Fréttablaðið - 07.04.2018, Page 88

Fréttablaðið - 07.04.2018, Page 88
Oddur Freyr Þorsteinsson oddurfreyr@frettabladid.is Tölvuleikir hafa breyst mikið frá því að þeir komu fyrst fram á sjónarsviðið. Í dag spilar fólk á öllum aldri tölvuleiki og tölvuleikjaiðnaðurinn veltir svimandi fjárhæðum. Leikirnir eru mun fjölbreyttari en nokkru sinni fyrr og þjóna fjölbreyttum hlut- verkum. Eitt þeirra er að mennta fólk. Tölvuleikjahönnuðir hafa náð mjög góðum árangri í að skapa kerfi þar sem fólk hefur gaman af því að læra. Sumir leikir eru mjög langir og flóknir, en samt sækir fólk endurtekið í þá. Það getur stundum reynst erfitt fyrir kennara að vekja áhuga nemenda á náms- efni og tölvuleikir geta hjálpað við að fá nemendur til að nálgast efnið á nýjan og virkari hátt. Tölvu- leikir gætu því orðið stór hluti af menntakerfi framtíðarinnar. Gagnlegir á ýmsan hátt Rannsóknir gefa til kynna að tölvuleikir geti gert ýmiss konar gagn. Þeir geta stuðlað að þroska til- finninga og vitsmuna. Í mörgum leikjum þarf fólk að vinna saman eða keppa hvert við annað, eða hvort tveggja. Slíkir leikir reyna á og þjálfa hæfni fólks til að vinna með öðrum og eiga samskipti. Þannig geta tölvuleikir aukið félagshæfni, í réttum aðstæðum. Tölvuleikir geta líka þjálfað rýmis- skynjun, rökhugsun, minni, hæfni til að leysa vandamál, samhæfingu hreyfinga og viðbragðshraða. Tölvuleikir leyfa fólki að læra á sínum hraða og þá má auðveld- lega sníða að þörfum og getustigi hvers og eins. Þetta getur komið að miklu gagni fyrir börn sem gengur illa í námi. Þeim finnst stundum erfitt að halda sig við námsefnið og þurfa stundum á einstaklingsmið- aðri kennslu að halda. Þá virðast tölvuleikir koma að gagni við að vekja áhuga þeirra á efninu, fá þau til að mæta, taka þátt, sýna metnað og læra. Leikir geta líka gefið fólki æfingu í alls kyns erfiðum eða hættu- legum aðstæðum án ótta við afleiðingarnar. Dæmi um þetta eru leikir sem setja spilara í flókna siðferðislega stöðu sem þeir þurfa að vinna úr eða flughermar sem Tölvuleikir geta gagnast í námi Tölvuleikir þjálfa ýmsa hæfni sem getur nýst í námi og virðast geta gagnast í menntun barna á ýmsan hátt. En það er dýrt að nota þá í kennslu og það skortir rannsóknir á gagnsemi þeirra. Tölvuleikir gætu skipað stóran sess í menntun framtíðar. MYND/NORDICPHOTOS/GETTY Í tölvuleiknum Assassin’s Creed: Origins er hægt að fara í skoðunarferðir um Egyptaland hið forna. MYND/ASSASSINSCREEDORIGINS gagnast við þjálfun flugmanna. Tölvuleikir geta vakið áhuga barna á tækni og fært þeim grund- vallartæknikunnáttu sem reynist vel. Leikir eins og Angry Birds og Mine craft hafa til dæmis verið notaðir til að kenna forritun. Margir leikir byggja á mann- kynssögunni og þeir geta kennt spilurum um hana með því að krefjast þess að leikmenn læri að skilja hvernig söguleg fyrirbrigði virka, svo þeir geti unnið með þau. Svo er hægt að fá vinnu út úr tölvuleikjum. Bæði við að fram- leiða þá og spila. Sumir hafa tekjur af því að spila leiki og streyma því á Twitch eða YouTube og aðrir hafa tekjur af því að gera myndbönd út frá tölvuleikjum fyrir YouTube. Enn aðrir gerast atvinnumenn í tölvuleikjum, en það er mikill áhugi fyrir því að fylgjast með þeim bestu í heimi og tekjurnar í atvinnumennsku geta verið mjög háar. Sumir skólar í Kína eru farnir að kenna krökkum að spila tölvu- leiki til að þjálfa atvinnumenn framtíðarinnar. Hægt að kanna stafræna staði Tölvuleikir geta líka sett fólk á staði eða inn í menningu sem þeir eru að læra um í skólanum. Gagn- virk upplifun af kennsluefninu getur aukið áhuga barna á því og hjálpað þeim að muna eftir því. Gott dæmi um þetta er nýr spilunarmöguleiki í tölvuleiknum Ass assin’s Creed: Origins, sem kallast „Discovery Tour“. Leikurinn gerist í Egyptalandi til forna og í Discovery Tour gefst spilurum tækifæri til að ferðast um risastóra stafræna endur sköpun á