Fréttablaðið - 07.04.2018, Page 104

Fréttablaðið - 07.04.2018, Page 104
Engin miskunn á stórmótum Ólafía Þórunn Kristinsdóttir atvinnukylfingur fór í fyrsta sinn holu í höggi á einu af risamótunum á dögunum. Engin miskunn var sýnd þeim kylfingum sem fóru út af brautinni og missti hún af niðurskurðinum. Fram undan er þétt dagskrá sem hefst með móti á Hawaii á fimmtudaginn. Golf Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, atvinnukylfingur úr GR og íþrótta- maður ársins, dvelur þessa dagana í Kaliforníuríki í Bandaríkjunum en hún er á ferð og flugi á LPGA-móta- röðinni, sterkustu mótaröð heims. Tók hún þátt í fyrsta risamóti ársins á dögunum og var annar tveggja kylfinga sem fóru holu í höggi á Ana Inspiration-mótinu. Hins vegar komst hún ekki í gegn- um niðurskurðinn eftir slakan hring á öðrum degi. Var þetta fjórða risamót hennar á rúmu ári en hún fær svo þátttöku- rétt á bandaríska meistaramótinu í byrjun sumars og hefur þá tekið þátt í öllum risamótunum fimm í kvennagolfinu. Ekkert mót er á mótaröðinni þessa helgina og er hún við æfingar í sólinni en er einnig með augastað á Masters-mótinu. Engin miskunn á þessum mótum Um síðustu helgi var leikið á Miss- ion Hills Country Club en Ólafía lék völlinn árið 2016 með góðum árangri. Hún lék völlinn á ný fyrir þremur vikum fyrir mót og svo degi fyrir en sagði að það hefði verið allt annað þegar mótið var ræst. „Völlurinn var afar erfiður, braut- irnar voru þröngar og utan braut- anna var grasið ótrúlega þungt og erfitt. Ef þú fórst út af braut þá þurft- irðu að íhuga að vippa aftur inn á brautina í staðinn fyrir að reyna við flötina, grasið var hátt og þétt og erfitt að slá boltann þaðan. Ég lenti í töluverðum vandræðum þar því ég bjóst ekki við að brautirnar yrðu svona þröngar og var alltaf að reyna að bjarga mér,“ sagði Ólafía sem fann brautina aðeins fjórtán sinnum í upphafshöggunum 28. „Þegar ég spilaði hérna í undanrás- unum var karginn ekki jafn þykkur og bara fyrir mánuði var þetta allt öðruvísi en það er engin miskunn á stórmótum. Eftir á hefði ég þurft að undirbúa mig betur og öðruvísi, æfa mun meira með drævernum eða stutta leikinn. Annað sem var að trufla mig í því var breytilegt hitastig, ég átti oft í erfiðleikum með að velja járn,“ sagði Ólafía en Pernilla Lind- berg, sigurvegari mótsins, var einnig í vandræðum með upphafshöggin en náði að bjarga sér á stutta spilinu. „Pernilla náði, fannst manni, allt- af að bjarga sér með stutta spilinu, hún var oft utan brautar en virtist alltaf ná að bjarga pari þegar ég var meira að missa þetta í skolla. Hún var frábær í stutta spilinu um helgina,“ sagði Ólafía um Pernillu sem átti gott mót með járnunum og frábæra daga með pútterinn í hendi. Vantar stöðugleika í púttunum Ólafía hefur verið í örlitlum vand- ræðum með pútterinn undanfarnar vikur en hún er að reyna að fá meiri stöðugleika í spilamennskunni á flötinni. Á bestu dögum sínum hefur hún haldið sér undir þrjátíu púttum en á slæmum dögum fer þetta upp í 35, fimm högga sveifla. „Ég vildi vinna í meiri stöðug- leika í púttleiknum, í fyrra púttaði ég kannski frábærlega eina vikuna og illa vikuna eftir það. Á Bahama- eyjum var ég að pútta vel og á þriðja hring á Kia-mótinu þegar ég fékk átta fugla þá púttaði ég frábærlega. Svo dettur hann út og ég er ekki alveg nógu ánægð með það, ég fékk mér nýjan pútter í fyrradag og ætla að þreifa mig áfram með hann,“ sagði Ólafía sem var vongóð um að nýr pútter væri lausnin. „Kannski er þetta andlegt og ég þurfti bara að fá eitthvað nýtt.