Fréttablaðið - 07.04.2018, Page 58
Upplýsingafulltrúi
Dómsmálaráðuneytið óskar eftir að ráða
upplýsinga fulltrúa til starfa. Upplýsingafulltrúi
ber ábyrgð á fjölmiðlatengslum og ritstýrir vefjum
ráðuneytisins. Upplýsingafulltrúa er ætlað að vinna
að kynningu á starfsemi ráðuneytisins og verkefn
um hennar og vera ráðherra, ráðuneytisstjóra og
öðrum starfsmönn um til ráðgjafar um samskipti við
fjölmiðla. Hann fylgist með fréttaflutningi af starf
semi ráðuneytisins og ráðherra og veitir fjölmiðlum
og almenningi upplýsingar.
Leitað er að drífandi einstaklingi með góða sam
vinnu og samskiptahæfni sem hefur áhuga á að
taka þátt í mótun nýrra vinnubragða með hópi
áhugasamra starfsmanna við uppbyggingu nýs
ráðuneytis.
Helstu verkefni:
• Umsjón með samskiptum dómsmálaráðuneytis-
ins við fjölmiðla, svör við fyrirspurnum, gerð
fréttatilkynninga o.fl.
• Ritstjórn og efnisskrif á vefjum dómsmálaráðu-
neytisins, á íslensku og ensku.
Menntunar- og hæfniskröfur
• Menntun sem nýtist í starfi.
• Reynsla af blaða/fréttamennsku.
• Mjög gott vald á íslensku og ensku og færni til að
tjá sig í ræðu og riti. Kunnátta í öðrum tungu
málum er kostur.
• Færni í tölvunotkun. Kunnátta í vefumsjónar -
kerfum er kostur.
• Geta til að vinna hratt og vel undir álagi.
• Frumkvæði, drifkraftur og jákvæðni.
• Samvinnu og samskiptalipurð og góð framkoma.
Nánari upplýsingar veitir Haukur Guðmundsson,
ráðuneytisstjóri í síma 545 9000.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun
um ráðningu liggur fyrir.
Umsóknarfrestur er til og með 26. mars nk.
Umsóknir skulu berast í gegnum vef dóms
málaráðuneytisins, www.dmr.is
Umsókn skal fylgja starfsferilskrá og kynningar
bréf þar sem umsækjandi gerir grein fyrir ástæðu
umsóknar og hæfni viðkomandi til að gegna starf
inu.
Athygli er vakin á því að umsóknir munu gilda í 6
mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út.
Um fullt starf er að ræða. Laun greiðast samkvæmt
kjara samningi Félags háskólamenntaðra starfsmanna
Stjórnarráðsins og fjármála- og efnahagsráðherra.
Embætti sýslumannsins á
Suðurlandi laust til umsóknar
Dómsmálaráðuneytið auglýsir laust til umsóknar
embætti sýslumannsins á Suðurlandi.
Sýslumenn fara með framkvæmdarvald og stjórn-
sýslu ríkisins í héraði, hver í sínu umdæmi, eftir
því sem lög og reglugerðir eða önnur stjórnvalds
fyrirmæli kveða á um. Þar á meðal fara þeir með
innheimtu opinberra gjalda, að því leyti sem hún
er ekki falin öðrum. Auk þess fer sýslumaðurinn
á Suðurlandi með ýmis sérverkefni á landsvísu
þ.e. útgáfu happdrættisleyfa og leyfa til opinberra
fjársafnana, eftirlit með spilakössum, útgáfu ley
fa til þeirra sem vilja reka útfararþjónustu, færslu
bókhalds fyrir fjögur íslensk sendiráð og útgáfu
Lögbirtingarblaðsins. Sýslumenn bera faglega,
fjárhagslega og stjórnunarlega ábyrgð á rekstri em
bætta sinna í samræmi við lög og önnur stjórnvalds
fyrirmæli.
Umsækjendur skulu fullnægja skilyrðum 2. mgr. 3.
gr. laga nr. 50/2014, um framkvæmdavald og stjórn-
sýslu ríkisins í héraði.
Aðrar hæfniskröfur eru:
• Reynsla af stjórnun með mannaforráð
• Góð þekking og/eða reynsla af störfum innan
stjórn sýslunnar æskileg
• Góð þekking og/eða reynsla af störfum á mál-
efnasviði sýslumanna æskileg
• Rekstrarþekking og/eða reynsla er kostur
• Mjög góð forystu-, samvinnu- og samskiptahæfni
• Fagmennska, frumkvæði, drifkraftur og jákvæðni
• Mjög gott vald á íslensku og ensku og færni til að
tjá sig í ræðu og riti
• Þekking á einu Norðurlandamáli æskileg
Dómsmálaráðherra skipar í embættið frá 1. ágúst
2018 til fimm ára.
Um kjör fer samkvæmt ákvörðun kjararáðs þar til
ný ákvörðun hefur verið tekin um laun og starfs kjör
skv. 39. gr. a. laga nr. 70/1996, um réttindi og skyld-
ur starfs manna ríkisins, með síðari breytingum.
Nánari upplýsingar veitir Berglind Bára Sigurjóns
dóttir skrifstofustjóri í síma 545 9000.
Umsóknir skulu berast í gegnum starfatorg.is
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun
um skipun liggur fyrir.
Umsóknarfrestur er til 24. apríl nk.
