Fréttablaðið - 07.04.2018, Blaðsíða 94
Við vinnum með
öllum flugfélögum
og höfum óendanlega
möguleika til að gera
hlutina. Það er bara
hægt að hafa samband,
við skipuleggjum hvað
sem er.
Luka Kostic hefur umsjón með golf- og íþróttaferðum hjá Úrvali Útsýn. „Golfferðir til
El Plantio á Spáni eru gríðarlega
vinsælar og um þúsund Íslendingar
sem fara árlega á þennan völl. Þar
er lúxus í alla staði, allur matur
innifalinn og því auðvelt að njóta
sín í fallegu umhverfi. Hægt er að
spila ótakmarkað golf á svæðinu
á meðan á ferðinni stendur og allt
án þess að taka upp veskið. Þangað
förum við líka sérstakar kvenna-
ferðir sem hafa verið gríðarlega vin-
sælar. Svo eru líka í boði golfferðir
til Dúbaí, Ítalíu og Taílands sem eru
flottir staðir og hægt að gera meira
en spila golf.“
Þá býður Úrval Útsýn upp á fjöl-
breyttar íþróttaferðir. „Við erum
með ferðir í íslenska fótboltaskóla í
Hollandi og á Spáni undir nafninu
Æft eins og atvinnumaður, bæði
fyrir yngstu flokkana og meistara-
flokkana. Við fylgjum íslenska
landsliðinu eins og kostur er og
bjóðum líka ferðir á leikina í ensku
knattspyrnunni. Jóga- og zumba-
ferðir hafa líka verið mjög vinsælar
og við erum að byrja með hjóla-
ferðir.“
Þá bendir Luka á að Úrval
Útsýn skipuleggi sérferðir, bæði
fyrir þá sem vilja sjá eða stunda
fleiri boltaíþróttir en líka þegar
stórir hópar vilja fara saman eins
og á Gautaborgarleikana í frjálsum
íþróttum. „Við vinnum með öllum
flugfélögum og höfum óendanlega
möguleika til að gera hlutina. Það
er bara hægt að hafa samband, við
skipuleggjum hvað sem er.“
Kristín Gunnarsdóttir sér um
sérferðir hjá Úrval Útsýn. „Við erum
með fullt af sérferðum í haust og
best að byrja í september. Þá erum
við með mjög spennandi tíu daga
menningarferð til Jórdaníu. Það er
gist í þrjár nætur í Amman á góðu
hóteli, keyrt um grísk-rómversku
borgina Jerash þar sem eru stærstu
rómversku rústir sem varðveist
hafa utan Ítalíu og hin stórkostlega
Petra skoðuð. Einnig verður gist í
tjaldi í eyðimörkinni eina nóttina
og svo eyðum við síðustu dögunum
við Dauðahafið þar sem fólk getur
slakað á eftir ferðina. Í október
erum við með ferð til Kambódíu
og Taílands þar sem er mikið hægt
að skoða. Svo erum við með fjórtán
daga Suður-Afríkuferð í byrjun nóv-
ember þar sem verður farin „Garden
Route“ sem er ein þekktasta leið í
Suður-Afríku. Þetta er fjórtán daga
ferð sem hefur vakið mikla ánægju
og svo margt að sjá og skoða. Það
er til dæmis farið á strúta búgarð, í
vínsmökkun og í safarígarð og líka
slappað af. Svo í byrjun nóvember
er í boði ferð til Bangkok og Huahin,
bæði slökunarferð og skemmtilegar
skoðunarferðir, siglt niður Kwai-
fljót og sitthvað fleira.“
Af fleiri ferðum vill Kristín sér-
staklega nefna ferð til Balí sem
gengur út á meira en slökun og jóga.
„Það er boðið upp á jóga á hótelinu
eins og hver vill en svo er líka hægt
að fara í alls konar ferðir eins og
hjólaferð, fljótaferð og fjallaferð,
hægt verður að fara á matreiðslu-
námskeið og sitthvað fleira svo
fólk getur átt fjölbreytta upplifun í
þessari paradís.“
Kristín vill líka nefna siglingarnar
sem eru sívinsælar. „Þar má nefna
fljótasiglingu í Víetnam og Kamb-
ódíu þar sem er siglt upp Mekong-
fljót. „Við fórum svoleiðis ferð núna
í janúar og fólk var rosalega ánægt.
Svo bjóðum við siglingu um Mið-
jarðarhafið, þar er byrjað í Róm,
siglt um grísku eyjarnar og endað í
Aþenu og einnig siglingu um eystri
hluta Karíbahafs, Bahamaeyjar og
Jómfrúaeyjar. Svo það er af nógu
að taka og ætti að vera eitthvað við
allra hæfi,“ segir Kristín að lokum.
Allar nánari upplýsingar er að finna
á heimasíðunni urvalutsyn.is.
Spennandi ævintýra- og
íþróttaferðir hjá Úrvali Útsýn
Úrval Útsýn býður sem endranær fjölda ævintýra- og menningarferða um allan heim í haust og
vetur. Golf- og íþróttaferðirnar verða líka í fjölbreyttu úrvali svo að allir ferðaþyrstir ættu að finna
eitthvað við sitt hæfi. Þá skipuleggur Úrval Útsýn einnig sérferðir fyrir hópa.
Luka Kostic og Kristín Gunnarsdóttir hvetja fólk til að kynna sér úrval ævintýra- og íþróttaferða hjá Úrvali Útsýn. MYND/ErNir
Lifandi fréttamiðill með nýjustu
fréttum allan sólarhringinn ásamt
ítarlegri umöllun um málefni
líðandi stundar.
Fréttablaðið.is - stendur undir nafni
6 KYNNiNGArBLAÐ 7 . A p r í L 2 0 1 8 L AU G A R DAG U RfErÐir
0
7
-0
4
-2
0
1
8
0
4
:3
3
F
B
1
2
8
s
_
P
0
9
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
8
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
3
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
4
6
K
_
N
Ý.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
F
6
0
-B
A
A
4
1
F
6
0
-B
9
6
8
1
F
6
0
-B
8
2
C
1
F
6
0
-B
6
F
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
A
F
B
1
2
8
s
_
6
_
4
_
2
0
1
8
C
M
Y
K