“ Minning sem ég gleymi aldrei Ólafía fagnaði skiljanlega er hún fékk holu í höggi á sautjándu holu vallarins. Var þetta í fyrsta sinn á ferlinum sem Ólafía fór holu í höggi en það kom á stærsta sviði golfsins. Var það hárrétt leið til að svara fyrir skolla á holunni áður. „Ég reyni alltaf að hugsa ekkert út í síðustu holu þegar ég geng á næsta teig, ég man bara að við þurftum að bíða aðeins eftir ráshópnum á undan áður en við fengum að slá. Það var óvænt að sjá höggið fara niður, ég hef fengið nokkra erni á ferlinum en aldrei holu í höggi,“ sagði Ólafía glöð í b ra g ð i e r h ú n r i f j - aði þetta u p p e n hún fékk e i n m i t t örn fyrr á hringnum. „Ég hef áður s l e g i ð n i ð u r úr löngu höggi en aldrei á par þrjú holu. Fyrst hélt ég að hann væri bara alveg við holuna en svo sá ég hann hverfa niður. Þetta er minning sem ég gleymi aldrei þó að ég hafi misst af niðurskurðinum,“ sagði Ólafía sem fékk hamingjuóskir frá fólki er hún fylgdist með lokadög- unum af hliðarlínunni. „Það voru ótrúlega margir sem stöðvuðu mig og sögðu mér að þeir hefðu séð höggið og vildu óska mér til hamingju. Ég fann fyrir miklum áhuga á svæðinu eftir þetta.“ Ólafíu fataðist flugið á öðrum degi er hún fékk tvo skramba, þrjá skolla og lék á sex höggum yfir pari. Hún hefur verið að fá talsvert af skrömb- um í byrjun árs. „Það skiptir öllu máli hvernig þeir koma, þarna voru báðir algjör óþarfi því stutta spilið var að svíkja mig. Á annarri holunni slæ ég inn af 40 metra færi og ég þrípútta sem er fáránlegt,“ sagði Ólafía og hélt áfram: „Ég vissi þegar skammt var eftir að niðurskurðurinn á svona sterku móti yrði ekki á fjórum yfir pari og ég fór að reyna að sækja. Ég þurfti að fá fugla og þá er meiri hætta á mis- tökum eins og gerðist undir lokin þegar ég miðaði á pinna en fór í sandgryfjuna.“ Finnst skemmtilegra á æfingasvæðinu Ólafía er á öðru keppnistímabili sínu á LPGA-mótaröðinni en hún hafnaði í 73. sæti peningalistans á fyrsta ári sínu. Tryggði það henni fullan þátttökurétt á þessu ári sem gefur henni betra tækifæri til að velja þau mót, sem hún tekur þátt í, eftir eigin hentisemi. Kvaðst hún að tímabilinu loknu í fyrra hafa fundið fyrir þreytu enda vildi hún ekki missa af neinum tækifærum en hún getur betur stýrt álaginu í ár. Næstu tólf mót fara fram í Banda- ríkjunum en törnin hefst með móti á Hawaii á fimmtudaginn þar sem Ólafía verður meðal þátttakenda. „Mér líður bara nokkuð vel núna, ég tók þessa viku sem æfingaviku og fer svo til Hawaii á næstu dögum og þá hefst næsta törn en svo get ég leyft mér að taka frí á einu móti og lengt hvíldartímann. Það gat verið yfir- þyrmandi að horfa á dagskrána og öll ferðalögin en það er annað í ár. Ég er komin með gott skipulag á hvern- ig á að takast á við öll ferðalögin og gengur betur að aðlagast í ár.“ 99. Ólafía er í 99. sæti á styrkleikalista lPGa en hún endaði í 73. sæti í fyrra. 3 Ólafía hefur fenGið þrjá erni á fimm mÓtum. aðeins sex kylfinGar hafa fenGið fleiri í ár. 10 Ólafía Var í tíunda sæti í kePPni um nÝliða ársins hjá lPGa í fyrra. það Var ÓVænt að sjá boltann fara niður, þetta Var í fyrsta sinn sem éG fer holu í höGGi. 7 . a p r í l 2 0 1 8 l a U G a r D a G U r40 H e l G i n ∙ f r É T T a B l a ð i ð 0 7 -0 4 -2 0 1 8 0 4 :3 3 F B 1 2 8 s _ P 1 0 5 K .p 1 .p d f F B 1 2 8 s _ P 1 0 4 K .p 1 .p d f F B 1 2 8 s _ P 0 2 4 K .p 1 .p d f F B 1 2 8 s _ P 0 2 5 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 F 6 0 -A 1 F 4 1 F 6 0 -A 0 B 8 1 F 6 0 -9 F 7 C 1 F 6 0 -9 E 4 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 8 B F B 1 2 8 s _ 6 _ 4 _ 2 0 1 8 C M Y K
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.