Fréttablaðið - 07.04.2018, Side 98

Fréttablaðið - 07.04.2018, Side 98
A llt frá árinu 1979 hafa Íran og Sádi-Arabía, tvö af stórveldum Mið-Austurlanda, tekist á um áhrif á svæðinu. Hafa ríkin háð leppstríð í nágrannalöndunum án þess að til beinna átaka á milli ríkjanna tveggja hafi komið. Um er að ræða eiginlegt kalt stríð, það stærsta sem háð er í heiminum í dag. Trúarlegar rætur Hið kalda stríð Írans og Sádi-Arabíu á að þó nokkru leyti rætur sínar að rekja aftur til daga Múhameðs spá- manns. Eftir andlát spámannsins klofnuðu fylgismenn hans í tvær fylkingar, súnní- og sjíamúslima. Þrátt fyrir að deila sömu trú í grunn- inn er munur á helgisiðum, lögum, skipulagi og fræðum. Súnnímúslimar eru eins konar rétttrúnaðartrúflokkur íslams. Nafnið er byggt á frasanum „Ahl al-Sunnah“, eða „fólk hefðarinnar“, og er með þessari hefð átt við að orðum og gjörðum spámannsins sé fylgt til hins ýtrasta. Samkvæmt úttekt BBC fylgja allir múslimar þessari hefð. En á meðan súnnímúslimar setja hana í algjöran forgang líta sjíamúslimar einnig til visku arftaka Múhameðs spámanns, tengdasonarins Ali. Súnnímúslimar líta aftur á móti svo á að arftaki spá- mannsins hafi verið Abu Bakr. Þar sem Íran er stórveldi sjía- múslima, og Sádi-Arabía súnní- múslima, mætti líkja þessu kalda stríði við þrjátíu ára stríð ríkja krist- inna mótmælenda og kaþólikka í Evrópu á sautjándu öld. Veraldlegar rætur En þótt vissulega megi setja átök þessara stórvelda í samhengi við trú er ekki hægt að líta fram hjá verald- legum rótum þeirra. Rekja má átök- in aftur til írönsku uppreisnarinnar árið 1979 þegar stjórnvöldum, hlið- hollum Vesturlöndum, var steypt af stóli og í stað kom ný stjórn sem horfði til siða og hefða sjíamúslima við ákvarðanatöku sína. Um leið og hin nýja stjórn tók við fór hún að styrkja og styðja hersveit- ir sjíamúslima utan landamæranna. Yfirvöld í Sádi-Arabíu létu sér ekki duga að fylgjast með heldur styrktu sambandið við hin ríki súnnímúsl- ima á svæðinu, stofnuðu meðal ann- ars Persaflóasamstarfsráðið. Togstreitan á milli stórveldanna, sem nú börðust um áhrif í nafni sjía- og súnní-íslams, magnaðist ár frá ári. Árið 1987, eftir átök á milli pílagríma af trúflokki sjíamúslima, sem lagt höfðu leið sína til Mekku, við sádiarabíska hermenn, slitu Sádi-Arabar stjórnmálasambandi í þrjú ár. Á árunum sem fylgdu var ýmis- legt í eldlínunni. Til dæmis Saddam Hussein, einræðisherra Íraks og súnnímúslimi. En það var þó ekki fyrr en með arabíska vorinu að þessi nýjasti kafli kalda stríðsins hófst. Upplausnarástand Með arabíska vorinu steyptust Mið- Austurlönd í nokkurt upplausnar- ástand. Einræðisherrum í Túnis og Egyptalandi var steypt af stóli án meiriháttar blóðsúthellinga, konungur Bareins hélt velli eftir að Sádi-Arabar aðstoðuðu stjórnvöld við að kveða niður uppreisnaröldu sjíamúslima, og einræðisherra Líbíu lét lífið í styrjöld um völdin þar í landi. Það er hins vegar í þeim tveimur ríkjum sem eftir standa, Jemen og Sýrlandi, sem deila Írans og Sádi- Arabíu, sést einna best. Í Sýrlandi styðja Íranar sinn gamla banda- mann, Bashar al-Assad forseta, á meðan Sádi-Arabar stilla sér upp við hlið uppreisnarmanna. Í Jemen er þetta öfugt. Sádi-Arab- ar styðja ríkisstjórn Abdr abbuh Í köldu stríði Mansour Hadi forseta á meðan Íranar eru sagðir styðja Húta, upp-reisnarmennina sem vilja komast til valda, þótt þeir viðurkenni það ekki endilega sjálfir. Með hverjum sigri fæst nýr bandamaður, nýtt áhrifasvæði. Sambandi slitið á ný Þann 2. janúar 2016 varð svo önnur vending í hinu kalda stríði. Ekki var um styrjöld að ræða heldur aftöku. Tóku Sádi-Arabar af lífi sjíaklerkinn Nimr al-Nimr. Sá var lykilmaður í mótmælum gegn sádiarabískum yfirvöldum í austurhluta landsins, þar sem sjíamúslimar eru í meiri- hluta, árið 2011. Nimr var í hávegum hafður á meðal sjíamúslima. Vakti aftaka hans því reiði Írana. Mótmælendur