Fréttablaðið - 07.04.2018, Síða 104
Engin miskunn á stórmótum
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir atvinnukylfingur fór í fyrsta sinn holu í höggi á einu af risamótunum
á dögunum. Engin miskunn var sýnd þeim kylfingum sem fóru út af brautinni og missti hún af
niðurskurðinum. Fram undan er þétt dagskrá sem hefst með móti á Hawaii á fimmtudaginn.
Golf Ólafía Þórunn Kristinsdóttir,
atvinnukylfingur úr GR og íþrótta-
maður ársins, dvelur þessa dagana í
Kaliforníuríki í Bandaríkjunum en
hún er á ferð og flugi á LPGA-móta-
röðinni, sterkustu mótaröð heims.
Tók hún þátt í fyrsta risamóti ársins
á dögunum og var annar tveggja
kylfinga sem fóru holu í höggi á Ana
Inspiration-mótinu.
Hins vegar komst hún ekki í gegn-
um niðurskurðinn eftir slakan hring
á öðrum degi.
Var þetta fjórða risamót hennar
á rúmu ári en hún fær svo þátttöku-
rétt á bandaríska meistaramótinu
í byrjun sumars og hefur þá tekið
þátt í öllum risamótunum fimm í
kvennagolfinu.
Ekkert mót er á mótaröðinni
þessa helgina og er hún við æfingar
í sólinni en er einnig með augastað
á Masters-mótinu.
Engin miskunn
á þessum mótum
Um síðustu helgi var leikið á Miss-
ion Hills Country Club en Ólafía
lék völlinn árið 2016 með góðum
árangri. Hún lék völlinn á ný fyrir
þremur vikum fyrir mót og svo degi
fyrir en sagði að það hefði verið allt
annað þegar mótið var ræst.
„Völlurinn var afar erfiður, braut-
irnar voru þröngar og utan braut-
anna var grasið ótrúlega þungt og
erfitt. Ef þú fórst út af braut þá þurft-
irðu að íhuga að vippa aftur inn á
brautina í staðinn fyrir að reyna
við flötina, grasið var hátt og þétt
og erfitt að slá boltann þaðan. Ég
lenti í töluverðum vandræðum þar
því ég bjóst ekki við að brautirnar
yrðu svona þröngar og var alltaf að
reyna að bjarga mér,“ sagði Ólafía
sem fann brautina aðeins fjórtán
sinnum í upphafshöggunum 28.
„Þegar ég spilaði hérna í undanrás-
unum var karginn ekki jafn þykkur
og bara fyrir mánuði var þetta allt
öðruvísi en það er engin miskunn
á stórmótum. Eftir á hefði ég þurft
að undirbúa mig betur og öðruvísi,
æfa mun meira með drævernum
eða stutta leikinn. Annað sem var að
trufla mig í því var breytilegt hitastig,
ég átti oft í erfiðleikum með að velja
járn,“ sagði Ólafía en Pernilla Lind-
berg, sigurvegari mótsins, var einnig
í vandræðum með upphafshöggin
en náði að bjarga sér á stutta spilinu.
„Pernilla náði, fannst manni, allt-
af að bjarga sér með stutta spilinu,
hún var oft utan brautar en virtist
alltaf ná að bjarga pari þegar ég
var meira að missa þetta í skolla.
Hún var frábær í stutta spilinu um
helgina,“ sagði Ólafía um Pernillu
sem átti gott mót með járnunum og
frábæra daga með pútterinn í hendi.
Vantar stöðugleika í púttunum
Ólafía hefur verið í örlitlum vand-
ræðum með pútterinn undanfarnar
vikur en hún er að reyna að fá meiri
stöðugleika í spilamennskunni
á flötinni. Á bestu dögum sínum
hefur hún haldið sér undir þrjátíu
púttum en á slæmum dögum fer
þetta upp í 35, fimm högga sveifla.
„Ég vildi vinna í meiri stöðug-
leika í púttleiknum, í fyrra púttaði
ég kannski frábærlega eina vikuna
og illa vikuna eftir það. Á Bahama-
eyjum var ég að pútta vel og á þriðja
hring á Kia-mótinu þegar ég fékk
átta fugla þá púttaði ég frábærlega.
Svo dettur hann út og ég er ekki
alveg nógu ánægð með það, ég fékk
mér nýjan pútter í fyrradag og ætla
að þreifa mig áfram með hann,“
sagði Ólafía sem var vongóð um að
nýr pútter væri lausnin.
„Kannski er þetta andlegt og ég
þurfti bara að fá eitthvað nýtt.“
Minning sem ég gleymi aldrei
Ólafía fagnaði skiljanlega er hún
fékk holu í höggi á sautjándu holu
vallarins. Var þetta í fyrsta sinn á
ferlinum sem Ólafía fór holu í höggi
en það kom á stærsta sviði golfsins.
