Fréttablaðið - 07.04.2018, Page 106

Fréttablaðið - 07.04.2018, Page 106
KOMDU Í – dásamleg deild samfélagsins OPIÐ UM HELGAR FRÁ KL. 11 – 17 K V IK A Fyrir tæpri viku gerðu blaðamenn landsins sér það að leik að plata les-endur sína. Sannsögli og nákvæmni í frásögnum eru alla jafna þau gildi sem blaðamenn vilja halda á lofti, en einn dag á ári er gerð undantekning frá því. Það er fyrsta apríl. Sú hefð að helga einn vordag hrekkjum og ærslum virðist æva- gömul. Með góðum vilja má því rekja sögu aprílgabbsins allt til Róma- veldis hins forna. Sá siður að senda fólk erindisleysu í aprílmánuði og gera viðkomandi þannig að apríl- glóp virðist sömuleiðis gamalgróin. Samkvæmt sumum heimildum virðist þessi skemmtun ekki hafa verið bundin sérstaklega við fyrsta dag mánaðarins, en með tímanum virðist sú dagsetning þó hafa tekið völdin – enda kannski auðveldara að umbera einn dag á varðbergi fyrir hrekkjum gárunga en heilan mánuð. Það var þó í Bandaríkjunum sem fjölmiðlar tóku aprílgöbbin upp á sína arma. Þar í landi var sterk hefð fyrir blöðum sem lifðu á að spinna upp lygafréttir, lesendum sínum til skemmtunar. Í stríði blaðakónga um að selja fleiri blöð voru flest brögð leyfileg og sannleikurinn oft meðhöndlaður á frjálslegan hátt. Það var því ekki svo ýkja stórt stökk fyrir bandaríska ritstjóra að slá á létta strengi þann fyrsta apríl, þótt koll- egar þeirra í Evrópu fylltust skelfingu og hryllingi við tilhugsunina eina. Fyrstu aprílgöbb bandarísku dag- blaðanna gengu oftar en ekki út á falsaðar myndir. Frægt dæmi var forsíðumynd blaðsins Madison Capital-Times sem sýndi þinghúsið í Wisconsin hrynja saman á drama- tískan hátt. Jafnvel glámskyggnasti lesandi gat þó skilið hvað klukkan sló við lestur sjálfrar fréttarinnar, sem gekk einkum út á að innihalds- laus loforðaflaumur og gaspur þing- manna hefði safnast fyrir í hvelfingu hússins og að lokum sprungið með herfilegum afleiðingum. Var raunar alvanalegt á þessum upphafsárum aprílgabba í blöðum, að lesendur væru upplýstir um það í lok fréttar- innar að um uppspuna væri að ræða. Snjóbylur frá Íslandi Fyrstu íslensku aprílgöbbin voru í þessum anda. Þau birtust í Morgun- blaðinu og Vísi árið 1953 og létu mis- mikið yfir sér. „Fannkyngi á miðri Sahara!“ sagði í fyrirsögn á lítilli klausu á baksíðu Vísis. Heimildar- menn blaðsins í París sögðu frá því að lægð ofan frá Íslandi hefði flutt með sér óhemjumikla snjókomu, þannig að margra mannhæða fannir lægju nú yfir stórum hlutum Sahara-eyði- merkurinnar, þar sem annars hefði ekki fallið úrkoma í margar aldir. Til að koma í veg fyrir allan misskilning var þó sett klausa í lok fréttarinnar, sem prentuð var á haus, þar sem stóð: „Afsakið – 1. apríl.