Með umsókn skal fylgja ítarleg starfsferilsskrá,
starfsheiti og kynningarbréf þar sem gerð er grein
fyrir ástæðu umsóknar og hvernig viðkomandi upp
fyllir hæfniskröfur fyrir starfið. Umsækjandi skal í
kynningarbréfi gera skýra grein fyrir hæfni sinni í
samræmi við þær hæfniskröfur sem fram koma í 2.
mgr. 3. gr. laga nr. 50/2014 og auglýsingunni auk
annarra upplýsinga sem varpað geta ljósi á fag lega
eiginleika og færni umsækjanda sem máli skipta
fyrir störf sýslumanns.
RAFVIRKJAR!
Óskum eftir rafvirkjum til framtíðar starfa.
Umsóknum ásamt ferilskrá sendist á
rafbodi@rafbodi.is
Skeiðarás 3 - 210 Garðabær - 565 8098 - rafbodi@rafbodi.is
Karlar jafnt sem konur er hvött til að
sækja um starfið.
kopavogur.is
Kópavogsbær
Laus störf í leikskólanum Austurkór
Leikskólinn Austurkór óskar eftir að ráða leikskólasérkennara/þroskaþjálfa/iðjuþjálfa, deildarstjóra og
leikskólakennara
Leikskólinn Austurkór er nýlegur sex deilda leikskóli staðsettur við götuna Austurkór í Kórahverfinu í
Kópavogi. Í leikskólanum eru 120 börn á aldrinum 1-6 ára og um 30 manna fjölbreytt starfslið sem er einbeitt
í að byggja upp metnaðarfullt starf í fallegum skóla. Í skólanum eru góðar vinnuaðstæður og liðsheild mikil.
Hornsteinar skólastarfsins í Austurkór eru útinám, námslotur byggðar á gildum skólans og lýðræðisleg
vinnubrögð. Gildi skólans eru samvinna, lýðræði, atorka og einkennisorð skólans eru Austurkór – þar sem
ævintýrin gerast.
Bent er á að samkvæmt lögum verða umsækjendur að skila sakavottorði.
Umsóknarfrestur er til og með 20.04.2018
Upplýsingar gefur Guðný Anna Þóreyjardóttir, leikskólastjóri, í síma 4415101/8989092 og Ragnheiður
Gróa Hafsteinsdóttir, aðstoðarleikskólastjóri, í síma 4415102. Einnig má senda fyrirspurnir á netfangið
austurkor@kopavogur.is
Karlar jafnt sem konur er hvattir til að sækja um starfið.
Störfin má finna undir „Laus störf -> almenn störf“ á heimasíðu Kópavo sbæjar
Einungis er hægt að sækja um starfið rafrænt á vef Kópavogsbæjar
Helstu verkefni og ábyrgð
Megin starfssvið er almenn móttaka á heilsugæslu-
stöð, ungbarnavernd og skólaheilsugæsla.
Starfssvið í móttöku er mjög víðtækt, allt frá
símaráðgjöf til bráðaþjónustu. Hjúkrunarmóttakan
sinnir fólki á öllum aldri og skiptist í opna móttöku,
bókaða móttöku og símaráðgjöf. Í opinni móttöku
er tekið á móti bráðaerindum, í bókaðri móttöku
er tekið á móti erindum sem eru ekki bráð s.s.
ferðamannaheilsuvernd og sárameðferð. Einnig er
boðið upp á lífsstíls- og sykursýkisráðgjöf.
Skólahjúkrunarfræðingur sinnir reglubundnu
heilbrigðiseftirliti nemenda og fræðslu. Auk þess
sinnir hann öðrum viðfangsefnum sem upp kunna
að koma í samstarfi við annað starfsfólk skólans og
foreldra eftir þörfum hverju sinni.
Hæfnikröfur
Íslenskt hjúkrunarleyfi
Afburða samskiptahæfni
Faglegur metnaður
Reynsla af og áhugi á teymisvinnu
Góð íslenskukunnátta skilyrði
Nánari upplýsingar
Áslaug Birna Ólafsdóttir, fagstjóri hjúkrunar
aslaug.birna.olafsdottir@heilsugaeslan.is - 513 5350
Sjá nánar á vef Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins (www.heilsugaeslan.is) undir laus störf eða á Starfatorgi (www.starfatorg.is).
Ábyrgð – Fagmennska – Traust – Þjónusta – Framþróun
Heilsugæslan í Efstaleiti leggur metnað sinn í að hafa á að skipa hæfu starfsfólki til að tryggja gæði
þjónustunnar. Unnin er teymisvinna og vinna saman í teymi hjúkrunarfræðingur, læknir og ritari. Mikil
þróunarvinna er í gangi á stöðinni og stöðugt verið að vinna að því að gera þjónustuna betri fyrir
skjólstæðingana.
Hjúkrunarfræðingur - Heilsugæslan Efstaleiti
Heilsugæslan Efstaleiti auglýsir eftir hjúkrunarfræðingi til starfa við
heilsugæsluhjúkrun. Um 100% starf er að ræða og þarf viðkomandi að geta hafið
störf sem fyrst eða eftir nánara samkomulagi.
Umsóknarfrestur er til og með 23. apríl.
14 ATVINNUAUGLÝSINGAR 7 . A p R í L 2 0 1 8 L AU G A R DAG U R
0
7
-0
4
-2
0
1
8
0
4
:3
3
F
B
1
2
8
s
_
P
0
7
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
7
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
5
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
5
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
F
6
0
-E
C
0
4
1
F
6
0
-E
A
C
8
1
F
6
0
-E
9
8
C
1
F
6
0
-E
8
5
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
8
A
F
B
1
2
8
s
_
6
_
4
_
2
0
1
8
C
M
Y
K