Fréttablaðið - 07.04.2018, Síða 100
W innie Mandela lést nýlega, 81 árs gömul. Í hugum fjöl-margra var h ú n h e t j a
vegna baráttu sinnar gegn aðskiln-
aðarstefnu í Suður-Afríku og kölluð
móðir þjóðarinnar. Aðrir litu á hana
sem hættulega konu sem einskis
svifist til að ná fram markmiðum
sínum.
Winnie Madikizela var 22 ára
félagsráðgjafi þegar hún kynntist
Nelson Mandela sem þá starfaði
sem lögfræðingur. Hann hafði verið
kvæntur Evelyn Mase í þrettán ár.
Þau Evelyn eignuðust fjögur börn.
Eftir að níu mánaða dóttir þeirra dó
gerðist Evelyn afar trúuð en Nelson
sneri sér í auknum mæli að stjórn-
málastarfi. Á síðustu hjónabands-
árum sínum deildu hjónin oft. Eve-
lyn sakaði Nelson um að hafa í einu
rifrildi þeirra tekið um háls hennar,
hrist hana og æpt á hana og í öðrum
deilum að hafa kýlt hana og reynt að
kyrkja hana. Nelson neitaði þessum
ásökunum. Hjónin skildu árið 1958.
Þegar Nelson var sleppt úr fangelsi
árið 1990 urðu einhverjir til að líkja
honum við Krist. „Hvernig er hægt
að líkja manni sem drýgði hór og
yfirgaf konu sína og börn við Krist?
Heimurinn dáir Nelson um of. Hann
er bara maður,“ sagði Evelyn. Seinna
sagði hún að Nelson hefði verið eini
maðurinn sem hún hefði nokkru
sinni elskað.
Nelson sagði að þegar hann hitti
Winnie í fyrsta sinn hefði honum
liðið eins og hann hefði orðið fyrir
eldingu. Hann var gagntekinn af
henni, enda hafði hún til að bera
sterkan persónuleika, var mjög
greind og hafði mikla útgeislun. Að
hennar sögn bað hann hennar aldr-
ei. Eitt sinn þegar þau voru í bíltúr
stöðvaði hann bílinn og sagði henni
að hún ætti að hitta saumakonu sem
myndi sauma á hana brúðarkjól.
„Hversu margar brúðarmeyjar viltu
hafa?“ spurði hann svo. „Hvenær
giftum við okkur?“ svaraði Winnie.
Ég vil ekki sjá ykkur gráta
Þau Nelson eignuðust tvær dætur
en eyddu ekki miklum tíma saman.
„Það var ekki hægt að slíta Nelson
frá fólkinu, baráttan og þjóðin var í
fyrsta sæti. Þegar ég fæddi börn mín
var hann ekki viðstaddur, þótt hann
væri ekki í fangelsi á þeim tíma Ég
hef aldrei búið með Mand ela. Ég
hef aldrei upplifað það að eiga
nána fjölskyldu þar sem ég sat við
eldhúsborðið með manni mínum
og börnum. Ég á engar slíkar góðar
minningar,“ sagði Winnie. Þremur
árum eftir brúðkaup þeirra var
Nelson á flótta og hann var síðan
handtekinn og dæmdur í ævilangt
fangelsi. „Hluti af sálu minni fylgdi
honum á þeim tíma,“ sagði Winnie.
Meðan Nelson sat í fangelsi
hélt Winnie áfram að berjast gegn
aðskilnaðarstefnunni og dró hvergi
af sér. Lögreglan réðst inn á heimili
hennar og dró hana út meðan ungar
dætur hennar æptu af skelfingu.
Hún sat í fangelsi, var rúmt ár í ein-
angrunarvist og var send í útlegð.
„Það versta var að vera án barna
minna og hafa ekki tækifæri til að
sinna foreldrahlutverkinu,“ sagði
Winnie. Hún sagði einnig að hvorki
hún né Nelson hefðu nokkru sinni
haft tækifæri til að vera foreldrar
barna sinna. Hún var hörkutól og
lagði dætrum sínum lífsreglurnar,
sem voru: „Ég vil ekki sjá ykkur
gráta, sérstaklega ekki fyrir framan
óvininn. Þið eigið aldrei að sýna
óvininum veikleika ykkar.“
Ofbeldi og framhjáhald
Þegar Nelson var sleppt úr fangelsi
árið 1990 eftir 27 ára vist leiddust
hjónin. Þau virtust hamingjusöm
saman en svo var þó alls ekki. Vin-
kona Mandela sagði að heitasta ósk
Nelsons á þeim tíma hefði verið að
eiga fjölskyldulíf með konu sinni og
börnum. Það var hins vegar ómögu-
legt.
