Fréttablaðið - 07.04.2018, Qupperneq 106
KOMDU
Í
– dásamleg deild samfélagsins
OPIÐ UM HELGAR FRÁ KL. 11 – 17
K
V
IK
A
Fyrir tæpri viku gerðu blaðamenn landsins sér það að leik að plata les-endur sína. Sannsögli og nákvæmni í frásögnum eru alla jafna þau gildi
sem blaðamenn vilja halda á lofti, en
einn dag á ári er gerð undantekning
frá því. Það er fyrsta apríl.
Sú hefð að helga einn vordag
hrekkjum og ærslum virðist æva-
gömul. Með góðum vilja má því rekja
sögu aprílgabbsins allt til Róma-
veldis hins forna. Sá siður að senda
fólk erindisleysu í aprílmánuði og
gera viðkomandi þannig að apríl-
glóp virðist sömuleiðis gamalgróin.
Samkvæmt sumum heimildum
virðist þessi skemmtun ekki hafa
verið bundin sérstaklega við fyrsta
dag mánaðarins, en með tímanum
virðist sú dagsetning þó hafa tekið
völdin – enda kannski auðveldara
að umbera einn dag á varðbergi fyrir
hrekkjum gárunga en heilan mánuð.
Það var þó í Bandaríkjunum sem
fjölmiðlar tóku aprílgöbbin upp á
sína arma. Þar í landi var sterk hefð
fyrir blöðum sem lifðu á að spinna
upp lygafréttir, lesendum sínum til
skemmtunar. Í stríði blaðakónga
um að selja fleiri blöð voru flest
brögð leyfileg og sannleikurinn oft
meðhöndlaður á frjálslegan hátt.
Það var því ekki svo ýkja stórt stökk
fyrir bandaríska ritstjóra að slá á létta
strengi þann fyrsta apríl, þótt koll-
egar þeirra í Evrópu fylltust skelfingu
og hryllingi við tilhugsunina eina.
Fyrstu aprílgöbb bandarísku dag-
blaðanna gengu oftar en ekki út á
falsaðar myndir. Frægt dæmi var
forsíðumynd blaðsins Madison
Capital-Times sem sýndi þinghúsið
í Wisconsin hrynja saman á drama-
tískan hátt. Jafnvel glámskyggnasti
lesandi gat þó skilið hvað klukkan
sló við lestur sjálfrar fréttarinnar,
sem gekk einkum út á að innihalds-
laus loforðaflaumur og gaspur þing-
manna hefði safnast fyrir í hvelfingu
hússins og að lokum sprungið með
herfilegum afleiðingum. Var raunar
alvanalegt á þessum upphafsárum
aprílgabba í blöðum, að lesendur
væru upplýstir um það í lok fréttar-
innar að um uppspuna væri að ræða.
Snjóbylur frá Íslandi
Fyrstu íslensku aprílgöbbin voru í
þessum anda. Þau birtust í Morgun-
blaðinu og Vísi árið 1953 og létu mis-
mikið yfir sér. „Fannkyngi á miðri
Sahara!“ sagði í fyrirsögn á lítilli
klausu á baksíðu Vísis. Heimildar-
menn blaðsins í París sögðu frá því að
lægð ofan frá Íslandi hefði flutt með
sér óhemjumikla snjókomu, þannig
að margra mannhæða fannir lægju
nú yfir stórum hlutum Sahara-eyði-
merkurinnar, þar sem annars hefði
ekki fallið úrkoma í margar aldir. Til
að koma í veg fyrir allan misskilning
var þó sett klausa í lok fréttarinnar,
sem prentuð var á haus, þar sem
stóð: „Afsakið – 1. apríl.“
Gabb Morgunblaðsins var metn-
aðarfyllra, en það var loftmynd af
Reykjavík, þar sem sjá mátti strætis-
vagn með vængjum og stéli. Í texta
með myndinni kom fram að ljós-
myndari blaðsins hefði tekið hana
kl. 10:61 (!) úr flugvél. Sýndi hún
fjögurra hreyfla farþega- og vöru-
flutningavél af nýjustu gerð og hefði
komið til tals að halda uppi sam-
göngum milli Reykjavíkur og Akra-
ness á slíkum vélum.