Var það hárrétt leið til að svara fyrir
skolla á holunni áður.
„Ég reyni alltaf að hugsa ekkert út
í síðustu holu þegar ég geng á næsta
teig, ég man bara að við þurftum
að bíða aðeins eftir ráshópnum á
undan áður en við fengum að slá.
Það var óvænt að sjá höggið fara
niður, ég hef fengið nokkra erni á
ferlinum en aldrei holu
í höggi,“ sagði
Ólafía glöð í
b ra g ð i e r
h ú n r i f j -
aði þetta
u p p e n
hún fékk
e i n m i t t
örn fyrr á
hringnum.
„Ég hef áður
s l e g i ð n i ð u r
úr löngu höggi
en aldrei á par
þrjú holu. Fyrst
hélt ég að hann væri
bara alveg við holuna en svo sá ég
hann hverfa niður. Þetta er minning
sem ég gleymi aldrei þó að ég hafi
misst af niðurskurðinum,“ sagði
Ólafía sem fékk hamingjuóskir frá
fólki er hún fylgdist með lokadög-
unum af hliðarlínunni.
„Það voru ótrúlega margir sem
stöðvuðu mig og sögðu mér að þeir
hefðu séð höggið og vildu óska mér
til hamingju. Ég fann fyrir miklum
áhuga á svæðinu eftir þetta.“
Ólafíu fataðist flugið á öðrum degi
er hún fékk tvo skramba, þrjá skolla
og lék á sex höggum yfir pari. Hún
hefur verið að fá talsvert af skrömb-
um í byrjun árs.
„Það skiptir öllu máli hvernig
þeir koma, þarna voru báðir algjör
óþarfi því stutta spilið var að svíkja
mig. Á annarri holunni slæ ég inn
af 40 metra færi og ég þrípútta sem
er fáránlegt,“ sagði Ólafía og hélt
áfram:
„Ég vissi þegar skammt var eftir
að niðurskurðurinn á svona sterku
móti yrði ekki á fjórum yfir pari og
ég fór að reyna að sækja. Ég þurfti að
fá fugla og þá er meiri hætta á mis-
tökum eins og gerðist undir lokin
þegar ég miðaði á pinna en fór í
sandgryfjuna.“
Finnst skemmtilegra
á æfingasvæðinu
Ólafía er á öðru keppnistímabili
sínu á LPGA-mótaröðinni en hún
hafnaði í 73. sæti peningalistans á
fyrsta ári sínu. Tryggði það henni
fullan þátttökurétt á þessu ári sem
gefur henni betra tækifæri til að
velja þau mót, sem hún tekur þátt
í, eftir eigin hentisemi.
Kvaðst hún að tímabilinu loknu í
fyrra hafa fundið fyrir þreytu enda
vildi hún ekki missa af neinum
tækifærum en hún getur betur stýrt
álaginu í ár.
Næstu tólf mót fara fram í Banda-
ríkjunum en törnin hefst með móti
á Hawaii á fimmtudaginn þar sem
Ólafía verður meðal þátttakenda.
„Mér líður bara nokkuð vel núna,
ég tók þessa viku sem æfingaviku og
fer svo til Hawaii á næstu dögum og
þá hefst næsta törn en svo get ég leyft
mér að taka frí á einu móti og lengt
hvíldartímann. Það gat verið yfir-
þyrmandi að horfa á dagskrána og
öll ferðalögin en það er annað í ár. Ég
er komin með gott skipulag á hvern-
ig á að takast á við öll ferðalögin og
gengur betur að aðlagast í ár.“
99.
Ólafía er í 99. sæti
á styrkleikalista
lPGa en hún endaði í
73. sæti í fyrra.
3
Ólafía hefur
fenGið þrjá
erni á fimm
mÓtum. aðeins
sex kylfinGar
hafa fenGið
fleiri í ár.
10
Ólafía Var í
tíunda sæti í
kePPni um nÝliða
ársins hjá lPGa í
fyrra.
það Var ÓVænt að sjá
boltann fara niður,
þetta Var í fyrsta sinn
sem éG fer holu í höGGi.
7 . a p r í l 2 0 1 8 l a U G a r D a G U r40 H e l G i n ∙ f r É T T a B l a ð i ð
0
7
-0
4
-2
0
1
8
0
4
:3
3
F
B
1
2
8
s
_
P
1
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
1
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
2
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
F
6
0
-A
1
F
4
1
F
6
0
-A
0
B
8
1
F
6
0
-9
F
7
C
1
F
6
0
-9
E
4
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
8
B
F
B
1
2
8
s
_
6
_
4
_
2
0
1
8
C
M
Y
K