Fréttablaðið - 07.04.2018, Blaðsíða 40
Meðlimir Sykurs f.v.: Agnes Björt Andradóttir, Kristján Eldjárn, Stefán Finnbogason og Halldór Eldjárn. MYND/DÝRFINNA BENITA
Starri Freyr
Jónsson
starri@frettabladid.is
Tæp sjö ár eru síðan hljóm-sveitin Sykur sendi síðast frá sér plötu en sveitin tróð upp
á Sónar Reykjavík í síðasta mánuði
við góðar undirtektir. Þar flutti
hún m.a. nýtt lag af nýrri plötu
sem er væntanleg í sumar en óhætt
er að segja að aðdáendur sveitar-
innar séu margir orðnir spenntir
að heyra nýtt efni frá henni.
Halldór og Kristján Eldjárn
skipa sveitina auk Agnesar Bjartar
Andradóttur og Stefáns Finnboga-
sonar og voru þau himinlifandi
yfir viðtökunum á Sónar. „Við
fengum rosalegar viðtökur,“ segir
Halldór. „Tónleikarnir voru fyrr
um kvöldið en við erum vön en
salurinn troðfylltist og allir voru
dansandi eins og komið væri langt
fram yfir miðnætti. Nýju lögunum
var mjög vel tekið. Það var eins
og gestir þekktu þau öll og voru
meira að segja farnir að syngja
með textum sem þeir kunna ekki
einu sinni. Ég held að það sé mjög
góður fyrirboði.“
Ljúfsár þakklætisóður
Kristján var staddur í Los Angeles
og gat því ekki komið fram með
þeim í þetta skiptið. „Þetta var
rosalega áhugaverð og erfið upp-
lifun að fylgjast með Sykurtónleik-
unum á Sónar í gegnum samfélags-
miðla. Ég var ótrúlega öfundsjúkur
og saknaði hljómsveitarfélaga
minna, en á sama tíma var ég svo
ótrúlega stoltur af þeim því við-
tökurnar voru svo magnaðar.“
Nýja lagið, sem heitir Loving
None, fjallar að sögn meðlima
Sykurs um sambandsslit. „Frekar
en að nálgast þau með biturð eða
depurð er lagið eiginlega ljúf-
sár þakklætisóður til allra góðu
stundanna. Þá er einnig falin í því
óviljandi vísun í frægt lag með
annarri íslenskri hljómsveit, en
við látum hlustandanum eftir að
finna þá vísun.“
Spennt fyrir LungA
Þau segja lagið hafa verið til í ein-
hverri mynd síðan 2015. „Lagið var
í raun frumflutt á LungA sama ár en
undir allt öðru nafni. Við munum
einmitt spila aftur á LungA í ár og
erum alveg tryllingslega spennt
fyrir því enda er alltaf frábær
stemming þar og mjög gaman
að spila fyrir það góða fólk sem
þangað kemur.“
Lögin á nýju plötunni hafa fæðst
og þróast á undanförnum árum að
sögn þeirra. „Við höfum oft grínast
með að það sé svo langt síðan við
gáfum síðast út plötu að í millitíð-
inni hættu hljómsveitir að gefa út
plötur. Sum lögin voru samin fyrir
allmörgum árum en eru fyrst að líta
dagsins ljós núna á meðan önnur
hafa orðið til í hljóðverinu. Það
er nokkurs konar gestaþraut fyrir
hlustandann að púsla plötunni
saman í krónólógíska röð. Að því
sögðu hefur vinnsla hennar tekið
mikinn kipp á seinustu mánuðum
og gengur ótrúlega vel. Það má
búast við lendingu hennar í öllum
helstu tónveitum snemmsumars.“
Lögin að klárast
Kristján er nýlega farinn til Los
Angeles í nám þannig að platan
er að sögn sveitarinnar eiginlega
alþjóðlegt samstarf. „Þegar ljósin
slokkna í hljóðverinu í Reykjavík,
kvikna þau í hljóðverinu í LA.
