Fréttablaðið - 07.04.2018, Side 116
HAPPY HOUR Á
BARNUM 17-19
Martha & Niki frísýning 14:00
Kanntu skets að skrifa? Námskeið í sketsaskrifum 13:00
Krummi Klóki 14:00
Stand By Me 16:00
Doktor Proktor & Prumpuduftið 16:00
Grænuvellir: sjúklegt svínarí 16:00
Doktor Proktor & Tímabaðkarið 18:00
Benji the Dove 18:00
Stuttumyndir 12 - 15 ára frítt inn 18:00
Loving Vincent 20:00, 22:00
In this corner of the world 20:00
Andið eðlilega eng sub 20:00
Hleyptu Sól í hjartað 22:30
Spor 22:00
Skáldsagan Allt sundrast eftir nígeríska rithöf-undinn Chinua Achebe kom út í íslenskri þýðingu Elísu Bjargar Þorsteins-dóttur fyrir skömmu á
sextíu ára útgáfuafmæli bókarinnar.
Allt sundrast er talin til höfuðrita
afrískra bókmennta og Elísa Björg
segir að áhrif og mikilvægi verksins
séu slík að það hafi beinlínis verið
orðið vandræðalegt að hún hafi
aldrei komið út í íslenskri þýðingu.
„Ég verð reyndar að játa að ég þekkti
ekki bókina þegar ég var beðin um
þýða hana en hún heillaði mig
samstundis og mikilvægi hennar
má einfaldlega sjá út frá því að hún
hefur verið þýdd á 58 tungumál og
selst í yfir 20 milljónum eintaka. Allt
sundrast er í raun algjör yfirklassík í
afrískum bókmenntum.“
Opnaði Afríku
Elísa Björg bendir á að Allt sundrast
hafi í raun verið fyrsta skáldsagan
þar sem höfundur frá Afríku tekur
sér stöðu og kemur fram með rödd
álfunnar. „Það er líka merkilegt hvað
hún er fyrst í mörgu tilliti. Hún er
fyrsta skáldsaga Achebe, fyrst í trílóg-
íu, fyrst í ritröð Heinemanns African
Writers Series og fyrsta bókin um
líf Afríkumanna skrifuð af Afríku-
mönnum sjálfum. Fram að því hafði
alltaf verið skrifað um Afríku út frá
gestsauga og illu heilli þá fer það oft
út í góðlátlegt grín og ýkjusögur.
Achebe er sjálfur alinn upp í
svona blönduðu samfélagi eins og
þarna er lýst og hann þekkir því af
eigin raun það sem hann er að skrifa
um. Þetta er meginforsenda þess að
hann hefur svona gríðarleg áhrif á
afrískar bókmenntir og það er til fal-
leg tilvitnun í Chimamanda Ngozi
Adichie sem skrifaði meðal annars
Við ættum öll að vera femínistar, en
hún sagði: „Ég held að ég geti skrifað
vegna þess að Chinua Achebe skrif-
aði.“ Hún hafði lengi lesið eintómar
skáldsögur um Afríku sem pössuðu
ekkert við hennar upplifun. Þannig
að hann opnaði ekki aðeins Afríku
fyrir öðrum álfum heldur opnaði
hann Afríku fyrir Afríkubúum
sjálfum. Sem slíkur skiptir hann því
auðvitað ótrúlega miklu máli.“
Eitt af því sem vekur athygli við
lestur Allt sundrast er að Achebe
hikar ekki við að nýta sér vestræna
bókmenntahefð. Elísa Björg tekur
undir það og bendir á að bókinni sé
skipt í þrjá hluta og hún sé um margt
uppbyggð eins og klassískt grískt
leikrit. „Að auki þá er titill verksins
sóttur í ljóð eftir W.B. Yeats og fleira
mætti tiltaka en þetta er mjög með-
vituð leið til þess að ná til vestrænna
lesenda. Hins vegar var hann stund-
um skammaður fyrir það að skrifa á
Þetta er bókin sem ruddi brautina og opnaði Afríku
Skáldsagan Allt sundrast eftir Chinua Achebe markaði fyrir sextíu árum risavaxin tímamót í afrískum
bókmenntum en hún kom út fyrir skömmu í fyrsta sinn í íslenskri þýðingu Elísu Bjargar Þorsteinsdóttur.
