Fréttablaðið - 07.04.2018, Side 100

Fréttablaðið - 07.04.2018, Side 100
W innie Mandela lést nýlega, 81 árs gömul. Í hugum fjöl-margra var h ú n h e t j a vegna baráttu sinnar gegn aðskiln- aðarstefnu í Suður-Afríku og kölluð móðir þjóðarinnar. Aðrir litu á hana sem hættulega konu sem einskis svifist til að ná fram markmiðum sínum. Winnie Madikizela var 22 ára félagsráðgjafi þegar hún kynntist Nelson Mandela sem þá starfaði sem lögfræðingur. Hann hafði verið kvæntur Evelyn Mase í þrettán ár. Þau Evelyn eignuðust fjögur börn. Eftir að níu mánaða dóttir þeirra dó gerðist Evelyn afar trúuð en Nelson sneri sér í auknum mæli að stjórn- málastarfi. Á síðustu hjónabands- árum sínum deildu hjónin oft. Eve- lyn sakaði Nelson um að hafa í einu rifrildi þeirra tekið um háls hennar, hrist hana og æpt á hana og í öðrum deilum að hafa kýlt hana og reynt að kyrkja hana. Nelson neitaði þessum ásökunum. Hjónin skildu árið 1958. Þegar Nelson var sleppt úr fangelsi árið 1990 urðu einhverjir til að líkja honum við Krist. „Hvernig er hægt að líkja manni sem drýgði hór og yfirgaf konu sína og börn við Krist? Heimurinn dáir Nelson um of. Hann er bara maður,“ sagði Evelyn. Seinna sagði hún að Nelson hefði verið eini maðurinn sem hún hefði nokkru sinni elskað. Nelson sagði að þegar hann hitti Winnie í fyrsta sinn hefði honum liðið eins og hann hefði orðið fyrir eldingu. Hann var gagntekinn af henni, enda hafði hún til að bera sterkan persónuleika, var mjög greind og hafði mikla útgeislun. Að hennar sögn bað hann hennar aldr- ei. Eitt sinn þegar þau voru í bíltúr stöðvaði hann bílinn og sagði henni að hún ætti að hitta saumakonu sem myndi sauma á hana brúðarkjól. „Hversu margar brúðarmeyjar viltu hafa?“ spurði hann svo. „Hvenær giftum við okkur?“ svaraði Winnie. Ég vil ekki sjá ykkur gráta Þau Nelson eignuðust tvær dætur en eyddu ekki miklum tíma saman. „Það var ekki hægt að slíta Nelson frá fólkinu, baráttan og þjóðin var í fyrsta sæti. Þegar ég fæddi börn mín var hann ekki viðstaddur, þótt hann væri ekki í fangelsi á þeim tíma Ég hef aldrei búið með Mand ela. Ég hef aldrei upplifað það að eiga nána fjölskyldu þar sem ég sat við eldhúsborðið með manni mínum og börnum. Ég á engar slíkar góðar minningar,“ sagði Winnie. Þremur árum eftir brúðkaup þeirra var Nelson á flótta og hann var síðan handtekinn og dæmdur í ævilangt fangelsi. „Hluti af sálu minni fylgdi honum á þeim tíma,“ sagði Winnie. Meðan Nelson sat í fangelsi hélt Winnie áfram að berjast gegn aðskilnaðarstefnunni og dró hvergi af sér. Lögreglan réðst inn á heimili hennar og dró hana út meðan ungar dætur hennar æptu af skelfingu. Hún sat í fangelsi, var rúmt ár í ein- angrunarvist og var send í útlegð. „Það versta var að vera án barna minna og hafa ekki tækifæri til að sinna foreldrahlutverkinu,“ sagði Winnie. Hún sagði einnig að hvorki hún né Nelson hefðu nokkru sinni haft tækifæri til að vera foreldrar barna sinna. Hún var hörkutól og lagði dætrum sínum lífsreglurnar, sem voru: „Ég vil ekki sjá ykkur gráta, sérstaklega ekki fyrir framan óvininn. Þið eigið aldrei að sýna óvininum veikleika ykkar.