Höfuðborgin Tirana er áhugaverð
og þar eru merkilegar fornleifar
eins og víðar í landinu. Egyptaland
og Tyrkland hafa misst ferðamenn
Albanía er falin náttúruperla
Það er ekki seinna vænna að skipuleggja sumarfríið. Spánn er alltaf vinsæll hjá Íslendingum, marg-
ir fara til Grikklands en Króatía sækir á. Þó er sagt að margir séu að uppgötva Albaníu sem paradís.
Saranda er fallegur staður við ströndina í Albaníu. Ferðamenn eru að byrja að uppgötva þennan stað sem sumarleyfisparadís.
Búast má við því að ferðamönnum fjölgi mikið til Albaníu á næstu árum.
og það er spurning hvert þeir leita í
sól og strendur. Talið er að á næstu
þremur til fjórum árum muni fólk
leita í auknum mæli á strendurnar í
Albaníu.
Um þrjár milljónir manna búa í
Albaníu en talið er að jafn stór hluti
landsmanna hafi flúið bágt ástand
og búi um víða veröld. Spilling er
sömuleiðis mikil í landinu og hafa
margir íbúar flúið til nágrannaríkja,
sérstaklega til Grikklands. Albanar
eru stór hluti þeirra sem leita hælis á
Íslandi en þeim er í flestum tilfellum
synjað um hælisvist. Albanía hefur
verið með umsókn til Evrópusam-
bandsins frá árinu 2003 en ekki
fengið inngönguleyfi. Þess má geta
að ferðaskrifstofan Trans Atlantic
bauð upp á ferð til Albaníu fyrir
páska með millilendingu í London
en ferðamenn úr þeirri ferð koma
heim í dag.
Ástralía 5.-25. október
Verð 649.000 á mann
miðað við 2 í herbergi
Þriggja vikna spennandi ferð um Ástralíu frá 5. - 25. október.
- Mikið innifalið -
Upplýsingar í símum 845 - 1425 / 899 - 1295
eða á tölvupósti info@iceline.is
Kynntu þér ferðina betur á
www.icelinetravel.com
4 KYNNINGARBLAÐ 7 . A p R í L 2 0 1 8 L AU G A R DAG U RFeRÐIR
0
7
-0
4
-2
0
1
8
0
4
:3
3
F
B
1
2
8
s
_
P
0
9
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
8
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
3
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
4
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
F
6
0
-B
F
9
4
1
F
6
0
-B
E
5
8
1
F
6
0
-B
D
1
C
1
F
6
0
-B
B
E
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
1
2
8
s
_
6
_
4
_
2
0
1
8
C
M
Y
K