Daginn eftir útskýrði blaðið gabb-
ið, sem leitt hefði í ljós hvílík töfra-
brögð mætti framkvæma með ljós-
myndatækni. Staðhæfði blaðamaður
að fjöldi lesenda hefði látið blekkjast
Allt í
plati!
Saga
til næsta
bæjar
Stefán Pálsson
skrifar um aprílgöbb.
og hringt á ritstjórnarskrifstofuna
til að leita frekari upplýsinga. Flestir
hafi þó séð í gegnum gabbið.
Aftur var það myndadeild
Morgun blaðsins sem sá um apríl-
gabbið árið eftir. Þar var því slegið
upp að ameríski stórleikarinn
Tyrone Power hefði heimsótt Reykja-
vík og mátti sjá hann á mynd ásamt
Haraldi Á. Sigurðssyni leikara og
stórkaupmanni og Bergi dyraverði
í Sjálfstæðishúsinu. Tyrone Power
hafði millilent á Íslandi árið 1947 og
varð mikið fár í kringum komu hans
þá. Verður því ekki sagt að gabbið
hafi verið ýkja frumlegt og þótt
myndin með fréttinni væri hagan-
lega samansett máttu lesendur sjá
í gegnum blekkinguna, enda var
myndin sem notuð var af leikar-
anum sú sama og tekin var sjö árum
fyrr og hafði margoft birst á prenti.
Staðhæfði blaðið þó að fjöldi ungra
lesenda hefði hringt til blaðsins til
að forvitnast um hvort leikarinn væri
örugglega farinn úr landi.
Hitt blaðið sem birti aprílgabb
árið 1954 var Tíminn. Flutti blaðið
lesendum sínum öllu æsilegri sögu
en af endurkomu gamallar Holly-
woodstjörnu. Á baksíðu Tímans var
sagt frá því að fljúgandi diskur hefði
lent á Mýrdalssandi daginn áður.
Útlit hins fljúgandi furðuhlutar féll
vel að staðalmyndum um slík farar-
tæki, en það var sagt eins og tveir
matardiskar sem hvolft hefði verið
saman, stálblátt á lit og án allra
glugga. Eftir nokkurra mínútna við-
dvöl á sandinum hefði farartækið
hafið sig til flugs á ný en skilið eftir
djúpa dæld í jarðveginum, um dag-
sláttu að stærð.
Hafi lesendur Tímans látið blekkj-
ast, var þeim snarlega kippt niður á
jörðina í lokasetningu fréttarinnar,
þar sem bent var á dagsetninguna og
tekið fram að fréttin væri í samræmi
við það. Daginn eftir sagði Tíminn frá
því að helstu dagblöð Evrópu hefðu
blekkt lesendur sína í tilefni dagsins
og tiltók nokkur velheppnuð dæmi.
Árið eftir færðu Tímamenn sig upp
á skaftið og var enginn varnagli um
fyrsta apríl rekinn í frétt blaðsins
af leiðtogafundi Churchills, Eisen-
howers og Bulganins sem halda
skyldi í Reykjavík síðar í mánuð-
inum. Valdatíma Churchills á stóli
forsætisráðherra var að ljúka og stað-
hæfði blaðið að með þessu vildu leið-
togarnir uppfylla ósk gamla manns-
ins um friðarfund. Hefði íslenska
ríkisstjórnin fallist á málaleitanina,
en líklega yrði leiðtogafundurinn
haldinn í hátíðarsal Háskólans.
Daginn eftir hældist Tíminn um,
hversu vel hefði tekist til með apríl-
gabbið og sagði sögur af ýmsum
Reykvíkingum sem hefðu látið plat-
ast, þar á meðal harðfullorðið fólk
sem hafi rætt í þaula hvernig best
yrði að berja þjóðhöfðingjana frægu
augum. Ekkert hinna dagblaðanna
bauð upp á gabb í tilefni dagsins og
skrifaði Alþýðublaðið meira að segja
leiðara í vandlætingartón þar sem
Tíminn var skammaður fyrir þessa
dægrastyttingu og því bætt við að
erlendis tíðkaðist þessi siður helst
hjá blöðum sem ekki væru vönd að
virðingu sinni.