“ Gabb Morgunblaðsins var metn- aðarfyllra, en það var loftmynd af Reykjavík, þar sem sjá mátti strætis- vagn með vængjum og stéli. Í texta með myndinni kom fram að ljós- myndari blaðsins hefði tekið hana kl. 10:61 (!) úr flugvél. Sýndi hún fjögurra hreyfla farþega- og vöru- flutningavél af nýjustu gerð og hefði komið til tals að halda uppi sam- göngum milli Reykjavíkur og Akra- ness á slíkum vélum. Daginn eftir útskýrði blaðið gabb- ið, sem leitt hefði í ljós hvílík töfra- brögð mætti framkvæma með ljós- myndatækni. Staðhæfði blaðamaður að fjöldi lesenda hefði látið blekkjast Allt í plati! Saga til næsta bæjar Stefán Pálsson skrifar um aprílgöbb. og hringt á ritstjórnarskrifstofuna til að leita frekari upplýsinga. Flestir hafi þó séð í gegnum gabbið. Aftur var það myndadeild Morgun blaðsins sem sá um apríl- gabbið árið eftir. Þar var því slegið upp að ameríski stórleikarinn Tyrone Power hefði heimsótt Reykja- vík og mátti sjá hann á mynd ásamt Haraldi Á. Sigurðssyni leikara og stórkaupmanni og Bergi dyraverði í Sjálfstæðishúsinu. Tyrone Power hafði millilent á Íslandi árið 1947 og varð mikið fár í kringum komu hans þá. Verður því ekki sagt að gabbið hafi verið ýkja frumlegt og þótt myndin með fréttinni væri hagan- lega samansett máttu lesendur sjá í gegnum blekkinguna, enda var myndin sem notuð var af leikar- anum sú sama og tekin var sjö árum fyrr og hafði margoft birst á prenti. Staðhæfði blaðið þó að fjöldi ungra lesenda hefði hringt til blaðsins til að forvitnast um hvort leikarinn væri örugglega farinn úr landi. Hitt blaðið sem birti aprílgabb árið 1954 var Tíminn. Flutti blaðið lesendum sínum öllu æsilegri sögu en af endurkomu gamallar Holly- woodstjörnu. Á baksíðu Tímans var sagt frá því að fljúgandi diskur hefði lent á Mýrdalssandi daginn áður. Útlit hins fljúgandi furðuhlutar féll vel að staðalmyndum um slík farar- tæki, en það var sagt eins og tveir matardiskar sem hvolft hefði verið saman, stálblátt á lit og án allra glugga. Eftir nokkurra mínútna við- dvöl á sandinum hefði farartækið hafið sig til flugs á ný en skilið eftir djúpa dæld í jarðveginum, um dag- sláttu að stærð. Hafi lesendur Tímans látið blekkj- ast, var þeim snarlega kippt niður á jörðina í lokasetningu fréttarinnar, þar sem bent var á dagsetninguna og tekið fram að fréttin væri í samræmi við það. Daginn eftir sagði Tíminn frá því að helstu dagblöð Evrópu hefðu blekkt lesendur sína í tilefni dagsins og tiltók nokkur velheppnuð dæmi. Árið eftir færðu Tímamenn sig upp á skaftið og var enginn varnagli um fyrsta apríl rekinn í frétt blaðsins af leiðtogafundi Churchills, Eisen- howers og Bulganins sem halda skyldi í Reykjavík síðar í mánuð- inum. Valdatíma Churchills á stóli forsætisráðherra var að ljúka og stað- hæfði blaðið að með þessu vildu leið- togarnir uppfylla ósk gamla manns- ins um friðarfund. Hefði íslenska ríkisstjórnin fallist á málaleitanina, en líklega yrði leiðtogafundurinn haldinn í hátíðarsal Háskólans. Daginn eftir hældist Tíminn um, hversu vel hefði tekist til með apríl- gabbið og sagði sögur af ýmsum Reykvíkingum sem hefðu látið plat- ast, þar á meðal harðfullorðið fólk sem hafi rætt í þaula hvernig best yrði að berja þjóðhöfðingjana frægu augum. Ekkert hinna dagblaðanna bauð upp á gabb í tilefni dagsins og skrifaði Alþýðublaðið meira að segja leiðara í vandlætingartón þar sem Tíminn var skammaður fyrir þessa dægrastyttingu og því bætt við að erlendis tíðkaðist þessi siður helst hjá blöðum sem