réðust á sendiráð Sádi-Araba í írönsku höfuðborginni Teheran. Deilan varð til þess að Sádi-Arabar og bandamenn þeirra slitu aftur stjórnmálasambandi við Íran. Stjórnmálasambandi hefur ekki enn verið komið á, nú rúmum tveimur árum eftir árásina á sendi- ráðið í Teheran. Litið til Líbanon Enn hitnaði svo í köldu stríði stór- veldanna undir lok síðasta árs þegar Saad al-Hariri, forsætisráðherra Líbanons, sagði af sér á meðan hann var í opinberri heimsókn í Sádi- Arabíu. Kenningar voru uppi um að afsögnin, sem síðar var dregin til baka, hafi komið til að kröfu Sádi- Araba. Sádi-Arabar eru bandamenn Líbana á meðan Íranar hafa verið sagðir styðja Hezbollah-samtökin, helstu stjórnarandstöðuna og skæru- liðaher þar í landi. Afsagnar Hariri á að hafa verið krafist vegna þess hve illa honum hefur gengið að uppræta áhrif Hezbollah í heimalandinu. Sádi-Arabar hafi sem sagt óttast að missa bandamann sinn í Líbanon. Önnur átök Þá eru ótalin yfirstandandi átök í Írak, Barein, Katar, Afganistan, og Palestínu svo fátt eitt sé talið. Íransstjórn hefur undanfarið einbeitt sér að því að styðja Íraka í stríðinu við íslamska ríkið. Ekki er þó um leppstríð að ræða líkt og í Jemen því Sádi-Arabar eru ekki sterklega orðaðir við stuðning við ISIS. Í Barein hafa Sádi-Arabar reynt að styrkja gott samband sitt við yfirvöld þar í landi. Bareinar hafa svo sakað Írana um að standa að árásum þar í landi. Samband Sádi-Araba við yfirvöld í Katar hefur svo farið í hundana vegna tengsla Katara við Íran. Ríkin fylktu sér einnig hvort að baki sinni fylkingunni í stríðinu í Afganistan. Þá hafa ríkin bæði reynt að leysa deilu Ísraels og Palestínu. Íranar hafa stutt Hamas og Hezbollah á meðan Sádi-Arabar hafa þrýst á viðræður. Stríðið í Jemen Það leppstríð sem hefur haft hvað mest áhrif á deilu ríkjanna er án nokkurs vafa í Jemen. Eftir arabíska vorið steyptist Jemen, líkt og önnur ríki á svæðinu, í upplausnarástand. Áratuga- gömul hreyfing Húta leiddi, og leiðir enn, upp- reisnina gegn Hadi forseta. Uppreisnarmenn náðu höfuðborginni Sana áður en Sádi-Arabar hófu innrás sína í Jemen og komu aftur á ríkis- stjórn Hadis í borginni Aden. Stríðið hefur kostað tugi þúsunda lífið og hrakið milljónir frá heimilum sínum. Það hefur gert illt verra að kólerufaraldur hefur geisað og þá er ríkið sömuleiðis á barmi hungursneyðar. Þótt stuðningur Íransstjórnar við Húta sé ekki opinber þykir víst að hann sé raun- verulegur. Eru Íranar meðal annars sagðir sjá Hútum fyrir vopnum. Því hafa eldflaugaskot Húta undanfarið, í átt að sádiarabísku höfuð- borginni Riyadh, fært hita í kalt stríð stór- veldanna. Stríðið í Jemen hefur haft hörmulegar afleiðingar. NordicphoToS/AFp Þórgnýr Einar Albertsson thorgnyr@frettabladid.is Íranar og Sádi-Arab- ar hafa í áratugaraðir tekist á um völdin í Mið-Austurlöndum. Sífellt hitnar í kol- unum. Styðja sína hliðina hvorir í Sýr- landi og Jemen. Rekja má átökin aftuR til íRönsku uppReisnaR- innaR áRið 1979 þegaR stjóRnvöldum, hlið- hollum vestuRlöndum, vaR steypt af stóli. Íran rússland Sýrland Hezbollah Hútar Írak Sádi-arabÍa bandaríkin barein Jórdanía Sýrlenskir upp- reisnarmenn Jemen Kúveit Egyptaland Sameinuðu arabísku fursta- dæmin Bandamenn Sádi-Araba Bandamenn Írana Átakasvæði hlutlaus svæði Ali Khamenei, æðstiklerkur Írans. Salman bin Abdulaziz Al Saud, konungur Sádi-Arabíu. ✿ Helstu bandamenn 7 . a p r Í l 2 0 1 8 l a U G a r d a G U r34 H E l G i n ∙ F r É T T a b l a ð i ð 0 7 -0 4 -2 0 1 8 0 4 :3 3 F B 1 2 8 s _ P 1 1 1 K .p 1 .p d f F B 1 2 8 s _ P 0 9 8 K .p 1 .p d f F B 1 2 8 s _ P 0 1 8 K .p 1 .p d f F B 1 2 8 s _ P 0 3 1 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 F 6 0 -6 6 B 4 1 F 6 0 -6 5 7 8 1 F 6 0 -6 4 3 C 1 F 6 0 -6 3 0 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 B F B 1 2 8 s _ 6 _ 4 _ 2 0 1 8 C M Y K
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.