Þegar ein pitsa klárast í Reykjavík,
er önnur pöntuð í LA. Það hefur
gengið mjög vel að vinna þrátt fyrir
miklar fjarlægðir.“
Utan hljómsveitarinnar segjast
þau öll vera mjög góðir vinir. Oft
þegar þau hittast til að gera tónlist
fer orkan með hópinn í allt aðrar
áttir en endilega að klára nýtt lag.
„Um daginn ætluðum við t.d. að
taka upp eitt lag en enduðum á
að sjóða uppáhaldshljóðnemann
okkar í potti í tvær klukkustundir.
Við lásum á netinu að hann yrði
betri við þær aðgerðir. Þannig að
við enduðum þann dag á að vera
með ekkert nýtt lag en miklu betri
hljóðnema. En núna erum við
fókuseruð.“
Orkumikill hópur
Næstu mánuðir fara í að leggja
lokahönd á plötuna en fyrir utan
hana er að mörgu að hyggja segja
þau. „Halldór og Kristján eru hvor
í sínu lagi með sólóverkefni og
báðir hafa unnið að tónlist fyrir
stutt- og heimildarmyndir. Halldór
vann nýverið að tónlistarinn-
setningunni Stratus Pianos með
Ólafi Arnalds og áður en Kristján
fór út í nám spilaði hann með
rapparanum Kött Grá Pje og
hljómsveitinni Hatara. Stefán
fékk nýverið vinnu hjá Ríkissjón-
varpinu sem leikmyndasmiður og
Agnes er í myndlistarnámi og er
einnig vinsæl plötusnælda, þannig
það er nóg að gera. Það er nú samt
oft þannig að einmitt þegar allir
eru hvað uppteknastir í sínu, þá fer
tónlistin á hreyfingu.“
Mjög góður
fyrirboði
Hljómsveitin
Sykur gefur út
sína þriðju plötu
í sumar. Sveitin
kom fram á tón-
listarhátíðinni
Sónar Reykjavík
í síðasta mánuði
og gladdi gesti
með gömlum og
nýjum lögum.
www.fi.is
Myndakvöld
Ferðafélags Íslands
Myndagetraun sem öllum sem mæta gefst kostur á að taka þátt í.
Leifur Þorsteinsson stýrir.
Örnefni á Torfajökulssvæðinu og að Fjallabaki:
Ólafur Örn Haraldsson höfundur árbókar FÍ um Friðland að Fjallabaki.
FERÐAFÉLAG ÍSLANDS | Sími 568 2533 | www.fi.is
Þriðjudaginn 10. apríl kl. 20 í sal FÍ Mörkinni 6
Ég fer á fjöll
Þátttaka er ókeypis – allir velkomnir
HEIMILI OG SKÓLI
ÓSKA EFTIR TILNEFNINGUM TIL
FORELDRAVERÐLAUNA 2018
Tilnefningar sendist með því að fylla út rafrænt
eyðublað á heimiliogskoli.is. Hægt er að tilnefna
til Foreldraverðlauna en einnig má tilnefna
dugnaðarfork Heimilis og skóla. Síðasti skiladagur
tilnefninga er 10. apríl 2018.
Allt það helsta úr
heimi TÍSKUNNAR
á einum stað
.is
GLAMOUR.IS
4 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 7 . A p R í L 2 0 1 8 L AU G A R DAG U R
0
7
-0
4
-2
0
1
8
0
4
:3
3
F
B
1
2
8
s
_
P
0
8
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
8
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
4
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
4
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
F
6
0
-E
7
1
4
1
F
6
0
-E
5
D
8
1
F
6
0
-E
4
9
C
1
F
6
0
-E
3
6
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
B
F
B
1
2
8
s
_
6
_
4
_
2
0
1
8
C
M
Y
K