Elísa Björg Þorsteinsdóttir, þýðandi Allt sundrast, segir bókina eiga brýnt erindi við okkur í dag enda arfleifð Vesturlanda í álfunni skelfileg. FréttABlAðið/Ernir
snýr aftur þá er samfélagið ger-
breytt.
Hið gerbreytta samfélag gengur í
raun og veru út á íhlutun og frekju-
gang vestrænna nýlenduríkja
sem beita fyrir sig öllum leiðum,
pólitískum, trúarlegum og efna-
hagslegum, til þess að vaða yfir allt
samfélagið og ná frumbyggjunum á
sitt band. En það má líka lesa þetta
með femínískum gleraugum og líta
á þetta sem harmsögu karlmennsk-
unnar. Það má vel fara þá leiðina,“
segir Elísa Björg létt í bragði.
Kynjahlutverkin skipta greini-
lega miklu máli í Allt sundrast og
það birtist í ýmsum myndum. Frá-
sögnin er til að mynda skemmtileg
blanda af beinum og afdráttar-
lausum frásagnarstíl annars vegar og
svo litríkum þjóðsögum hins vegar.
„Já, þjóðsögurnar gegna gríðarlega
mikilvægu hlutverki. Þær eru líka –
og það fannst mér vænt um þegar
ég áttaði mig á því – rödd kvenna í
frásögninni. Konur eru þarna valda-
lausar og fyrirferðarlitlar en þjóð-
sögurnar og tungumálið eru þeirra
ríki. Mér finnst merkilegt að þeirra
valdefling skuli vera þarna því ef
karlmenn í sögunni hafa gaman
af sögum kvennanna þá eru þeir
aumingjar í augum karlanna og
Níundi kafli
Í fyrsta sinn í þrjár nætur svaf Okonkwo. Hann vakn-
aði einu sinni um miðja nótt og hugur hans reikaði til
undangenginna þriggja daga án þess að hann fyndi til
óróleika. Hann fór að velta því fyrir sér hvers vegna
hann hefði verið órólegur yfirleitt. Hann minnti á
mann sem undrast það í dagsbirtu að honum hafi
þótt draumur næturinnar svo skelfilegur. Hann teygði
sig og klóraði sér á lærinu þar sem moskítófluga hafði
stungið hann meðan hann svaf. Önnur vældi við
hægra eyrað á honum. Hann sló í eyrað og vonaði að
hann hefði drepið fluguna. Hvers vegna ráðast þær
alltaf á eyrun? Þegar hann var lítill hafði móðir hans
sagt honum sögu um það. En hún var jafn heimskuleg
og aðrar sögur kvenna. Moskító, sagði hún, hafði
beðið Eyra að giftast sér og Eyra samstundis oltið á
gólfið af hömlulausum hlátri. „Hversu langt heldurðu
að þú eigir ólifað?“ spurði Eyra. „Þú ert orðinn að
beinagrind nú þegar.“ Moskító hélt á brott niður-
lægður og í hvert sinn sem hann átti leið hjá sagði
hann Eyra að hann væri enn á lífi.
Allt sundrast eftir Chinua Achebe,
upphaf 9. kafla í þýðingu
Elísu Bjargar Þorsteinsdóttur
ensku, tungumáli kúgaranna, en þá
vísaði hann til þess að það nígeríska
ritmál sem er til er búið til af þessum
sömu kúgurum, nýlenduherrunum.