Fljótasiglingar og spaghettí
Hvort umvandanir Alþýðublaðsins
höfðu mikil áhrif skal ósagt látið, en
árin 1956 og 1957 bar fyrsta apríl upp
á sunnudag og mánudag. Seinna árið
kom Vísir út eitt dagblaða á þeim degi
og birti smáklausu um að forsætis-
ráðherrann Hermann Jónasson hefði
ákveðið að segja af sér, eftir að hafa
uppgötvað að völd væru ekki eftir-
sóknarverð og að stjórnin hefði svikið
öll sín loforð. Ef til vill er þó réttara að
líta á fréttina sem pólitíska skrítlu en
eiginlegt aprílgabb.
Þennan sama dag birti Ríkis-
útvarpið hins vegar sitt fyrsta gabb,
sem segja má að hafi endanlega
komið aprílgöbbum fjölmiðla á
kortið. Alvörugefnir fréttamenn Rík-
isútvarpsins lýstu þá siglingu skipsins
Vanadísar upp Ölfusá. Fjölmargir bitu
á agnið og var um fátt meira talað en
þessa merku siglingu. Hældi Alþýðu-
blaðið þessu velheppnaða aprílgabbi
sérstaklega og virtist öll hneykslunin
frá því tveimur árum fyrr á bak og
burt.
Ástæða þess að Vanadísar-gabbið
varð svo árangursríkt er vafalítið sú
mikla virðing sem borin var fyrir
fréttamönnum Ríkisútvarpsins, sem
taldir voru handhafar sannleikans og
engum datt í hug að tengja við ærsl og
léttúð. Það var skemmtileg tilviljun
að þennan sama dag, birti BBC sitt
frægasta og bestheppnaða aprílgabb
í sjónvarpsþættinum Panorama. Þar
var sýnd löng frétt um uppskeru spag-
ettítrjánna á Ítalíu, þar sem bændur
tíndu spag ettílengjurnar varlega niður
úr trjákrónunum og lögðu þvínæst til
þerris. Áhorfendur trúðu fréttinni eins
og nýju neti, enda stjórnendur Pano-
rama álitnir nálega óskeikulir.
Eins og drengurinn sem hrópaði
„úlfur!“ fékk að reyna á eigin skinni,
er fyrsta gabbið alltaf auðveldast.
BBC og Ríkisútvarpið hafa sent út fjöl-
mörg snjöll aprílgöbb frá árinu 1957
en engin þeirra hafa þó reynst jafn
áhrifarík.
Frá því snemma á sjöunda ára-
tugnum hafa aprílgöbb verið fastur
liður hjá flestum íslenskum fjöl-
miðlum. Myndaðist fljótlega sú hefð
að ekki væri nóg að blekkja lesendur,
heldur yrði helst að fá þá til að „hlaupa
apríl“ – að fara eitthvert erindisleysu.
Hafa því flest aprílgöbb snúist um að
lofa fágætum og eftirsóttum varningi
á kostakjörum, rétt á meðan birgðir
endast. En það er önnur saga.
„Fannkyngi á miðri
Sahara!“ Sagði í Fyrir-
Sögn á lítilli klauSu á
bakSíðu VíSiS. heimild-
armenn blaðSinS í ParíS
Sögðu Frá þVí að lægð
oFan Frá íSlandi heFði
Flutt með Sér óhemju
mikla Snjókomu, þann-
ig að margra mann-
hæða Fannir lægju nú
yFir Stórum hlutum
Sahara-eyðimerkur-
innar, þar Sem annarS
heFði ekki Fallið úr-
koma í margar aldir.
7 . a p r í l 2 0 1 8 l a U G a r D a G U r42 H e l G i n ∙ F r É T T a B l a ð i ð
0
7
-0
4
-2
0
1
8
0
4
:3
3
F
B
1
2
8
s
_
P
1
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
1
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
2
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
2
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
F
6
0
-9
D
0
4
1
F
6
0
-9
B
C
8
1
F
6
0
-9
A
8
C
1
F
6
0
-9
9
5
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
8
A
F
B
1
2
8
s
_
6
_
4
_
2
0
1
8
C
M
Y
K