Mikill pólitískur ágreiningur var
milli hjónanna. Lífverðir og liðs-
menn Winnie höfðu gerst sekir
um viðbjóðslega glæpi. Þeir höfðu
drepið að minnsta kosti þrjá unga
blökkumenn, misþyrmt ýmsum sem
stimplaðir voru sem óvinir Winnie
og nauðgað ungum stúlkum. Einn
lífvarða Winnie sagði hana hafa
fyrirskipað mannrán og morð. Það
var ómögulegt fyrir Nelson Mand-
ela að sætta sig við slíkt. Við þetta
bættust fregnir af ástarsamböndum
Winnie. Meðal ástmanna hennar
var lögfræðingur sem var 30 árum
yngri en hún. Fréttir af sambandi
þeirra rötuðu á síður dagblaðs. Á
þessum tíma var Winnie dæmd fyrir
aðild að mannráni og var dæmd til
Konan sem
Mandela
gat ekki
fyrirgefið
Winnie Mandela lést nýlega, 81 árs gömul.
Rétt eins og maður hennar, Nelson Mandela,
helgaði hún líf sitt baráttu gegn aðskilnaðar-
stefnunni. Hún sagði eitt sinn að hún hefði
aldrei þekkt eiginmann sinn.
„Ég hef aldrei búið með Mandela,“ sagði Winnie eitt sinn. Myndir/nOrdicphOtOs/getty
Winnie í útlegð í Brandfort í suður-Afríku árið 1977.
Winnie með edward Kennedy.
að greiða sekt. Stuttu eftir að réttar-
höldum yfir henni lauk fór Winnie
til Bandaríkjanna og vildi taka elsk-
huga sinn með sér. Nelson tók því
ekki vel. Winnie samþykkti að fara
ein en tók elskhugann samt með
sér. Þegar Nelson hringdi í Winnie
til New York svaraði elskhuginn
símanum.
Ég þekkti hann alls ekki
Það var komið að endastöð. Í skiln-
aðarmáli þeirra hjóna kom greini-
lega fram hvaða hug Nelson bar
til konu sinnar. Í dómsal ávarpaði
hann dómarann og sagði að ekkert
gæti fengið hann til að sættast við
eiginkonuna: „Ég er staðráðinn í
því að losna úr þessu hjónabandi,“
sagði hann. Hann lýsti vonbrigð-
unum, vanlíðan og einmanaleika í
hjónabandinu og sagði að Winnie
hefði aldrei komið inn í svefnher-
bergi þeirra nema þegar hann var
sofandi.
Nokkru eftir að Nelson varð for-
seti Suður-Afríku hitti John Carlin,
einn af ævisöguriturum Nelsons
Mandela, vin forsetans. Sá var helsti
trúnaðarmaður Nelsons og einn
örfárra sem forsetinn ræddi einkalíf
sitt við. Vinurinn sagði við Carlin:
„Nelson hefur fyrirgefið öllum
óvinum sínum en hann getur ekki
fyrirgefið Winnie.”
Þegar Nelson Mandela lá bana-
leguna og var í öndunarvél kom
Winnie til hans. Líf þeirra hafði
verið samtvinnað í áratugi en samt
höfðu þau eytt svo litlum tíma
saman. „Hinn heilagi sannleikur er
sá að ég þekkti hann alls ekki,“ sagði
Winnie við ævisöguritara Nelsons
Mandela.
Ég vil ekki sjá ykkur
gráta, sÉrstaklega
ekki fyrir framan
óvininn. Þið eigið aldr-
ei að sýna óvininum
veikleika ykkar.
Kolbrún
Bergþórsdóttir
kolbrun@frettabladid.is
7 . a p r í l 2 0 1 8 l a U G a r D a G U r36 H e l G i n ∙ F r É T T a B l a ð i ð
0
7
-0
4
-2
0
1
8
0
4
:3
3
F
B
1
2
8
s
_
P
1
0
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
1
0
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
2
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
2
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
F
6
0
-7
A
7
4
1
F
6
0
-7
9
3
8
1
F
6
0
-7
7
F
C
1
F
6
0
-7
6
C
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
B
F
B
1
2
8
s
_
6
_
4
_
2
0
1
8
C
M
Y
K