Þetta ritmál dregur tennurnar úr
þeim mállýskum sem tungumálið
býr yfir og Achebe sagði að það væri
þó betra að ná þessum sérkennum
tungumálsins og öllum þeim þjóð-
sögum sem er að finna í verkinu með
því að beita einfaldlega enskunni. Að
auki var enskan leið til þess að opna
Afríku fyrir útlendingum, þannig að
þetta var í raun meðvituð pólitísk
ákvörðun.“
Konur, sögur og aumingjar
Allt sundrast segir sögu hins ótta-
lausa Igbo-stríðsmanns Okonkwos
í upphafi nýlendutímans þegar
ágengir Evrópumenn ógna heimi
ættflokkanna á svæðinu. „Okonkwo
er mikill glímukappi, heljarmenni
og frekjuhundur eins og karlar
eiga að vera. En hann er miklu
viðkvæmari en hann vill vera láta
og skammast sín mikið fyrir það.
Hann á þrjár konur og átta börn sem
koma þó lítið við sögu. Hins vegar
er það þannig að eina manneskjan
sem hefur einhvern möguleika á að
hafa áhrif á þessa ofurhetju er dóttir
hans en ekki sonurinn enda harmar
Okonkwo það statt og stöðugt að
hún skuli ekki vera strákur. En svo
lendir hann í því að hetjuskapurinn
verður til þess að hann fremur glæp
og er rekinn í útlegð en þegar hann
feðraveldisins. Sonur aðalhetjunn-
ar er gott dæmi um þetta því hann
hefur gaman af því að hlusta á sögur
móður sinnar en vill svo auðvitað
ekki viðurkenna slíkan veikleika,“
segir Elísa Björg og getur ekki annað
en brosað. „Þessi andstæða á milli
karlmennskunnar og tungumáls
birtist líka mjög skemmtilega í því
að Okonkwo stamar og eftir því sem
hann verður æstari og lætur rymja
meira í sér, þeim mun óöruggari
verður hann í tungumálinu sem
endar með því að hann þarf að grípa
til hnefanna.“
Skelfileg arfleifð
Elísa Björg fæst við að kenna bæði
sögu og listasögu og hún segir að
vissulega leiti hún þangað þegar
tekist er á við að þýða verk á borð
við þetta. „Núna fyrir stundu var
ég einmitt að æsa mig mikið við
kennsluna því við vorum að fara yfir
nýlendutímann í Afríku. Það mátti
engu muna að ég færi að lesa fyrir
nemendur úr bókinni, en maður má
auðvitað ekki blanda þessu saman,
en bókin gerist á síðari hluta nítj-
ándu aldar og árið 1885 var haldinn
fundur í Berlín þar sem nýlendu-
veldin skiptu því sem eftir var af
Afríku á milli sín með reglustiku. Í
kjölfarið ryðjast þeir þarna inn og
sagan segir frá þessum umbrota-
tímum.“
En á þessi bók þá eitthvert erindi
við okkur í dag? „Já, svo sannarlega.
Það sagði einmitt einn nemandi
minn í tímanum áðan: „Er þetta
þá ástæðan fyrir því að ástandið er
svona eins og það er í Afríku dag?“
Og ég get ekki sagt annað en að það
eigi mikinn þátt í því. Arfleifð okkar
Vesturlanda í Afríku er skelfileg þar
sem við erum búin að mergsjúga
allt og erum hvergi nærri hætt.
Allt sundrast sýnir okkur það og er
öllum holl lesning.“
Magnús
Guðmundsson
magnus@frettabladid.is
7 . a p r í l 2 0 1 8 l a U G a r D a G U r52 m e n n i n G ∙ F r É T T a B l a ð i ð
menning
0
7
-0
4
-2
0
1
8
0
4
:3
3
F
B
1
2
8
s
_
P
1
2
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
1
1
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
1
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
F
6
0
-7
0
9
4
1
F
6
0
-6
F
5
8
1
F
6
0
-6
E
1
C
1
F
6
0
-6
C
E
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
1
2
8
s
_
6
_
4
_
2
0
1
8
C
M
Y
K