“ Ofbeldi og framhjáhald Þegar Nelson var sleppt úr fangelsi árið 1990 eftir 27 ára vist leiddust hjónin. Þau virtust hamingjusöm saman en svo var þó alls ekki. Vin- kona Mandela sagði að heitasta ósk Nelsons á þeim tíma hefði verið að eiga fjölskyldulíf með konu sinni og börnum. Það var hins vegar ómögu- legt. Mikill pólitískur ágreiningur var milli hjónanna. Lífverðir og liðs- menn Winnie höfðu gerst sekir um viðbjóðslega glæpi. Þeir höfðu drepið að minnsta kosti þrjá unga blökkumenn, misþyrmt ýmsum sem stimplaðir voru sem óvinir Winnie og nauðgað ungum stúlkum. Einn lífvarða Winnie sagði hana hafa fyrirskipað mannrán og morð. Það var ómögulegt fyrir Nelson Mand- ela að sætta sig við slíkt. Við þetta bættust fregnir af ástarsamböndum Winnie. Meðal ástmanna hennar var lögfræðingur sem var 30 árum yngri en hún. Fréttir af sambandi þeirra rötuðu á síður dagblaðs. Á þessum tíma var Winnie dæmd fyrir aðild að mannráni og var dæmd til Konan sem Mandela gat ekki fyrirgefið Winnie Mandela lést nýlega, 81 árs gömul. Rétt eins og maður hennar, Nelson Mandela, helgaði hún líf sitt baráttu gegn aðskilnaðar- stefnunni. Hún sagði eitt sinn að hún hefði aldrei þekkt eiginmann sinn. „Ég hef aldrei búið með Mandela,“ sagði Winnie eitt sinn. Myndir/nOrdicphOtOs/getty Winnie í útlegð í Brandfort í suður-Afríku árið 1977. Winnie með edward Kennedy. að greiða sekt. Stuttu eftir að réttar- höldum yfir henni lauk fór Winnie til Bandaríkjanna og vildi taka elsk- huga sinn með sér. Nelson tók því ekki vel. Winnie samþykkti að fara ein en tók elskhugann samt með sér. Þegar Nelson hringdi í Winnie til New York svaraði elskhuginn símanum. Ég þekkti hann alls ekki Það var komið að endastöð. Í skiln- aðarmáli þeirra hjóna kom greini- lega fram hvaða hug Nelson bar til konu sinnar. Í dómsal ávarpaði hann dómarann og sagði að ekkert gæti fengið hann til að sættast við eiginkonuna: „Ég er staðráðinn í því að losna úr þessu hjónabandi,“ sagði hann. Hann lýsti vonbrigð- unum, vanlíðan og einmanaleika í hjónabandinu og sagði að Winnie hefði aldrei komið inn í svefnher- bergi þeirra nema þegar hann var sofandi. Nokkru eftir að Nelson varð for- seti Suður-Afríku hitti John Carlin, einn af ævisöguriturum Nelsons Mandela, vin forsetans. Sá var helsti trúnaðarmaður Nelsons og einn örfárra sem forsetinn ræddi einkalíf sitt við. Vinurinn sagði við Carlin: „Nelson hefur fyrirgefið öllum óvinum sínum en hann getur ekki fyrirgefið Winnie.” Þegar Nelson Mandela lá bana- leguna og var í öndunarvél kom Winnie til hans. Líf þeirra hafði verið samtvinnað í áratugi en samt höfðu þau eytt svo litlum tíma saman. „Hinn heilagi sannleikur er sá að ég þekkti hann alls ekki,“ sagði Winnie við ævisöguritara Nelsons Mandela. Ég vil ekki sjá ykkur gráta, sÉrstaklega ekki fyrir framan óvininn. Þið eigið aldr- ei að sýna óvininum veikleika ykkar. Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrun@frettabladid.is 7 . a p r í l 2 0 1 8 l a U G a r D a G U r36 H e l G i n ∙ F r É T T a B l a ð i ð 0 7 -0 4 -2 0 1 8 0 4 :3 3 F B 1 2 8 s _ P 1 0 9 K .p 1 .p d f F B 1 2 8 s _ P 1 0 0 K .p 1 .p d f F B 1 2 8 s _ P 0 2 0 K .p 1 .p d f F B 1 2 8 s _ P 0 2 9 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 F 6 0 -7 A 7 4 1 F 6 0 -7 9 3 8 1 F 6 0 -7 7 F C 1 F 6 0 -7 6 C 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 B F B 1 2 8 s _ 6 _ 4 _ 2 0 1 8 C M Y K
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.