ekki væru vönd að virðingu sinni. Fljótasiglingar og spaghettí Hvort umvandanir Alþýðublaðsins höfðu mikil áhrif skal ósagt látið, en árin 1956 og 1957 bar fyrsta apríl upp á sunnudag og mánudag. Seinna árið kom Vísir út eitt dagblaða á þeim degi og birti smáklausu um að forsætis- ráðherrann Hermann Jónasson hefði ákveðið að segja af sér, eftir að hafa uppgötvað að völd væru ekki eftir- sóknarverð og að stjórnin hefði svikið öll sín loforð. Ef til vill er þó réttara að líta á fréttina sem pólitíska skrítlu en eiginlegt aprílgabb. Þennan sama dag birti Ríkis- útvarpið hins vegar sitt fyrsta gabb, sem segja má að hafi endanlega komið aprílgöbbum fjölmiðla á kortið. Alvörugefnir fréttamenn Rík- isútvarpsins lýstu þá siglingu skipsins Vanadísar upp Ölfusá. Fjölmargir bitu á agnið og var um fátt meira talað en þessa merku siglingu. Hældi Alþýðu- blaðið þessu velheppnaða aprílgabbi sérstaklega og virtist öll hneykslunin frá því tveimur árum fyrr á bak og burt. Ástæða þess að Vanadísar-gabbið varð svo árangursríkt er vafalítið sú mikla virðing sem borin var fyrir fréttamönnum Ríkisútvarpsins, sem taldir voru handhafar sannleikans og engum datt í hug að tengja við ærsl og léttúð. Það var skemmtileg tilviljun að þennan sama dag, birti BBC sitt frægasta og bestheppnaða aprílgabb í sjónvarpsþættinum Panorama. Þar var sýnd löng frétt um uppskeru spag- ettítrjánna á Ítalíu, þar sem bændur tíndu spag ettílengjurnar varlega niður úr trjákrónunum og lögðu þvínæst til þerris. Áhorfendur trúðu fréttinni eins og nýju neti, enda stjórnendur Pano- rama álitnir nálega óskeikulir. Eins og drengurinn sem hrópaði „úlfur!“ fékk að reyna á eigin skinni, er fyrsta gabbið alltaf auðveldast. BBC og Ríkisútvarpið hafa sent út fjöl- mörg snjöll aprílgöbb frá árinu 1957 en engin þeirra hafa þó reynst jafn áhrifarík. Frá því snemma á sjöunda ára- tugnum hafa aprílgöbb verið fastur liður hjá flestum íslenskum fjöl- miðlum. Myndaðist fljótlega sú hefð að ekki væri nóg að blekkja lesendur, heldur yrði helst að fá þá til að „hlaupa apríl“ – að fara eitthvert erindisleysu. Hafa því flest aprílgöbb snúist um að lofa fágætum og eftirsóttum varningi á kostakjörum, rétt á meðan birgðir endast. En það er önnur saga. „Fannkyngi á miðri Sahara!“ Sagði í Fyrir- Sögn á lítilli klauSu á bakSíðu VíSiS. heimild- armenn blaðSinS í ParíS Sögðu Frá þVí að lægð oFan Frá íSlandi heFði Flutt með Sér óhemju mikla Snjókomu, þann- ig að margra mann- hæða Fannir lægju nú yFir Stórum hlutum Sahara-eyðimerkur- innar, þar Sem annarS heFði ekki Fallið úr- koma í margar aldir. 7 . a p r í l 2 0 1 8 l a U G a r D a G U r42 H e l G i n ∙ F r É T T a B l a ð i ð 0 7 -0 4 -2 0 1 8 0 4 :3 3 F B 1 2 8 s _ P 1 0 6 K .p 1 .p d f F B 1 2 8 s _ P 1 0 3 K .p 1 .p d f F B 1 2 8 s _ P 0 2 3 K .p 1 .p d f F B 1 2 8 s _ P 0 2 6 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 F 6 0 -9 D 0 4 1 F 6 0 -9 B C 8 1 F 6 0 -9 A 8 C 1 F 6 0 -9 9 5 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 8 A F B 1 2 8 s _ 6 _ 4 _ 2 0 1 8 C M Y K
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.