Egypta- landi hinu forna sem er byggð á bestu rannsóknum sagnfræðinga og í samstarfi við helstu sérfræð- inga í sögu Egyptalands. Það eru engir bardagar og engin verkefni fyrir spilara, eins og í hefðbundnu útgáfunni af leiknum, en í staðinn er hægt að ferðast um og fara í 75 skoðunarferðir sem kenna manni um ýmsar hliðar á menningu Egyptalands til forna. Skoðunar- ferðirnar eru talsettar og mynd- skreyttar og minna á skoðunarferð um safn, en á þennan hátt færðu ekki bara að sjá muni úr þessum heimi, heldur heimsækja hann. Prófanir á þessum nýja spilunar- möguleika hafa sýnt að hann geti hjálpað börnum mikið að læra. Það eru heldur ekki bara grunn- skólanemendur sem hefðu áhuga á að heimsækja Egyptaland hið forna. Með þessum nýja spilunarmögu- leika getur leikurinn gagnast mun stærri notendahóp en hefðbundin útgáfa hans, sem snýst um að berjast gegn samsæri valdamikilla einstaklinga í þessum töfrandi heimi. Þessi útgáfa af leiknum hentar bæði börnum sem eru of ung fyrir ofbeldið og fullorðnum sem hafa ekki gaman af því að leika sér í tölvuleikjum. Minecraft hefur hjálpað einhverfum Tölvuleikurinn Minecraft hefur verið notaður til kennslu á ótal vegu, enda býður leikurinn upp á mikla möguleika. Það er meira að segja til sérstök útgáfa af leiknum sem heitir MinecraftEdu, sköpuð af kennurum og kennir stærðfræði og tungumál. Maður að nafni Stuart Duncan hefur náð miklum árangri í að kenna einhverfum börnum með því að nota Minecraft. Duncan stofnaði sérstakan netþjón fyrir einhverfa og fjölskyldur þeirra svo þau hefðu öruggan stað til að leika sér á, því þegar einhverfir krakkar léku sér á hefðbundnum netþjónum lentu þeir oft í einelti og erfiðleikum. Enginn kemst inn á þjóninn nema Duncan hafi sam- þykkt viðkomandi, en þjónninn er svo vinsæll að Duncan hefur samþykkt meira en átta þúsund manns. Þar læra börnin hvert af öðru. Sum hafa lært að lesa og skrifa og önnur byrjuðu að tala í fyrsta sinn. Krakkarnir fóru líka að eignast vini í skólanum í fyrsta sinn og deila með öðrum. Foreldrar þeirra þökkuðu tímanum á þjóninum fyrir þessar framfarir. Dýrt og lítið rannsakað Tölvuleikir geta því verið gagnlegt tól til að læra, en þeir hafa að sjálf- sögðu galla sem kennslutæki. Það eru mikill skortur á rann- sóknum á því hvernig og hvort tölvuleikir bæta frammistöðu í kennslustofunni eða námsárangur. Sérfræðingar segja að tæknilega séð ættu þeir að gera það að ýmsu leyti, en það sé ómögulegt að full- yrða um það án frekari rannsókna. Það getur líka verið kostnaðar- samt að nota tölvuleiki í kennslu, því tölvur og tölvubúnaður kosta mikið og það gæti verið dýrt að skapa umgjörð fyrir slíkt nám og þjálfa kennara. Án haldbærra gagna um gagnsemi tölvuleikja í námi er ekki hægt að ætlast til að fjársveltir skólar fjárfesti í slíku. En það virðist líklegt að tölvu- leikir eigi eftir að skipa sífellt stærri sess í námi á næstu árum og áratugum, kannski ekki síst hjá börnum sem glíma við námsörð- ugleika. Það sem kemur helst í veg fyrir að þeir taki við í ríkari mæli sem kennslutæki er skortur á frek- ari rannsóknum og kostnaðurinn sem fylgir þeim, bæði fjárhagslegur kostnaður við tækjakaup, kostn- aður við breytingar á námskerfum og kostnaðurinn við að reyna að breyta hugmyndum fólks um hvar og hvernig maður lærir. Levi ś Smáralind - Tilboð gildir til sunnudags 30% VALDAR VÖRUR LEVI´S SMÁRALIND 12 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 7 . A P R Í L 2 0 1 8 L AU G A R DAG U R 0 7 -0 4 -2 0 1 8 0 4 :3 3 F B 1 2 8 s _ P 0 8 9 K .p 1 .p d f F B 1 2 8 s _ P 0 8 8 K .p 1 .p d f F B 1 2 8 s _ P 0 4 0 K .p 1 .p d f F B 1 2 8 s _ P 0 4 1 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 F 6 0 -E 7 1 4 1 F 6 0 -E 5 D 8 1 F 6 0 -E 4 9 C 1 F 6 0 -E 3 6 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 7 B F B 1 2 8 s _ 6 _ 4 _ 2 0 1 8 C M Y K
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.